Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.07.2018, Síða 40
SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2018
Armbandsúr sem var í eigu ísraelska njósnarans Elis Cohens, sem náðist
og var hengdur í Sýrlandi, kom nýlega í leitirnar hjá ísraelsku leyniþjónust-
unni. Cohen, sem hóf störf hjá leyniþjónustunni snemma á sjöunda áratugn-
um, náði að lauma sér inn í raðir háttsettra manna í sýrlensku stjórninni.
Hann ljóstraði upp hernaðarleyndarmálum Sýrlendinga til Ísraelsmanna
og upplýsingar hans eru sagðar hafa átt stóran þátt í sigri Ísraelsmanna á
Sýrlendingum í stríði árið 1967.
Upp komst um Cohen árið 1964 og hann var hengdur á torgi úti í Damas-
kus árið 1965. Sýrlendingar hafa alla tíð neitað að gefa upp hvar líkams-
leifar hans er að finna.
Ekkert hefur verið gefið upp um það hvar eða hvernig Ísraelar komust
yfir úrið en Cohen mun hafa borið úrið þar til hann var handtekinn.
Armbandsúr njósnarans Elis Cohens, sem kom nýlega í leitirnar. Líkamsleifar hans hafa hins vegar aldrei fundist.
Armbandsúr
njósnarans
Eli Cohen við réttarhöldin í Damaskus
árið 1965 þar sem hann var dæmdur til
dauða fyrir njósnir.
AFP
Líkamsleifar Elis Cohens hafa aldrei fundist en
armbandsúrið hans kom nýlega í leitirnar.
Fjöldi ferðamanna hefur lengi
verið sérstakt áhugaefni lands-
manna. Í ágúst, árið 1990, greindi
Morgunblaðið frá því að fleiri er-
lendir ferðamenn hefðu komið til
landsins á fyrstu mánuðum ársins
en nokkru sinni áður og að
stefndi í metár hvað varðaði
fjölda útlendinga á Íslandi. Árið
áður höfðu tæplega 130 þúsund
erlendir ferðamenn komið til
landsins, og búist var við töluvert
fleiri ferðamönnum á árinu.
„Margra ára markaðssókn er að
skila sér. Það er fullbókað í allar
ferðir hjá okkur og við höfum
þurft að bæta við aukaferðum,“
sagði talsmaður ferðaskrifstof-
unnar Samvinnuferða-Landsýn-
ar, en ferðamönnum sem komið
hafa til landsins í gegnum íslensk-
ar ferðaskrifstofur hefur fjölgað
gríðarlega. „Það hefur verið mik-
ið fjallað um Ísland í erlendum
fjölmiðlum, til dæmis vegna hval-
veiða okkar,“ segir talsmaður
Úrvals-Útsýnar, en telur hann
það einnig hafa haft áhrif á ferða-
mannaflauminn.
Til samanburðar komu 2,2
milljónir ferðamanna til landsins
árið 2017.
GAMLA FRÉTTIN
Ferða-
manna-
flaumur
Fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi hefur stóraukist á síðustu árum, meira
en tvær milljónir ferðamanna komu til landsins árið 2017.
Morgunblaðið/Ómar
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Túnfífill
hagastáss
Spike
sjónvarpspersóna
Billy Idol
tónlistarmaður
www.husgagnahollin.is
558 1100
ÚTSALAN
SUMAR
Í FULLU FJÖRI
afsláttur
60%
Allt að
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN