Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018 Ö ll verkföll sem lengi standa eru óþægileg fyrir þá sem í þrefinu standa. Þótt það sé ekki viður- kennt þá er markmið aðgerð- anna að almenningi líði verst. Ella fæst seint nægilegur þrýst- ingur. Það er í eðli þess háttar deilna að þegar hnúturinn harðnar verða þær persónulegri. Sérstaklega þó þegar um átök við hið opinbera er að ræða. Hinir almennu og hinir opinberu Opinberir starfsmenn hafa allt aðra tilfinningu en fólkið á almennum markaði. Því er aldrei vit í að þeir leiði kjarasamninga. Hjá þeim síðarnefndu er mun meira undir og þeim er ljósari hættan sem kann að fylgja launahækkunum sem falla „fyrir utan rammann“. Hún veikir samkeppnisstöðu launagreiðandans þeirra, á markaði hér heima en jafnframt gagnvart erlendri sam- keppni. Hækki launagreiðslur fyrirtækisins umfram það sem kemur í kassann á hann fáa eða jafnvel enga aðra kosti en þann að fækka fólki. En það er ekki auðveldur kostur. Auðvitað afleitur fyrir starfsmenn, en einnig vinnuveit- andann sjálfan. Það er ekki spurning um hvort vinnu- veitandinn sé vinsamlegur eða fjandsamlegur. Fyrir- tækið sem á í hlut gætir þess að hafa ekki fleiri en þarf á launum hjá fyrirtækinu. Þegar vel gengur er starfs- mönnum fjölgað. Ekki af ást á starfsmönnum, þótt þeir séu vel metnir. Heldur til að styrkja stöðu fyrirtækisins, bæði í samkeppni við aðra og til vaxtar. Það er því ekki marklaust hjal að allir eigi samleið í þessum efnum. Sú neyðarlausn í framhaldi af kjarasamningum sem fara „úr böndum“ að skera niður í starfmannafjölda ef aukn- ar tekjur standa ekki undir hækkuðum launum getur verið hættuspil. Það er ekki að ástæðulausu að starfs- mannafjöldinn er sá sem hann er á hverjum tíma. Neyð- ist fyrirtækið til að fækka í liðinu vegna aukinna útgjalda er ólíklegt að það haldi þeim dampi sem tryggt hefur tekjustreymið fram að þessu. Þá blasir „spírallinn“ við. Tekjurnar dragast enn meira saman svo enn þarf að fækka fólki. Séu laun og launatengd gjöld lungi útgjalda fyrirtækisins liggur þetta í augum uppi. „Hagræðingar- krafa“ er þá aðeins feluorð yfir uppsagnir starfsfólks. Í slíkum spíral vill ekkert fyrirtæki lenda, enda getur hann borið dauðann með sér. Opinberir starfsmenn segja stundum sem svo að það sé aðeins spurning um vilja hvort hið opinbera verði við „sanngjörnum kröfum“ eða ekki. Enn þá hefur enginn heyrt af neinum forráðamanni félags á þeim markaði sem ber annað fram en sanngjarnar kröfur. Því er ekki neitað að hið opinbera verði að afla aukinna tekna verði það við hinum sanngjörnu kröfum. Og það er gert með því að ríkissjóður eða sveitarsjóður setji hærri tölur í sína útgjaldaáætlun en stóðu þar áður. Það er nú allur vandinn. Engum dettur í hug að sveitarfélagið eða ríkið fari á hausinn út af slíku smáræði. Séu góðmenni við völd, sem hafa einnig lítinn áhuga á stundaróvinsældum, þá sýna þau á endanum furðuríkan skilning. Fólkið sem raunverulega stendur undir allri þeirri góðvild með sköttum sínum er aldrei spurt. En þannig vill til að það er einatt sama fólkið sem ekki vill ganga lengra en óhætt er gegn sínum vinnuveitanda. Það býr við þann raun- veruleika að geta ekki sent reikninginn út í tómið, eins og „hið opinbera“. Óþægileg deila Það er sjálfsagt ekki við hæfi að gera upp á milli starfs- stétta sem eiga í vinnudeilum. En maður stendur sig iðu- lega að því að gera það. Og gjarnan er samúð manns mest með þeim sem standa í slagnum hverju sinni. Þeir sem hafa átt þýðingarmiklar stundir sjálfir eða með sín- um á sjúkrahúsum eða umönnunarstofnunum eru veikir fyrir baráttu þeirra sem þar starfa. Þau eru ófá dæmin um frábæra fórnfýsi, langt umfram það sem starfs- skyldan ein býður. Og menn geta spurt áfram: Hver er mikilvægari en sá sem fóstrar ungviðið, sá sem kennir því, sá sem tekur á móti því, sá sem raðar flugvélum um himinhvolfið, sá sem fjarlægir heilaæxlið, eða sá sem sparkar bolta. Til loka 16 liða keppninnar myndi sá síð- asti vinna þá spurningakeppni. Enda þótt launa- og jafnréttisáætlun hafi orðið sorglega lítið ágengt í þeim geira. Enn hefur ekki því marki verið náð að 5 karlar og 6 konur séu í hverju liði, sem hlýtur að hafa verið sett sem mark. (Mark!)Ronaldo var keyptur á ný fyrir svim- andi upphæðir á dögunum, rétt einu sinni. Nú fyrir eina 10 milljarða og eru þá föst vikulaun, bónusar og auglýs- ingasamningar ekki taldir. Enn hefur ekki verið birtur samanburður við aðra starfsmenn á knattspyrnuvöllum en það hlýtur að verða gert fljótlega. Sumir þeirra sem sjá um umræðuþætti á erlendum sjónvarpsstöðvum fá þrjá milljarða íslenska í dollurum greidda yfir árið. Af hverju? Af því að þeir skaffa svo miklu meiri auglýsinga- tekjur en aðrir, er svarið. Opinber stofnun í Bretlandi, sem gjarnan er sökuð um vinstri slagsíðu, en er þó hvít- þveginn engill á við aðrar slíkar, borgar sínum helstu mönnum hundraðföld meðallaun þeirra sem borga út- varpsgjaldið. Og á daginn kom í fyrra að karlar fá þar mun betur borgað en konur. BBC getur þó ekki afsakað sig með að þeir dragi að meiri auglýsingatekjur en þær. Hinn endalausi samanburður Launamunur er hvergi minni en á Íslandi að sögn og það áður en skattar hafa verið heimtir en með þeim er launa- munurinn minnkaður mikið, en það er aldrei talið með. Stundum er vitnað til þess að Bandaríkjaforseti hafi lítið meiri laun en valdalaus forseti á Íslandi. Trump gef- ur sín laun. John Kennedy sagði að það tæki því ekki fyrir sig að taka þessi laun því árslaunin dygðu ekki í mánaðarlegan fatakostnað Jacqueline. Bill Clinton segir sig hafa komið launalega öfugan um mörg hundruð milljónir frá forsetaembættinu, en nú eiga hann og frúin tugi milljarða í krónum mælt. Tony Blair, formaður breska Verkamannaflokksins, átti ekki nema eina góða íbúð þegar hann varð forsætisráðherra, en nú 10 árum eftir að hann hætti eiga hann og frúin einar tíu og þar af eitt herlegt sveitasetur sem John Gielgud stórleikari átti áður. Þó eru bresku ráðherralaunin lítið hærri en hér nyrðra. En frægt nafn með frægan feril er gulls ígildi í fjölmennum ríkjum, þegar sárafá nöfn koma öllum fjöld- anum kunnuglega fyrir. Ljósmæður Fullyrða má að íslenskar ljósmæður séu einna efst á vin- sældalistum stétta, þótt formleg mæling hafi ekki átt sér stað. Við, almenningur í þessu landi, vitum ekki til fulls um hvað kjaradeilur þeirra snúast. Í öllum íslenskum launadeilum hefur það aldrei gerst að deilendur séu sammála um hvað deilan snúist. Hatursmenn Trumps urðu forviða þegar hlaupa- strákar hans buðu upp á „alternative facts“. Þeir höfðu aldrei heyrt annað eins og þetta. Í öllum íslenskum kjaradeilum og í öllum íslenskum dómsmálum er þó boð- ið upp á „alternative facts“. Og í Bandaríkjunum sem er dómsmálaóðasta land jarðarkringlunnar er það náttúr- lega gert. Allt eru þetta staðreyndir. Hver deiluaðili dregur fram þær staðreyndir sem henta, enda sjá hinir um sitt. Læknafélagið sagði á dögunum sína menn vera með um 460 þúsund á mánuði, sem mun vera staðreynd, ef öllum fyrirvörum er lýst. Fjármálaráðuneytið segir að íslenskir læknar séu að meðaltali með um 1.500 þúsund á mánuði (fyrir skatta). Þessar misvöldu staðreyndir eru eftir því sem best er vitað í sjálfu sér sannar. Þegar mán- aðarlaun ljósmæðra eru tíunduð af ríkinu segja tals- menn þeirra að þar sé of hátt mælt því að ljósmæður miði við 80% af vinnutímanum eins og þær vilji að hann Stenst nokkurt velferðar- ríki Schengen-meinlok- una, með galopin ytri landamæri Evrópu? ’ Það er hægt að taka upplýsta ákvörðun um það að öll landamæri skuli galopin, eins og verið hefur um sinn, án ákvörðunar. En það má ekki koma aftan að þjóðinni. Gal- opin landamæri og öflug velferð fara ekki saman. Hin upplýsta umræða verður þá um það, hversu hratt skuli dregið úr almennri velferð. Reykjavíkurbréf06.07.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.