Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Side 12
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
Þ
að var einn blautan rigningardag í
júní að leiðin lá á Café Flóru í
Laugardal til fundar við þrjár
konur á miðjum aldri sem allar
bjuggu sem skiptinemar á heim-
ili Louise Cox í Solon, Ohio, endur fyrir
löngu. En það eru fleiri sem bíða í Grasa-
garðinum, því skiptinemamamman var nefni-
lega mætt á ný til Íslands, en 38 ár eru frá því
að fyrsti íslenski skiptineminn, Anna Guðrún
Harðardóttir, hélt af stað til Bandaríkjanna á
vit ævintýranna. Á hæla hennar fór systir
hennar Hafdís Harðardóttir og nokkrum ár-
um síðar frænka þeirra systra, Heiðrún
Hauksdóttir. Líklega renndi þær ekki í grun
þá að þetta yrði upphafið að ævilöngum vin-
skap.
Bandarísku foreldrarnir, Louise og Norman
Cox, tóku stúlkunum opnum örmum og áttu
þær allar viðburðarík ár sem seint gleymast.
Hjónin ferðuðust margoft til Íslands en Norm-
an lést fyrir fjórum árum. Louise er því hér ein
á ferð, í 21. skipti á ævinni. Hún er fædd í
Cleveland, Ohio, árið 1947, „sama ár og Ísland
gekk í FIFA“, eins og hún orðar það en hún
fylgdist að sjálfsögðu með Íslendingum á HM.
Við komum okkur vel fyrir með kaffi í litlu
hvítu glerhúsi fyrir utan kaffihúsið. Louise er
þarna í essinu sínu, umvafin íslensku dætrum
sínum þremur, nokkrum barnabörnum og
tveimur langömmubörnum. „Stelpurnar“ kalla
hana mom og tala um Norman sem dad eins og
ekkert sé sjálfsagðara. Við ræðum líf hennar
með skiptinemum og hvernig lífið tók allt aðra
stefnu í kjölfarið á þeirri ákvörðun að gerast
skiptinemamamma.
Dekruð á allan hátt
Árið 1978 var Louise rúmlega þrítug gift kona
með tvær dætur heima. Hún heyrði því fleygt
að auglýst hefði verið í útvarpi eftir fjölskyldu
til að taka að sér franskan skiptinema og ákvað
Louise að slá til. Sá skiptinemi dvaldi hjá þeim
hjónum yfir sumartíma og nutu þau þess mjög.
„Svo var það nokkrum árum seinna að börn-
in voru flogin úr hreiðrinu og við sátum eftir
heima með tóm svefnherbergi. Við vorum að
horfa á sjónvarpið og það birtist auglýsing frá
AFS þar sem auglýst var eftir fjölskyldum fyr-
ir skiptinema. Þannig að við sóttum um og þá
fengum við Önnu Guðrúnu,“ segir Louise en
hún ákvað að undirbúa sig vel fyrir komu ungu
stúlkunnar frá Íslandi.
„Áður en hún kom fór ég á bókasafn og tók
út allar bækur sem ég fann um Ísland og las
allt sem ég komst í. Ég vissi að Reykjavík væri
höfuðborgin, ég vissi um víkingana og ég vissi
að þarna höfðu Írar verið. Meira vissi ég ekki.
Og svo kom Anna Guðrún og hún var dálítið
hissa að ég skyldi vita svona mikið um Ísland,“
segir Louise og brosir breitt.
„Hún vissi meira um Ísland en ég!“ segir
Anna Guðrún og þær skellihlæja.
Anna Guðrún segir árið hafa verið viðburða-
ríkt. „Það var allt svo öðruvísi en heima. Þarna
fékk ég líka að vera einkabarn,“ segir Anna
Guðrún, en hún er fjórða í röðinni af fimm
systkinum.
„Ég var vön að vera ein af fimm. Þau dekr-
uðu við mig frá fyrsta degi á allan hátt. Svo
fékk ég fékk að ferðast heilmikið um Banda-
ríkin,“ segir Anna Guðrún en hún dvaldi hjá
þeim í eitt ár, þá sautján ára gömul.
Aðspurð hvert þau hafi ferðast svarar Anna
Guðrún: „Hvert fórum við ekki! Við fórum til
flestra ríkja Bandaríkjanna, meira að segja
Hawaii.“
Louise skýtur inn í að þau hafi gjarnan not-
að helgarnar í ferðalög; farið til Boston, í
Disneyworld og víðar, en hún naut góðs af því
að vinna hjá flugfélagi og gat flogið ódýrt á
milli staða. Í samningi hjá United Airlines var
meira að segja tekið fram að skiptinemar teld-
ust sem fjölskyldumeðlimir og væru á sömu
kjörum og önnur börn starfsmanna. Aðalstarf
hennar var þó ætíð kennsla og notaði hún
óspart tímann síðar meir til að kynna Ísland
fyrir nemendum sínum.
Uppáhaldsorðið var vá
Louise segir Önnu Guðrúnu hafa verið dálítið
feimna en þægilega í alla staði og þær náðu vel
saman.
„Við fengum gjarnan vini hennar úr AFS í
heimsókn en við vorum fyrst í götunni til þess
að fá kapalsjónvarp. Þannig að þau komu til
þess að horfa á MTV og við héldum oft pítsu-
partí,“ segir Louise.
„Ég man að það voru á þessum tíma ellefu
íslenskir skiptinemar í Ohio og allir fósturfor-
eldrar höfðu fengið lopapeysur að gjöf. Nema
við, við fengum teppi. Það var ótrúlega fallegt
og ég nota það ennþá, 38 árum seinna,“ rifjar
Louise upp.
Anna Guðrún segir árið hafa breytt sér
mikið. „Þetta opnaði augu mín varðandi
margt. Ég er alin upp hér í Reykjavík og hafði
nánast ekkert farið til útlanda, nema einu
sinni til London og til Danmerkur. Ég var dol-
fallin að koma til Bandaríkjanna,“ segir Anna
Guðrún.
„Uppáhaldsorðið hennar var vá!“ segir Louise.
Á þeim tíma var dýrt að hringja heim og
var því lítið um samskipti skiptinema við fjöl-
skylduna heima. „Hún hringdi mjög sjaldan
heim. Maður þurfti að hringja til Pittsburgh
til þess að fá samband í gegnum sjávarlínu til
Íslands, það var ekkert gervitungl,“ útskýrir
Louise.
„Einu sinni þegar Anna Guðrún var hérna
fékk ég þá hugmynd að senda Vigdísi Finn-
bogadóttur, þáverandi forseta, jólakort. Þann-
ig að ég skrifaði kortið og skrifaði utan á það
Vigdís Finnbogadóttir, Bessastaðir, Iceland.
Og í póstinum kom stuttu seinna bréf með inn-
sigli forsetans á bakhlið. Það var handskrifað
bréf frá Vigdísi þar sem hún sendi okkur
kveðju. Það var dásamlegt! Hún skrifaði
hversu gaman það væri að við værum með ís-
lenska stúlku á heimilinu og að hún væri glöð
að við værum að læra um Ísland. Svo óskaði
hún okkur gleðilegra jóla og farsæls árs. Það
var yndislegt og ég geymi alltaf bréfið,“ segir
Louise.
Laufblöð í pósti
Eftir að Anna Guðrún fór heim dvaldi græn-
lensk stúlka hjá þeim í fjóra mánuði og þar
næst kom yngri systir Önnu Guðrúnar, Hafdís,
árið 1984. Hún var þá sextán ára og kom á eig-
in vegum. „Ég segi eins og Anna, þetta opnaði
augu manns. Ég held að við höfum farið í
ferðalag einu sinni í mánuði. Við fórum til Kína
og Hong Kong og til fjölmargra ríkja innan
Bandaríkjanna. Svo segi ég líka, þau dekruðu
Anna Guðrún, Hafdís, Louise
og Heiðrún hafa haldið sam-
bandi í áratugi en allar þrjár
voru skiptinemar í Ohio í
Bandaríkjunum hjá Louise og
Norman, en hann er nú látinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Stelpurnar kalla mig mömmu
Tæp fjörutíu ár eru síðan Louise Cox tók við fyrsta íslenska skiptinemanum af þremur. Þrjár stúlkur dvöldu
í Ohio í Bandaríkjunum hjá Louise en ævilangur vinskapur hófst við kynnin. Louise hefur heimsótt Ísland
21 sinni og notar hvert tækifæri til að kynna Ísland fyrir löndum sínum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is