Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
LESBÓK
SJÓNVARP Sérvitringurinn Karl Pilkington
snýr aftur á skjáinn í nýjum þáttum sem nefnast
Sick of it. Pilkington mun leika tvö aðalhlutverk:
sjálfan sig eftir að kærasta hans hættir með hon-
um og innri rödd sína sem eltir hann á röndum
og gagnrýnir allt sem hann gerir. Þetta verður í
fyrsta skipti sem Pilkington skrifar sitt eigið
efni og fer með aðalhlutverk í leiknum þáttum.
Pilkington varð vinsæll í heimildarþáttunum
An Idiot Abroad þar sem félagar hans Ricky
Gervais og Stephen Merchant sendu hann heims-
hornanna á milli í framandi aðstæður, Pilking-
ton til mikillar mæðu og áhorfendum til mikils
gamans.
Enn sú mæða Karl
Pilkington
KVIKMYNDIR Vanessa Kirby, sem hefur far-
ið með hlutverk Margrétar Bretaprinsessu í
vinsælu Netflix-þáttunum The Crown, mun
leika í nýjasta framhaldi The Fast and the
Furious hasarmyndaraðarinnar. Myndin ber
nafnið Hobbs and Shaw og fjallar um sam-
nefndar persónur leikaranna Dwayne John-
son og Jason Statham. Kirby mun bregða sér
í hlutverk útsendara MI5 leyniþjónustunnar og
systur glæpamannsins Deckard Shaw sem neyð-
ist til að vinna með erkifjanda sínum
Luke Hobbs. Kirby verður einnig
með hlutverk í Mission Impossible:
Fallout sem kemur út síðar í júlí.
Vanessa
Kirby AFP
Goðsögnin Jimi Hendrix.
Stockið upp
TÓNLIST Fornleifafræðingar
vinna nú hörðum höndum við að
grafa upp svæðið þar sem tónlistar-
hátíðin Woodstock var haldin árið
1969. Markmiðið með uppgreftr-
inum er að finna nákvæma stað-
setningu sviðsins þar sem tónlist-
armenn á borð við Jimi Hendrix og
Janis Joplin stigu á stokk. Nær-
liggjandi safn tileinkað hátíðinni
mun nýta niðurstöður uppgraftrar-
ins við skipulagningu gönguleiða.
FÓTBOLTI Rúss-
neskur maður hef-
ur sótt um skilnað
við eiginkonu sína
eftir heiftarlegt
rifrildi sem hjúin
áttu um fótbolta-
manninn Lionel
Messi. Maðurinn,
sem er mikill aðdáandi Messi, segir
að eiginkona sín hafi talað illa um
Argentínumanninn frá upphafi
heimsmeistaramótins, einna helst
eftir misheppnuðu vítaspyrnuna
gegn Íslandi. Þegar eiginkonan
sagði Cristiano Ronaldo vera betri
leikmann var mælirinn fullur og
maðurinn sótti um skilnað daginn
eftir. Hjónin kynntust á bar þar
sem þau horfðu á HM árið 2002.
Skilnaður
vegna Messi
Lionel Messi
FÓLK Leikarinn Jeffrey Dean
Morgan hefur beðið aðdáendur sína
um að hætta að sækja hann óboðnir
heim. Morgan, sem leikur hinn
skuggalega Negan í vinsælu sjón-
varpsþáttunum The Walking Dead,
skrifar í Twitter-færslu sinni að
það sé ekki í lagi að mæta ókunnug-
ur og óboðinn heim að dyrum.
Hann biður fólk vinsamlegast að
virða friðhelgi einkalífsins.
Leikarinn Jeffrey Dean Morgan.
Ekki opið hús
Það er dýrt að fara í bíó. Í dagkostar miðinn á venjulegasýningu tæpar fimmtán
hundruð krónur, og ef þrívíddargler-
augun gleymast heima eða það á að
leyfa sér smá popp með bíósaltinu er
spaugið enn dýrara. Það er ekki
skrítið að margir séu löngu hættir að
fara út úr húsi til að sinna glápinu og
vilji heldur gera það í sófanum eða
rúminu heima.
En það er samt gaman að fara í
bíó. Að heyra skræki í ókunnugum
sessunautum yfir hryllingsmynd sem
þeir þorðu ekki að horfa á einir
heima, eða heyra sprengingar um-
lykja sig í stafrænum Dolby eru
dæmi um tilfinningar sem ekki er
hægt að upplifa heima í stofu. En er
til hagkvæmari lausn fyrir þá sem
vilja fara oftar í bíó?
Mánaðargjald á verði miða
MoviePass er bandarískt fyrirtæki
sem býður viðskiptavinum sínum upp
á nýstárlega þjónustu. Gegn mán-
aðarlegu gjaldi fá viðskiptavinir
þeirra einn bíómiða á dag. Þegar
komið er í bíóið skrá gestir sig inn
með appi og nota síðan greiðslukort
frá Moviepass sem borgar fyrir mið-
ann. Ekki er hægt að kaupa sig oftar
en einu sinni inn á sömu mynd og það
er ekki hægt að safna upp miðunum
eða bjóða með sér – hámarkið er einn
miði á dag. Notendur Moviepass
greiða sömu upphæð hvort sem þeir
fara einu sinni í bíó á mánuði eða mun
oftar. Það óvenjulegasta við þessa
áskriftarþjónustu er verðið, en í dag
er mánaðargjald Moviepass tæplega
tíu bandaríkjadalir, eða um 1.066 ís-
lenskar krónur, sem er örlítið hærra
en meðalverð á einum bíómiða í
Bandaríkjunum. Í fyrstu er erfitt að
sjá hvernig slíkur rekstur gengur
upp.
Hófsemi við hlaðborðið
Mitch Lowe, forstjóri MoviePass,
segir að í upphafi hafi þjónustunni
verið beint að fólki sem fer oft í bíó og
var áskriftarkostnaðurinn þá í kring-
um 35-45 bandaríkjadalir. Eftir að
rannsaka hvaða hópur Bandaríkja-
manna hefði mestan áhuga á að fara
oftar í bíó fór fyrirtækið að beina
sjónum að þeim sem fara sjaldnar í
bíó, eða um 4-5 sinnum á ári. Þennan
stóra hóp fólks vildi Moviepass fá í
þjónustuna hjá sér og lækkaði
áskriftarverðið til að ná til þeirra.
Hugmyndin er að þótt hópur fólks
muni kosta fyrirtækið mikla peninga
með því að fara oft í mánuði, þá séu
Kvikmyndahús hafa átt undir
högg að sækja vegna aukins
framboðs efnis á netinu.
Morgunblaðið/Golli
Fjölgar bíóáskrift gestum?
Sjálfstæðar þjónustur og kvikmyndahús í Bandaríkjunum hafa tekið upp á að bjóða mánaðarlega áskrift
í bíó með það að markmiði að fá meðalkúnnann á fleiri sýningar. Er grundvöllur fyrir þessu á Íslandi?
Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is
Hrönn Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri í Bíó Paradís.
Morgunblaðið/Eggert
Árskortahafar í Bíó Paradís þurfa að
nýta kortið einu sinni í mánuði til að
það borgi sig.
Morgunblaðið/Golli
Hraðskreið og hamstola