Morgunblaðið - 06.06.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú tekur skyldur þínar gagnvart
börnum og menntun þeirra alvarlega í
dag. Hugsaðu stórt en byrjaðu smátt og
umfram allt skipuleggðu tímann eins vel
og þú getur.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er þér í hag að samkomulag
takist í viðkvæmu fjölskyldumáli. Nú er
ekki heppilegt að taka mikilvægar
ákvarðanir, einkum ef þær snúa að hús-
næðismálum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú geislar af krafti og ert tilbú-
in/n að hefjast handa hvort sem er í
starfi eða einkalífi. Fólk sem átti áður
stóran þátt í ákvörðunum þínum hefur
ekki lengur áhrif á þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ein ástæða þess að þú vinnur
svo vel með öðrum er að þú tjáir þig
hreinskilnislega. Raðaðu hlutunum í for-
gangsröð og taktu eitt verkefni fyrir í
einu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Veröldin þarf á draumóramönnum
að halda. Þú berð sigur úr býtum í deilu-
máli, en það bólar ekki á gleðinni sam-
fara því.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér kemur ekki dúr á auga vegna
áhyggna af veikindum ættingja. Láttu
hverjum degi nægja sína þjáningu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Systkini og konur í hópi fjölskyld-
unnar gegna mikilvægu hlutverki í lífi
þínu í dag. Þér verða slegnir gullhamrar
sem kemur þér skemmtilega á óvart.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gætir orðið ástfangin/n
fljótlega. Valdamiklir einstaklingar vilja
hjálpa þér en þú ert nú ekki á þeim bux-
unum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur tekið tímann sinn
að vinna aðra á sitt band. Allt sem við-
kemur fjölskyldu, heimili og heimilislífi er
mjög jákvætt þessa dagana.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú sérð ekki út úr augum
vegna anna og þarft að komast frá í
smátíma. Þú átt í útistöðum við laganna
verði, haltu þig á mottunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vandamál þitt er ekki hægt að
leysa með peningum og dóti. Þú verður á
ferð og flugi næstu vikurnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt erfitt með að þagga niður
dagdraumana. Nú er gullið tækifæri til
að hreinsa til í geymslunni.
Fía á Sandi kann að mála með orð-um og litum og hefur gott tón-
eyra – hún orti á Leir á fimmtudag:
Syngjandi vötnin og vindurinn spila á
klaka.
Vorhlákan flytur öll tónverkin gömlu á ný.
Fuglarnir mínir í flokkum sneru til baka
fagnandi norður í gegnum hin sólroðnu
ský.
Í kvöld verður gaman að vera hér úti og
vaka.
Og á föstudaginn orti hún lítið ljóð
sem hún kallar „Handverk“:
Ljúft er í skóginn að lesa og spá
og leita að hentugum bút.
Helst vildi ég fugla í furunni sjá
og freista að tálga þá út.
Hnífnum ég beitti af hörku og dug
en handlagnin alveg mér brást.
Þeir sýndu ekki lit á að fara á flug
og formleysan berlega sást.
Döpur að endingu útaf ég datt
með ónýtan, hálfunninn bút.
Ég vaknaði í morgun og segi þér satt:
Söngfuglinn sprunginn var út!
Árni Björnsson skrifaði mér á
sunnudagskvöld og sagðist hafa
dvalist um helgina sem rannsóknar-
verkefni hátt í sólarhring á bráða-
móttöku í skemmtilegum félagskap
en án annarrar afþreyingar. Þrauta-
ráðið fyrir svefninn var að reyna að
böggla saman vísu um óskylt efni.
Þetta varð til:
Græðgin eyðir góðsemi
græðgin eykur fátæki
græðgin stýrir styrjöldum
stórum spillir landkostum.
Síðan bætir Árni við: „Sú er spurn-
ing til gamals nemanda, Kára Stef-
ánssonar, hvort unnt myndi fræði-
lega og tæknilega að einangra
græðgisgenið hjá mannskepnunni
og finna síðan lyf við því.“
Magnús Halldórsson segir á
Boðnarmiði að hér sé „ort við
gamlan stekk“:
Sést ekki lengur hér lagðprúður sauður,
Lubba mjög hnígandi frægðar er sól,
hóandi smalinn mun hás eða dauður
og horfið að fullu er kvíanna ból.
Nú ólíkir hlutir hér örva mjög kæti,
annað sem rífur upp bágustu kjör,
því túristar þekja öll torg eða stræti
og tæmd eru veskin með brosi á vör.
Síra Einar Thorlacius orti undir
nafni konu sinnar:
Óska ég lengi, er þess von,
ástarstrengur gróinn
að ég fengi Edilon
en Einar gengi í sjóinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fuglum og
spurning til Kára
Matur er mannsins megin, segireinhvers staðar. Matur er
vissulega eldsneyti, en matargerð er
þegar best lætur list. Sumt þykir
okkur gott, annað vont og það er
rannsóknarefni hvers vegna það er.
Um þessar mundir mun vera sér-
lega vinsælt að borða ostafondú á
meginlandi Evrópu. Fólk kemur
saman, dýfir brauðmolum í bráðinn
ost og smjattar síðan á kræsing-
unum. Hvers vegna hefur ostafondú
gengið í endurnýjun lífdaga fjórum
áratugum eftir að það síðast var vin-
sælasti samkvæmisrétturinn? Sál-
fræðingurinn Charles Spence, sem
notar verkfæri sálfræðinnar og
taugafræðinnar til að greina matar-
venjur okkar, er ekki í vafa. Þessi
réttur falli fullkomlega að vorum
tímum, nú sé allt lagt upp úr því að
gera hlutina sjálfur og þá tilfinningu
fái neytandinn þegar hann hefur
prjóninn á loft með brauðmolann á
endanum og kaffærir hann í kraum-
andi ostinum og við það vaxi nautnin
af að borða.
x x x
Um þetta var fjallað í grein í þýskatímaritinu Der Spiegel nýverið
og var þar vitnað í könnun norskra
vísindamanna, sem komust að því að
það hefði jákvæð áhrif á bragð-
skynjun að elda sjálfur. Sömu áhrifa
gætti meira að segja þótt elda-
mennskan væri í raun blekking og
þátttakandinn í tilrauninni fengi öll
hráefni í hendurnar tilbúin og gerði
ekki annað en að hræra þau saman.
x x x
Spence segir við Der Spiegel aðþetta eigi ekki að koma á óvart.
„Hvernig við metum mat og drykk
veldur að miklu leyti á staðnum og
aðstæðum þegar við neytum,“ segir
vísindamaðurinn og kveðst vera
þeirrar hyggju að hljóð og hávaði
sem heyrist þegar borðað er og
drukkið hafi mikil áhrif á bragð-
skynjun. „Þegar við borðum verða
lykt, bragð, áferð, litur og hljóð mat-
arins að ótrúlega flókinni fjöl-
skynfærareynslu,“ segir hann. Vík-
verji er ákveðinn í að vanda sig
meira næst þegar hann tekur til
matar síns til að fá meira út úr máls-
verðinum og leggja meira af mörk-
um í framreiðslunni. vikverji@mbl.is
Víkverji
Eins og faðir sýnir miskunn börnum
sínum, eins hefur Drottinn sýnt mis-
kunn þeim er óttast hann.
(Sálm: 103.13)
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað