Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018 Drazen Petrović var mörgum harmdauði þegar hann lést eftir bílslys í Þýskalandi í júní 1993, aðeins 28 ára. Hann lék þá með New Jersey Nets í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta og hafði nýlokið frábæru keppnistímabili. Ut- an heimalandsins lék hann með Real Madrid á Spáni og Portland Trail Blazers og Nets vestan hafs. Petrović, sem stundum var kallaður Mozart körfuboltans vegna frá- bærra hæfileika, var kjörinn besti evrópski körfuboltamaður allra tíma af leikmönnum meðan á Evrópukeppni landsliða stóð árið 2013. Króatar eru aðeins liðlega fjór-ar milljónir en hafa átt ótrú-lega marga frábæra íþrótta- menn í gegnum tíðina, bæði í hóp- og einstaklingsgreinum. Fótbolti er langvinsælasta íþróttin í Króatíu og því eðlilega mikil gleði ríkjandi eftir að landsliðið tryggði sér sæti í úrslita- leik HM. Króatía var hluti Júgóslavíu en lýsti yfir sjálfstæði 1991, eftir að borgarastyrjöld hófst á Balkanskaga. Ísland var fyrsta vestræna ríkið sem viðurkenndi Króatíu, í desember það ár, en sjálfsstæðisstríði landsins lauk þó ekki fyrr en 1995. Króatar tóku þátt í Ólympíu- leikunum í Barcelona 1992 og hafa síðan unnið til alls 44 ÓL-verðlauna, á sumar- og vetrarleikum; 15 gull-, 16 silfur- og 13 bronsverðlauna. Landslið þjóðarinnar lék til úrslita á heimsmeistaramótinu í handbolta á Íslandi 1995 en tapaði fyrir Frökkum, sem Króatar mæta í úrslitaleik HM um helgina. Þjóðirnar hafa einu sinni áður mæst á HM í fótbolta, í undan- úrslitum 1998 þegar Frakkar unnu og urðu svo heimsmeistarar á heima- velli. Króatar eiga því harma að hefna! Ári eftir úrslitaleik HM á Íslandi unnu Króatar hins vegar gullverð- laun í handbolta karla á Ólympíu- leikunum í Atlanta, þegar þeir lögðu Svía í úrslitaleik, og hefur höfundur þessarar greinar sjaldan eða aldrei upplifað jafninnilegan fögnuð nokk- urra íþróttamanna og þá. Ekki fór á milli mála hve mikilvægur sigurinn var fyrir hina nýfrjálsu þjóð. Of langt mál yrði að telja upp alla þá frábæru króatísku íþróttamenn sem hafa gert garðinn frægan í gegn- um tíðina en í þeim hópi er t.d. fjöldi fótbolta-, körfubolta- og handbolta- manna, tenniskappin Goran Ivani- sević og Ivano Balić, handboltamað- urinn frábæri, sem allir íslenskir íþróttaáhugamenn muna væntanlega eftir, enda gerði hann strákunum okkar oft skráveifu, eins og öllum öðrum. Þá má nefna skíða- systkinin sigursælu Janicu og Ivica Kostelić, en hann er einn „tengdasona Íslands“, giftur Elínu Arnórsdóttur. Fyrirliði króatíska landsliðsins í fótbolta, hinn smávaxni Luka Modrić, sem varð Evr- ópumeistari með Real Madrid í vor, er einn albesti fótboltamaður heims í augnablikinu. Segja má að hann beri höfuð og herðar yfir flesta aðra í faginu, þrátt fyrir að vera aðeins 1,72 m á hæð. Modrić er Íslendingum vel kunnur enda hafa þjóðirnar mæst reglulega síðustu ár og Íslendingar einu sinni fagnað sigri, í undanriðli HM í fyrra. Síðasti leikurinn var á HM á dög- unum þar sem Króatar unnu 2:1 þrátt fyrir mjög góða frammistöðu Íslands. Ekki er gott að segja hvers vegna Króatar eru jafngóðir íþróttamenn og raun ber vitni. Menn hafa oft velt vöngum og svörin eru margvísleg: Guð gaf okkur einfaldlega svona hæfileikarík börn, sagði formaður tækninefndar knattspyrnusambands- ins fyrir nokkrum árum! Króötum, eins og öðrum íþrótta- mönnum á Balkanskaga, hefur stund- um verið legið á hálsi að hengja haus ef á móti blæs; að liðsheildin sé ekki nægilega sterk þegar á reynir en ekki ber á því nú. „Þrisvar lentum við marki undir en höfum alltaf snúið við blaðinu. Það segir mikið um liðsand- ann og er mikilvægt einkenna þess- arar kynslóðar leikmanna,“ sagði Iv- an Perisić, leikmaður liðsins, á heimasíðu FIFA. Fámennt en íþróttalega góðmennt Þrátt fyrir fámenni geta Króatar státað af lygilega mörgum íþróttastjörnum. Þessir „góðvinir“ Ís- lendinga leika til úrslita á HM við Frakka. Mozart körfunnar Drazen Petrović Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Luka Modrić ber höfuð og herðar yfir flesta knattspyrnumenn heimsins í dag. Hér er hann í leiknum við Ísland á HM. Systkinin Ivica og Janica Kostelic með gullverðlaun á HM á skíðum 2003. Reuters Handboltastjarnan Ivano Balić var einn sá besti í heiminum um árabil. AFP ’ Íþróttamenn eru bestu sendiherrar okkar. Því fylgir mik- ill innblástur að leika fyrir Króatíu - mikið stolt. Það þarf ekki að kenna börnum þjóðsönginn; ég myndi ekki segja að þau væru þjóðernissinnar en vita að þau þurfa að berjast fyrir sínu Mario Stanić, fyrrverandi landsliðsmaður Króatíu. ERLENT SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is ENGLAND Breski götulistamaðurinn heims- kunni, Banksy, sem almennt er ekki vitað hver er, hefur lengi vakið mikla athygli fyrir einföld verk, oft mjög pólitísk. Nú geta áhugasamir séð ýmis verka hans, bæði götu- verk og önnur, á sýningu í London. Verkin verða til sýnis í galleríinu Lazinc í Mayfair-hverfi nu. Sýningin hófst á fi mmtudaginn og stendur til 25. ágúst. TAÍLAND Þegar hefur verið tilkynnt að kvikmynd verður gerð um björgun taílensku fótboltadrengj- anna 12 og þjálfara þeirra úr hellinum í Taílandi. Það er banda- ríska fyrirtækið Pure Flix sem hyggst framleiða myndina, en það er sjálfstætt framleiðslu- fyrirtæki sem byggir á kristnum gildum. „Pure Flix, eins og heimurinn allur, þakkar guði fyrir að bænheyra þá sem báðu þess að björgunin heppnaðist,“ segir í yfi r- lýsingu fyrirtækisins. NÍKARAGVA Mótmæli stjórnarandstæðinga í Níkaragva síðustu mánuði hafa tekið sinn toll; í vikunni var staðfest að 264 hefðu látið lífi ð og liðlega 1.800 slasast í baráttu þeirra við sveitir hliðhollar stjórn landsins. Mótmælendur krefjast afsagnar sósíalistans Daniels Or- tega, sem hefur verið forseti landsins undanfarin 11 ár, og hafði áður setið jafn lengi á valdastóli á ofanverðri síðustu öld. KÍNA Qin Yongmin, sem barist hefur fyrir lýðræði í Kína árum saman, var í vikunni dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir að „grafa undan stjórnvöldum“. Kom ákvörðun dómsins mörgum í opna skjöldu, aðeins degi eftir að kunnasti pólitíski fanginn í Kína, skáldið Liu Xia, var látin laus eftir nær átta ár í stofufangelsi. Xia hélt þegar úr landi. Hún er ekkja Liu Xiaobo, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels 2010 en lést í fyrra.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.