Morgunblaðið - 06.06.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
ota, Hyundai, Nissan,
, og fleiri gerðir bíla
ER BÍLLINN ÞINN
ÖRUGGUR
Í UMFERÐINNI?
Varahlutir í...
Ég er í sumarfríi þessa vikuna og dvel í blíðunni á Akureyri,“ seg-ir Brynjar Halldór Sæmundsson, verkstjóri hjá Loftorku íBorgarnesi, en hann á 60 ára afmæli í dag. „Þótt Borgar-
fjörðurinn sé frábær hefur blíðan farið meira til Norðurlands en
Borgarfjarðar. Frúin er að vinna hérna og ég er að njóta þess að slappa
af hérna á Akurreyri og gera eitthvað annað gáfulegt,“ en eiginkona
Brynjars, Birna Guðrún Konráðsdóttir, er verkefnastjóri á hug- og fé-
lagsvísindasviði við Háskólann á Akureyri. „Við erum því í fjarbúð en
hittumst um helgar og búum einnig á Bifröst sem er dásamlegur
staður.“ Þau eru fædd í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Brynjar er Mýra-
maður, frá Brúarlandi vestur á Mýrum, og Birna er fædd og uppalin í
Borgarnesi.
Brynjar hefur unnið hjá Loftorku í 40 ár. „Ég byrjaði að vinna þar
tvítugur í júní 1978 þannig að maður hefur gert ýmislegt annað en að
skipta um vinnu. Loftorka er byggingarfyrirtæki og framleiðir skolp-
ræsisrör og alls konar forsteypta hluti í hús og hitt og þetta. Ég vinn á
vélaverkstæðinu og er að halda trukkadótinu við,“ en Brynjar er bif-
vélavirki að mennt.
Í tilefni dagsins fær Brynjar heimsókn frá krökkunum sínum til
Akureyrar. „Ég ætla að elda handa þeim gott lambalæri. Það er í uppá-
haldi hjá flestum í fjölskyldunni. Ég var frístundabóndi og framleiddi
mjög góð lambalæri, en hætti því fyrir ári. Nú er ég bara að njóta þess
að vera til ásamt því að vinna, éta og sofa eins og maður segir.“
Börn Brynjars og Birnu eru Konráð, f. 1979, Ólöf, f. 1980, Margrét, f.
1986, og Eiríkur, f. 1990. Barnabörnin eru orðin níu.
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Hjónin Brynjar H. Sæmundsson og Birna G. Konráðsdóttir.
Eldar lambalæri í
blíðunni á Akureyri
Brynjar H. Sæmundsson er sextugur í dag
A
rndís Soffía Sigurðar-
dóttir fæddist á Sjúkra-
húsinu á Selfossi 6.6.
1978 en ólst upp í Fljóts-
hlíðinni. Foreldrar
hennar voru bændur á Efri-Þverá í
Fljótshlíð til 1983, er fjölskyldan
flutti að Smáratúni.
Arndís var í Fljótshlíðarskóla,
Gagnfræðaskólanum á Hvolsvelli,
lauk stúdentsprófi frá ML 1998, al-
mennu prófi lögreglumanna frá Lög-
regluskóla ríkisins 2000, hóf síðar
laganám við HÍ og lauk ML-prófi í
lögfræði 2008.
„Það voru forréttindi að ganga í
Fljótshlíðarskóla, þennan litla og per-
sónulega sveitaskóla, og það var líf og
fjör í félagslífi okkar unglinganna fyr-
ir austan, allir í ungmennafélaginu
Þórsmörk og mikil gróska í frjáls-
íþróttastarfi sem ég tók þátt í.“
Arndís vann hjá Skógrækt ríkisins
á Tumastöðum í Fljótshlíð og síðan
hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvols-
velli. Haustið eftir stúdentsprófi flutti
hún til Reykjavíkur, starfaði á Einka-
Arndís S. Sigurðardóttir ferðaþjónustubóndi og lögfr. – 40 ára
Brúðkaup Arndís og Ívar giftu sig 23. apríl 2016. Af því tilefni var þessi mynd tekin af fjölskyldunni í Þórsmörk. Þá
fögnuðu brúðhjónin með fjölskyldum sínum og vinum inni í Húsadal í Þórsmörk fram á rauða nótt.
Umhverfisvernd, sveita-
sæla og smá stórborgarþrá
Reykjavík Katrín Júlía
Davíðsdóttir fæddist
mánudaginn 5. júní
2017 kl. 14.12 í Reykja-
vík. Hún vó 3.750
grömm og var 51 cm á
lengd. Foreldrar hennar
eru Hafdís Svala
Einarsdóttir og Davíð
Aðalsteinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift aðMorgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is