Morgunblaðið - 04.07.2018, Side 36

Morgunblaðið - 04.07.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Lítil stúlka fannst látin á skoskri eyju 2. Björgunin gæti tekið mánuði 3. Sér ekki eftir því að hafa flutt … 4. Fyrst til að hljóta öll verðlaunin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarhópurinn Stirni Ensemble heldur þrenna tónleika í vikunni, þá fyrstu í kvöld í menningarhúsinu Mengi í Reykjavík kl. 21, aðra 6. júlí á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði og degi síðar á Hólum í Hjaltadal. Efnisskrá tónleikanna ber yfirskriftina Jap- anskir/íslenskir draumar því á efnis- skránni eru eingöngu verk eftir ís- lensk og japönsk tónskáld. Þá mun Stirni einnig frumflytja verk eftir Báru Sigurjónsdóttur, Malagaljóð. Ljósmynd/Anna Karen Skúladóttir Japanskir og íslensk- ir draumar í Mengi  Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur íslenskar og erlendar kór- perlur eftir Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Byrd, Mendelssohn, Sig- urð Sævarsson, Bruckner og Händel, í bland við íslensk þjóðlög, í dag kl. 12 og eru tónleikarnir hluti af Alþjóðlegu orgelsumri. Kórperlur á Alþjóð- legu orgelsumri  Sýningin Þetta vilja börnin sjá! hef- ur verið sett upp í bókasafninu í Menningarmiðstöð Hornafjarðar og verður þar fram til 15. júlí. Á sýning- unni má sjá myndskreyt- ingar 14 íslenskra myndlistarmanna við 17 barnabækur sem komu út í fyrra sem og bækurnar sjálfar. Með- al sýnenda eru Bri- an Pilkington og Rán Flygenring. Myndskreytingar sýndar á Hornafirði Á fimmtudag Norðan- og norðvestan 8-13 m/s. Rigning norð- austan- og austantil, annars skýjað með köflum en víða bjartviðri um sunnanvert landið. Hiti 4 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða norðaustan 5-10 m/s en austan 10-15 suðaustanlands. Rigning eða skúrir í flestum landshlutum en stytt- ir upp vestantil með deginum. Hiti 9-17 stig, hlýjast suðaustantil. VEÐUR „Í mínum huga skipti það mestu máli að fá tækifæri til þess að leika eins oft og mik- ið af fótbolta og mögulegt er. Það tækifæri fékk ég hjá ÍBV og er í dag afar ánægður með þá ákvörðun að taka til- boði félagsins,“ segir fær- eyski knattspyrnumaðurinn Kaj Leo i Bartdalsstovu sem blómstrar með liði Eyja- manna og er í liði 11. umferðar hjá Morgun- blaðinu. »4 Ánægður að hafa tekið tilboði ÍBV Hannes Þór Halldórsson, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samning við Qarabag, meistaralið Aserbaíd- sjan, sem kaupir hann af Randers í Danmörku. Qarabag hefur náð góð- um árangri í Evrópu- keppni á undan- förnum árum, lék í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar síðasta vetur og hefur haft yfirburði á heimaslóð- um þar sem það hefur orðið meistari fimm ár í röð. » 1 Hannes er farinn til Aserbaídsjan Valur og Þór/KA skildu jöfn í upp- gjöri efstu liðanna í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld en ekkert mark var skorað í leik lið- anna á Hlíðarenda. Toppbaráttan verður því enn tvísýnni en áður. HK/Víkingur vann mikilvægan sigur á ÍBV, 1:0, og kom sér í betri fjar- lægð frá neðstu liðum deildarinnar. »2-3 Jafntefli í uppgjöri efstu liðanna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Guðbjörg Reynisdóttir varð tvö- faldur Norðurlandameistari í bog- fimi á Norðurlandamóti ungmenna um síðustu helgi. Hún sigraði bæði í einstaklings- og liðakeppni en hún keppti í U21 flokki með berboga. Guðbjörg hefur einungis æft íþrótt- ina í rúm tvö ár og byrjaði eftir að hún prófaði að skjóta með móður sinni. „Svo ákvað ég bara að byrja að æfa og mér fannst það mjög skemmtilegt.“ Guðbjörg var áður í júdó og segir hún íþróttirnar afar ólíkar. Byrjunarörðugleikar Þrátt fyrir mjög góðan árangur gekk í raun allt á afturfótunum hjá Guðbjörgu í keppninni framan af. „Í undankeppninni var vindur og ég ruglaðist alveg og vissi ekki hvernig ég ætti að miða svo ég fékk ekki gott skor í henni. Í loka- keppninni hafði boginn minn svo verið settur vitlaust saman. Hann sneri sem sagt öfugt, armurinn sem átti að snúa upp sneri niður, en ég náði samt að skjóta,“ því náði hún svo sannarlega enda vann hún þrátt fyrir að boginn sneri vitlaust. Sett saman vegna slæms gengis Hvað liðakeppnina varðar þá keppti hún þar með dönskum strák en þau höfðu verið sett saman þar sem þeim gekk báðum illa í undan- keppninni. „Svo rústuðum við þessu bara, það bjóst enginn við því og það var frekar fyndið,“ segir Guð- björg. Þrátt fyrir að árangurinn í liðakeppninni hafi komið á óvart kom sigurinn í einstaklings- keppninni Guðbjörgu ekki í opna skjöldu. „Þjálfarinn minn var búinn að segja við mig að ég ætti örugg- lega eftir að vinna.“ Norðurlandamótið er stærsta mót sem Guðbjörg hefur keppt á en hún hefur bara keppt á mótum hérlendis hingað til. Hvort hún stefni á heimsmeistaramótið eða Ólympíuleikana í framtíðinni er Guðbjörg ekki alveg viss um. „Þá þyrfti ég hugsanlega að skipta um boga. Ég er með berboga núna en ég held að þar sé bara keppt í trissuboga og svigboga.“ Atvinnu- mennska í bogfimi er, að sögn Guð- bjargar, nánast ómöguleg. „Það væri mjög gaman ef það væri hægt að verða atvinnumaður á Íslandi.“ Nokkur bogfimifélög eru starf- andi á Íslandi. „Freyja og Boginn eru aðalfélögin í Reykjavík og svo er Akur á Akureyri,“ segir Guð- björg en hún er í Íþróttafélaginu Freyju. Sigraði með öfugan boga  Guðbjörg tvö- faldur Norður- landameistari Ljósmynd/Úr einkasafni Einbeitt Guðbjörgu (t.v.) gekk ótrúlega vel á Norðurlandamóti ungmenna sem haldið var í Noregi um síðustu helgi. Guðbjörg fór með sigur af hólmi í einstaklings- og liðakeppni þrátt fyrir örðugleika í byrjun mótsins. Þrjár íslenskar stúlkur fengu medalíur á Norðurlandamóti ungmenna í bogfimi. Ásamt Guð- björgu, sem fékk gull í ein- staklings- og liðakeppni í ber- boga undir 21 árs, fengu þær Lena Sóley Þorvaldsdóttir og Erla Marý Sigurpálsdóttir verð- launapeninga. Lena vann silfur í langaboga kvenna undir 21 árs og Erla vann brons í trissuboga kvenna undir 21 árs. Alls 15 manns frá Íslandi kepptu á mótinu. Á mótinu var keppt í trissu- boga, berboga og langboga. Ber- bogi er bogi sem hefur engan nútímalegan aukabúnað, ekkert mið og engan jafnvægisbúnað. Langbogi er, eins og nafnið gef- ur til kynna, langur, venjulega jafn hár og bogmaðurinn sjálfur. Trissubogi er svo bogi sem hefur lyftibúnað. Þrjár stúlkur fengu verðlaun ÍSLENSKI HÓPURINN SIGURSÆLL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.