Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 Blóðengill er spennusagasem rífur lesandann meðsér í rannsóknarferðalagstrax á fyrstu blaðsíðu. Frásagnarstíll Óskars Guðmunds- sonar er einstaklega heillandi og því er ekki furða að fyrsta bók hans, Hilma, hafi hlotið Blóðdropann sem besta íslenska spennusagan árið 2016. Blóðengill er sjálfstætt framhald af fyrstu skáldsögu höfundar en þó er ekki nauðsynlegt að hafa lesið hana til þess að geta notið framhaldsins. Raunar er þannig minnst á atburði úr þeirri sögu að ekki er ólíklegt að les- andinn ákveði að næst ætli hann að lesa Hilmu til þess að fá enn betri inn- sýn í hugarheim og líf rannsóknarlög- reglukonunnar bráðsnjöllu sem bæk- urnar fjalla um. Að fylgjast með rannsóknarferl- inu í máli mæðgn- anna sem hvorki finnst tangur né tetur af, nema talsvert magn af blóði og einn fing- ur, er dáleiðandi. Raunar missir sögumaðurinn aldrei athygli lesandans, hvort sem verið er að lýsa uppáhaldskaffihúsi Hilmu eða því hvernig óverknaðurinn fór fram. Og rannsóknin leiðir að lok- um til raunveruleika sem er óhugnan- legri og viðbjóðslegri en lesandinn hefði nokkurn tíma getað gert sér í hugarlund. Því er alls ekki hægt að mæla með skáldsögunni fyrir við- kvæma. Þrátt fyrir að um klassíska spennu- sögu sé að ræða, sem við Íslendingar erum alls ekki ókunnugir, er Blóð- engill ekki ein þeirra sem hægt er að leggja frá sér án umhugsunar að lestri loknum, því ólifnaðurinn lifir með lesandanum í nokkurn tíma eftir að upp um málið kemst og að sögu- lokum kemur. Óskandi væri að les- endur fengju að fylgjast áfram með ævintýrum Hilmu. Morgunblaðið/Golli Heillandi „Frásagnarstíll Óskars Guðmundssonar er einstaklega heillandi.“ Ólifnaðurinn lifir með lesendum Glæpasaga Blóðengill bbbbn Eftir Óskar Guðmundsson. Bjartur bókaútgáfa 2018. Kilja, 363 bls. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR Jurassic World: Fallen Kingdom Kvikmyndin hefst um fjórum árum eftir að þeirri síðustu sleppti í framhaldssögunni um Júragarðinn og hafa risaeðlurnar leikið lausum hala á eyjunni Nublar. Frelsi þeirra er ógnað þegar eldgos verður á eyj- unni og ákveðið að flytja eðlurnar upp á meginlandið. Það er flókið verkefni, eins og gefur að skilja og risaeðlusérfræðingarnir Claire Dearing og Owen Grady því kall- aðir til. En ekki er allt sem sýnist og sem fyrr óprúttnir aðilar á ferð og virðist allt ætla að fara á versta veg. Risaeðlufræðingarnir þurfa því að taka á honum stóra sínum og berjast fyrir lífi sínu innan um hin- ar stórhættulegu eðlur. Leikstjóri er J.A. Bayona og aðalleikarar Bryce Dallas Howard, Chris Pratt og Jeff Goldblum. Enn segir af mönn- um og risaeðlum Bíófrumsýning Stórhættulegar Riseðlurnar eru komnar á kreik enn á ný. Svanurinn 12 Afvegaleidd níu ára stúlka er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast. Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 18.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 22.00 Rjómi Hilmar Egill Jónsson flytur frá Noregi heim til Íslands með hundinn sinn Rjóma. Bíó Paradís 20.00 Call Me By Your Name 12 Metacritic 93/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 22.00 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 20.00 On Body and Soul 12 Óvenjuleg ástarsaga sem gerist í hversdagsleikanum, sem hverfist um markaleys- ið á milli svefns og vöku, huga og líkama. Metacritic 77/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 17.45 The Big Sick Metacritic 86/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 17.45 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins, þá þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðlunum frá útrýmingu. IMDb 8,2/10 Sambíóin Álfabakka 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.15 Smárabíó 16.00, 16.30, 20.00, 22.00, 22.10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Terminal 16 Myndin fjallar um tvo leigu- morðingja í illum erinda- gjörðum, forvitna þjón- ustustúlku sem spilar með alla sem hún kemst í tæri við, kennara sem haldinn er ólæknandi sjúkdómi og íhugar sjálfsmorð og hús- verði sem býr yfir vægast sagt hættulegu leyndarmáli. IMDb 5,2/10 Metacritic 26/100 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Akureyri 21.30 Avengers: Infinity War 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 68/100 IMDb 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.40 Sambíóin Egilshöll 17.00, 22.20 Vargur 16 Bræðurnir Erik og Atli eiga við fjárhagsvanda að stríða. Þeir grípa til þess ráðs að smygla dópi. Erik skipulegg- ur verkefnið og allt virðist ætla að ganga upp, en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,6/10 Smárabíó 22.50 Háskólabíó 21.00 Bíó Paradís 20.00, 22.00 I Feel Pretty 12 Höfuðmeiðsl valda því að kona fær ótrúlega mikið sjálfstraust og telur að hún sé ótrúlega glæsileg. Metacritic 47/100 IMDb 4,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Overboard Metacritic 42/100 IMDb 5,4/10 Háskólabíó 18.20 Bókmennta- og kartöflubökufélagið Rithöfundur myndar óvænt tengsl við íbúa á eynni Guernsey, skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina, þeg- ar hún skrifar bók um reynslu þeirra í stríðinu. Háskólabíó 17.50 Rampage 12 Metacritic 45/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Draumur IMDb 6,6/10 Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Prinsinn upplifir þær breytingar að verða talinn ómótstæðilegur af flestum eftir að álfadís hellir á hann töfradufti í miklu magni. Laugarásbíó 17.40 Smárabíó 15.30, 17.00 Borgarbíó Akureyri 17.30 Víti í Vestmanna- eyjum Myndin fjallar um strákana í fótboltaliðinu Fálkum sem fara á knattspyrnumót í Vestmannaeyjum. Á fyrsta degi kynnast þeir strák úr Eyjum sem þeir óttast en komast að því að hann býr við frekar erfiðar aðstæður. Morgunblaðið bbbbn Sambíóin Álfabakka 17.40 Sambíóin Akureyri 17.10 Midnight Sun Myndin fjallar um 17 ára gamla stelpu, Katie. Hún er með sjaldgæfan sjúkdóm sem gerir hana ofur- viðkvæma fyrir sólarljósi. Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.15 Sambíóin Kringlunni 17.30, 19.40, 21.50 Sambíóin Akureyri 19.30 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Sambíóin Álfabakka 16.50, 19.40, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Akureyri 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 19.30 Solo: A Star Wars Story 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Laugarásbíó 17.40, 20.00 Smárabíó 22.00 Háskólabíó 18.10, 20.50 Deadpool 2 16 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 68/100 IMDb 8,6/10 Laugarásbíó 22.10 Sambíóin Keflavík 22.15 Smárabíó 16.40, 22.20 Háskólabíó 20.30 Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.