Morgunblaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
ekki laust við að það væri bæði
sungið og gripið í píanóið.
Stuttu síðar vorum við á leið í
frí með börnin okkar og urðum
þess áskynja að eitthvað var ekki
eins og það átti að vera hjá vinum
okkar í Vesturási. Símtalið þegar
við komum á leiðarenda var erfitt
fyrir okkur öll. Njalli hafði án
nokkurs fyrirvara greinst með
fjórða stigs krabbamein. Þessi
yndislega jákvæði orkubolti, sem
virtist aldrei fá það verkefni í
hendur sem var honum ofviða,
hafði nú fengið það stærsta hing-
að til.
Allt frá fyrsta degi var Njalli
staðráðinn í að sigra krabbann.
Hann orðaði það þannig að hon-
um hefði verið falið að ráðast í
erfiðustu fjallgöngu lífsins á inni-
skónum einum, en hann myndi
klára það. Og við trúðum því öll.
Njalli og Þóra voru og eru
yndislegir vinir. Gleðin í kringum
þau óviðjafnanleg. Orkan, já-
kvæðnin og krafturinn þeirra að-
alsmerki. Samheldnin. Og þannig
tókust þau á við þetta verkefni.
Af ótrúlegri yfirvegun, æðruleysi
og virðingu. Í meira en tvö ár var
hver frétt af þróun sjúkdómsins
hlaðin vonbrigðum. En aldrei
létu þau hugfallast. Alltaf var
vonin svo sterk, trúin á það að
þetta tækist fyrir rest. Að inni-
skórnir dygðu á toppinn. Og
minningarnar söfnuðust saman.
Það eru þær sem við höldum
nú í. Öll kvöldin sem við sátum
saman, spjölluðum, hlógum,
sungum og jafnvel grétum.
Göngutúr um miðja nótt í Stykk-
ishólmi undir leiðsögn heima-
mannsins Njalla. Glampandi sól-
skin í lautarferð í Flatey. Útilega
í Kolkuósi þar sem tjölduðum á
sjávarkambinum. Samveru-
stundir á Næsta-bæ. Og núna
seinustu misserin heimsóknir til
okkar í Búdapest.
Alltaf var stutt í glettnina, lífs-
gleðina og tónlistina. En Njalli
átti líka aðra hlið. Hann var djúp-
ur, pældi í ólíkustu hlutum og
hafði ákveðnar skoðanir. Eins og
ein vinkona hans lýsti því svo vel
um daginn – „Hann Njalli er svo
vitur.“
En Njallinn okkar var ekki
bara vitur. Hann var hlýr, úr-
ræðagóður, snillingur á píanóið,
söng svo yndislega fallega. Allt
lék í höndum hans. Hann var
endalaust fyndinn og skemmti-
legur. Hann var prakkari. Það
sem við höfum hlegið saman! Síð-
ast en ekki síst traustasti vinur
sem nokkur getur óskað sér.
Hann var vinur sem hægt var að
þegja með. Og það segir svo
margt.
Elsku Þóra, Katla og Yrsa,
Doddi, Auður og Ella. Sársauk-
inn nístir inn að beini. Sorgin er
áþreifanleg. Engin svör fást við
svo ótal mörgum spurningum.
Missir ykkar ólýsanlegur. Þótt
það sé lítils virði verðum við alltaf
til staðar fyrir ykkur. Alveg sama
hvað. Við söfnum áfram minning-
um saman. Og minningin um
Njalla lifir að eilífu.
Vertu sæll, elsku vinur. Við
sjáumst í næsta partíi
Árni Magnússon og
Berglind Bragadóttir.
Elsku Njalli vinur minn hefur
yfirgefið partíið. Ég veit að hann
vildi stoppa lengur og gerði það
eins lengi og hann gat, allt til
enda hélt hann uppi stuðinu og
dró að sér aðra partígesti. „Partí-
ið er ekki búið, það er nóg eftir.“
Hann lagði upp með að vera
góð manneskja alltaf, tókst það
svo vel og hefur kannski ekki haft
svo mikið fyrir því. Það var ein-
hvern veginn innbyggt í eðli
hans, góðmennska, gleði og hið
bráðnauðsynlega innihald;
dásamlegur húmor og hæfileiki
til að sjá bjartari hliðina á tilver-
unni. Við höfum fylgst að með
hléum frá fyrstu æviárum okkar í
Hólminum, bekkjarsystkin frá
því í sex ára bekk, vinir og vinnu-
félagar á unglingsárum. Þegar
kom að því að stofna heimili,
eignast börn og lifa hversdagslíf-
inu á sitthvorum staðnum voru
samskipti minni eins og gerist, en
taugin lá alltaf þarna á milli okk-
ar. Fyrir rúmum þremur árum
blésum við lífi í þessa dýrmætu
vináttu og úr varð „kvenfélagið“,
þriggja manna félagsskapur okk-
ar Njalla og Öldu vinkonu okkar
og bekkjarsystur að vestan.
Fyrst og fremst var hlegið á
fundum félagsins, því fáir kunnu
þá list að segja sögur jafn vel og
Njalli. Síðasti fundur kvenfélags-
ins var haldinn við rúmstokkinn
hans rúmum tveimur sólarhring-
um áður en hann fór, dýrmæt
stund á eina sumardeginum til
þessa. Við kvöddumst með
áformum um annan fund þó að
við höfum líklega öll vitað að
þetta yrði mögulega sá síðasti. Þó
að talsvert hafi verið af okkar
manni dregið var hann að eigin
sögn „í toppmálum“.
Efst í minningunni er þó
kvöldið sem við eyddum saman í
Keflavík í byrjun maí, stuttu eftir
að meðferð hafði verið hætt og
fyrir lá í hvert stefndi. Það var
dýrmætt að eiga þá stund saman
í einlægri vináttu og umhyggju
fyrir hvort öðru. Eftir það kvöld
var í raun ekkert eftir ósagt, en
þó svo ótal margt ógert og marg-
ar minningar sem átti eftir að
skapa.
Mér finnst við og allir sem
elskuðu Njalla hafa misst mikið,
en mest er þó tekið frá elsku
Þóru, stelpunum þeirra og for-
eldrum hans. Megi birtan og
gleðin sem fylgir minningu hans
létta þeim öllum missinn þegar
frá líður.
Njalla mun ég geyma á sér-
stökum stað í hjartanu meðan ég
lifi.
Jófríður Leifsdóttir.
Hvers vegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði.)
Það er svo sárt að horfa á eftir
ungu fólki kveðja lífið alltof
snemma. Við kynntumst Njalla
þegar hann og Þóra byrjuðu að
vera saman. Það er svo margs að
minnast að ekki er hægt að setja
allt á blað. Hjartað geymir allar
minningarnar um þig, elsku
Njalli. Hvernig þú tókst á við
veikindin og hvernig þú tæklaðir
þau, var með ólíkindum svo já-
kvæður og talaðir hreint út, ekk-
ert rósamál þar.
Þið Þóra áttuð svo vel saman
og eigið góðan vinahóp sem er
mikils virði á þessum tímamót-
um. Elsku Þóra, Katla og Yrsa,
sorg ykkar er mikil en minning-
arnar góðar. Við erum til staðar
fyrir ykkur allar, alltaf. Elsku
Auður og Doddi, það á enginn að
lifa barnið sitt. Auðurinn sem
Njalli skilur eftir sig, þær Kötlu
og Yrsu, er ómetanlegur.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar allra minningin
um góðan dreng lifir í hjörtum
okkar.
Ágústa (Gústa)
og Halldór (Dóri).
Það er þyngra en tárum taki
að þurfa að setjast niður og skrifa
minningargrein um besta vin
okkar, sem er að kveðja þetta líf
allt, allt of snemma. Hvernig má
það vera að lífið geti verið svona
hræðilega ósanngjarnt spyr mað-
ur sig. Ég get fullyrt það að ef
það er einhver maður sem hefur
haft áhrif á alla sem hann hefur
kynnst, þá er það hann Njalli
okkar, þvílíkur gleðigjafi sem
hann var með sinn dásamlega
kaldhæðnishúmor og alltaf til í að
prakkarast við vini sína með
brjáluðum metnaði fram á nætur
við að tengja flautur við bakkljós
eða smíða sérhannaða hjólastóla
fyrir 40 ára afmælisgjafir og þar
fram eftir götunum. Svo ekki sé
minnst á þegar Njalli var búinn
að sækja sér prumpu-appið og
blastaði því hvar sem hann kom,
hvort sem það var heima fyrir
eða í vinnu eða bara í klippingu á
hárgreiðslustofunni. Já, hvar
sem Njalli kom var alltaf húmor
og gaman.
Njalli okkar hneigðist snemma
að markaðsmálum þar sem hann
hafði mikinn áhuga á þeim enda
hafði hann mikinn sannfæringar-
kraft, sem kom skýrlega fram ný-
lega þegar að ættingjar og vinir
komu saman og allir óku þeir
sömu bílategundinni sem Njalli
mælti svo mikið með og þegar
fólk stakk saman nefjum komu
fleiri áhrif frá Njalla í ljós, allir
voru með sömu hljómtæki heima
og allir voru hjá sama símafyr-
irtækinu. Við munum líka eftir
því að þegar hann starfaði hjá
ákveðnum gosdrykkjarframleið-
anda þá mátti ekki drykkur frá
keppinaut fara inn fyrir hans var-
ir.
Ef það er einhver manneskja í
lífinu okkar sem hefur áunnið sér
virðingu okkar og væntumþykju
og traust þá er það klárlega þú,
elsku besti Njalli okkar. Það
vermir vissulega hjarta manns
að eiga allar þessar frábæru
minningar sem við höfum búið til
saman með fjölskyldum okkar.
En það er svo magnað að ef mað-
ur lygnir aftur augunum og
hugsar til þín þá er það af svo
mikilli gleði að maður fer alltaf
að hlæja að einhverri vitleysunni
eða fíflaríinu eða manni hlýnar
um hjartaræturnar af hlýjunni
og ylnum sem þú gafst okkur öll-
um.
Þú hefur alla tíð verið svo
hreinn og beinn, aldrei talað í
kringum hlutina eða skreytt þá
glassúr, það er í okkar huga frá-
bær eiginleiki.
Þú sýndir okkur öllum í um-
hverfi þínu áhuga og hlýju og
varst mikill mannvinur og góð
frábær manneskja . Þú kenndir
okkur svo ótrúlega margt, elsku
Njalli okkar, og get ég fullyrt að
þú ert fyrirmyndin sem við ætl-
um að hafa í lífinu. Þú kvaddir líf-
ið frá tveimur yndislegum stelp-
um og henni Þóru þinni, þær sem
voru stolt þitt og yndi sem þú
elskaðir svo mikið. Við komum til
með að standa þétt við bakið á
þeim, elsku Njalli okkar, og halda
áfram að skapa yndislegar og
góðar minningar með þeim og
veit ég nærvera þín verður alltaf
hvort sem er í minningum eða
anda.
Við kveðjum að sinni, kæri vin-
ur, og hlökkum til næsta partís
með þér, þótt þú hafir yfirgefið
þetta allt of snemma, elsku Njalli
okkar, við elskum þig að eilífu.
Elsku Þóra, Katla, Yrsa, Þórð-
ur og Auður, missir ykkar er
mikill, við biðjum góðan guð að
veita ykkur styrk í sorginni
Kossar og knús,
Einar, María (Maja),
Þór og Ísak.
Það er dapurleg sjón að sjá
vinnuborðið hans Njáls Þórðar-
sonar tómt og stutt síðan hann
sat þar við síðast og reytti af sér
brandara eins honum var einum
lagið.
Við kveðjum nú því miður ein-
staklega vandaðan mann sem var
skapandi, drífandi og fullur af
hæfileikum.
Njalli var listamaður á mörg-
um sviðum og á köflum viðkvæm-
ur eins og þeir gjarnan eru en
hann lagði líka hjartað sitt í allt
sem hann gerði. Lífleg framkoma
og einstakur húmor einkenndi
hann. Njalli notaði íslenska
tungu eins og enginn annar til að
koma frá sér leiftrandi lýsingum
á mönnum og málefnum og skildi
okkur hin eftir veinandi af hlátri.
Á vinnustað sínum síðustu tíu
ár kom hann að stórum verkefn-
um og var oft í lykilhlutverki.
Undanfarin ár til að mynda
fylgdist hann stoltur með sinni
nýjustu afurð sem vex og dafnar
dag frá degi án þess að berja sér
nokkurn tíma á brjóst, því Njalli
barst ekki á. Margir fá að njóta
árangursins af því starfi hans
daglega.
Njalli kynnti okkur fyrir tón-
list, tækni, stefnum og straum-
um. Hann fylgdist vel með tíð-
arandanum og hafði áhuga á öllu
mannlegu.
Ekkert sýndi svo betur hvaða
mann hann hafði að geyma en
baráttugleðin og viðhorfið gagn-
vart sjúkdómi sínum, eftir þessu
var tekið. Síðustu vikurnar sem
hann lifði var hann mjög upptek-
inn við að skilja vel við og það
gerði hann svo sannarlega.
Guð blessi Þóru, stelpurnar
hans og fjölskyldu Njalla. Hvíl í
friði, kæri vinur.
Pálmi Guðmundsson
og samstarfsfólk hjá
Sjónvarpi Símans.
Við Njáll vorum bekkjarbræð-
ur og ólumst upp saman í Hólm-
inum. Að honum sogaðist fólk.
Engin furða þar sem Njalla
fylgdi grín og glens, hugmynda-
auðgi og áræðni til framkvæmda.
Þá komu sér vel hæfileikar hans
sem skemmtikrafts í gegnum
grínistann, eftirhermur og tón-
listina.
Njalli var snemma duglegur
að tileinka sér tækni og nýjung-
ar, en sá eiginleiki átti eftir að
nýtast honum í leik og starfi. Gott
var að leita til Njalla og fá stað-
festingu á í hvaða tækjum bestu
kaupin voru, þau ráð brugðust
aldrei.
Ég er þakklátur Auði og Þórði
fyrir að opna félagsmiðstöðina að
Víkurflöt 7. Þar vorum við alltaf
velkomin. Njalli þjappaði hópn-
um saman með vídeókvöldum og
öðrum uppákomum. Var þá
gjarnan spilaður biljarð, en borð-
stofunni að Víkurflöt 7 var fórn-
að undir biljarðborð sem vakti
mikla lukku. Þar var einnig
keypt áskrift að Stöð 2 um leið og
hún barst í Hólminn, sem átti
ekki við öll heimili. Við hin biðum
spennt eftir að mæta í skólann á
mánudögum og jafnvel fyrr þá
morgna til að missa ekki af
Njalla rifja upp síðasta þátt af
Heilsubælinu í Gervahverfi. Þar
fór drengurinn á kostum og að
mati skólafélaganna náði hann
karakterum betur en Laddi sjálf-
ur.
Njalli var frumkvöðull þegar
kom að tónlist og hljóði í Hólm-
inum og margir muna eflaust eft-
ir þegar hann mætti með fyrsta
geisladiskinn í skólann, en það
fyrirbæri höfðu þá fáir í Hólm-
inum séð. Fullyrti að diskurinn
væri óbrjótanlegur og kastaði
honum í alla veggi því til staðfest-
ingar.
Minn fyrsta bíl eignaðist ég
með Njalla. Subaru station ár-
gerð 1974, eða jafngamlan okkur
félögunum. Ökutækið var í eigu
sýslumannsins í Stykkishólmi.
Bankað var upp á hjá „Jóni sýsl“
og kaupin handsöluð. Bíllinn fékk
nafnið „Tómasi B“. Kaup á sta-
tion voru úthugsuð hjá Njalla því
skottið mátti fylla af hátölurum.
Bílinn var rúllaður bleikur og
vinsælt að rúnta með Njalla á
Tómasi. Ógleymanleg er ferð í
Ólafsvík er húddið fauk upp.
Læsingin gaf sig og er heim var
komið gegnumboltaði Njalli
húddið niður og bauk yfir til að
fela boltann sem stóð upp úr
húddinu. Þeir sem vildu komast á
rúntinn með Njalla á Tómasi B.
máttu setja bensínpening í bauk-
inn.
Mín fyrstu skref að heiman tók
ég með Njalla, og hann því minn
fyrsti „sambýlismaður“. Njalli
lagði áherslu á að leigja einbýlis-
hús, fjölbýli kæmi ekki til greina,
en kappinn var nú þegar búinn að
koma sér upp flottustu hljóm-
flutningsgræjum Stykkishólms
og þær yrði að vera hægt að
„blasta“.
Fyrir valinu varð Hlíðarvegur
29A í Kópavogi, lítið gult ein-
býlishús á tveimur hæðum. Með
okkur „Hlíðarbræðrum“ leigði
Guðlaugur Ari Karvelsson. Húsið
varð helsti samkomustaður ungs
fólks úr Hólminum og tíminn
ógleymanlegur.
Njalli var upphafsmaður að
flestu ef ekki öllu sem við tókum
okkur fyrir hendur. Aldrei kom
upp ágreiningur eða leiðindi og
ávallt var jákvæðnin og gleðin við
völd.
Kæri Hlíðarbróðir, takk fyrir
allar gleðistundirnar.
Elsku Þóra, Katla, Yrsa, Auð-
ur og Þórður, innilegustu samúð-
arkveðjur og megi guð gefa ykk-
ur styrk til að viðhalda gleðinni
sem ávallt fylgdi Njáli Þórðar-
syni.
Magnús Ingi
Bæringsson.
Systir mín og frænka okkar,
ÞÓRHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
Dúdda,
fyrrverandi vararæðismaður Íslands
og leiðsögumaður,
sem lést á heimili sínu í Fuengirola
laugardaginn 12. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 4. júlí klukkan 15.
Þorsteinn Þorsteinsson
Gauti Kristmannsson
Þorsteinn Kristmannsson
Kristmann Egill Kristmannsson
Eiður Páll Sveinn Kristmannsson
Leifur Ragnar Jónsson
Kristín Ragna Jónsdóttir
Jón Ragnar Jónsson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEINÞÓRA SUMARLIÐADÓTTIR,
Hlíðarhjalla 44,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
fimmtudaginn 28. júní. Útförin fer fram frá
Garðakirkju föstudaginn 6. júlí klukkan 13.
Örn Einarsson
Aldís Björg Arnardóttir Kári Ellertsson
Arna Þóra Káradóttir Örvar Hilmarsson
Ellert Kárason
Aþena Líf, Atlas Ingi, Alexandra Ylfa
Elskulegur sonur minn, bróðir, frændi og
vinur,
BRAGI HÚNFJÖRÐ KÁRASON,
bóndi á Þerá í Norðurárdal,
er látinn. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju,
Skagastönd, mánudaginn 9. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Höskuldsstaðakirkju eða björgunarsveit
Blönduóss.
Sólveig Bjarnadóttir
systkini og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HÖRÐUR JÓNSSON,
fyrrverandi skipstjóri og
útgerðarmaður á Patreksfirði,
lést laugardaginn 30. júni.
Útför hans verður frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. júlí
klukkan 13. Starfsfólki á hjartadeild Landspítalans færum við
innilegar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun.
Edda Axelsdóttir
Jón Axel Harðarson Izabela K. Harðarson
Heba Harðardóttir Jón S. Bjarnason
María Harðardóttir Þorsteinn Narfason
barnabörn og barnabarnabörn