Morgunblaðið - 06.06.2018, Page 23

Morgunblaðið - 06.06.2018, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 ✝ Guðbjörg Her-björnsdóttir Vilhjálmsson, jafn- an kölluð Lillý, fæddist á Breiða- vík í Barða- strandarsýslu 22. mars 1930. Hún lést á Sólvangi í Hafnarfirði 26. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Her- björn Guðbjörnsson, bifreið- arstjóri í Reykjavík, f. 31.5. 1898, d. 12.2. 1984, og Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 9.9. 1896, d. 30.10. 1991. Systir Guð- bjargar var Lára, f. 1922, d. 2012. Eiginmaður Guðbjargar var Guðmundur W. Vilhjálmsson, lögfræðingur og fyrrverandi deildarstjóri hjá Eimskip og Thor, f. 6.10. 1967, mat- reiðslumaður. Eftir að skólagöngu sleppti starfaði Guðbjörg sem versl- unarmaður í Ísafold og Helga- felli og um alllangt skeið sem verkstjóri og staðgengill versl- unarstjóra í Gardínubúðinni. Eftir að börnin komust á legg vann hún lengi sem rómaður skólaliði í Garðaskóla í Garða- bæ. Guðbjörg lét víða til sín taka í félagsmálum. Hún sat um árabil í stjórn Kvenfélags Garðabæjar og var formaður þess um skeið og einnig for- maður Sambands kvenfélaga í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Guðbjörg var kjörin heiðurs- félagi beggja félaga. Guðbjörg og eiginmaður hennar voru samstiga í lifandi áhuga á klass- ískri tónlist, sóttu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands reglubundið frá fyrstu tíð og unnu um áratugaskeið á vett- vangi Kammermúsíkklúbbsins. Útför Guðbjargar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 6. júní 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. Loftleiðum, síðar Flugleiðum. Börn þeirra eru: 1) María Kristín, f. 20.8. 1966, hús- móðir í Danmörku. Fyrri maki Maríu Kristínar var Birg- ir Sigurþórsson, tæknifræðingur í Reykjavík. Börn þeirra: a) Sara María, lögfræðing- ur í Árósum, f. 22.4. 1987, maki hennar er Anders Grau og eiga þau tvær dætur, og b) Vil- hjálmur William, hagfræðingur í Kaupmannahöfn, f. 26.10. 1989. Síðari maki Maríu Krist- ínar var Torben Machon, f. 30.4. 1969, raftæknifræðingur. Þau skildu. Börn þeirra: c) Nína Júlía, f. 13.4. 1996, og d) Mart- in, f. 24.4. 2000. 2) Guðmundur Lillý frænka var litla systir hennar ömmu Láru og þegar amma eignaðist frumburðinn sinn, mömmu okkar, ákvað Lillý að eiga alla vega 50 prósent í henni og voru alla tíð miklir kær- leikar með þeim. Síðan komum við systkinin eitt af öðru og feng- um okkar pláss í hjartanu á Lillý. Þær systur voru afskap- lega ólíkar, en mjög nánar og það var mjög algengt að ef amma var búin að vera í símanum meira en klukkutíma þá sögðum við alltaf, nú er hún að tala við Lillý frænku. Lillý hafði mjög mikla kímni- gáfu og dásamlegan dillandi hlát- ur og það var oft gaman þegar hún var að rifja upp og segja okkur sögur af fjölskyldunni og okkur systkinunum þegar við vorum yngri. Þær voru ófáar heimsóknirnar og gistinæturnar í Espilundi 11. Þar sem við vorum svo heppin að vera jafnaldrar Mæju og Munda, myndaðist góður vinskapur milli okkar allra. Ýmislegt var brallað og alltaf líf og fjör. Adrúmsloftið þægilegt og þau hjónin sáu til þess að okkur liði sem best. Síðustu árin var hugurinn far- inn að ferðast, en væntumþykjan í okkar garð var alltaf á sínum stað. Við kveðjum Lillý frænku og þökkum henni samfylgdina og kærleikann. Kjartan, Ásgeir, Hanna Lára, Þórhildur Sif. Það hefur alltaf verið einhver einstaklega notalegur hljómur í orðunum Lillý og Mundi eða Mundi og Lillý. Þau voru eitt í huga okkar systkinanna og því iðulega nefnd í sömu andrá. Lillý var konan hans Munda, móður- bróður okkar, en einhvern veg- inn fannst okkur hún alltaf jafn- skyld okkur og Mundi. Þannig var Lillý. Við eldri systkinin tvö munum fyrst eftir Lillý og Munda á Lindargötu, í Bakka- búð. Þar fengum við að njóta gistivináttu þeirra þegar foreldr- ar okkar þurftu að bregða sér af bæ. Og þá var gaman. Rétt eins og ávallt í nálægð þeirra. Svo voru þau komin í Sólheima, á 7. hæð í stórri blokk. Og við vorum í Ljósheimum. Allt í einu bjuggu öll Vilhjálmsson-systkinin fjögur í Heima- og Vogahverfinu. Thor og Margrét í Karfavogi og Helga og Magnús í Skeiðarvogi þar sem þau búa enn. Lillý og Mundi pössuðu ekki aðeins okkur þrjú, þau pössuðu öll systkinabörnin, við vorum samtals átta. Fyrir það verðum við ævinlega þakk- lát. Lillý var náttúrubarn og skvísa um leið. Þykka hárið var fallegt og hún var flott í skærum litum. Hún var glæsileg kona og mikill persónuleiki, sérlega skemmtileg og hispurslaus. Glaðlegi hláturinn og húmorinn kætti þá sem voru í návist henn- ar. Hún var hannyrðakona mikil og prjónaði peysur á okkur systkinin. Lillý hafði góða söng- rödd og ómældan áhuga á tón- list. Þau Mundi sameinuðust í tónlistinni eins og alkunna er. Þegar séra Bjarni Jónsson skírði Höllu á Bergstaðastræti 75, árið 1965 hélt Lillý á henni undir skírn. Hún hélt algjörlega ró sinni enda þótt stúlkan unga gréti nokkuð hressilega við at- höfnina. Á myndum sést að aðrir nærstaddir voru ekki alveg jafn sallarólegir. Hún kallaði guðdótt- ur sína jafnan Miðnætursollu enda Halla fædd 21. júní. Lillý hafði stálminni og mátti alltaf reiða sig á hana til þess að segja sögur frá barnæsku okkar sem foreldrarnir mundu ekki. Það var sárgrætilegt að fylgjast með því hvernig óminnið náði sí- fellt meiri tökum á henni uns yfir lauk. Lillý og Mundi fluttust ásamt Munda Thor og Mæju í Espilund í Garðahreppi. Við héldum áfram að koma reglulega í heimsókn þangað. Ekki var ónýtt að vera boðið í mat, í canneloni, sem ábyggilega enginn á Íslandi bjó til í þann tíð, a.m.k. mjög fáir. Hreint sælgæti. Og nammið auk þess á vísum stað sem ekki var slæmt. Samband Lillýjar og Munda var einstaklega fallegt. Þau voru mjög náin, alltaf ástfangin. Tengsl þeirra við foreldra okkar voru mjög sterk og kærleiksrík. Faðir okkar, Sverrir Norland, andaðist áttræður fyrir um ellefu árum. Mömmu okkar, Margréti Norland, misstum við fyrir þremur mánuðum. Sorg okkar er mikil en einnig gleði yfir því að hafa átt góða foreldra og sömu- leiðis Lillý en þau Mundi voru okkur nokkurs konar aukafor- eldrar. Við kveðjum nú Lillý okkar með þakklæti fyrir allt sem hún gaf okkur. Mundi, elsku móðurbróðir, Lillý verður alltaf í hjarta þér, svo mikið er víst. Munda Thor og Mæju vottum við samúð okkar við lát yndislegrar móður. Kristín, Jón og Halla Norland. Það var Lillý sem sagði okkur sögurnar úr fjölskyldunni og gaf okkur tilfinningu fyrir fólkinu okkar, Óla frænda í Kaupmanna- höfn og Maríu systur hans í Hlið- skjálf á Húsavík, afa og ömmu og svo fjarskyldara fólki. Með lítilli setningu gat Lillý látið þetta fólk birtast ljóslifandi í glaðlegu og mildu ljósi fágætrar frásagnar- gáfu. Hún sagði líka sögur af okkur – þreyttist ekki á að rifja upp spurningu þess yngri þegar hann var fimm ára – sem leitar raunar enn á hann: „Lillý, er ég dálítið músíkfalskur?“ Hún tók hvorki sig né aðra há- tíðlega og fyllti líf okkar hlátri og glaðværð, umhyggju og hlýju, hún hafði sterkar skoðanir á fólki og atburðum og dró þær fram með orðum sem hittu naglann á höfuðið. Hún var konan hans Munda, föðurbróður okkar. Þau voru Mundi og Lillý. Þau voru eining og samrýndari hjón voru ekki til. Þau urðu órofa hluti af okkar lífsgöngu. Á æskuárum okkar voru fjar- lægðirnar stuttar í Vogahverf- inu. Þar bjó allur frændgarður- inn, og þar á meðal Mundi og Lillý í tólf hæða blokkinni í Sól- heimum, rétt við bókasafnið. Þar fengum við stundum að gista og þar var vinsælt að koma við, taka vörulyftuna upp á sjöundu hæð og við tók gleðiveisla með góðum veitingum og enn betra skapi. Og af svölunum mátti sjá vítt yfir byggðina sem hægt og bítandi tók að líkjast öðrum hverfum borgarinnar. Svo komu Mæja og Mundi Thor inn í fjölskylduna og þá þurfti einatt að passa á fimmtu- dagskvöldum því Mundi og Lillý sóttu alla sinfóníutónleika af ástríðu og raunar alla klassíska tónleika sem þeim buðust. Og þá var notalegt að sitja inni í egginu og snúa sér í hringi þegar börnin voru sofnuð. Þar kom að íbúðin á sjöundu hæð varð of lítil og þá byggðu þau sér hús í Garða- bænum. Þar lét Lillý til sín taka í kvenfélaginu og vann í Garða- skóla. Oft hittir maður gamla nemendur þaðan sem minnast hennar af mikilli hlýju. Mundi og Lillý. Þau voru og eru eining í okkar huga og allra sem þau þekkja. Hægt og bítandi hefur Lillý verið að hverfa hon- um Munda sínum hin seinni árin í veikindunum, þar til nú að hún hefur fengið friðinn. Hún vakir með okkur og í okkur enn eins og hún var í blóma lífsins, glaðvær og hláturmild, sterk og um- hyggjusöm. Og þannig fylgir hún Munda og börnunum áfram, með þeim og í þeim. Örnólfur og Guðmundur Andri Thorssynir. Elsku Lillý okkar. Ég sit hér hjá pabba og hugsa um þig, sem ég hef gert svo oft undanfarin ár, og rifja upp margar góðar og skemmtilegar minningar og sög- ur sem mér voru sagðar um okk- ur. Þú og Mundi voruð fjölskyld- an hennar mömmu þegar hún flutti hingað til Íslands með pabba. Þið voruð svo dugleg og góð að aðstoða mömmu. Ég man eftir heimsóknum til ykkar í Sól- heima og svo í Garðabæinn með mömmu, pabba og systkinum mínum. Ég man líka eftir mörg- um góðum minningum þegar þið komuð heim til okkar á Greni- mel, öllum veislunum og þegar þú og mamma gerðuð rabarara- saft í eldhúsinu á Grenimel. Minningarnar eru margar og ljúfar. Takk, elsku Lillý okkar, fyrir alla væntumþykju og umhyggju til okkar í gegnum árin til okkar systkinanna og mömmu og pabba. Elsku Mundi, börn og barna- börn. Við sendum ykkur heils- hugar samúðarkveðjur F.h. fjölskyldu Ólafs Ólafsson- ar, Ásta Sólveig Ólafsdóttir (Fía Lotta). Fallin er frá heiðursfélagi og fyrrverandi formaður Kven- félags Garðabæjar, Guðbjörg Vilhjálmsson eða Lillý eins og við þekktum hana, er lést 25. maí síðastliðin á áttugasta og áttunda aldursári. Lillý var formaður Kvenfélags Garðabæjar í sex ár á árunum 1985 til 1990, við sem eldri erum þekkjum vel til fé- lagsstarfa hennar. Hún var gerð að heiðursfélaga á 50 ára afmæli kvenfélagsins árið 2003. Guð- mundur, eiginmaður Lillýjar, hafði samband við kvenfélags- konur og tilkynnti lát konu sinn- ar og óskaði eftir að kvenfélagið annaðist erfidrykkju hennar, enda hafi Lillý verið mikil kven- félagskona. Guðbjörgu eru þökkuð fé- lagsstörf í þágu Kvenfélags Garðabæjar. Eiginmanni og aðstandendum sendum við hugheilar samúðar- kveðjur. Með kveðju frá Kvenfélagi Garðabæjar, Erla Bil Bjarnardóttir. Frú Guðbjörg Vilhjálmsson, fyrrverandi formaður Kven- félagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu, er látin, en hún gegndi formennsku í samband- inu á árunum 1994 til 2000. Árið 1968 hafði sambandið keypt orlofshús á ríkisjörðinni Gufudal sem nýtt hafði verið til orlofs- dvalar kvenna úr sýslunum en langt var liðið síðan sóst var eftir dvöl þar og erfitt var að selja húsið á ríkisjörðinni. Guðbjörg barðist af mikilli festu í þessu máli og hafði að lokum í gegn að ríkið keypti húsið af sambandinu fyrir dágóða upphæð. Þá var hún stolt þegar andvirði húseignar- innar var nýtt til að gefa þremur sjúkrahúsum í Reykjavík, Hafn- arfirði og Reykjanesbæ veglegar tækjagjafir. Árið 2009 var hún gerð að heiðursfélaga í KSGK fyrir framúrskarandi störf sín. Guðbjörg var farsæl og vel lið- in í starfi sínu fyrir sambandið og hrókur alls fagnaðar á góðum stundum. Hennar er minnst með virðingu og þakklæti. Kvenfélagasamband Gull- bringu- og Kjósarsýslu vottar öllum aðstandendum hennar samúð. Ágústa Magnúsdóttir formaður. Guðbjörg Vilhjálmsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær faðir okkar, afi og langafi, ARNFINNUR SCHEVING ARNFINNSSON, Eyrarflöt 4, Akranesi, lést sunnudaginn 27. maí á dvalarheimilinu Höfða. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 8. júní klukkan 13. Margrét Arnfinnsdóttir Þórdís Ásgerður Arnfinnsd. Gylfi Jónsson Maren Lind Másdóttir Gunnar Harðarson Helena Másdóttir Ársæll Ottó Björnsson og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, mágkonu og frænku, KATRÍNAR ÞÓRODDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Reynihlíðar fyrir alúðlega umönnun og vináttu. Sæmundur Þóroddsson Baldvin Þóroddsson Petra Verschüer Snjólaug Þóroddsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson Kristín S. Þóroddsdóttir Guðjón S. Þóroddsson Kristín M. Magnadóttir og fjölskyldur Innilegar þakkir til allra sem sýndu hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGURLÍNU JÓRUNNAR GUNNARSDÓTTUR, Berghólum 19, Selfossi. Guðbrandur Einarsson Vigdís Gunnardóttir Kristín Guðbrandsdóttir Sveinn Helgason Klara Guðbrandsdóttir Lingþór Jósepsson Sigurður Guðbrandsson Émilie Marine Pasquet Ómar Guðbrandsson Anika Maí Jóhannsdóttir og barnabörn Perlan og uppáhaldið okkar, ARNRÚN ANTONSDÓTTIR, Suðurtúni 30, Álftanesi, lést á sjúkrahúsi í Berlín 23. maí. Minningarathöfn fer fram í Vídalínskirkju föstudaginn 8. júní klukkan 13. Blómasendingar eru vinsamlega afþakkaðar en þeim sem vilja styrkja málefni sem var Öddu okkar kært er bent á Krýsuvíkursamtökin. Ingvi Þór Sigfússon Anton Líndal Ingvason Guðrún Lilja Lýðsdóttir Þórður Guðni Ingvason Hrönn Brandsdóttir barnabörn Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN BERGÞÓRSSON fv. stöðvarstjóri á Nýju sendibílastöðinni, lést mánudaginn 4.6. Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 14. júní klukkan 15. Brynja Jónsdóttir Jón Jóhannsson Guðrún Jónsdóttir Tómas Jónsson Sóley Jónsdóttir Bergþór Jónsson Rósa Guðmundsdóttir Kristín Jónsdóttir Njarðvík Kristján Þorsteinsson Margrét Jónsdóttir Njarðvík Hálfdán Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.