Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 37
móta okkur allar sem tókum þátt sem tónlistarmenn og týpur.“ Hitaði upp fyrir Jessie J Í sumar hélt söngkonan Jessie J tón- leika hérlendis, en margir þekkja hana úr bresku þáttunum The Voice. Jessie J semur stóran hluta af lögum sínum sjálf en áður en hún hóf söng- feril sinn vann hún við að semja lög fyrir aðra. Hefur hún meðal annars samið lög fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown og David Guetta. Karitas þótti því mikill heið- ur að fá að hita upp fyrir stórstjörn- una. „Já, það var meira ævintýrið! Viku eftir að ég gaf út lagið mitt „All the things you said“ fékk ég það óraunverulega tækifæri að fá að hita upp fyrir eina af mínum fyrir- myndum í tónlist síðustu árin. Það var vægast sagt draumi líkast að fá að standa stóra sviðinu í Laugar- dalshöllinni með vinum mínum og fá að flytja eigið efni fyrir stóran hóp af fólki.“ Lagið er ákveðið uppgjör Fyrsti singúll Karitasar kom út 30. maí síðastliðinn og nú fylgir hún því eftir með myndbandi. „Það er unnið í samstarfi við Pálma og Sæþór í Stop Wait Go og heitir All the things you said. Því hefur verið tekið vel, sem er alltaf gaman, en mér fannst ég þurfa að fylgja því eftir með myndbandinu þar sem myndefnið var til, satt að segja er myndefnið búið að vera til síðan áður en lagið kom út en það tók tíma að finna réttan aðila í eftir- vinnsluna til að fanga andrúmsloftið sem ég leitaði að.“ Þau fundu að lok- um Hörð Frey Brynjarsson sem vann myndbandið með þeim. „Ég hef talað um að lagið sé eins- konar uppgjör fyrir mig, gamlir fjötrar, ástir, sjálfsást og sambönd, vinasambönd til jafns við önnur. Auðvitað túlkar hver og einn síðan lagið og textann eins og sér hentar, við upplifum hluti svo mismunandi svo við tengjum auðvitað mismun- andi. Mér þykir svo mikil fegurð liggja í því hvað varðar tónlist, og list yfir höfuð, hvað hún getur verið túlk- andi á marga vegu, hvernig sorglegt lag fyrir einum getur verið lagið sem kemur þeim næsta í gott skap, allt eftir því hvað viðkomandi tengir við það; séu það minningar, lykt, atburð- ir o.s.frv. o.s.frv.“ Tökurnar ákveðin útrás „Myndbandið fyrir mér er í raun svo- lítið tilfinningalegt ástand fangað í myndefni. Örvæntingin sem fylgir óuppfylltum loforðum, sáttin sem maður þarf að eiga við fólk og sjálfan sig, rússíbaninn og svo áframhaldið. Það er svo mikilvægt að halda alltaf áfram, standa með sér og gefast ekki upp á sér og því sem maður trúir á. Myndbandið fangar mannlegar hlið- ar og tilfinningar, stundum líður manni bara ekki vel, er pirraður og þarf einhverskonar útrás, sé það að kasta púðum og fötum eða hreinlega gretta sig og dansa til að halda áfram, og það er bara allt í lagi. Ég hef allavega komist að því í gegnum árin og með auknum þroska að ég er mikil tilfinningavera og ég upplifi hluti rosalega sterkt og hef alltaf gert. Það er mannlegt að upplifa og finna og ég hef fundið að fyrir mig er það besta sem ég get gert að leyfa mér það bara, það góða og það slæma, en síðan þarf ég a.m.k. að passa að dvelja ekki of lengi þar, gretta mig framan í spegilinn, dansa og síðan halda áfram. Ég fékk vini mína í tökur með mér, Viktor Inga og Kolbrúnu Lilju hjá Cineverse Entertainment, og Gissur Guðjónsson til að taka mynd- ir. Upphafleg hugmynd var allt önn- ur en útkoman en það er stundum þannig með verkefni, þau breytast allt fram á síðustu mínútu. Tökudag- urinn var svo skemmtilegur, við skelltum góðri tónlist í, laginu kannski svona einu sinni eða þúsund sinnum og dönsuðum, hlógum og fengum útrás. Ég hef kosið að taka lífið ekki alltof alvarlega og ég reyni að hafa gaman af ferðalaginu, því það er víst ferðalagið sem tekur lengstan tíma, ekki áfangastaðurinn.“ Var með skekkta líkams- og sjálfsímynd Karitas talar mikið um sjálfstraust og sjálfsímynd kvenna. „Já, ég tala mikið um sjálfsást, sjálfsálit og lík- amsímynd. Eiginlega bara eins oft og ég get því mér finnst það svo mik- ilvægur hlutur og það er málefni sem stendur mér nærri. Það er svo mikil- vægt að komast í sátt við sjálfan sig og læra að þykja vænt um sig fyrir það hver og hvað maður er. Kannski er þetta mér svona hjartans mál af því að ég hef háð þessa baráttu svo grimmt í gegnum árin. Ég var með ofboðslega skekkta líkams- og í raun sjálfsímynd í svo mörg ár og ég veit að þetta er eitthvað sem margt fólk og sérstaklega ungar stúlkur glíma við en eiga oft erfitt með að tala um.“ Þróaði með sér átröskun „Eftir mörg ár af þessari skekkju þróaði ég með mér átraskanir sem heltóku mig í nokkur ár, þetta er sjúkdómur sem er svo óvæginn og lúmskur,“ segir Karitas. Hún bendir á að það geti verið svo erfitt að ná tökum á honum af því að það er ekki eins og maður geti bara forðast mat eins og bindindismanneskja með aðrar fíknir, maður verði alltaf að borða til að lifa og það geti verið mjög erfitt að læra heilbrigðar mat- arvenjur upp á nýtt. „Ég finn að þetta er eitthvað sem ég mun alltaf eiga í baráttu við, þetta er ekki sjúk- dómur sem ég hef „læknast“ af held- ur náð tökum á og lifi með á hverjum degi.“ Eftir því sem hún hefur fundið sig styrkjast, hefur hún nýtt hvert tæki- færi til að ögra sjálfri sér og fundið nýjar leiðir til að vinna gegn þessum hugsunum þegar þær dúkka upp. Ögrar staðalímynd kvenlíkamans „Eftirminnilegast og það sem ég er líklega hvað stoltust af er þegar ég kom heim frá Bandaríkjunum síðast- liðið haust eftir tvær vikur í fríi með syni mínum,“ segir Karitas. „Þá hafði ég greinilega bætt aðeins á mig, þá er ég að tala um svona 2-3 kíló, en hausinn fór strax á fullt og mér fannst ég ekki geta klæðst hinu eða þessu.“ Á þeim tíma hafi hún ákveðið að fá ljósmyndarann Laufeyju Ósk á Sel- fossi til liðs við sig. Þær ákváðu að taka myndir af Karitas á nærföt- unum einum saman, en þannig vildu þær ná að fanga líkamann í sinni eðli- legustu mynd. „Líkamann sem gekk með og fæddi son minn. Ég vildi ná myndum af slitunum, húðinni sem fellur saman þegar maður situr og svo framvegis.“ Karitas birti myndirnar í fram- haldinu á Instagram-reikningi sínum og bókstaflega beraði sig fyrir heim- inum í þeim tilgangi að ögra staðal- ímynd kvenlíkamans. Hún segist elska að sjá hvernig hlutirnir eru að breytast, margar netverslanir séu farnar að nota fjöl- breyttari módel sem eru allskonar. Þó að henni finnist þetta enn til stað- ar þá sé mikilvægt að halda þeirri vinnu áfram. „Þetta var mitt framlag í þá baráttu, sem og ögrun á sjálfa mig, því líkami er bara líkami og lík- amar eru eins mismunandi og við er- um mörg. Enginn einn líkami er rétt- ur heldur eru þeir það allir og eiga allir rétt á sér.“ Sumarið þétt bókað Hún segir nóg framundan og nú þeg- ar er hún byrjuð að vinna að mynd- bandi við lag númer tvö sem heitir True og er sá undirbúningur í raun í fullum gangi. Þau stefna á að gefa það út fyrir sumarlok, sem gæti reyndar reynst erfitt ef sumarið end- ar á því að koma ekki yfirhöfuð, „en stefnan er tekin á lok júlí eða byrjun ágúst, óháð veðurfari,“ útskýrir hún. Karitas segist vera að vinna í fleiri lögum og stefnan sé sett á EP-plötu. Einnig sé hún staðfest á Airwaves en þar mun hún flytja nýtt efni með góðum vinum í bullandi stemningu eins og hún segir sjálf. „Ég er líka að koma mikið fram í brúðkaupum í sumar og svo verð ég til dæmis á Húnavöku auk þess sem GRL PWR- verkefnið er enn í fullum gangi og Fókus-hópurinn mun eitthvað koma fram svo fátt eitt sé nefnt.“ Ljósmynd/Gissur Guðjónsson „Eftir mörg ár af þessari skekkju þróaði ég með mér átraskanir sem hel- tóku mig í nokkur ár, þetta er sjúkdómur sem er svo óvæginn og lúmskur,“ segir Karitas. 15.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 KVIKMYNDIR Ekkert lát virðist á velgengni ofur- hetjumynda Marvel, en nú mun ástralski leikstjórinn Cate Shortland leikstýra myndinni um Marvel-ofurhetjuna Black Widow sem leikin er af Scarlett Johansson. Þetta verður önnur ofurhetjumynd Marvel með kvenpersónu í aðalhlutverki, en Captain Marvel með Brie Larsson kem- ur út á næsta ári. Svarta ekkjan birtist fyrst í Iron Man 2 og hefur komið fyrir í mörgum af Marvel-myndunum síðan þá, en hefur ekki fengið sína eigin mynd fyrr en nú. Ekki er víst hvort myndin mun fjalla um upp- runa hetjunnar eða hvort hún mun gerast í kjöl- far atburða nýju Marvel-myndanna. Svarta ekkjan fær leikstjóra Scarlett Johansson leikur Svörtu ekkjuna. AFP FÓLK Paul Ryan, forseti fulltrúadeild- ar Bandaríkjaþings, lenti í óvenjulegu skemmdarverki á Chevy Suburban- jeppanum. Bílnum var lagt fyrir utan heimili móður hans í Wisconsin þegar fjölskylda múrmeldýra gerði sig heima- komna í bílnum. Þegar móðir Ryans kom heim úr fríi reyndi hún að koma bílnum í gang án árangurs, en Ryan sjálfur má ekki keyra vegna stöðu sinn- ar. Þegar bíllinn var dreginn á verk- stæði kom hústaka múrmeldýranna í ljós og að þau höfðu nagað sig í gegnum raflagnirnar undir vélarhlíf bílsins. Skemmdarvargar reyndust nagdýr Paul Ryan Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.