Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Qupperneq 16
NETHEIMAR
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
M
ikið er um að vera í skrifstofuhúsnæði
KALT á Blágötu í Kópavogi þegar blaða-
mann Sunnudagsblaðsins ber að garði.
Opnu rýminu deila nokkur lítil frum-
kvöðlafyrirtæki sem leigja þar skrifborð
í margvíslegum tilgangi, allt frá stafrænni markaðssetningu
til heimsendingar á sérhönnuðum sokkum. Erindi blaða-
manns er að ræða við Stefán Atla Rúnarsson og Inga Þór
Bauer, tvo af stofnendum KALT, framleiðslufyrirtækis sem
sérhæfir sig í myndefni og auglýsingum fyrir samfélags-
miðla, en þeir hafa síðastliðin átta ár haldið úti Youtube-
rásinni Ice Cold sem notið hefur töluverðra vinsælda, ekki
síst vegna svokallaðra vlogga sem þeir félagar framleiða
reglulega.
Vlogg eru eins konar myndbandsblogg, sem eru afar vin-
sæl í Youtube-heimum. Margar af framstæðustu stjörnum
miðilsins nýta sér vlogg til að veita áhorfendum sínum inn-
sýn í líf sitt og hugarheim. Í vloggum sínum gera Ingi Þór og
Stefán Atli slíkt hið sama, þar má sjá félagana semja tónlist,
taka upp auglýsingar og spila á tónleikum ásamt þjóðþekkt-
um listamönnum, auk þess festa þeir á filmu daglegt amstur
þeirra vina; í einu vlogginu hjálpar Stefán Inga að flytja, í
öðru borða þeir hádegismat á Hlöllabátum.
„Við byrjuðum eiginlega að vlogga fyrir tilviljun,“ segir
Stefán, „Ingi bauð mér upp í stúdíó til að sýna mér lagið
NEINEI sem hann hafði samið með Áttunni. Við höfðum
talað um þetta í nokkrar vikur svo ég tók bara upp símann
minn og byrjaði að taka upp. NEINEI var mjög vinsælt á
þessum tíma svo ég hugsaði með mér að það yrði gaman ef
Ingi myndi sýna fólki hvernig það var búið til og brjóta það
aðeins niður. Svo tókum við upp eitthvað „slow motion“ af
kaffi og bættum við nokkrum „jump cuts“ og hlóðum því
upp á Youtube.“
Fyrsta vlogg þeirra vakti samstundis athygli á samfélags-
miðlum, ekki síst vegna vinsælda sumarsmellsins NEINEI
sem Ingi Þór samdi ásamt samfélagsmiðlahópnum Áttunni.
„Við reynum að vlogga um hluti sem eru áberandi í sam-
félaginu,“ segir Stefán, „ég var viss um að einhver fjölmiðill
myndi pikka þetta upp svo ég sendi nokkrar fréttatilkynn-
ingar og við fengum góða fjölmiðlaumfjöllun. Þá bættust við
rúmlega 10 þúsund áhorf.“
„Það var geggjað að ýta vloggunum þannig úr vör, við
fengum bombu alveg óvart,“ segir Ingi, „það hvatti okkur til
að halda áfram. Núna erum við búnir að gera 39 vlogg,“ bæt-
ir hann við.
Ástríða varð að atvinnu
„KALT varð eiginlega til út frá vloggunum okkar. Eftir að
við byrjuðum að vlogga fyrir einu og hálfu ári fengum við
símtal frá félaga okkar sem bað okkur um að framleiða sam-
bærilegt vídeó fyrir fyrirtækið sitt. Við tókum upp fyrsta
verkefnið okkar með honum og eftir það byrjaði boltinn að
rúlla.“ Á síðasta ári hefur KALT framleitt myndbönd og
auglýsingar fyrir fyrirtæki á borð við Toyota, 1819, Kjörís,
Strætó og Converse, svo eitthvað sé nefnt. „Nafn fyrirtæk-
isins, KALT, er tilvísun í nafn Youtube-rásarinnar Ice
Cold,“ segir Stefán, en félagarnir stofnuðu Ice Cold fyrir
átta árum þegar þeir voru báðir nemendur í Flensborg-
arskólanum í Hafnarfirði.
„Við gerðum fyrsta vídeóið okkar árið 2010, það var stutt-
mynd þar sem ég var að selja Inga eiturlyf og svo kom lögga
og byrjaði að elta og skjóta okkur,“ heldur Stefán áfram.
„Við fengum 5.000 áhorf á þremur mánuðum og okkur leið
eins og við hefðum sigrað heiminn,“ segir Ingi, en Youtube-
rásin hefur þróast mikið á síðustu árum. Ári síðar hóf Ice
Cold að framleiða tónlistarmyndbönd fyrir hina ýmsu lista-
menn, þeirra á meðal var Egill Einarsson sem komið hefur
fram undir listamannsnafninu DJ Muscleboy. „Ingi fram-
leiddi myndbandið fyrir Louder og Pump It Up með DJ
Muscleboy, sem færði okkur fáránlega mikið af fylgj-
endum,“ segir Stefán, en myndböndin tvö eru samtals með
hátt í tvær milljónir áhorfa. Félagarnir framleiddu einnig
tónlistarmyndbönd fyrir Friðrik Dór, Maríu Ólafs og Krist-
mund Axel.
Gleymdur miðill
Þótt Youtube hafi reynst stökkpallur fyrir Stefán og Inga
þykir þeim óraunhæft að lifa á tekjum sem miðillinn greiðir
framleiðendum, eins og þekkist víða í hinum enskumælandi
heimi. „Maður verður að vera með hátt í milljón áhorf á dag
til að geta lifað á þessu, og maður fær þau ekki með því að
framleiða efni á íslensku,“ segir Ingi. „Helstu möguleikarnir
eru styrkir og auglýsingatekjur. Einu sinni í viku spilum við
tölvuleikinn Fortnite í beinni útsendingu og þá erum við að
fá tekjur frá auglýsendum sem styrkja streymið okkar.“
„Youtube er svolítið gleymdur miðill hjá viðskiptafólki og
markaðsstjórum, en hann er alls ekki gleymdur hjá ungu
fólki. Ungt fólk er ekki á Facebook, það er á Youtube, þann-
ig að það eru miklir möguleikar til að auglýsa þar. Við notum
sjálfir Youtube til að auglýsa okkar eigið verkefni, vloggin
hafa verið góð auglýsing fyrir KALT og Ingi hefur notað
miðilinn til að auglýsa tónlistina sína,“ segir Stefán.
Róa hvor annan niður
Áhorf er gríðarlega mikilvægt til að ná árangri á Youtube
og framleiðendur nota mismunandi aðferðir til að hámarka
það. „Maður er alltaf að reyna að gera eitthvað spennandi.
Við gerum stundum hluti, eins og að fara í snjósleðaferðir
eða leigja heilan bíósal, sem við myndum aldrei gera nema
við værum að vlogga,“ segir Ingi. „Það er mikil pressa að
gera hluti sem fólk myndi horfa á.“
„Ég tek undir það,“ segir Stefán, „Ingi skoraði einu sinni á
mig að segja já við öllu í 24 klukkutíma. Það gekk kannski að-
eins of langt. Það lá við að mamma mín afneitaði mér þegar
hún sá myndband af mér setja rakettu í rassgatið á mér.“
„Við göngum kannski stundum of langt, en mér finnst við
ekki hafa farið yfir strikið enn þá,“ segir Ingi. „Það er
kannski gott að við séum tveir. Ég fæ stundum frekar
steiktar hugmyndir og þá segir Stefán mér að róa mig niður,
og öfugt.“
Í viku hverri fylgjast þúsundir áhorfenda með mynd-
böndum Inga og Stefáns, og fá oft og tíðum nána innsýn í líf
þeirra. „Okkur þykir það eiginlega frekar eðlilegt,“ segir
Stefán. „Allir sem eru á samfélagmiðlum, hvort sem það er
Facebook eða Instagram eða Snapchat, sýna mjög mikið af
lífinu sínu og opna það fyrir áhorfendum að einhverju marki.
Okkar kynslóð þykir þetta kannski eðlilegt, við erum öll bú-
in að venjast því að koma stöðugt fram. Ég held að við séum
ekki að ganga eins langt í að opna líf okkar fyrir áhorfendum
og margir aðrir sem nota hefðbundnari samfélagsmiðla. Við
eyðum miklum tíma í að klippa myndböndin til og við leggj-
um mikla vinnu í að ákveða hvað verður í því og hvað ekki. Á
vissan hátt förum við inn í einhvern karakter þegar við erum
að vlogga, karakter sem er ekki sá sami og við erum frá degi
til dags.“
Kvíðinn vanmetinn
„Þetta er samt enginn dans á rósum, við erum oft að vinna í
12 tíma á dag, sofum lítið, alltaf með kvíða því við verðum að
klára auglýsingar en við þurfum samt að muna að vlogga.
Það fylgir þessu mikill kvíði. Ég held að fólk vanmeti kvíð-
ann sem fylgir samfélagsmiðlum. Hverju einasta mynd-
bandi sem við deilum fylgir mikill efi – er þetta nógu gott?
Eftir beinar útsendingar hugsar maður hvort maður hafi
gert eitthvað asnalegt. Á sama tíma þarf maður að hugsa
hvað maður á að vlogga í næstu viku.“
„Við pælum oft í því hvers vegna við séum að vlogga,“ seg-
ir Stefán. „Peningurinn er ekki hvatinn á bak við þau. En
síðan er maður kanski að labba í Smáralind og einhverjir
krakkar nálgast mann og biðja um mynd, og þá munum við
hvers vegna við gerum þetta. Þegar við fáum viðbrögð og
góð komment frá fólki hvetur það okkur til að halda áfram.
Við erum að gera efni sem fólki finnst gaman að horfa á og
okkur finnst þetta gaman, og það er allur hvatinn sem við
þurfum.“
KALT á toppnum
Stefán Atli Rúnarsson og Ingi Bauer reka framleiðslufyrirtækið KALT, en fyr-
irtækið á rætur að rekja til Youtube-rásar þeirra félaga sem stofnuð var 2010.
Pétur Magnússon petur@mbl.is, Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is
’Ég held að við séum ekki aðganga eins langt í að opnalíf okkar fyrir áhorfendum ogmargir aðrir sem nota hefð-
bundnari samfélagsmiðla.
Ingi og Stefán hafa framleitt fjörutíu vlogg.