Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 20
Akureyringurinn Einar Gísla-son, myndlistarmaður oghestamaður, átti sér lengi þann draum að flytja í sveit. Eig- inkona hans, Hugrún Hjörleifs- dóttir, er uppalin á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit og fyrir hartnær tveimur áratugum keyptu þau næstu jörð, Brúnir, og draumur Einars rættist. Á Brúnum búa þau með 50 kindur, hross og landnáms- hænur en eru nú einnig kaffihúss- og myndlistarbændur! „Ég kunni ágætlega við mig bæði í Reykjavík og á Akureyri, en Einar lagði mikla áherslu á að láta sveita- drauminn rætast og það var lykil- atriði að geta horft á folalds- merarnar út um eldhúsgluggann, eins og við gerum núna!“ segir Hugrún. „Ég sagðist flytja í sveit- ina með honum með einu skilyrði; að hans fyrsta verk yrði að byggja gróðurhús. Hann gerði það og ég uni mér vel þar við alls konar rækt- un.“ Í fyrrasumar tóku hjónin í notk- un fallegt hús á hlaðinu við íbúðar- húsið; þar er sýningarsalur og vinnustofa Einars í kjallaranum, kaffihús á miðhæðinni, þar sem einnig er rými fyrir myndlistarsýn- ingar, og á efstu hæð er íbúð sem hugsuð er fyrir listamenn sem vildu koma og nýta sér vinnustofuna. „Hugmyndin að húsinu kviknaði á fallegum haustdegi,“ sagði Hug- rún, þegar blaðamaður kom í heim- sókn. Hluti hússins hafði verið byggður og hugsaður sem vélageymsla og ætlunin var að stækka það. „Mig langaði samt ekki að byggja bílskúr vegna þess að mér þykir ekkert vænt um bíla,“ segir Einar. „Við stóðum þarna eitt kvöldið og horfð- um út fjörðinn – þá kviknaði hug- myndin.“ Þau segjast í raun ekki síst hafa viljað deila fallegu útsýni af bæjarhlaðinu með öðrum. Einar er menntaður myndlistar- maður, úr grafíkdeild MHÍ, og seg- ist alltaf hafa „brasað í myndlist. Ég rak Gallerí Svartfugl með Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur, áður en við fluttum í sveitina, og við höfðum mjög gaman af því. Kynnt- umst mörgu listafólki enda sýndi ógrynni fólks hjá okkur, margt góð- ir vinir okkar í dag.“ Fyrsta hugmynd var að stækka húsið á hlaðinu um helming, „en svo varð þetta alltaf meira og meira,“ segir Hugrún. „Þetta átti bara að vera ein hæð, svo ákváðum við hafa kjallara en þegar til kom fannst okkur það ekki nóg og bættum við risi!“ Grunnurinn að húsinu var tekinn 2016 og um leið hófst vinna við 170 metra langan og 4 metra breiðan reiðvöll neðan við listhúsið. Þar fara fram hestasýningarnar að morgni dags, eða eftir pöntunum, og gestir geta annaðhvort fylgst með innan úr húsinu, af svölum þess eða úr áhorfendabrekku við völlinn. Einar sýnir hrossin sjálfur ásamt tveimur stúlkum sem starfa með þeim hjónum, Veronika Horáková og Merete Elak, sem báðar eru miklir hestamenn. Það var Jónas Vigfússon sem teiknaði húsið og reiðvöllinn, eftir óskum Einars. „Ég held að fáir arkitektar hefðu þolað mig, því þetta var alltaf að breytast!“ segir Einar. „En Jónas hefur leyst þetta allt mjög vel; ég er afar ánægður með húsið.“ Hjónin langaði að hafa rekavið utan á húsinu en hann var ekki fá- anlegur, svo notað var rússalerki, Hjónin á Brúnum, Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason, ásamt íslensku tíkinni Grímu, sem er á sautjánda ári. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Matur, list og hestar Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason vildu leyfa fleirum að njóta fallegs útsýnis af hlaðinu á Brúnum í Eyjafjarðarsveit og reistu list- og kaffi- hús. Hestasýningar fara fram á reiðvelli við húsið. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Systkinin frá Munkaþverá í Eyjafjarðarsveit, sem sýna nú í listhúsinu á Brúnum. Frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, Kristján Hans Jónsson og Eysteinn Jónsson. HÖNNUN Fundur Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, í Singapúr fyrir skömmu var sögulegur. Myntslátta Singapúr notaði að sjálf- sögðu tækifærið og lét hanna minnispeninga í tilefni fundarins í nokkrum útgáfum. Sögulegt handtak 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018 20% AFSLÁTTUR TILBOÐ áClassic botnum meðSimbadýnum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.