Morgunblaðið - 04.07.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er alltaf gott að hafa vara-
áætlun í bakhöndinni. Gættu þess að hafa
þitt á hreinu svo þú verðir sigurvegari
dagsins.
20. apríl - 20. maí
Naut Gerðu sömu kröfur til annarra og þú
gerir til sjálfs þín. Þú virðist vera að sigla
inn á lygnan sjó og átt svo sem fyrir því að
eiga rólegar stundir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú lendir í þeirri aðstöðu að yf-
irráð þín eru dregin í efa. Láttu smávægi-
legar áhyggjur lönd og leið og þér tekst að
horfast í augu við aðstæður þínar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki létt að bera sig eftir
því sem maður þráir ef maður veit ekki
hvað maður vill. Hugsaðu þig tvisvar um
áður en þú eyðir peningum í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver sem þú ert í sambandi við,
kynnir þig fyrir nýjum möguleikum. Það
kemur þér á óvart, hversu mikla ánægju
þú hefur af samvistum við vinn þinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Búðu þig undir miklar breytingar
sem dynja yfir innan skamms. Verkefnin
þín þróast í þá átt sem þú vonaðist eftir,
og brosið nær allan hringinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu þér ekki detta í hug að þú getir
ekki unnið þau verk sem þér hafa verið fal-
in. Ekki vera of upptekin/n af því sem aðr-
ir á vinnustaðnum eru að segja eða gera.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekkert ganga fyrir fjöl-
skyldu þinni því hún er grundvöllur lífs
þíns og án hennar værir þú ekki það sem
þú ert.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Athafnir manns byggjast á
innri styrk, eins og þú veist. Skilin á milli
góðs sjálfstrausts og hroka eru ekki svo
skörp, þú uppgötvar það núna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að láta gott af þér leiða
og leggja þannig lífinu lið, sem ekki veitir
af. Aðstæður eru góðar til þess að eiga
samræður við yfirboðara og auka tekjur
þínar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú segir meiningu þína
máttu eiga von á að einhver valdabarátta
komi upp á vinnustað. Skoðaðu því alla
þætti vandlega, bæði kosti og galla.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Farðu varlega í fjármálum í dag og
ekki láta plata þig út í einhverja tilrauna-
starfsemi. Fólk tekur eftir því hvað þú
sendir frá þér sterka strauma.
Fótbolti er leikur. Ekki ætti aðþurfa að taka það fram, en til
þess er þó full ástæða. Danir eru
vanir að vera friðsemdarfólk, en
einhverjir virðast hafa sleppt sér
við að danska landsliðið féll úr leik í
vítaspyrnukeppni gegn Króötum í
16-liða úrslitum. Landsliðsmaðurinn
Nicolai Jörgensen hefur fengið það
óþvegið. Hann var einn þriggja
leikmanna liðsins sem misnotuðu
vítaspyrnu í vítaspyrnukeppni. Við
færslu sóknarmannsins á vefnum
Instagram skrifaði einn: „Dauði
fyrir Jörgensen“ og annar: „Þú hef-
ur eyðilagt allt fyrir Danmörku,
svínið þitt.“ Danska knattspyrnu-
sambandið brást hart við, sagði að
morðhótanir ætti aldrei að líða,
hverjir sem í hlut ættu, og málið
yrði tilkynnt lögreglu. Víkverji skil-
ur ekki hvað fólki, sem bregst við
með slíkum dólgshætti, gengur til.
x x x
Víkverji velti hins vegar fyrir sérþegar hann fylgdist með víta-
spyrnukeppninni í leikjum Rússa
og Spánverja annars vegar og Kró-
ata og Dana hins vegar á sunnudag
hvort markmennirnir væru ekki
fullfljótir af stað af marklínunni.
Fannst honum nokkrum sinnum að
dómarinn hefði mátt láta endurtaka
spyrnur þar sem markmenn hefðu
ekki virt regluna um að fara ekki af
línunni fyrr en vítaskyttan hefði
spyrnt knettinum. Hann fékk síðan
efasemdir sínar staðfestar þegar
hann las frétt á vef þýska knatt-
spyrnumiðilsins Kicker um að 16 af
20 vítaspyrnum (þá er vítaspyrnan,
sem Kasper Scheichel varði frá
Luca Modric í framlengingu talin
með) hefðu stangast á við reglur.
Aðeins einn markmaður hefði hald-
ið sig við reglurnar, Spánverjinn
David de Gea, og lið hans féll úr
keppni.
x x x
Heimsmeistarakeppnin sker sigreyndar ekki úr hvað þetta
varðar. Reglunni um að markmaður
megi ekki fara af línunni er sjaldn-
ast fylgt eftir, enda hvarflaði
greinilega ekki að vítaskyttunum að
kvarta þegar vítaskot þeirra voru
varin.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg-
semd, minn örugga klett og athvarf
mitt hef ég í Guði.
(Sálm: 62.8)
Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Áföstudaginn var langur vísna-bálkur hér í Vísnahorni um
„veðrið í Eyjafirði í júní“, sem birst
hafði á Leirnum. Og enn var ort.
Sigurlín Hermannsdóttir bætti því
við að í fréttunum í gær (miðviku-
dag) hefði verið sagt frá fiskeldi þar
sem hefði kviknað í. – „Seiðin sluppu
og syntu um á gólfinu,“ skrifar Sig-
urlín. „Ég sá þá að hugmynd Sigrún-
ar um ræktun á blettinum var alveg
rökrétt.“
Nú vaxa vatnaliljurnar
venju fremur litríkar
sé að líka svamla þar
sílspikaðir túnfiskar.
Páll Imsland heilsaði Leirliði á
blautu sumri og sagði: „Mér líst í
sjálfu sér vel á framsæknar nýfram-
komnar hugmyndir Sigrúnar og
Sigurlínar um nýjungar í fiskirækt.
Væri ég ungur enn myndi ég líklega
fara í fiskifræði, eins og ég reyndar
hugleiddi í gamla daga.
Grjótið reyndist bara þyngra á
metunum“:
Ræktaðu fisk þinn á grænu grasi
og gefðu’ honum fosfór að nærast á.
Sittu á verönd með gin í glasi
og gáðu hvort veröldin lagast smá.
Sigrún svarar: „Ég drekk aldrei
Gin fyrir hádegi svo að …“:
Þótt dapurlegt sé og drukknað hvert strá
drunga burt næ að hrinda
með Torres í glasi er töfrandi að sjá
túnfisk um blettinn synda.
Fía á Sandi og Bjössi gera þessa
athugasemd:
Ef að þú drífur þig út að slá
allan fiskinn með grasinu.
Túnfisksalat er sjálfsagt að fá
sér með jónunni og glasinu.
Sigrún tekur þessu vel:
Fyrir það í glas að gá
ég gjarnan léti krónu
og það væri fínt að fá
feita og stóra jónu.
„En salatinu má mín vegna
sleppa!“ bætir hún við.
Davíð Hjálmar Haraldsson segir
nýjustu fréttir frá Grímsey:
Í ystu skerjum ró og frið við finnum
og fýl og máf – og ísbjörn stöku sinnum –
og ferðamenn nú hafa sitt á hreinu
og hægja sér þar jafnvel tveir í einu.
Jóel Friðriksson á Húsavík orti og
kallaði „Dagrenning“:
Sær og land við sólarris
saman standa bæði,
– flytja anda almættis
efnisvandað kvæði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nýjungar í fiskrækt og
sílspikaðir túnfiskar
„TÖLURNAR LJÚGA EKKI EN ÞÆR SEGJA
HELDUR EKKI ALLA SÖGUNA – VEGNA
BANKALEYNDAR.“
„BÝFLUGUR STINGA ÞIG EKKERT EF ÞÚ
LÆTUR ÞÆR Í FRIÐI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ekki í gær eða á
morgun, heldur núna!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VOFF! VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF! VOFF!
KÆRI HUNDAVINUR, HVAÐ
ER MÁLIÐ MEÐ AÐ HUNDAR
ERU ALLTAF AÐ RÓTA Í
RUSLI?
AFNEITUN ÞÍN VÆRI MEIRA
SANNFÆRANDI EF ÞÚ VÆRIR
EKKI MEÐ BANANAHÝÐI Á
HAUSNUM.
FÆRÐU SEM LÖGFRÆÐINGUR KVARTANIR
FRÁ MÖNNUM SEM ÞÚ HEFUR VARIÐ FYRIR
ÁKÆRUM KONUNGS? ALDREI!
EN EKKJUR ÞEIRRA HAFA
SITTHVAÐ AÐ SEGJA!