Morgunblaðið - 06.06.2018, Side 27
leyfastofunni í eitt ár, fór í Lögreglu-
skólann og var lögreglumaður hjá
embætti lögreglustjórans í Reykjavík
Arndís flutti aftur heim í sveitina
árið 2006 og nú með eiginmanni og
frumburði. Þau gengu inn í rekstur
foreldra hennar á ferðaþjónustunni
sem þau hafa smám saman verið að
eignast, ásamt jörðinni Smáratúni.
„Við settum okkur sjálfbærnistefnu
strax árið 2007. Þá þótti það svolítið
furðulegt uppátæki en nú þykir það
meira en sjálfsagt í svona rekstri.“
Með laganáminu var Arndís lög-
reglumaður og varðstjóri hjá emb-
ætti sýslumannsins á Hvolsvelli og
árið 2007 hóf hún störf við þinglýs-
ingar hjá embætti sýslumannsins á
Selfossi. Þar var hún í hlutastarfi er
hún lauk lokaritgerðinni í lögfræði.
Arndís hefur gegnt stöðu fulltrúa
sýslumanns og nú í nýlega sameinuðu
embætti sýslumannsins á Suðurlandi.
Hún fékk leyfi frá störfum árið 2011
til að gegna formennsku í starfshópi
um Guðmundar- og Geirfinnsmál.
Starfshópurinn lauk störfum með út-
gáfu skýrslu 2013 sem olli straum-
hvörfum í þessum málum.
Arndís var félagi í Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði 2003-2017, sat
á Alþingi sem varaþingmaður Atla
Gíslasonar 2009-2013, leiddi lista VG í
Suðurkjördæmi 2013 en framboðið
náði ekki inn manni í Suðurkjördæmi
í það sinn. Hún var til skamms tíma
sérfræðingur innanríkisráðuneytis í
málefnum mansals og peningaþvætt-
is en fékk síðan tímabundið leyfi frá
störfum til að sinna rekstri fjöl-
skyldufyrirtækisins, Hótel Fljóts-
hlíðar.
Arndís fór svo aftur til starfa sem
fulltrúi sýslumanns við sameiningu
embætta á Suðurlandi, undir stjórn
Önnu Birnu Þráinsdóttur, fyrrv.
sýslumanns. Hún er nú staðgengill
sýslumannsins á Suðurlandi.
Arndís var stjórnarmaður í
Vinstrihreyfingunni – grænu fram-
boði 2011-2015, sat í úrskurðarnefnd
um hollustuhætti og mengunarvarnir
2010-2012, í stjórn Byggðastofnunar
2009-2011 og í stjórn Beint frá býli
2009-2011.
Arndís hefur mikinn áhuga á sjálf-
bærni og umhverfismálum „Ég nýt
þess að tvinna saman umhverfismálin
og rekstur ferðaþjónustunnar og bús-
ins í Smáratúni. Við hlutum um-
hverfisvottun norræna Svansins árið
2014 og ásamt góðri vinkonu minni,
Elísabetu Björneyju Lárusdóttur,
umhverfis- og auðlindafræðingi, hef
ég deilt reynslu af því að reka fyrir-
tæki sem notar umhverfisstjórn-
unarkerfi. Við vinnum saman undir
nafninu Sjálfbærnimiðstöð Íslands og
veitum öðrum fyrirtækjum ráðgjöf í
þessum efnum. Við höfum rannsakað
matarsóun kerfisbundið og búum nú
yfir tölulegum upplýsingum um hana
sem við deilum með þeim sem láta sig
varða þetta mikilvæga málefni.
Það er í mörg horn að líta þegar
kemur að umhverfisvænum rekstri
og möguleikar á aukinni sjálfbærni
virðast óþrjótandi.
Ég nýt þess að ferðast, kynnast
ólíkum menningarheimum, spóka
mig um í ólíkum borgum og drekka í
mig menningarlífið. Í sveitastelpunni
býr sem sagt lítil borgarpía einnig
þarf að sinna öðru hverju.“
Fjölskylda
Eiginmaður Arndísar Soffíu er Ív-
ar Þormarsson, 16.11. 1975, mat-
reiðslumeistari. Foreldrar hans: Þor-
mar Andrésson, f. 27.4. 1954,
jarðverktaki, og k.h., Sigurlín
Óskarsdóttir, f. 7.11. 1958, trygginga-
fulltrúi hjá VÍS.
Börn Arndísar og Ívars eru Emma
Eir Ívarsdóttir, f. 29.12. 2005; Elfar
Egill Ívarsson, f. 29.9. 2008, og Eldey
Ívarsdóttir, f. 11.5. 2012.
Systkini Arndísar eru Anna Bjarn-
ey Sigurðardóttir, f. 21.11. 1963,
framkvæmdastjóri RÚV, búsett í
Reykjavík; Ingibjörg Elfa Sigurðar-
dóttir, f. 31.12. 1966, starfar við ferða-
þjónustu og nudd, búsett á Hvolsvelli;
Stefán Eðvald Sigurðsson, f. 14.7.
1968, flugstjóri á Seltjarnarnesi;
Eggert Ólafur Sigurðsson, f. 19.9.
1972, deildarstjóri í Svíþjóð.
Foreldrar Arndísar eru Sigurður
Vignir Eggertsson, f. 20.9. 1942, og
Guðný Helga Geirsdóttir, f. 29.9.
1940, bændur á Efri-Þverá og síðar í
Smáratúni í Fljótshlíð.
Úr frændgarði Arndísar Soffíu Sigurðardóttur
Óskar Sigurðsson
endurskoðandi í Eyjum
Beta
Einarrína
Guðjóns-
dóttir húsfr.
í Rvík
Sigurður Óskars-
son kafari í Eyjum
Freyr
Friðriksson
eigandi
Kapp ehf.
Friðrik Óskars-
son endurskoð-
andi í Rvík
AnnaMaríaAðalsteins-
dóttir leikskólakennari,
hún og eiginmaður
hennar byggðu sumarhús
í landi Smáratúns
Sigurður Gunnarsson
útvegsb. í Hólmi í Vestmannaeyjum
Auðbjörg Jóns-
dóttir húsfr. í
Vestmannaeyjum
Oddgeir Guðjónsson
hreppstjóri og fræði-
maður í Tungu í Fljótshlíð
Guðjón Jónsson b.
í Tungu í Fljótshlíð
Arndís Jónsdóttir
verkakona í Rvík, systurdóttir Ólafs
Oddssonar ljósmyndara, afa Davíðs
OddssonarMorgunblaðsritstjóra, af
Víkingslækjarætt
lín Halldórsdóttir
húsfr. í Grímsey
Stefán Eðvaldsson
b. og sjóm. í Grímsey
E
Birna Sigrún Stefánsdóttir
húsfr. í Grímsey
Geir Jósefsson
sjóm. í Rvík
Guðný Helga Geirsdóttir
bóndi að Efri-Þverá og í Smáratúni
Guðrún Einarsdóttir
húsfr. á Dalvík
Jósef Þorsteinsson
sjóm. og verkam. á Dalvík og í Grímsey
Gunnar Stefán Ás-
grímsson b. á Eiðum í
Grímsey og verkstj.
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfr. á Mið-Sámsstöðum
Sigurður Sigurðsson
b. á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð
Anna Sigurðardóttir
húsfr. í Smáratúni
Sigurður Vignir Eggertsson
b. á Efri-Þverá og í Smáratúni í Fljótshlíð
Arndís Soffía
Sigurðardóttir
Eggert Ólafsson Sigurðsson
b. í Smáratúni í Fljótshlíð
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
Ármúla 24 - s. 585 2800
ÚRVAL ÚTILJÓSA
GGunnar Guðbjartsson fæddistað Hjarðarfelli, Mikla-holtshr. 6. júní 1917. For-
eldrar hans voru hjónin Guðbranda
Þorbjörg Guðbrandsdóttir húsfreyja
og Guðbjartur Kristjánsson bóndi
og hreppstjóri. Gunnar ólst þar upp í
hópi átta systkina auk tveggja upp-
eldisbræðra.
Gunnar lauk námi frá Héraðsskól-
anum á Laugarvatni 1938 og varð
búfræðingur frá Hvanneyri 1939.
Gunnar var bóndi á Hjarðarfelli
frá 1942, seinni árin í samstarfi við
eldri syni sína. Hann var formaður
HSH 1942-46, í stjórn Búnaðars.
Dala og Snæf. 1943-45 að samband-
inu var skipt, eftir það í stjórn Bs.
Snæf. til 1980, formaður 1968-80, í
hreppsn. Miklaholtshr. 1962-78, í
sýslun. 1950-82, form. byggingarn.
Laugargerðisskóla 1957-65 og í
skólan. 1962-70, formaður fræðslu-
ráðs Vesturlandskjördæmis 1974-78,
í stjórn Kaupf. Borgfirðinga 1965-
80, varaþingm. Framsóknarflokks-
ins í Vesturlandskjördæmi 1959-71
og í miðstjórn flokksins í 20 ár.
Hann var formaður Stéttarsam-
bands bænda 1963-81 og Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins 1963-80,
framkv.stjóri þess 1980-87 og
Landssamb. sláturleyfishafa 1987-
89. Átti sæti í mörgum stjórnum
m.a. Áburðarverksmiðju ríkisins,
Mjólkursamsölunnar, sexmannan.,
Stofnlánad. landbún. og lífeyrissj.
bænda. Gunnar sat í mörgum ótöld-
um nefndum og stjórnum, bæði í
heimahéraði og á landsvísu.
Gunnar hóf ritun æviminninga
sinna en náði ekki að ljúka þeim.
Þær komu út 1997 í bók Bænda-
samtakanna „Gunnar á Hjarðar-
felli“. Gunnar var heiðursfélagi Bún-
aðarf. Íslands og fékk riddarakross
íslensku fálkaorðunnar.
Gunnar kvæntist 6.6. 1942 Ást-
hildi Teitsdóttur, f. 9.4. 1921, d. 4.8.
2006, frá Eyvindartungu í Laug-
ardal og eignuðust þau sex börn:
Guðbjart, Högna, Sigríði, Hallgerði,
Teit og Þorbjörgu, eru þau öll á lífi.
Gunnar lést 17.3. 1991.
Merkir Íslendingar
Gunnar
Guðbjartsson
90 ára
Sigurður Runólfsson
85 ára
Ásgeir Pálsson
Þórunn Gíslína
Þórarinsdóttir
80 ára
Einar S. Einarsson
Ingibjörg Þuríður
Stefánsdóttir
Nína Agnetha Magnússon
Svanlaug Magnúsdóttir
Sævar Örn Jónsson
75 ára
Guðbrandur Bogason
Guðrún Ásdís Einarsdóttir
Ingrid Elsa Halldórsson
Júlía Ósk Halldórsdóttir
Karlína Signý Malmquist
70 ára
Bragi Sigurðsson
Gréta Ásgeirsdóttir
Guðmundur Unnþór
Stefánsson
Helgi Baldursson
Kristbjörg Bára Emilsdóttir
Lilja Sigurðardóttir
Ólafur Þ. Sverrisson
Pálmi Guðjónsson
Ragnheiður Ólafsdóttir
Ragnheiður Þ. Grímsdóttir
Rósfríður María Káradóttir
Skarphéðinn J. Olgeirsson
Sævar Pétursson
Teitur Lárusson
60 ára
Erna Guðmundsdóttir
Finnbogi Gunnarsson
Guðjón Ingi Árnason
Hrefna Guðmundardóttir
Hörður Sigurðsson
Jóhanna G. Baldvinsdóttir
Ólafur Haukur Kárason
Sigurjón Smári Sverrisson
Sigurvin B. Guðfinnsson
Sveindís Árnadóttir
Valeri A. Akbachev
Vinh The Nguyen
50 ára
Baldur Baldursson
Brynja Hjörleifsdóttir
Einar Björn Bjarnason
Halla Jensdóttir
Jóhannes Valgeirsson
Kay Michelle Brusaferro
Kevin James Gardiner
Kristján Yngvi Karlsson
Princess Annie E.
Björnsdóttir
Ragnheiður Stefánsdóttir
Róbert Valtýsson
Þuríður Jóhannsdóttir
40 ára
Árni Freyr Finnsson
Cláudia C. Dos Reis Vieira
Elín Einarsdóttir
Hanna Björg Hauksdóttir
Herdís Traustadóttir
Iliyan Stoyanov Dukov
Inga Benediktsson
Jenný Björk Þorsteinsdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir
Monika Elzbieta Liberman
Nerijus Uzkuraitis
Páll Sævar Sveinsson
30 ára
Adrian Makuch
Astrid Linnea Janbell
Birgir Freyr Ragnarsson
Hilmar Vignir Birkisson
Joanna Sokolowska
Kristbjörg Fjóla Hrólfsdóttir
Kristín L. Jóhannsdóttir
Lísa Thúy Ngo
Sigríður Dúna Þórðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Víðir ólst upp á
Eyrarbakka, býr í Reykja-
vík, lauk prófum í ljós-
myndun frá Tækniskól-
anum og er ljósmyndari
og gítarleikari í Kiriyama.
Maki: Embla Rún Gunn-
arsdóttir, f. 1993, vef-
hönnuður.
Foreldrar: Björn Ingi
Bjarnason, f. 1953, forseti
Hrútavinafélagsins, og
Jóna Guðrún Haralds-
dóttir, f. 1956, snyrtifræð-
ingur.
Víðir
Björnsson
30 ára Sandra stundar
nám í þroskaþjálfafræði
og starfar á sambýli.
Maki: Jón Kristján Magn-
ússon, f. 1979, starfs-
maður hjá Héðni.
Börn: Magnús Sigurður, f.
2003 og Gunnar Friðgeir,
f. 2005 (stjúpsynir) og Al-
exander Jökull, f. 2012,
og Katla Ýr, f. 2015.
Foreldrar: Einar Páll
Garðarsson, f. 1961, og
Margrét Elín Grét-
arsdóttir, f. 1963.
Sandra
Einarsdóttir
30 ára Íris lauk BSc-prófi
í viðskiptafræði og starfar
hjá Fjársýslu ríkisins.
Maki: Einar Örn Ólafsson,
f. 1979, tölvunarfræð-
ingur.
Börn: Sölvi Snær, f.
2006; Þórdís Camilla, f.
2010; Sóldís Gerður, f.
2017 og Sædís Helena, f.
2017.
Foreldrar: Jón Þórólfur
Guðmundsson, f. 1963,
og Jórunn Helena Jóns-
dóttir, f. 1965.
Íris Dögg
Jónsdóttir