Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
FRÉTTIR
Baldvin Jónsson
fylgdist grannt
með björgun taí-
lensku fótbolta-
drengjanna og
þjálfara þeirra úr
hellinum. „Mann setur hljóðan og
fyllist lotningu eftir þetta magnaða
björgunarafrek ... Einsog svo oft
áður þá sýnir mannskepnan mátt
sinn og megin þegar mest á ríður.
Endurvekur trú okkar á mannkyn-
inu,“ sagði hann á Facebook. Bald-
vin, einn af meisturum fimmaura-
brandaranna, gat ekki stillt sig um
að slá á létta strengi í vikunni: „Ég
vík alltaf í Mýrdal.“
Edda Sigrún Svavarsdóttir
sagði á Facebook frá tengdaföður
sínum, Ragnari Sverrissyni, fv.
kaupmanni á
Akureyri: „Gamli
fór með hluta af
barnabörnunum
upp að [skálanum]
Gamla ofan Akur-
eyrar. „Svo sáu börnin eldstæði og
spurðu ,,hvað er þetta? Gamli
svaraði ,,Grýla notar þetta til að
grilla óþekku börnin eftir jól … þá
heyrist í elsta barnabarninu ,,AFI
maður segir ekki svona.“
Brynhildur Pétursdóttir,
framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna, skrifaði á Facebook:
„Ef það er eitt-
hvað sem ég bein-
línis treysti mér til
að vara við eru
það gjafabréf flug-
félaga. Allt of oft
fyrnast þessar kröfur og neytand-
inn situr eftir með sárt ennið.“
Ragnheiður Gestsdóttir velt-
ir vöngum: „Hin séríslenska aðferð
við einfaldan reikning er spes: ef
við gerum jafntefli í fótbolta reikn-
ast það sem sigur, ef aukning í túr-
isma minnkar milli ára telst það
vera sam-
dráttur … Ég er
reyndar alveg til í
að gefa okkur
vinninginn í Dav-
íð-á-móti-Golíat-
boltanum um daginn, en 5% aukn-
ing er aukning, ekki tap … Við
hverju bjuggust menn? 30% aukn-
ingu milli ára þar til skerið færi í
kaf vegna þungans af mannfjöld-
anum?“
Hjálmar Hjálmarsson leikari
er í HM-gír eins og fleiri, og þekkir
auglýsingamarkaðinn greinilega vel:
„Ætlaði að skella mér á Pepsi
tvennu, Sigurðsson og Messi en
fattaði þá að þeir klúðruðu báðir
víti á HM. Breytti yfir í Alfreð
Finnbogason Coke Zero en hann
var uppseldur og greip því eina
Emil og eina Ar-
on Einar Coke
classic í staðinn.
Á leiðinni heim
fór ég að hugsa
að Aron væri
náttúrlega meiddur og Emil tékk-
aði okkur út úr keppninni á móti
Króötum svo kannski yrði þetta
óheillakók í leiknum á eftir. Ég
sneri við og skilaði Aroni og Emil
og skipti yfir í tvo Jón Daða Coke
Zero. Ég held að Frakkar vinni
þetta,“ skrifaði hann fyrir leik
Frakka og Belga. Og hafði rétt fyrir
sér.
AF NETINU
Þeim fer óðum fækkandi,bandarísku hermönnunumsem þjónuðu á Íslandi í
seinni heimsstyrjöldinni enda
eru 73 ár síðan hildarleiknum
lauk. Einn þeirra, Vincent Her-
manson, er þó í fullu fjöri en
hann hélt upp á hundrað ára af-
mæli sitt í Bucks County fyrr í
þessum mánuði. Af því tilefni
var honum fært albúm með ljós-
myndum frá Íslandsdvölinni en
hermennirnir voru margir hverj-
ir duglegir að taka hér myndir.
Hermanson dvaldist hér í tvö ár
og sá sveit hans um viðhald á
flugvélum. Eins og nafnið gefur
til kynna er hann af norrænum
ættum; faðir hans var finnskur.
Maðurinn á bak við gjöfina,
George Valdimar Tiedemann,
tengist afmælisbarninu órofa
böndum en Vincent Hermanson
var skírnarvottur þegar George
Valdimar, sem er íslenskur í
móðurættina, var ausinn vatni í
Kristskirkju á Landakoti árið
1944. Foreldrar George Valdi-
mars fluttu vestur um haf eftir
stríð en hann hefur alla tíð hald-
ið góðum tengslum við Ísland.
Hann hefur bæði faglegan og
persónulegan áhuga á þessu
gamla myndefni frá Íslandi en
George Valdimar starfaði ára-
tugum saman sem frétta-
ljósmyndari.
Vincent Hermanson var skírnarvottur þegar George Valdimar Tiedemann var skírður í Kristskirkju 1944. Um daginn,
74 árum síðar, vildi sá fyrrnefndi ólmur, í tilefni af aldarafmæli sínu, endurskapa mynd sem tekin var á kirkjutröppunum.
Íslandsmyndir í afmælisgjöf
Bandaríkjamaðurinn Vincent Hermanson, sem þjónaði á Íslandi í seinna
stríði, fagnaði 100 ára afmæli sínu á dögunum og fékk óvæntan glaðning.
Vincent Hermanson ásamt félögum sínum í banda-
ríska hernum á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni.
Vincent Hermanson undir stýri á jeppa
hersins við braggana sem risu og settu
sterkan svip á stríðsárin hér á landi.
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
Fyrsta flokks
kammertónlist
Sígildir sunnudagar eru klassísk
tónleikaröð þar sem boðið er upp
á fjölbreytt úrval kammertónleika.
Sunnudaga
kl. 17:00 í Hörpu
Skrifstofuhluti vinnubúða við Búðarhálsstöð sem samanstanda af 21 einingu sem eru á tveimur hæðum, 2x10 einingar hvor hæð auk anddyris og geymslu sem eru að ígildi
um 1 eining. Skrifstofuhlutinn samanstendur af átta stærri skrifstofum/fundarrýmum (9,4-13,5 fm) og tuttugu öðrum skrifstofum (6,4 fm) sem skiptast á milli hæða.
Snyrtingar eru á báðum hæðum ásamt stigagangi fyrir miðju og á neðri hæð er borðkrókur með kaffiaðstöðu, ræstiherbergi, inngangur og geymslurými tengt inngangi.
Byggingin er því um 390 m2. Flatarmál án inngangseiningar og geymslu er 373 m2. Geymsla og inngangur er áætlaður 15-18 m2
Vinnubúðirnar seljast án innbús.
Allar upplýsingar veitir: Oscar Clausen
Löggiltur Fasteignasali/Viðskiptafræðingur
Símanúmer 861 8466 - oc@domusnova.is
Til sölu!