Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 11
Landsmót hestamanna 2018 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
1988 - 2018
Afmælis-
tilboð
Í tilefni 30 ára
afmælisársins verður
30%afsláttur
frá miðvikudeginum 4. júlí til
miðvikudagsins 11. júlí af öllum
kvartbuxum,
stuttbuxum, leggings,
pilsum og peysum
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Aðdráttarafl íslenska hestsins nær
langt út fyrir landsteinana. Talið er
að fjórðungur gesta á landsmóti í ár
sé erlendur og einnig eru komnir um
40 erlendir blaðamenn til að fjalla
um mótið, flestir frá Evrópu en ein-
hverjir frá Norður-Ameríku. Ís-
lenski hesturinn á sérstökum vin-
sældum að fagna á Norðurlöndunum
og í Þýskalandi. Sem dæmi eru skráð
39 þúsund íslensk hross í Danmörku
og 31 þúsund í Svíþjóð. Herdís Reyn-
isdóttir var stödd í Horses of Ice-
land-tjaldinu þegar blaðamann bar
að garði en hún er hestaræktandi bú-
sett á Írlandi. Herdís segir að hesta-
menning og aðstæður annars staðar
á Norðurlöndunum séu ekki ósvip-
aðar og hér. „Þar er hestamennskan
stór hluti af menningunni og það hef-
ur gengið vel að markaðssetja hest-
inn í þessum löndum. Það er einnig
stór markaður í Þýskalandi en það er
svo stórt land að hlutfallslega eigum
við ekki mikið af markaðinum þar.“
Gríðarlega góð markaðssetning
Vinkona Herdísar, Jelena Ohm, er
verkefnastjóri Horses of Iceland hjá
Íslandsstofu. Hún segir landsmót
hafa gríðarmikla þýðingu fyrir kynn-
ingu á íslenska hestinum. „Það skipt-
ir miklu máli fyrir ræktendur á land-
inu að ná að kynna sína ræktun á
þessum vettvangi sem landsmót eru.
Margir útlendingar sem koma á sýn-
ingar enda á að kaupa hesta sem
þeim líst vel á. Ræktunarbúasýning-
arnar sem verða á föstudags- og
laugardagskvöld eru sérstaklega
vinsælar. Þar kaupa ræktunarbú sér
réttindi til að sýna ræktunarhópinn
sinn. Þetta er í raun bein markaðs-
setning fyrir þessi bú og skiptir þau
gríðarmiklu máli.“ Hún segir lands-
mótið einnig vettvang til að kynna ís-
lenska hestamenningu fyrir útlend-
ingum. „Útlendingarnir fá að
kynnast öllu sem er í gangi í hesta-
heiminum hér á landi, allt á einum
stað. Þeir ná að hitta fólk, sjá nýja
ræktendur og nýja hesta.“
En hver ætli sé sérstaða íslenska
hestsins með tilliti til annarra hesta-
kynja? Herdís segir að flestir útlend-
ingar hrífist af bæði persónuleika
hestsins og töltinu fræga. „Við gerð-
um könnun innan aðildarsamtaka ís-
lenska hestsins þar sem við spurðum
af hverju þau héldu tryggð við ís-
lenska hestinn. Við sjáum að í upp-
hafi er það töltið sem selur hann, en
geðslagið er það sem heldur fólki í
kyninu. Það er bara þessi karakter
og menningin í kringum þetta. Ís-
lenski hesturinn er í raun besti
sendiherra Íslands,“ segir Herdís.
Sambland góðra eiginleika
Þegar gengið er um mótssvæðið
má heyra annan hvern mótsgest tala
á erlendri tungu. Blaðamaður hitti
fyrir nokkra erlenda gesti sem hann
spjallaði lítið eitt við.
Líffræðingurinn Eva Jägerbauer
er komin hingað til lands til að fylgj-
ast með íslenska hestinum keppa.
Þetta er hennar fyrsta heimsókn til
landsins en hún mun eyða vikunni í
Víðidal. Hún er að eigin sögn mikill
dýravinur og hefur sérstaklega gam-
an af hestum. „Það var gamall
draumur hjá mér að eignast hest
sem rættist aldrei. Ég er orðin of
gömul fyrir hestamennsku núna.“
Hún segist hingað komin til að kynn-
ast þeim sem hún kallar uppsprettu
allra góðra hrossa, sem er íslenski
hesturinn. „Persónulega er ég mjög
hrifin af skapgerð íslenska hestsins
Hann er ekki of stór og er settlegur.
Hann er líka klár og dýnamískur.
Allir þessir eiginleikar í einum
hesti.“
Dönsku mæðgurnar Ann og Soph-
ie ákváðu að nýta sumarfríið sitt í að
fylgjast með landsmótinu í ár. Þær
eiga íslenskan hest heima í Dan-
mörku og fannst tilvalin hugmynd að
koma og sjá fleiri hesta af íslenska
kyninu á Íslandi. „Við erum að
tvinna saman sumarfríið okkar og
kynnisferð um íslenska hestinn. Við
munum eyða þessari viku á lands-
móti og hinni vikunni í að fara á
þessa helstu ferðamannastaði.“ Voru
þær spurðar hvað það væri sem lað-
aði þær helst að íslenska hestinum
og sögðu þær það vera bæði töltið og
persónuleikann. „Ég elska töltið. Svo
hefur hann svo frábært skap. Þeir
hafa einnig mikinn hraða sem mér
finnst skemmtilegt. Það er bara un-
un að ríða íslenska hestinum,“ segir
Ann, ánægð með að vera komin í
land íslenska hestsins.
Fjórðungur landsmótsgesta í ár frá öðrum löndum
Útlendingar segja íslenska hestinn skapgóðan og kláran
Ljósmynd/Herdís Reynisdóttir
Hestakona Herdís Reynisdóttir er
hestaræktandi búsett á Írlandi.
„Íslenski hesturinn besti
sendiherra landsins“
Morgunblaðið/Nína Guðrún Geirsdóttir
Heilluð Hin þýska Eva er komin til að fylgjast með íslenska hestinum.
Morgunblaðið/Nína Guðrún Geirsdóttir
Aðdáendur Þessar dönsku mæðgur eru hrifnar af íslenska hestakyninu.
Þriðji dagur landsmóts gekk prýði-
lega og gætti góðrar stemningar
hjá knöpum sem og mótsgestum.
Ekki var hægt að kvarta undan
veðri en það var bjart og fremur
hlýtt fyrri part dags. Margmenni
var í brekkunni að fylgjast með
keppni á báðum völlum en móts-
haldarar áætla að fjöldinn hafi ver-
ið milli þrjú og fjögur þúsund. Dag-
skráin í gær hófst með forkeppni í
A-flokki gæðinga á gæðingavell-
inum. Hæstur varð Hafsteinn frá
Vakurstöðum með einkunnina 8,90,
knapi hans er Teitur Árnason.
Næstur var Arion frá Eystra-
Fróðholti með 8,85 en hann situr
Daníel Jónsson. Þess má geta að
Hafsteinn og Teitur urðu Reykja-
víkurmeistarar í vor í fimmgangi.
Munu 30 efstu hestar mæta aftur í
milliriðil á fimmtudag.
Á kynbótavellinum fóru fram
dómar á sex og sjö vetra kynbóta-
hryssum. Síðdegis fóru fram dómar
á fjögurra vetra stóðhestum. Í gær-
kvöldi hófust þar fyrri umferðir
kappreiða á 150 m og 250 m skeiði.
Morgunblaðið/Nína Guðrún Geirsdóttir
Fastagestir Hjónin Jónas Vigfússon og Kristín Thorberg frá Litla-Dal í
Eyjafirði voru mætt í brekkuna til að fylgjast með keppni í gærmorgun.
Margmenni í Víðidal á
þriðja degi landsmóts
Fjórði keppnisdagur Landsmóts
hestamanna byrjar að vanda með
því að svæðið verður opnað kl. sjö. Í
dag hefst dagskráin klukkan níu á
gæðingavellinum en þá fara fram
milliriðlar í unglingaflokki. Eftir
hádegishlé eða kl. 13:30 hefjast
milliriðlar í B-flokki og standa til
18:30. Á kynbótavellinum hefjast
dómar á fimm vetra stóðhestum
klukkan átta. Eftir matarhlé taka
við dómar á sex vetra stóðhestum
og lýkur dagskránni á kynbótavell-
inum með dómum á sjö vetra og
eldri stóðhestum.
Í Horses of Iceland-tjaldinu verð-
ur lifandi tónlist yfir daginn og
ýmsar uppákomur, t.d. sýnikennsla
í reiðgerði kl. 12:45. Þá verða Grét-
ar og Hebbi með gítarpartí í Top
Reiter-tjaldinu frá 22. Svæðinu er
lokað á miðnætti.
Fjórði dagur Landsmóts 2018 í dag