Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 29
8.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
mikið frá því sem þekktist á bann-
árunum lifir djassinn enn góðu lífi í
Kansasborg. Það er leikur einn að
finna bari og klúbba þar sem djass-
istar leika listir sínar fyrir djass-
geggjara. Á einum slíkum fáum við
að hlusta á saxófónleikara einn halda
uppi fjörinu ásamt hljómsveit sinni.
Ég hef alltaf verið meira „stand-
arda“-megin í djasshlustun minni, en
verð hugfanginn af því hversu vel
æfð hljómsveitin er, þar sem allir
leggjast á eitt, jafnvel þó að lagið sé
að miklu leyti spunnið á staðnum.
Hvert einasta lag tekur tíu mínútur
eða meira, allir fá sitt sóló, og öllum
er tekið með dynjandi lófataki.
Svona á tónlist að vera.
Á krossgötunum
Líkt og fyrr sagði var Kansas-borg á
sínum tíma nokkurs konar kross-
götur Bandaríkjanna, enda borgin
tiltölulega nálægt landafræðilegri
miðju hinna 48 „meginlandsríkja“
Bandaríkjanna. Arkitektúrinn tekur
nokkurt mið af því, en mikil spænsk
áhrif má sjá á mörgum húsanna. Þá
eru fallegir gosbrunnar víða og
stæra borgarbúar sig af þeim.
Ef til vill er það merki um þetta
hlutverk borgarinnar sem „kross-
götur“ að þar er einnig að finna þjóð-
arminnismerki Bandaríkjanna um
þá sem féllu í fyrri heimsstyrjöld og
sérstakt sögusafn um styrjöldina og
þátttöku Bandaríkjanna í henni.
Helsta kennileiti safnsins er minn-
ismerkið sjálft, 66 metra hár turn,
sem rís upp af jörðinni á allt að því
fallískan hátt og gnæfir yfir nær-
umhverfi sitt. Turninn var reistur
árið 1926 til minningar um þá borg-
arbúa sem féllu í styrjöldinni, en
hann var gerður upp um aldamótin
og tileinkaður öllum Bandaríkja-
mönnum sem féllu í stríðinu.
Gestir safnsins þurfa að ganga yfir
glerbrú til þess að komast að sýning-
unni, og undir henni er búið að
planta 9.000 valmúum, og á hvert og
eitt blóm að tákna þúsund fallna í
styrjöldinni. Þetta er tilkomumikil
sjón jafnvel þó að hugurinn nái varla
utan um þær ótrúlegu hörmungar
sem þarna liggja að baki.
Líkt og vera ber, er fókusinn
nokkuð mikið á framlag heima-
manna þetta eina ár af fjórum sem
þeir voru þátttakendur, en engu að
síður er reynt að draga fram söguna
af nokkrum myndarskap. Fyrir fólk
af evrópskum uppruna getur þessi
áhersla þó virkað nokkuð kyndug og
fullbandarísk.
Hér hefur einungis verið stiklað á
stóru um það sem Kansasborg hefur
að bjóða þeim sem þangað leggja leið
sína. Borgin er nokkuð frábrugðin
þeim borgum á austurströnd Banda-
ríkjanna sem Íslendingar ættu að
kannast best við, en býður um leið
upp á sinn eigin sjarma hvort sem
litið er til arkitektúr, verslunar, mat-
seldar eða annarra þátta, sem gera
borgina alveg óumdeilanlega að
mjög bandarískri upplifun.
Borgin er tiltölulega nýbúin að setja upp hálfgerða „Borgarlínu“, sporvagna sem fara í hring um miðbæ borgarinnar.
Ókeypis er um borð í vagnana og hafa þeir reynst mjög vinsælir á þeim tveimur árum sem þeir hafa verið í notkun.
Þjóðarminnismerki Bandaríkjanna um þá sem féllu í fyrri heimsstyrjöld var
reist árið 1926. Sérstakt sögusafn um styrjöldina opnaði svo um aldamótin.
9.000 valmúaplöntur eru til sýnis í stríðsminjasafninu, ein fyrir hvern þann sem
lést í fyrri heimsstyrjöld.
’Helsta kennileitisafnsins er minnis-merkið sjálft, 66 metrahár turn, sem rís upp af
jörðinni á allt að því fall-
ískan hátt og gnæfir yfir
nærumhverfi sitt.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
ÚTSALAN
ER HAFIN!
30-50%
AFSLÁTTUR
Kansasborg býr líka að mjög
blómlegu íþróttalífi. Borgin er
bæði með ruðningslið og
hafnaboltalið í fremstu röð,
Kansas City Chiefs og Kansas
City Royals, og eru borgarbúar
mjög stoltir af þeim liðum,
sem eiga sér langa og merka
sögu. Knattspyrnulið borgar-
innar, Sporting Kansas City, er
öllu yngra, en það var stofnað
árið 1996. Leikir liðsins eru
ágætlega sóttir, en heimavöllur
þess tekur um 18.000 manns í
sæti, og er bekkurinn oftast
nær þétt setinn á heima-
leikjum Sporting. Liðið hefur
einnig notið nokkurrar vel-
gengni, sérstaklega í banda-
rísku bikarkeppninni, sem liðið
hefur unnið þrisvar á síðustu
sex árum. Liðið keppir nú um
efsta sætið í MLS-deildinni, en
líkt og alsiða er í íþróttum
vestra, veitir það ekki neitt
annað en „heimaleikjarétt“ í
útsláttarkeppni um alvörubik-
arinn. Áhugamenn um íþróttir
ættu því eflaust að geta fundið
sér eitthvað við hæfi í Kansas.
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
ÍÞRÓTTABORGIN KANSAS
Ruðningur, hafnabolti
og knattspyrna