Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Qupperneq 36
SJÓNVARP Leikararnir Diane Lane,
Barry Keoghan og Imogen Poots eru
meðal þeirra sem munu leika í kynn-
ingarþætti FX fyrir aðlögun á Y:
The Last Man on Earth sem byggist
á frægri samnefndri myndasögu.
Nafn sögunnar vísar í Y-litning-
inn, en hún er er vísindaskáldskapur
sem á sér stað í heimi þar sem
hræðilegur sjúkdómsfaraldur hefur
útrýmt öllum spendýrum af karl-
kyni, fyrir utan karlmanninn Yorick
Brown og gæluapann hans, Amper-
sand.
Diane Lane
AFP
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
LESBÓK
KVIKMYNDIR Joaquin Phoenix mun leika Jókerinn í
sjálfstæðri mynd um þennan erkióvin Leðurblöku-
mannsins. Að sögn leikstjórans verður myndin harm-
leikur sem segir hvernig venjulegur maður sem var út-
skúfað af samfélaginu varð að slíkum skúrki.
Efniviðurinn er fenginn úr frægri teiknimyndasögu Al-
an Moore, The Killing Joke. Umfang og kostnaður
myndarinnar verður minni en í flestum ofurhetjumynd-
um nú til dags þar sem myndin verður tilraunakenndari
og meira lagt upp úr persónusköpun en tæknibrellum.
Phoenix mun feta í stór fótspor Jack Nicholson og
Heath Ledger sem áður léku Jókerinn, á ólíkan en eft-
irminnilegan hátt, en Jared Leto þótti ekki góður í hlut-
verkinu í myndinni Suicide Squad.
Viltu Jóker?
Joaquin
Phoenix
PayPal baðst afsökunar á atvikinu.
Grafalvarlegt
samningsbrot
VIÐSKIPTI Greiðsluþjónustan
PayPal sendi konu aðvörunarbréf
þar sem lögsókn var hótað vegna
samningsbrots. Hið meinta brot var
andlát konunnar í fyrra eftir bar-
áttu við krabbamein, en viðskipta-
vinir PayPal verða samkvæmt
samningi að vera lifandi. Fyrir-
tækið hefur beðið ekkil konunnar
afsökunar eftir að hann kvartaði
undan bréfinu, en ekki er ljóst
hvort um galla í tölvukerfi eða
mannleg mistök er að ræða.
ÍÞRÓTTIR Fót-
boltafélagið Ju-
ventus selur mikið
af treyjum merkt-
um fótboltamann-
inum Cristiano Ro-
naldo, en hann
gekk til liðs við fé-
lagið fyrr í vikunni
fyrir 100 milljónir
evra. Miklar raðir hafa myndast hjá
íþróttavöruverslun Juventus í Míl-
anó sem selur að jafnaði eina treyju
á hverri mínútu, sem má telja gott
miðað við að borgin er heimili
keppinauta Juventus. Vefverslun
félagsins hefur einnig margsinnis
hrunið í kjölfar mikils álags eftir að
Portúgalinn gekk til liðs við félag-
ið.
Cristiano
Ronaldo.
Treyjur í
tonnavís
KVIKMYNDIR Leikstjórinn Neil
Blomkamp mun leikstýra nýrri
mynd í framleiðslu MGM um vél-
knúna lögregluþjóninn frá Detroit,
Robocop. Myndin verður hluti af
upprunalegu seríunni frá 1987 og
verður í anda hennar. Myndin teng-
ist ekki sjálfstæðu endurgerðinni
sem kom út fyrir fjórum árum.
Með lögum skal land byggja.
Róbótaábót
Eftir að Voice-ið kláraðist er égbúin að koma víða við og takaþátt í fullt af skemmtilegum
verkefnum, samstarfi og uppá-
komum en mér fannst vera kominn
tími til að finna mig sem sólóartista
og hvernig efni ég vildi gefa út sem
Karitas,“ segir Karitas Harpa sem
kemur fram undir listamannsnafn-
inu Karitas.
Fjölbreytt verkefni
„Eftir keppnina tók ég upp sigur-
lagið eða ábreiðu af laginu af My
Love með Sia á íslensku sem fékk
nafnið Sæla með texta eftir Arnar
Frey Frostason. Í maí á síðasta ári
fór ég til Berlínar þar sem ég tók upp
þrjú lög með Daða Frey undir Karit-
as & Daði og má finna þau lög á
Spotify. Ég ákvað að gefa út jólalag,
enda verður að reyna að tikka í öll
box,“ segir Karitas. Lagið heitir
„Um jólin“ og þar sjá hún og dreng-
urinn hennar, Ómar Elí, um að leika,
taka upp og klippa vídeóið. Snemma
á þessu ári tók hún þátt Söngva-
keppni Sjónvarpsins með Fókus-
hópnum. Þau komust með lagið
„Aldrei gefast upp“ í úrslitakeppnina
og eitt leiddi af öðru. Karitas hefur
haft meira en nóg fyrir stafni og er
nýjasta verkefnið GRL PWR, eða
Spice Girls-hópurinn.
Hinar íslensku Spice Girls
„Spice Girls var í einu orði algjör
snilld og ótrúlegt að enginn hafi ver-
ið búinn að „claim-a“ þessa tónlist
hérlendis fyrr, en ég kvarta svo
sannarlega ekki yfir því! Við komum
fram fyrir fullu húsi á Húrra og
stemningin var ólýsanleg, það var al-
veg umtalað. Þetta var eins og að
kafa ofan í einhvern nostalgíubúðing
þar sem allt var svo sætt og gott. Það
var svo magnað að sjá fólk falla í nos-
talgíutrans, það kunnu allir þessi lög
og sungu með. Ég veit ekki hvort
áhorfendur eða við höfum fengið
meiri gæsahúð,“ segir Karitas sem
segir það í raun heiður að fá að flytja
þessa tónlist fyrir fólk og vera með í
því að mynda þetta magnaða and-
rúmsloft. „Meðlimir Spice Girls voru
og eru svo miklir talsmenn GRL
PWR og hafa átt stóran þátt í því að
Ég er mikil
tilfinningavera
Karitas Harpa Davíðsdóttir ætti að vera orðin einhverjum kunnug eftir að hún sigraði í The Voice Ís-
land síðasta vor. Karitas hefur kosið að taka lífið ekki alltof alvarlega og reynir að hafa gaman af ferða-
laginu, því það er víst ferðalagið sem tekur lengstan tíma, ekki áfangastaðurinn.
Hulda Bjarnadóttir hulda@mbl.is
Ljósmynd/Laufey Ósk
Karitas vildi fanga líkamann í sinni eðlilegustu mynd.
„Líkamann sem gekk með og fæddi son minn. Ég
vildi ná myndum af slitunum, húðinni sem fellur
saman þegar maður situr og svo framvegis.“
Síðasti gæinn í dalnum