Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 • Betri endurheimt vöðva eftir átök • dregur úr þreytu • gefur aukna orku Recover Nánari upplýsingar á www.geosilica.is Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is Vöðvar og taugar Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og magnesíum í hreinu íslensku vatni. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Götunafnanefnd á vegum borgar- ráðs hefur komið með tillögur að götuheitum í þremur mismunandi hverfum í Reykjavík, þar á meðal á Hólmsheiði og við Landspítala. Meðal götuheita sem vekja athygli í tillögunni eru götur á athafnasvæði við Hafravatnsveg á Hólmsheiði. Þar hafa m.a. verið lögð fram eftirfarandi nöfn: Durinsmörk, Gandálfsmörk og Móðsognismörk. Heiti gatnanna má rekja til Snorra-Eddu og Völuspár, þótt einnig megi finna tengingu við Hringadróttinssögu. Auk fyrrgreindra heita voru lögð fram níu nöfn á götum sem eru við Landspítalann á Hringbraut. Að því er fram kemur í fundargerð götu- nafnanefndar óskaði skrifstofa eigna og atvinnuþróunar eftir því að nefndin gerði tillögur að heitum nýrra gatna á lóð spítalans. Meðal tillagna sem nefndin hefur lagt fram eru Njólagata, Fífilsgata og Blóð- bergsgata. Tillögurnar hafa ekki verið lagðar fyrir borgarráð en ráðgert er að svo verði á næstunni. Nær öruggt þykir að tillögurnar verði samþykktar, en það er afar sjaldgæft að götunafna- nefnd sé beðin um að breyta tillögum að götuheitum. aronthordur@mbl.is Leggja til ný götuheiti  Tillögur að nöfnum á götum við Landspítala og á Hólms- heiði  Blóðbergsgata og Móðsognismörk meðal tillagna Morgunblaðið/Hari Í Fossvogi Ein þeirra gatna sem eru í námunda við spítalann. Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Brúin yfir Ölfusá verður opnuð fyrir umferð á hádegi í dag, þremur dög- um á undan áætlun, að sögn Arons Bjarnasonar, deildarstjóra hjá Vegagerðinni. Til stóð að opna Ölf- usárbrú mánudaginn 20. ágúst nk., en viðgerð á brúnni hófst eftir lokun hennar hinn 12. ágúst sl. og hefur gengið framar vonum, að sögn Ar- ons. „Við gáfum upp rúman verktíma þar sem við miðuðum við tímann sem þyrfti ef allt gengi á afturfót- unum, en við þökkum skjótan verk- tíma einnig góðu skipulagi og sam- stilltum hópi þeirra sem komu að verkefninu,“ segir Aron. Fólk hafi almennt tekið röskun sem varð á umferð um Suðurlandið vegna lokunarinnar með þolinmæði og skilningi. Á sama tíma hefur Vegagerðin verið að malbika kafla á Hellisheiði og í Kömbum, loksins þegar færi gafst vegna rigningar- veðurs sumarsins. „Flestir hafa verið upplýstir um þessar framkvæmdir, það voru helst ferðamenn sem vissu ekki af lokun- unum, en þeir brugðust vel við, enda oftast nær minna tímabundnir. Við höfðum mestar áhyggjur af þeim sem þurfa að sinna erindum og um- ferð hefur verið þung um Þrengslin meðan á lokunum hefur staðið, en á heildina litið hefur þetta gengið vel fyrir sig,“ segir Aron. Ölfusárbrú opnuð á hádegi Morgunblaðið/Eggert Opnuð í dag Steypuvinnu við Ölfusárbrú er nú lokið á undan áætlun.  Þremur dögum á undan áætlun Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjölmennt lið starfsmanna hvala- skoðunarfyrirtækja í Reykjavík og björgunarsveitarmanna reyndi í gær að halda lífi í tveimur and- arnefjum sem festust uppi í fjöru í Engey. Annar hvalurinn drapst um kvöldmatarleytið en hinn komst lif- andi en nokkuð særður á flot á kvöldflóðinu. Andarnefjur halda sig yfirleitt úti á reginhafi, þar sem dýpi er að minnsta kosti kílómetri. Gísli Vík- ingsson, hvalasérfræðingur á Haf- rannsóknastofnun, segir að þær komi helst ekki inn á landgrunnið enda séu þetta einhverjir mestu djúpkafarar hvalategundanna. Að- eins búrhvalir geta kafað dýpra. Óvenju mikið við ströndina Hafrannsóknastofnun heldur skrá um dauð dýr sem hér finnast en þau hafa verið sárafá, kannski eitt eða tvö á ári. Í ár hefur verið óvenjulega mikið af andarnefjum við strendur landsins. Gísli rifjar upp að tveir hópar hafi verið á Skjálfandaflóa í vikutíma og ein- hver dýr strandað, snemma í vor hafi dýr verið við Höfn á Horna- firði, síðan hafi hópur haldið til í Borgarfirði eystra og í Eyjafirði, al- veg inn á Poll. Ekki eru augljósar skýringar á þessu, að sögn Gísla. Hann nefnir að andarnefja sé af ætt svínhvala og sé viðkvæm fyrir hávaða. Þær átti sig og rati meira með heyrn en sjón. Segir hann þekkt að hvalir af þeirri ætt ruglist við djúpsprengingar eða olíuleitartilraunir. Hann rifjar upp að á síðasta ári hafi andarnefjur sótt mikið að ströndum Evrópu, ekki síst Bretlands, og margar drepist. Á þeim tíma hafi verið her- æfingar á sjó, meðal annars með djúpsprengjur, og hafi þetta verið tengt saman. Þó hafi ekki tekist að sanna samhengið almennilega. Björgun reynd Andarnefjurnar strönduðu í Eng- ey um klukkan 13 í gær. Starfs- menn hvalaskoðunarfyrirtækjanna Sérferða, Eldingar og Whale Safari ásamt björgunarsveitarmönnum og líffræðingum breiddu yfir hvalina og dældu yfir þá vatni til að halda þeim á lífi í fjörunni. Þeir voru báðir særðir eftir að hafa barist um í grjótinu. Önnur andarnefjan drapst en hins komst á flot á flóðinu í gær- kvöldi. Fjöldi við björgun hvala í Engey  Tvær andarnefjur strönduðu af ókunnum orsökum  Björgunarfólki tókst að bjarga annarri  Óvenju mikið af andarnefju við landið í sumar  Halda sig venjulega úti á reginhafi og kafa djúpt Morgunblaðið/Eggert Á flot Blóðið litaði sjóinn þegar flæddi undir andarnefjuna. Eftir að henni var hjálpað á flot synti hún út á Faxaflóa, illa áttuð til að byrja með. Vonaðist hjálparliðið til þess að hún myndi hafa það af þótt hún væri særð. Fjármálaráðuneytið og Þjóðskjala- safnið greinir á um hvorri stofn- uninni beri að veita aðgang að fund- argerðum kjararáðs sem lagt var niður 1. júlí sl. Ráðuneytið bendir á Þjóðskjalasafn en samkvæmt upp- lýsingum frá safninu hafa engin gögn borist frá skrifstofustjóra ráðsins eftir að það var lagt niður. Skrifstofustjóri kjararáðs er enn við störf og hefur það hlutverk að ganga frá skjalasafni. Enginn svar- ar símanum á skrifstofu ráðsins og ekki fæst svar við fyrirspurn sem send var með tölvupósti. Fréttavefurinn mbl.is hefur reynt að fá aðgang að fundargerð- um kjararáðs. Þess var óskað skrif- lega 10. júlí að veittur yrði aðgang- ur að öllum fundargerðum frá 2006. Beiðnin var áframsend til Þjóð- skjalasafns en í pósti frá lögfræð- ingi ráðuneytisins segir að umbeðin gögn séu ekki í vörslu ráðuneyt- isins heldur starfsmanns kjararáðs. Ekki sé unnt að óska eftir þeim hjá honum, með tilvísun til upplýsinga- laga, vegna takmarkaðs starfssviðs hans. Ráðuneytið svari erindinu Skjalavörður á Þjóðskjalasafni segir að engar viðræður séu hafnar milli Þjóðskjalasafns og fjármála- ráðuneytis um afhendingu gagnanna og telur þess vegna ekki líkur á að þau berist á næstunni. Vísar hann fyrirspurninni til baka, til ráðuneytisins, því það sé þeirra sem hafi gögnin undir höndum að taka afstöðu til aðgangs að þeim. alexander@mbl.is Stofnanir vísa hvor á aðra  Fundargerðum kjararáðs ekki skilað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.