Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 22
MATUR Ekki setja epli og banana saman í skál. Eplin gefa frá sér gufur semgera það að verkum að bananarnir skemmast fyrr en ella. Enginn vill brúna banana, en þó er gott að nota þá í bananabrauð. Bananar og epli eiga ekki saman 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Í Vestmannaeyjabæ rekur EinarBjörn Árnason veitingastaðinnEinsa kalda. Einar man eftir sér sýslandi í eldhúsi sem lítill peyi og leiðin lá snemma í kokka- nám á meginlandinu. Hann sneri svo til baka og þegar Landeyjar- höfn varð að veruleika sá Einar að grundvöllur væri fyrir að opna flottan veitingastað í miðbænum og hafa hann opinn allan ársins hring. „Þetta gengur vel og Vest- mannaeyingar eru mér hliðhollir og svo er staðurinn vinsæll fyrir hópa. Við höfum fengið frábæra dóma, en hingað koma Íslendingar til jafns á við ferðamenn,“ segir hann, en Einsi kaldi varð nýlega tíu ára. „Þetta er í raun fínn stað- ur en samt „casual“, það má alveg koma í gallabuxum. Hér er mjög kósí og það myndast oft geggjuð stemning,“ segir hann. Einar segir matseðilinn fjöl- breyttan og býður hann upp á mat úr Eyjum, eins og lunda og svart- fugl en einnig fisk og lamb. „Ferðamennirnir panta mest fiskinn,“ segir hann. „Svo erum við með kleinuhringja-Crème brûlée; fólk er að missa sig yfir því.“ Öllu reddað fyrir kvöldið Einar segir daginn sem opnaði hafa verið eftirminnilegan. Hann segist hafa verið mjög stressaður því kassakerfið hafði tafist á leið- inni og allir áttu auk þess eftir að læra á það. En það voru ekki einu vandræði dagsins. „Ég var inni í eldhúsi og úti var brakandi blíða. Þá heyrðust þvílík hljóð innan úr sal, en hér eru ansi stórir gluggar. Vinur minn hafði sett litaðar filmur í gluggana sem áttu að tákna öldur og nú skein sólin beint á filmurnar. Svo byrj- aði að braka í rúðunum og þær byrjuðu að springa ein af annarri. Þær bara sprungu út og inn og glerbrot út um allt. Við fengum bara áfall. En eins ótrúlegt eins og það hljómar þá fórum við strax í það að redda nýju gleri með Herj- ólfi og þessu var reddað fyrir kvöldið og nýjar rúður settar í,“ segir Einar og hlær. Morgunblaðið/Ásdís Rúðurnar sprungu ein af annarri Þorsteinn Ívar Þorsteinsson, aðstoðarkokkur og Einar Björn Árnason, yfirkokkur á Einsa kalda í Vestmannaeyjum. Eyjapeyinn Einar Björn Árnason nefndi veitingastaðinn sinn að sjálfsögðu Einsa kalda. Þar er hægt að smakka ýmsa spennandi rétti eins og lunda og Crème brûlée kleinuhring. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fyrir 6 Lambakóróna, nóg fyrir 6 KRYDD ½ búnt dill ½ búnt graslaukur ½ búnt basilika dass af sjávarsalti 100 g Panko-raspur 50 ml olía kornsinnep (fer ekki í mat- vinnsluvélina) Setjið allt í matvinnsluvél, nema olíuna sem kemur síðast og er hellt út í í mjórri bunu. Raspurinn verður þá fallega grænn. Brúnið lambarifin á pönnu upp úr olíu. Smyrjið kjötið síð- an með kornsinnepi og veltið því upp úr kryddjurtara- spinum. Eldið svo í ofni á 180°C í 12 mínútur og hvílið í stutta stund. Ef mældur er kjarnhiti er flott að ná 58-59°C og hvíla. Skerið því kórónu næst í sneið- ar. MEÐLÆTI kartöflusmælki gulrætur sveppir perlulaukur grænkáli lambasoðgljá Gott er að setja grænmetið í ofn með olíu eða pönnusteikja. GARÐABLÓÐBERGSSÓSA 1 skarlottslauksgeiri 1 hvítlauksgeiri 1 grein af garðablóðbergi 1 dl gott rauðvín 1 l gott nautasoð 100 g smjör salt pipar annað krydd eftir smekk Svitið skarlottlaukinn og hvít- laukinn á pönnu. Rífið af einni grein af garða- blóðbergi og svitið með. Hellið rauðvíni út á pönnuna og sjóð- ið niður um helming. Hellið einum lítra af góðu nautasoði út í og sjóðið niður um ¾. Tak- ið sósuna af hitanum þegar hún er orðin þykk og bragð- góð. Gott er að bragðbæta eftir smekk, t.d. með salti, svörtum pipar, anís, kardimommu- kryddi og kryddjurtum. Í lokin eru 100 g af smjöri skorin í kubba og blandað við sósuna með töfrasprota. Lambakóróna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.