Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Page 34
LESBÓK
Gjörninga-fyrirlestur
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.7. 2018
Myndlistarmennirnir Anna Eyjólfs-dóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir,Rúrí og Þórdís Alda Sigurðar-
dóttir eru hugmyndasmiðir og skipuleggj-
endur sýningarinnar Nr. 2 Umhverfing, sem
opnuð var 17. júní á þremur stöðum á Egils-
stöðum; Hjúkrunarheimilinu Dyngju, Menn-
ingarmiðstöð Fljótsdalshéraðs – Sláturhús-
inu og Safnahúsinu, sem hýsir Bókasafn
Héraðsbúa, Minjasafn Austfirðinga og Hér-
aðsskjalasafn Austfirðinga. Auk skipuleggj-
endanna eiga 33 myndlistarmenn, sem
fæddir eru Fljótsdalshéraði, búa þar eða
eiga ættir að rekja til héraðsins, verk á sýn-
ingunni. Akademía skynjunarinnar stendur
fyrir verkefninu Umhverfing, sýningarröð
sem hófst í fyrra í Skagafirði með sýning-
unni Nr. 1 Umhverfing.
„Markmiðið er að setja upp sýningar á
verkum myndlistarmanna í „heimabyggð“ í
húsnæði þar sem ekki er hefð fyrir nútíma-
list,“ segir Ragnhildur sýningarstjóri. Hún
tekur þó fram að Héraðsbúar séu svo lán-
samir að eiga Sláturhúsið, sem hafi verið
breytt í menningarmiðstöð fyrir myndlist-
arsýningar. Hins vegar séu listsýningar í
óhefðbundnum rýmum eins og hjúkrunar-
heimilinu og minjasafninu nýlunda þar líkt
og kannski víðast hvar annars staðar. „Það
er töluverð áskorun að setja upp sýningar á
slíkum stöðum,“ viðurkennir hún.
Þverskurður af íslenskri myndlist
Sjálf á Ragnhildur ættir að rekja til Austur-
lands, en afi hennar bjó að Mýrum í Skrið-
dal, og fellur hún að því leytinu inn í ramma
sýningarinnar, rétt eins og Þórdís Alda
gerði í Nr. 1 Umhverfingu í fyrra því hún er
búsett í Skagafirði. „Verkin eru í rauninni
þverskurður af íslenskri nútímalist; mál-
verk, skúlptúrar, textílverk, vídeóverk og
innsetningar,“ segir Ragnhildur.
Mörg verkanna eru unnin sérstaklega fyr-
ir sýninguna og innsetningarnar inn í ákveð-
in rými. Þótt listaverkin séu jafn ólík og þau
eru mörg virðist Ragnhildi náttúru- og um-
hverfisvernd sem og menningararfurinn
vera þau viðfangsefni sem þátttakendum
eru hvað hugleiknust. „Trúlega eru flestir
myndlistarmenn náttúruverndarsinnar í eðli
sínu. Þeir spegla gjarnan sjónarmið sín í
verkunum með alls konar vísunum og skila-
boðum.“
Kvartettinn sem stendur að sýningunni er
heldur ekki alveg laus við meiningar. Til
dæmis er framlag Rúríar myndröðin Fossar
í útrýmingarhættu og innsetningarverk Þór-
dísar Öldu, Fjöll, tré, kindur og menn, er
hugleiðing hennar um sambýli lands og
náttúru.
„Ólöf Nordal sýnir Valþjófsstaðarhurðina
steypta í ál og Ósk Vilhjálmsdóttir mynd-
band frá Kárahnjúkum. Á opnun sýningar-
innar flutti Magnús Pálsson gjörninginn
Enginn gleypir sólina ásamt Þórunni Dís
Halldórsdóttur. Viktor Pétur Hannesson
setti upp smástunda vinnustofu í Kornhlöð-
unni þar sem hann hitaþrykkti jurtir af
Héraði með þátttöku gesta,“ nefnir Ragn-
hildur sem dæmi um fjölbreytileikann á Nr.
2 Umhverfingu.
Ein blaðsíða á mann
Þátttakendur á sýningunni eru starfandi
myndlistarmenn á öllum aldri með mis-
langan feril að baki. Þeir fá hver um sig
eina blaðsíðu til að kynna sig og sitt verk í
bók sem skipuleggjendurnir gáfu út á opn-
unardegi sýningarinnar rétt eins og þær
gerðu í fyrra á Sauðárkróki. „Margrét
Helga Weisshappel hannaði báðar bæk-
urnar, sem bera sama nafn og sýningarnar.
Í bókinni Nr. 2 Umhverfing er grein eftir
Arndísi Þorvaldsdóttur, Brot úr sögu mynd-
listar og handverks á Fljótsdalshéraði.
Svona verkefni spyrst smám saman út og
við búumst fastlega við að það verði auð-
veldara að fá myndlistarmenn til að taka
þátt og þeim fjölgi næstu árin samhliða
fleiri sýningum sem hverfast um list fólks
með tengingar við afmörkuð og mismunandi
byggðarlög landsins,“ segir Ragnhildur.
Eins og af orðum hennar má ráða stendur
meira til. Von er á Nr. 3 Umhverfingu. Líka
þeirri fjórðu og fimmtu. Kannski ennþá
fleiri. „Við sjáum alveg fyrir okkur að fara
nokkra hringi umhverfis landið,“ segir
Ragnhildur glaðbeitt og bendir á að nafn
sýninganna sé vitaskuld ekki úti í bláinn.
„Nafnið hefur marglaga merkingu; að snú-
ast, fara í hringi, breytast, umhverfast. Orð-
ið vísar í umhverfið og náttúruna. „Um-
hverfið hefur áhrif á okkur, ekki síst
umhverfið þar sem rætur okkar liggja,“ út-
skýrir hún.
Hinn 7. september verður sýningin Nr. 2
Umhverfing á Egilsstöðum tekin niður og
þær halda á önnur mið. Ragnhildur upplýsir
að þær séu þegar með augastað á næsta
landshluta. Hvar Nr. 3 Umhverfingu ber
niður fær þó enginn að vita fyrr en samn-
ingar eru í Höfn.
Verkefni Umhverfing er ferðalag um-
hverfis landið og Anna, Rúrí, Ragnhildur og
Þórdís Alda verða með listina og hugsjón-
irnar í farteskinu.
Gestir skoða málverk eftir Margréti M. Norðdahl í Dyngju.
Umhverfingar umhverfis landið
37 myndlistarmenn með
tengsl við Fljótsdalshérað
sýna verk sín á þremur
stöðum á Egilsstöðum.
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is
’Trúlega eru flestir mynd-listarmenn náttúru-verndarsinnar í eðli sínu.Þeir spegla gjarnan sjónarmið
sín í verkunum með alls konar
vísunum og skilaboðum.“
Viktor Pétur Hannesson setti upp smástunda
vinnustofu í Kornhlöðunni þar sem hann hita-
þrykkti jurtir af Héraði með þátttöku gesta.
Ragnhildur Stefánsdóttir sýningarstjóri kynnir
verk Vilhjálms Einarssonar, Fjallahring Fljóts-
dalshéraðs, fyrir gestum sýningarinnar í Dyngju.
Gestir skoða verkið, Fyrir 21 ári, eftir Ólöfu Birnu Blöndal í Sláturhúsinu.
Magnús Pálsson flutti gjörning sinn, Enginn gleypir sólina,
ásamt Þórunni Dís Halldórsdóttur, á opnun sýningarinnar
í Sláturhúsinu. Á veggnum eru málverk eftir Aron Kale.
Horft niður af annarri hæð Safnahússins þar
sem sjá má Valþjófsstaðarhurð Ólafar Nordal,
og verkið, Snýst um Ást, eftir Yst.
Dr. Cornelia Sollfrank, listamaður og rannsakandi frá Berlín, heldur gjörn-
inga-fyrirlestur kl. 16.30 í dag, laugardag, í Kling & Bang, Grandagarði 20.
Hún veltir m.a. upp spurningum á borð við hvað við eigum að borða í
ástandi fullkomins gagnsæis þegar samfélagið nærist á þeim kúguðu.