Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Skólabúningar eru fastur lið- ur í tæplega 90% af breskum skólum. Frá því á 19. öld hafa stúlkur þurft að klæðast pilsi sem hluta af skólabúningum sínum, en seint á 20. öldinni byrjuðu skólar að leyfa stúlk- um að ganga í buxum. Á síðustu árum hefur verið hröð og mikil breyting í við- horfum gagnvart pilsum sem hluta af skólabún- ingi, meðal annars hafa tæplega fjörutíu skólar í Bretlandi bannað pils alfarið. Engu að síður eru pils enn í dag stór hluti af fatamenningu í Bretlandi. Árið 2015 var Andrew Corish,sextíu ára gamall kennari ístúlknaskóla í Croydon í suðurhluta Lundúna, handtekinn fyrir að hafa tekið ljósmyndir og myndbönd upp undir pils nemenda sinna án þeirra vitneskju. Corish játaði sekt sína fyrir fógetarétti í Croydon, en hann var kærður fyrir gægjuþörf (e. voyeurism), sem samkvæmt breskum lögum er skil- greint sem áhorf á aðra manneskju í persónulegum athöfnum án henn- ar vitneskju, og fyrir að taka ósæmilegar ljósmyndir af börnum. Dómari málsins vísaði hinsvegar ásökununum frá þar sem ekkert fórnarlamba Corish var að fást við persónulegar athafnir þegar mynd- irnar voru teknar, né þóttu ljós- myndirnar nægilega ósæmilegar. Búin að fá nóg Hávær áköll um lagabreytingu sem gerir það glæpsamlegt að taka myndir upp undir pils kvenna hafa fengið mikinn hljómgrunn á síðustu mánuðum, en lagafrumvarp þess efnis var lagt fyrir breska þingið 15. júní sl. Frumvarpið kom til vegna herferðar ungrar konu, Ginu Martin, sem varð fyrir því að tekin var mynd upp undir pils hennar á tónlistarhátíð í Hyde Park í Lund- únum, en þegar hún leitaði til lög- reglu kvaðst hún ekkert geta gert. Herferð Martin vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og hefur hún gert mikið til að vekja athygli á málinu, en safnast hafa meira en 100 þúsund undirskriftir frumvarp- inu til stuðnings. Frumvarpið, sem lagt var fram af þingkonu Frjálslyndra demó- krata, Weru Hobhouse, naut stuðn- ings úr öllum þingflokkum, auk þess studdi yfirgnæfandi meirihluti almennings breytinguna, sam- kvæmt viðhorfskönnunum breskra fjölmiðla. Þrátt fyrir þá greiðu leið sem frumvarpið átti fyrir höndum komst það ekki í gegnum þingið vegna mótmæla Christophers Chope, þingmanns Íhaldsflokksins, sem nægði til þess að hindra fram- göngu þess við mikla óánægju sam- starfsmanna hans. Mótfallinn kerfinu, ekki frumvarpinu Í kjölfar mótmæla sinna hefur Chope orðið fyrir mikilli gagnrýni og lýsti forsætisráðherra Bret- lands, Theresa May, ásamt fleiri þingmönnum úr öllum flokkum, yf- ir óánægju sinni með þá ákvörðun Chope að hindra framgöngu frum- varpsins. „Myndataka upp undir pils kvenna er brot á friðhelgi sem skil- ur fórnalömb eftir niðurlægð og miður sín,“ tísti Theresa May eftir að frumvarpið var hindrað. „Ég er vonsvikin að frumvarpið hafi ekki komist í gegn í þinginu í dag. Ég vil að þetta verði gert að lögum – með stuðningi ríkisstjórnarinnar – fljótlega,“ bætti hún við. Kveðst hann þó ekki vera mótfallinn efni frumvarpsins, heldur hafi hann mótmælt vegna þess að honum þótti frumvarpið ekki hafa verið nægilega skegg- rætt. Siðspillt brot á friðhelgi Myndataka upp undir pils kvenna, eða „up- skirting“ eins og það er kallað á ensku, er Pils hafa lengi verið hluti af breskum skólabúningum. Pils í skólum þegar ólögleg í Skotlandi, en at- höfnin var sérstaklega flokkuð und- ir gæjguþörf af skoska þinginu árið 2010. Ef frumvarpið verður sam- þykkt mun hver sá sem gerist sek- ur um að taka myndir upp undir pils sæta allt að tveggja ára fang- elsi, auk þess að vera settur á lista sem kynferðisafbrotamaður. „Þetta er siðspillt brot á frið- helgi. Það er fáránlegt að einn þingmaður skuli geta sett þarfa og almennt studda lagabreytingu út af sporinu,“ skrifaði Wera Hobhouse í pistli sem birtist í The Guardian. „En baráttan er ekki búin,“ bætir hún við, „við munum halda áfram að berjast til að sjá til þess að lög- reglan geti brugðist við sam- stundis.“ Munu reyna aftur Breska ríkisstjórnin hefur staðfest að hún muni kynna nýtt frumvarp á næstunni sem gerir myndatöku upp undir pils ólöglega, en frum- varpið inniheldur líka bann við ann- ars konar hefndarklámi. Sameinast gegn pilsa- myndum Þingmenn úr öllum þingflokkum breska þingsins styðja frumvarp sem gerir myndatöku upp undir pils ólöglega. Aðeins einn þingmaður hindraði breytinguna. AFP Það er sjaldséð í breskum stjórnmálum að þingmenn úr öllum flokkum séu sammála um nokkurn hlut, en herferð Ginu Martin á sér stuðningsmenn í öllum hornum neðri málstofu breska þingsins. ’ Myndataka upp pils kvenna er brot á friðhelgi sem skilur fórnarlömb eftir niðurlægð og miður sín. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands ERLENT PÉTUR MAGNÚSSON petur@mbl.is MEXÍKÓ MEXÍKÓBORG Tuttugu og fjórir létust og tæplega fi mmtíu slösuðust þegar sprenging varð í fl ugeldaverksmiðju í Mexíkóborg. Tvær sprengingar riðu yfi r, en meðal þeirra sem létust í seinni sprengingunni voru slökkviliðs- og lögreglumenn sem sinntu björgunarað- gerðum eftir fyrri sprenginguna. ÁSTRALÍA QUEENSLAND Allt að fi mmtíu ökumenn lentu í óskemmtilegu atviki í vik- unni þegar tjara úr malbiki festist við dekk þeirra eftir að malbikið bráðnaði. Miklar veðurbreytingar hafa orðið á síðustu vikum, en telja sérfræðingar að malbikið hafi bráðnað eftir að mikill hiti og þurkur hafi fylgt nokkrum blautum og köldum dögum. SIMBABVE HARARE Í fyrsta skipti í sögu Simba- bve verður Robert Mugabe ekki meðal frambjóðenda í næstkomandi forsetakosningum þar í landi sem fara fram hinn 30. júlí. Andstæðingar Emmersons Mnangagwa, arftaka Roberts Mugabe, hafa lýst yfi r áhyggjum sínum að herinn verði með puttana í því sem eiga að vera frjálsar kosningar, en herinn hefur svarið að skipta sér ekkert af. JAPAN TÓKÝÓ Fremjendur verstu hryðju- verkaárasar í sögu Japan, sjö meðlimir dómsdagsreglunnar Aums Shinrikyo, voru teknir af lífi á föstudaginn. Sjömenningarnir frömdu eiturefnaárás í neðanjarðarlest árið 1995 sem varð átta manns að bana og slasaði tæplega 600 manns, en árásina framkvæmdu þau, að sögn forsprakka reglunnar, til að „frelsa glataðar sálir til hærra andlegs stigs“.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.