Morgunblaðið - 04.07.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
ICQC 2018-20
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Fjöllistahátíðin Reykjavík Fringe
Festival hefst í höfuðborginni í dag
og stendur yfir til og með 8. júlí.
Blásið verður til ýmissa for-
vitnilegra listaviðburða í tilefni há-
tíðarinnar en yfir 50 listamenn og
listahópar munu taka þátt og halda
yfir 130 sýningar á fimm dögum
víðsvegar um miðborgina.
Öll listform leyfileg
Dagskráin verður einkar fjöl-
breytt og hin ýmsu listform fá að
njóta sín, m.a. leiklist, dans, uppi-
stand, spuni, kabarett, sögustundir,
myndlistarsýningar, kvikmyndir og
fyrirlestrar, svo fátt eitt sé nefnt.
Má áætla að allir muni finna eitt-
hvað við sitt hæfi yfir hátíðardag-
ana en dæmi um verk á dagskránni
eru spunasýning Improv Iceland,
fjölmargar uppi-
standssýningar,
sérstök dragsýn-
ing Drag-súgs,
ljóðaslamm-
keppni, dansverk
og margt fleira.
Nanna Gunn-
arsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Reykjavík
Fringe Festival,
segir að upp-
haflega hafi átt að halda slíka hátíð í
Reykjavík í fyrra en vegna ófyr-
irsjáanlegra aðstæðna hafi þurft að
blása hana af. „Þessi hátíð er barn
grínistans Jóns Magnúsar Arnar-
sonar sem fékk þessa hugmynd í
fyrra. Ég ákvað í ár að ég vildi taka
við keflinu og fékk hann í lið með
mér í skipulagningu hátíðarinnar.
Svo erum við með valinn mann í
hverju rúmi,“ segir Nanna.
Vöntun á fjöllistahátíð
Hugmyndafræði Fringe-hátíð-
anna kemur frá Edinborg, en fyrsta
alþjóðlega listahátíðin þar í borg
var haldin árið 1947. Þá ákváðu
nokkur leikhúsfyrirtæki að mæta
óboðin og setja upp leiksýningar.
Hátíðin í Edinborg dafnaði og
óx og út frá henni hafa
sprottið hinar ýmsu
Fringe-hátíðir, sem eru
aðgengilegar fyrir öll list-
form, ekki aðeins leik-
list.
Nanna er leikkona
og hefur áður tekið
þátt í Fringe-hátíð
í Edinborg. Eftir
að hún kom
heim fannst
henni vanta
slíka hátíð
hér á landi.
„Mér fannst
vanta vett-
vang fyrir
íslenska
listamenn
en þessari
hátíð er ætlað
að skapa þeim tæki-
færi til að koma sér á fram-
færi erlendis, ásamt því að vera
vettvangur fyrir erlenda listamenn
sem fá að koma og sýna sín verk
og þannig auka við íslensku lista-
flóruna.“
Sýning í heimahúsi
hápunktur
Að sögn Nönnu gekk
vel að fá lista-
menn á hátíð-
ina en þátttak-
endur koma
hvaðanæva
að, m.a. frá
Íslandi,
Banda-
ríkjunum, Svíþjóð, Þýskalandi,
Bretlandi, Brasilíu, Kanada, Ástr-
alíu og Ísrael. Flestar sýningar fara
fram á ensku, en einnig eru sýn-
ingar á íslensku ásamt sýningum
sem fara ekki fram á töluðu máli,
s.s. myndlistarsýningar, innsetn-
ingar og dansverk. Þá verða á
staðnum erlendir blaðamenn auk
framkvæmdastjóra Fringe-
hátíðanna á Norðurlöndunum.
Verk byggt á persónulegri
reynslu af símavændi
Meðal hápunkta á hátíðinni að
mati Nönnu er verðlaunaverkið
Phone Whore, sem byggist á per-
sónulegri reynslu listamannsins af
símavændi. „Verkið verður sýnt
tvisvar í heimahúsi. Það komast
bara tuttugu manns inn svo þetta
verður mikil upplifun,“ segir hún.
Allar nánari upplýsingar um við-
burði eru aðgengilegar á Facebook-
síðu og vefsíðu Reykjavík Fringe
Festival.
Yfir 130 verk á fjöllistahátíð
Leiklist, dans, spuni, kabarett og fleira á Reykjavík Fringe Festival sem hefst
í dag og stendur yfir í fjóra daga Hugmyndafræði Fringe frá Edinborg
Spuni Spunahópurinn Improv Ísland tekur þátt í Reykjavík Fringe Festival sem hefst í höfuðborginni í dag.
Nanna
Gunnarsdóttir
Símavændi
Cameryn Moore í ein-
leiknum Phone Whore.
Ant-Man and the Wasp
Uppfinningamaðurinn Hank Pym
felur Scott Lang, Mauramanninum,
verkefni sem snýst um að grafa
upp hættulegt leyndarmál úr for-
tíðinni. Scott nýtur að þessu sinni
aðstoðar dóttur Pym, Hope, sem
einnig er ofurhetja og gengur sem
slík undir heitinu the Wasp, eða
Vespan.
Leikstjóri myndarinnar er Peyton
Reed og með aðalhlutverk fara
Paul Rudd, Evangeline Lilly, Mich-
ael Douglas og Walton Goggins.
Rotten Tomatoes: 83%
Metacritic: 69/100
Ævintýraferð fakírsins sem
festist inni í IKEA-skáp
Kvikmynd byggð á samnefndri bók
franska rithöfundarins Romain Pu-
értolas sem kom út í íslenskri þýð-
ingu árið 2014. Hún segir af Aja-
tashatru Oghash Rathod sem telur
þorpsbúum í Rajasthan í Indlandi
trú um að hann búi yfir töframætti
og hann fær þá til að borga undir
sig flug til Parísar svo hann geti
keypt sér naglarúm í IKEA. Þar
festist hann inni í skáp, eins og tit-
illinn ber með sér og fer í mikla
ævintýraferð.
Leikstjóri er Ken Scott og með að-
alhlutverk fara Danush, Bérénice
Bejo, Erin Moriarty, Barkhad
Abdi, Gérard Jugnot, Ben Miller,
Abel Jafri og Kay Greidanus. Enga
samantekt er að finna á gagnrýni
en Hollywood Reporter og Screen
International gefa myndinni já-
kvæða umsögn.
Bíófrumsýningar
Maur og vespa – og
fakír í IKEA-skáp
Hetjur Vespan og Mauramaðurinn komin í gallana og til í slaginn.
Kvikmynda-
framleiðandinn
Harvey Wein-
stein hefur verið
ákærður í New
York fyrir fleiri
kynferðisbrot.
Áður hafði hann
verið ákærður
fyrir að nauðga
tveimur konum.
Hann er nú
ákærður fyrir að koma fram vilja
sínum við eina konu til með of-
beldi og fyrir skipulögð brot gegn
tveimur öðrum. Refsing fyrir
hvert slíkt afbrot er tíu ára til
lífstíðar fangelsi. Lögmaður
Weinstein segir hann saklausan af
ákærunum.
Harvey
Weinstein
Weinstein kærður
fyrir fleiri brot
Stórleikarinn
Ólafur Darri
Ólafsson birti
skemmtilega
ljósmynd á Face-
book-síðu sinni
30. júní en á
henni sést hann
snæða kvöldverð
með fjölda kvik-
myndastjarna,
m.a. Adam Sand-
ler og Jennifer Aniston. Af öðrum
borðfélögum leikarans má nefna
enska leikarann og barnabókahöf-
undinn David Walliams og landa
hans Gemmu Arterton. Ólafur
Darri setur inn staðsetninguna
Montreal í Kanada en leikarahóp-
urinn stjörnum prýddi er þar stadd-
ur við tökur á kvikmyndinni Murd-
er Mystery sem er bæði hasar-,
gaman- og dramamynd, ef marka
má vefinn IMdB. Ólafur Darri er
með nóg á sinni könnu, leikur á
árinu í fjölda erlendra sjónvarps-
þátta og kvikmynda.
Ólafur Darri í
stjörnustóði
Ólafur Darri
Ólafsson