Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 15. JÚLÍ 2018
Frakkar kalla þjóðfána sinn le drapeau tricolore, þrílita fánann,
en hann er samsettur úr sömu litum og sá íslenski, bláum, rauð-
um og hvítum og eru rendurnar þrjár lóðréttar. Í Rússlandi hef-
ur allt meira og minna snúist um heimsmeistarakeppnina í fót-
bolta undanfarið, en hún hefur staðið yfir síðan um miðjan júní
og lýkur í dag, sunnudag, með úrslitaleik Frakka og Króata í
höfuðborginni, Moskvu.
Ýmislegt hefur verið brallað í tilefni HM, meðal annars tók
þessi snjalli kökugerðarmaður - kökulistamaður - Rouchana Ko-
ukhtina, í borginni Nizhny Novgorod, sig til og hannaði köku til
heiðurs franska landsliðinu í tilefni þess að í borginni fór fram
leikur Frakklands og Úrúgvæ í átta liða úrslitunum. Kakan hef-
ur án efa runnið ljúflega niður og ekki kæmi á óvart að starfs-
bræður hennar í Moskvu feti í spor Koukhtinu og baki eitthvað
fallegt um helgina með skírskotun í fána Frakka og Króata.
Kökugerðarmeistarinn Rouchana Ko-
ukhtina föndrar við kökuna sem hún
hannaði – tilbrigði við franska fánann.
AFP
Þrílit og gómsæt
Kakan sem boðið var upp á í Nizhny Novgorod.
AFP
Kökulistakona í Rússlandi hannaði köku
til heiðurs franska fótboltalandsliðinu.
Breskur togari reyndi að sigla
niður vélbátinn Gullborgu frá
Vestmannaeyjum í júlí 1960.
Mikið gekk á á Íslandsmiðum,
enda fyrsta þorskastríðið af
þremur í algleymingi.
Nokkrum dögum áður hafði
varðskipið Óðinn skotið tveimur
skotum í reykháf togarans
Grimsby Town sem var að ólög-
legum veiðum við Hvalbak. Tog-
arinn gerði ítrekaðar tilraunir til
að sigla á varðskipið og var þá
gripið til þessa ráðs. Gæslan
hafði þá ekki skotið á erlendan
togara síðan 1954.
Skipstjóri á Gullborgu, Ben-
óný Friðriksson – goðsögnin
Binni í Gröf – sagði í samtali við
Morgunblaðið að þegar þeir
komu austur að Ingólfshöfða að
kvöldlagi hefðu þeir séu þrjá
breska togara sem augljóslega
voru allir að hífa. Stuttu síðar
„köstuðu Bretarnir aftur og virt-
ust óhræddir, en í sama mund
sjáum við að annar þeirra
tveggja togara, sem höfðu hald-
ið til hafs, snýr allt í einu og
stefnir á okkur [...] Sá togari var
Northern Dawn. Togarinn
stefndi á miðja bakborðssíðu á
Gullborgu, en ég setti á fulla
ferð áfram og tókst með naum-
indum að forða árekstri, því
Bretinn kom á fullri ferð rétt fyr-
ir aftan Gullborgu. Ef við hefð-
um legið kyrrir, þá hefði hann
siglt á hana miðja,“ sagði Binni í
Gröf í Morgunblaðinu.
GAMLA FRÉTTIN
Munaði
mjóu
Frétt á baksíðu Morgunblaðsins 12. júlí 1960 þar sem rætt var við Binna.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Fernardo Hierro
þjálfari Spánverja á HM í fótbolta
Jose Oquendo
bandarískur hafnaboltamaður
Diego Costa
landsliðsmaður Spánar í fótbolta
DUCA Model 2959
L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,-
L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
SAVOY Model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,-
ETOILE Model 2623
L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,-
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,-