Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
KYNNINGARFUNDUR
7. JÚNÍ 2018
KL. 17:00 - 18:30
HILTON NORDICA
SUÐURLANDSBRAUT 2
SÖLUSÝNING
9. JÚNÍ 2018
KL. 13:00 - 16:00
ÁSHILDARMÝRI
SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPI
ÁSHILDARMÝRI
FRÍSTUNDALÓÐIR
www.ashildarmyri.is
FASTEIGNASALA REYKJAVÍKUR OG ÁSHILDARMÝRI kynna:
Fallegar sumarbústaðarlóðir í grónu landi til sölu ca. 75km frá Reykjavík.
KYNNINGARFUNDUR Fimmtudaginn 7.júní nk. kl.17:00 á Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2.
SÖLUSÝNING & KYNNING í Áshildarmýri, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, laugardaginn 9.júní kl.13:00
Allar nánari upplýsingar veitir Hera Björk í síma 774-1477 & herabjork@fr.is
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stjórn Rafnar hf. hefur ákveðið að
endurskipuleggja rekstur fyrirtæk-
isins en það mun hafa veruleg áhrif á
núverandi umsvif þess hér á landi.
Fyrirtækið var stofnað fyrir rúmum
áratug af frum-
kvöðlinum Össuri
Kristinssyni stoð-
tækjasmiði. Rafn-
ar hefur unnið að
þróun, hönnun og
smíði byltingar-
kenndrar tegund-
ar báta en
skrokklagið sem
þeir byggjast á
hefur á síðustu
árum hlotið fjölda
viðurkenninga vegna sérstakra eig-
inleika þess og mikillar sjóhæfni.
Leyfissamningar í forgrunni
Björn Jónsson, framkvæmdastjóri
Rafnar, segir að nú verði rekstrinum
snúið á nýja braut.
„Stjórn fyrirtækisins hefur ákveð-
ið að leggja höfuðáherslu á leyfis-
samninga við erlenda aðila og einnig
samninga um smíði á þeim bátum
sem við höfum hannað.“
Björn segir að ýmsir samverkandi
þættir séu þess valdandi að þessi
ákvörðun sé tekin nú.
„Óhagstætt efnahagsumhverfi
með mjög sterkri krónu hefur gert
okkur mjög erfitt fyrir. Þá hafa lang-
ar vegalengdir frá Íslandi á þá mark-
aði þar sem mestur áhugi er fyrir
hendi haft áhrif, sem og óhagstæð
viðskiptakjör fyrir birgja hér á landi.
Þá verður ekki komist hjá því að
nefna að takmarkaður áhugi inn-
lendra fjárfesta að aðkomu að fyrir-
tækinu hefur einnig haft áhrif á fjár-
mögnun fyrirtækisins til framtíðar.“
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu
í lok síðasta árs að Össur Kristinsson
hefði síðasta áratuginn lagt fimm
milljarða inn í fyrirtækið persónu-
lega.
Hin breytta stefna sem stjórnin
hefur nú tekið veldur því að starf-
semi fyrirtækisins leggst að mestu
af hér á landi og skipasmíðastöð þess
í Kópavogi verður lokað. Þá hefur
starfsfólki fyrirtækisins einnig verið
sagt upp. Smíðastöðin á Kársnesi er
ríflega 5.600 fermetrar að stærð.
„Síðustu ár hafa frumgerðir
bátanna okkar, sem smíðaðir hafa
verið í Kópavogi, vakið mjög jákvæð
viðbrögð og meðal annars verið
kynntar og seldar Landhelgisgæsl-
unni, ýmsum björgunarsveitum, er-
lendum stofnunum, fyrirtækjum og
einstaklingum,“ segir Björn.
Samið í Mið-Austurlöndum
Hann segir að leyfissamningarnir
séu nú í forgrunni og að viðræður við
marga aðila standi yfir um samninga
af því tagi.
„Við erum búnir að gera slíka
samninga og forsvarsmenn eins
þeirra, Al Seer Marine Technolo-
gies, sem er með höfuðstöðvar í Abú
Dabí í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum, hafa verið í heimsókn hjá
okkur síðustu daga hér á landi.“
Al Seer Marine mun smíða eigin
báta sem byggjast á skrokkhönnun
Rafnar og segir Björn margt spenn-
andi í farvatninu í þeim efnum.
„Þetta verða bæði mannaðir og
ómannaðir bátar. Þeir hyggjast
markaðssetja og selja skrokkhönn-
unina og Rafnar-báta í Mið-Austur-
löndum og Asíu. Þetta er mikilvægur
samningur fyrir bæði fyrirtækin,
gefur okkur aðgang að mjög stóru
markaðssvæði og Al Seer Marine að-
gang að skrokkhönnun sem gefur
þeirra eigin hönnun á ómönnuðum
bátum eiginleika umfram flest á
þeirra markaði.“
Halda áfram að kynna tæknina
Björn segir að heimsókn fulltrúa
Al Seer Marine sé liður í kynningar-
átaki sem tengist samningnum milli
fyrirtækjanna.
„Til að sýna fram á sjóhæfni báta
sem byggðir eru á skrokki Rafnar
var farið í siglingu hringinn í kring-
um Ísland. Það voru fjórir menn,
tveir starfsmenn okkar og fulltrú-
arnir frá Al Seer Marine, sem lögðu
af stað í 8,5 metra löngum opnum
báti frá okkur. Ferðin hófst kl. 13:00
á fimmtudaginn síðasta og þeir skil-
uðu sér til baka kl. 8:00 á laugar-
dagsmorgun. Þetta hefur aldrei ver-
ið gert í opnum báti og á svo
skömmum tíma en það tók ekki
nema 43 klukkustundir að sigla
hringinn. Það tókst þrátt fyrir tvö
stopp þar sem fyllt var á eldsneytis-
tankana. Mér finnst ósennilegt að
þetta verði leikið eftir,“ segir Björn.
Starfsemi Rafnar endurskipulögð
Sigling Til að sýna fram á sjóhæfni báta sem byggðir eru á skrokki Rafnar var farið í siglingu í kringum Ísland.
Björn
Jónsson
Áhersla lögð á gerð leyfissamninga við erlenda aðila sem og um smíði á bátum fyrirtækisins Öllu
starfsfólki fyrirtækisins sagt upp Takmarkaður áhugi íslenskra fjárfesta hefur sett strik í reikninginn