Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018 Í stíl Kona með barnavagn gengur rösklega yfir gangbraut við Hlemmtorg í Reykjavík og hefur vakandi auga með umferðinni eins og vera ber. Barnavagninn er í stíl við gangstéttina. Eggert Stokkhólmur | Einu ári eftir andlát Hel- muts Kohls, fyrrver- andi Þýskalandskansl- ara, virðist sem þjóðin sem hann leiddi í 16 ár sé ekki viss hvort hún eigi að fylgja arf- leifð hans eður ei. Afstaða Kohls var sú að saga Þýska- lands og staða í miðri Evrópu þýddi að sókn eftir upphefð þjóðarinnar mætti aldrei verða markmið í sjálfu sér. Í huga hans átti landið sem er með fleiri nágranna en nokkurt annað ríki álfunnar ekki að láta finna fyr- ir sér. Þýskaland ætti frekar að halda á lofti þeirri hugmynd að í Evrópu væru öll ríki, stór sem smá, jafnörugg. Síðan flóttamannavandinn hófst haustið 2015 hefur þessi hugmynd Kohls um evrópskt samstarf hins vegar átt undir högg að sækja. Á sama tíma og Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur ýtt á sameiginlega stefnu í innflytjenda- og flóttamannamálum innan Evr- ópusambandsins hefur þeirri skoð- un vaxið fylgi innan Þýskalands að landið ætti að taka upp einhliða aðgerðir sem myndu líklega vera á kostnað annarra ríkja ESB. Á yfirborðinu er umræðan sem nú hel- tekur Þýskaland um hvort það eigi að senda hælisleitendur sem þegar hafa verið skrásettir í öðrum ESB-ríkjum til baka, eins og innanríkis- ráðherrann, Horst Seehofer, leiðtogi kristilegra í Bæjara- landi (CSU), hefur talað fyrir. En þegar kafað er dýpra er spurningin fyrir Þýskaland hvort landið ætti að fara sínar eigin leiðir eða halda áfram að leita sameiginlegra evr- ópskra lausna. Á þessum tímum sjálfsmyndar- stjórnmála hefur deilan um innflytj- endamál orðið að orrustu um sál Þýskalands. Í september síðast- liðnum varð Annar kostur fyrir Þýskaland (AfD) fyrsti öfga-hægri- flokkurinn til þess að ná inn á þýska sambandsþingið síðan á sjö- unda áratugnum. Svo þegar núver- andi ríkisstjórn kristilegra demó- krata og sósíaldemókrata var mynduð varð AfD stærsti stjórn- arandstöðuflokkurinn. Og nú er flokkurinn að toga CSU enn lengra til hægri í aðdraganda sambands- landskosninga í Bæjaralandi í októ- ber næstkomandi. Þessi þróun í Þýskalandi helst í hendur við þróunina vítt og breitt um Evrópu, þar sem þjóðernissinn- aðir og pópúlískir flokkar hafa náð árangri í kjörkössunum með því að hafna lausnum á sviði ESB og kalla eftir lokuðum landamærum. Á Ítal- íu virðist hinn þjóðernissinnaði Bandalagsflokkur ráða ferðinni í hinu nýja stjórnarsamstarfi sínu með pópúlísku Fimmstjörnuhreyf- ingunni. Og í Austurríki hefur hinn öfga-hægrisinnaði Frelsisflokkur beitt áhrifum sínum á innflytj- endastefnuna sem hluti af rík- isstjórninni. Ef maður hlustar á orðræðu þessara flokka mætti halda að flóttamenn og innflytjendur streymdu óhindrað inn til Evrópu. En þó að Balkanlöndin hafi orðið að þjóðvegi fyrir hælisleitendur sem voru að flýja frá Sýrlandi til Þýska- lands og Svíþjóðar árin 2015 og 2016 var í raun lokað fyrir þá leið þegar Tyrkland samþykkti að hýsa flóttamenn í skiptum fyrir fjárhags- aðstoð frá Evrópusambandinu. Og þó að flóttamannavandinn á miðju Miðjarðarhafi haldi áfram að vera fréttnæmur hefur þeim flóttamönn- um sem koma frá Norður-Afríku í raun fækkað hratt á undanförnu ári. Samt hafa innflytjendamál áfram verið álitamál um alla Evrópu, vegna áfallsins í upphafi flótta- mannavandans, sem enn lifir ljóslif- andi í huga kjósenda. Stjórnmál snúast um skynjun fólks, ekki hrá- ar tölur. Og pópúlískir og þjóðernissinnaðir flokkar hafa náð að draga upp þá mynd að Evrópa sé umsetin. Í núverandi andrúmslofti stjórn- málanna myndi sú ákvörðun Þýska- lands að senda flóttamenn aftur til Austurríkis nær örugglega þýða að Austurríki myndi senda þá aftur til Ítalíu. Það myndi færa ESB aftur á sama stað og það var áður, þegar hælisleitendur voru ekki skrásettir við komuna til Ítalíu, og þegar það var erfiðara að snúa þeim aftur við önnur landamæri. Það myndi óum- flýjanlega leiða til þess að ástandið myndi versna og verða eldfimt, þar sem aðildarríki ESB stæðu hvert gegn öðru, og pópúlistar legðu und- ir sig sviðið. Þýskaland Kohls myndi, til sam- anburðar, íhuga hina evrópsku hlið stefnumála sinna og móta þau eftir því. Það myndi ekki bara henda vandamálum sínum á minni ná- grannaríki sín, því að það myndi sjá að öryggi þeirra helst í hendur við öryggi Þýskalands. Árás þjóðern- issinnaðra afla á sýn Kohls gæti haft afleiðingar í för með sér sem næðu langt umfram deiluna um innflytjendamál. Það er ekki bara hlutverk Þýskalands í Evrópu sem er í húfi, heldur einnig framtíð samrunaferlis Evrópu. Þýskaland sem varpar af sér arfleifð Kohls myndi allt í einu verða uppspretta mikillar óvissu, frekar en brjóst- vörn stöðugleikans í hjarta Evr- ópu. Þar sem vesturveldin eiga þegar undir högg að sækja frá mönnum eins og Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Donald Trump Bandaríkjaforseta væri það hið síðasta sem Evrópa þarfnaðist. Núverandi krísa verður líklega leyst með röð ófullkominna mála- miðlana – bæði innan ESB og inn- an ríkisstjórnar Þýskalands. Það er, þrátt fyrir allt, oft þannig sem Evrópusambandið virkar, líkt og í skuldakreppu Grikklands. Ólíklegt er að málið muni enda þar. Efasemdir Þjóðverja um arf- leifð Kohls er þróun sem er stærri en nokkurt eitt álitamál. En það hvernig flóttamannavandinn þróast á næstu vikum mun leiða ýmislegt í ljós um framtíðarstefnu Þýska- lands – og um leið framtíð Evrópu. Eftir Carl Bildt » Síðan flóttamanna- vandinn hófst haust- ið 2015 hefur þessi hug- mynd Kohls um evrópskt samstarf átt undir högg að sækja Carl Bildt Carl Bildt er fyrrverandi forsætisráð- herra og utanríkisráðherra Svíþjóðar. © Project Syndicate 1995-2018 Orrustan um sál Þýskalands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.