Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Side 24
HEILSA Melónur eru ekki bara ljúffengar, heldur líka meinhollar. Þær eru fullar af næringarefnum, vítamínum og andoxunarefnum.
Auk þess innihalda þær kalíum sem er gott fyrir blóðþrýstinginn.
Meinhollar melónur
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
Þríþraut er krefjandi íþrótta-grein sem samanstendur afsundi, hjólreiðum og hlaupum
þar sem keppt er í mismunandi vega-
lengdum. Sú þekktasta er líklega svo-
kallaður járnkarl (e. Ironman) sem
samanstendur af 3,8 kílómetra sundi,
180 kílómetra hjólreiðum og 42,2 kíló-
metra hlaupi. Vegalengdirnar í hálf-
um járnkarli eru, eins og nafnið gefur
til kynna, helmingi styttri.
Birna Íris Jónsdóttir, forstöðu-
maður upplýsingatækni hjá Sjóvá,
keppti á dögunum í hálfum járnkarli í
Elsinore í Danmörku. Hún varð í sjö-
unda sæti af 85 konum sem tóku þátt
í hennar aldursflokki og segist vera í
skýjunum með árangurinn í keppn-
inni, sem hún lauk á tímanum 5:03:20.
„Það gekk allt upp hjá mér í þess-
ari keppni. Ég átti gott sund, var önn-
ur fljótasta konan í mínum aldurs-
flokki, og hjólaði vel. Ég byrjaði
hlaupið vel en hljóp síðustu tíu kíló-
metrana hægar en ég hafði vonast
til,“ segir Birna, sem skráði sig í
keppnina síðastliðið haust. Keppnin
fór svo fram í Elsinore á þjóðhátíð-
ardegi Íslendinga, 17. júní.
„Fjölskylda mín var með mér;
börnin mín þrjú, tengdadóttir, for-
eldrar mínir og systurdóttir, og það
var algjörlega ómetanlegt að hafa
þau þarna og sjá þau reglulega í
hlaupinu þar sem þau hvöttu mig
áfram. Það gaf mér mikinn styrk.“
Gott skipulag mikilvægt
Birna byrjaði að æfa þríþraut sum-
arið 2015 en segist þá hafa verið búin
að hugsa um að prófa hana í nokkur
ár. Hún hafi ánetjast íþróttinni strax
á fyrsta degi. „Mér finnst þetta frá-
bært sport. Það hentar mér vel að
æfa mikið og það er góður fjölbreyti-
leiki í sundi, hjólreiðum og hlaupi.“
Hún segist hafa æft sund sem barn
og unglingur og hún hafi skokkað af
og til á milli barneigna frá árinu 2002.
Hvernig er æfingunum háttað?
„Í grófum dráttum eru þetta þrjár
æfingar í hverri grein á viku, níu æf-
ingar samtals. Til viðbótar er oft stutt
hlaup á eftir hjólaæfingu, þá kannski
fimm hlaupaæfingar í það heila þó
svo tvær af þeim séu stuttar, ekki
nema tíu til tuttugu mínútur.“
Birna segist skipuleggja sig vel,
enda krefjist það mikils skipulags að
koma æfingunum fyrir í þéttri dag-
skrá með fjölskyldu og fullri vinnu.
„Tvisvar í viku nýti ég tímann milli
hálfsex og sjö á morgnana til að
synda. Stundum hleyp ég á brettinu
eða hjóla á trainernum eldsnemma og
skýst svo stundum út að hlaupa í há-
deginu. Ég vakna snemma allar helg-
ar til að vera búin með stærstan hluta
helgaræfinganna áður en krakkarnir
vakna.“
Birna hefur æft undir handleiðslu
Hákons Hrafns Sigurðssonar frá því í
byrjun árs 2017 og segir það hafa ver-
ið lykilatriði fyrir sig að vera með svo
góðan þjálfara. „Aðhaldið sem fylgir
því er bæði mikilvægt til að halda sér
við uppsett æfingaplan og til að gera
ekki of mikið svo maður endi ekki í of-
þjálfun. Mér finnst líka nauðsynlegt,
og skemmtilegt, að vera í félagi en ég
er í Breiðabliki. Þótt þríþraut sé
vissulega einstaklingsíþrótt finnst
mér nauðsynlegt að æfa með öðru
fólki. Æfingafélagarnir eru líka enda-
laus uppspretta fróðleiks.“
Hélt hún myndi ekki lifa af
Birna keppti fyrst í þríþraut í lok
ágúst 2015. „Það var þá bara í stuttri
þraut, sem samanstóð af því að synda
fjögur hundruð metra, hjóla tíu kíló-
metra og hlaupa tvo og hálfan kíló-
metra.“
Ári síðar, sumarið 2016, keppti
Birna í öllum þríþrautarkeppnum hér
heima, m.a. Challenge Iceland, sem
er hálfur járnkarl. „Ég hélt að ég
myndi hreinlega ekki lifa það af; ég
var öll í skralli eftir þá keppni. Samt
var ég búin að skrá mig í heilan járn-
karl næsta dag,“ segir Birna og bros-
ir.
Sumarið 2017 keppti Birna í styttri
keppnum hér heima og þar að auki í
hálfum járnkarli í Samorin í Slóvakíu
og heilum járnkarli í Roth í Þýska-
landi. Hún segir sér hafa gengið
framar vonum í báðum keppnunum
en munur á heilum og hálfum járn-
karli sé afar mikill og ekki bara hvað
vegalengdirnar varðar. „Heill járn-
karl er miklu meira álag á líkamann
og síðast en ekki síst á fjölskylduna
vegna æfingaálags. Fyrir keppnina í
Elsinore í júní síðastliðnum æfði ég
um fimmtán klukkustundir á viku
þegar mest var. Ég æfi meira ef ég er
að æfa fyrir heilan járnkarl.“
Birna fór í tvær æfingaferðir til
Spánar í vor og segir það kærkomið
að æfa í hlýrra loftslagi. „Það getur
verið gríðarlega erfitt að æfa þrí-
þraut í okkar yndislega íslenska veð-
urfari. Oftar en ekki fer mestur hluti
orkunnar í að halda lágmarkshitastigi
í líkamanum. Ég hef oft og tíðum
komið ansi köld inn úr löngum hjóla-
túrum í snjó, rigningu, roki, frosti og
almennu slagveðri eins og við þekkj-
um svo vel,“ segir Birna.
„Dagana fyrir keppni hlakka ég til
skiptis gríðarlega til og kvíði svakalega
fyrir og langar til að hætta við. Það er
gríðarlega mikilvægt að fara inn í
svona keppni með mikið æðruleysi því
það er margt sem getur farið úrskeið-
is. Til dæmis getur næringin klikkað,
maður nær ekki að taka inn nægilega
margar hitaeiningar eða fær í magann
af því sem maður lætur ofan í sig og
heldur því ekki niðri. Það getur
sprungið á hjólinu, fólk dettur eða
verður hreinlega veikt. Þess vegna er
æðruleysið mikilvægt og að vera tilbú-
inn að taka því sem að höndum ber.“
Birna hefur verið grænmetisæta
frá 1993 og borðar hvorki kjöt né fisk.
Hún segir að það geti verið krefjandi
að ná inn nauðsynlegu magni af hita-
einingum.
Það er nú vandamál sem margir
kysu örugglega að kalla ekki vanda-
mál?
„Já, ég veit,“ segir Birna og hlær.
„En mataræðið skiptir gríðarlega
miklu máli og það gildir að borða vel af
góðum og hollum mat. Ég var reyndar
alveg vegan í eitt og hálft ár frá 2016
en tók mjólkurvörur og egg aftur inn í
mataræðið til að ná inn meira magni af
prótínum. Mánuðina fyrir keppni
þurfti ég að fara í smáátak til að ná upp
fjölda hitaeininga og viðurkenni að ég
greip stundum til þess ráðs að borða
hálfa Green&Black’s-súkkulaðiplötu
með sjávarsalti eftir kvöldmat eða kaf-
færa grísku jógúrtina og bláberin í
rjóma.“
Birna mælir með þríþraut fyrir
alla. „Ég get ekki annað. Það þarf
ekkert að fara svona all-in, þó svo það
sé vissulega gaman, heldur er líka
hægt að taka þessu rólega og nota
þríþrautina og ævintýrin sem henni
fylgja sem skemmtilegan og heilsu-
bætandi lífsstíl.“
Er einhver keppni fram undan?
„Já, næst á dagskrá er hálfur járn-
karl í Amsterdam í september. En það
verður bara svokölluð broskeppni,
þ.e.a.s. engin pressa; bara einbeita sér
að því að brosa allan tímann.“
Birna segir ómetanlegt að hafa haft fjölskylduna til hvatningar.
Ljósmynd/Halldór Ísak Ólafsson
Æðruleysið
mikilvægt
Birna Íris Jónsdóttir hélt að þátttaka sín í hálfum
járnkarli yrði hennar síðasta. Næsta dag
var hún þó búin að skrá sig í heilan járnkarl,
sem þykir erfiðasta fjölþrautarkeppni heims.
Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is
Birna kampakát eftir að hafa keppt í hálfum járnmanni í Elsinore í Danmörku 17. júní síðastliðinn. Hún lenti í sjöunda
sæti af 85 konum í sínum aldursflokki. Alls voru syntir 1,9 kílómetrar, hjólaðir 90 kílómetrar og hlaupinn 21,1 kílómetri.
Ljósmynd/Halldór Ísak Ólafsson
Ein grein þríþrautarinnar er
sund en Birna æfði einnig sund
sem barn og unglingur.
Ljósmynd/Þórarinn Kári Ólafsson