Morgunblaðið - 04.07.2018, Side 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Þingeyjarsveit
Hólsvirkjun – Aðal- og deiliskipulag
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 20. október 2016 að auglýsa skv. 1. mgr. 41. gr. og 1.
mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi og samsvarandi breytingu á Aðalskipulagi
Þingeyjarsveitar 2010-2022 vegna fyrirhugaðrar Hólsvirkjunar, 5,5 MW vatnsaflsvirkjunar, sem Arctic Hydro ehf
hyggst reisa í landi Ytra-Hóls, Syðra-Hóls og Garðs í Fnjóskadal. Áformað er að virkja Hólsá og Gönguskarðsá
ofan Garðsfells og leiða vatn í þrýstipípu að stöðvarhúsi við Fnjóská.
Fyrirhugað er að skilgreina í aðalskipulagi nýtt 36 ha iðnaðarsvæði fyrir vatnsaflsvirkjun, en svæðið
er nú skilgreint sem landbúnaðarsvæði og óbyggt svæði. Alls sex ný efnistökusvæði eru skilgreind í
aðalskipulagstillögunni í tengslum við fyrirhugaðar framkvæmdir.
Tillögunum fylgir einnig umhverfisskýrsla sem er unnin skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagsstofnun úrskurðaði þann 27. febrúar 2017 að framkvæmdin væri háð mati á umhverfisáhrifum að
teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum nr.106/2000. Tillögurnar hafa verið
uppfærðar þar sem komið hefur verið til móts við niðurstöðu umhverfismatsins.
Tillöguuppdrættir með greinargerðum munu liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar, frá
og með miðvikudeginum 4. júlí með athugasemdarfresti til og með miðvikudeginum 15. ágúst 2018. Þá eru
tillögurnar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar:
https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/skipulagsmal/deiliskipulag/tillogur-i-auglysingu
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur
til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 15. ágúst 2018. Skila skal athugasemdum skriflega
til skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið: bjarni@thingeyjarsveit.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests teljast þeim samþykkir.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Bjarni Reykjalín
skipulags- og byggingarfulltrúi
bjarni@thingeyjarsveit.is
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9-16.
Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-16. Opið fyrir
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala
kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir.
s: 535-2700.
Garðabær Jónshús/félags- og íþróttastarf,
sími: 512-1501 virka daga kl. 09.00 - 16.00.
Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka
daga frá 9.30 - 16.00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með
síðdegiskaffinu er selt frá 14.00 - 15.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10.00, Bridge í
Jónshúsi kl. 13.00.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.10 Boccia-
æfing, kl. 13.00 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin
frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi.
Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi
kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, stólaleikfimi og
slökun kl. 13 og handavinna frá kl. 13-16 og
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar
kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan er
opin fyrir alla frá 9-16, ganga kl.10,
síðdegiskaffi kl.14:30, allir velkomnir óháð aldri
upplýsingar í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Snjallsíma og spjaldtölvunám-
skeið klukkan 10.00. Kaffispjall í króknum
klukkan 10.30. Botsía í salnum Skólabraut
klukkan 13.30. Ganga frá Skólabraut klukkan
14.30. Vatnsleikfimi Sundalaug Seltj. klukkan
18.30.
Vitatorg Sumarferð til Friðheima þann 4. júlí
frá 9.30-15.00. Skoðum gróðurhúsið og fáum
Friðheima tómatsúpu í hádegisverð. Rúta með
gott aðgengi fyrir fólk sem notast við hjólastóla
og göngugrindur. Verið velkomin með. Ferðin
er opin öllum óháð aldri og búsetu. Verð 5500
krónur. Skráning og greiðsla á Vitatorgi, sími
411-9450
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Vitnisburður og
sambæn. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Bílar
Toyota Corolla til sölu
Árg. ‘98. Liftback. Skoðaður '18.
Topp eintak. Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863 7656.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
✝ Guðrún B.Björnsdóttir
fæddist í Reykjavík
28. maí 1940. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
5. júní 2018.
Guðrún var dótt-
ir hjónanna Björns
Guðmundssonar
verkstjóra, f. í
Dýrafirði 27.12.
1910, d. 21.1. 1983,
og Sigríðar Hansdóttur hús-
móður, f. í Hafnarfirði 8.12.
1916, d. 15.12. 1983.
Bróðir Guðrúnar er Þorvarð-
ur, fæddur í Reykjavík 16.4.
1947, hann á einn son frá fyrra
hjónabandi. Eiginkona Þorvarð-
ar er Margareta Johansson og
eru þau búsett í Svíþjóð.
Guðrún giftist 16. apríl 1961
Jóni Guðmundi Bergssyni vél-
virkja, f. í Reykjavík 26.1. 1933.
Foreldrar Jóns voru Bergur
Páll Sveinsson vélstjóri, f. 5.10
1910, d. 5.8. 1978, og Ágústa
Ragnheiður Pálsdóttir hús-
móðir, f. 10.8. 1913, d. 21.7.
1963.
Börn Guðrúnar og Jóns eru;
Sigríður Ágústa Jónsdóttir, f.
23.8. 1961, d. 10.10. 2012. Hún
var gift Marteini
Ólafssyni, þau
skildu. Börn þeirra
eru: Þórdís, f.
16.10. 1980, Jón
Guðmundur, f. 9.10.
1981, d. 26.7. 2015,
Hafsteinn Alexand-
er, f. 30.10. 1986,
og Valgeir Elís, f.
22.08. 1988.
Björn, f. 25.9.
1963, kvæntur Sig-
ríði Jónu Berndsen. Börn þeirra
eru; Karl Birgir f. 31.10. 1988,
Guðrún Sandra, f. 2.4. 1992, og
Björn Ingi f. 30.6.2006.
Sigrún, f. 14.7. 1965, í sambúð
með Jóhannesi Snorrasyni, f.
3.5. 1963. Páll, f. 16.9. 1973,
fyrrverandi eiginkona hans er
Rebekka Rós Ellertsdóttir f.
12.7. 1974. Börn þeirra eru;
Ágústa Ragnheiður, f. 23.3.
1993, Thelma Dögg, f. 26.1.
1997, Björn Ellert, f. 14.1. 2001.
Núverandi eiginkona Páls er
Katrín Júlía Júlíusdóttir, f. 07.1.
1978, hún á þrjú börn.
Guðrún og Jón eiga 12 barna-
barnabörn.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 26. júní
2018.
Við Guðrún felldum snemma
hugi saman og hófst saga okkar í
Þórsmörk 1961, við gengum í
hjónaband sama ár. Samband
okkar var alla tíð einstaklega
ástríkt og gott. Við fórum saman
í gegnum lífið án stórra áfalla og
þrátt fyrir að við höfum þurft að
hafa fyrir hlutunum áttum við
alltaf hvort annað og við rifumst
aldrei nokkurn tímann, öll þessi
ár.
Saman eignuðumst við fjögur
börn og heilan her af barnabörn-
um og barnabarnabörnum. Sig-
ríði eignuðumst við 1961, Björn
1963, Sigrúnu 1965 og Pál 1973.
Sigríði misstum við árið 2012 og
var það okkur ansi þungbært.
Þar sem fjölskyldan var stór
þurfti að vinna mikið og Guðrún
starfaði lengst af í Kjötmiðstöð-
inni á Laugavegi og síðar við
Laugalæk og lauk starfsævi
sinni hjá Ferskum kjötvörum.
Guðrún var mikill vinnuþjarkur
og lét sitt aldrei eftir liggja.
Við hjónin ferðuðumst mikið
hér á árum áður bæði innanlands
og utan. Við áttum lítið hjólhýsi
sem við notuðum mikið og áttum
við margar ánægjustundir í
faðmi náttúrunnar. Á seinni ár-
um fórum við nokkrar ferðir til
Kanaríeyja og var það í okkar
síðustu ferð þangað, árið 2008,
sem Guðrún varð ofsalega veik
og var lögð inn á sjúkrahúsið Cli-
nica Roca. Þar var hún skorin
upp og mér sagt að hún myndi
ekki lifa af skurðaðgerðina, en
hún lifði af og sýndi þar þraut-
seigjuna sem var svo lýsandi fyr-
ir hana. Eftir mánaðar sjúkra-
legu í dái var henni flogið til
Íslands með sjúkraflugvél og
hún lögð inn á gjörgæslu Land-
spítalans í öndunarvél og lá þar í
dái á annan mánuð. Okkur var
margsinnis tjáð að við þyrftum
að kveðja hana en öllum að óvör-
um og þvert á allar væntingar
stóð Guðrún upp eftir þessa
löngu og erfiðu sjúkralegu.
Þrátt fyrir margar læknis-
ferðir og ítrekaðar sjúkrahúsleg-
ur vorum við dugleg að nota hjól-
hýsið okkar og fórum reglulega í
sumarbústað og lifðum inni-
haldsríku lífi tvö ein og með
stóru fjölskyldunni okkar. Veik-
indin settu mark sitt á Guðrúnu
en hún lét það ekki stoppa sig.
Hún barðist við þau allt til síð-
asta dags.
Ég kem til með að sakna þín
alla mína tíð.
Guð geymi þig, engillinn minn.
Þinn ástkær eiginmaður,
Jón Guðmundur Bergsson.
Guðrún B.
Björnsdóttir
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.