Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 8

Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is Veit á vandaða lausn fastus.is RESORB OG RESORB SPORT BÆTA UPP VÖKVA- OG SALTTAP Í LÍKAMANUM HENTAR VEL FYRIR VÖKVATAP SEM ORSAKAST AF: • Veikindum s.s. niðurgangs, uppkasta og sótthita • Mikilli svitamyndun t.d. – á sólarströndinni – við vinnu í miklum hita – íþróttaiðkun HENTAR MJÖG VEL TIL AÐ BÆTA UPP VÖKVATAP EFTIR: • Hlaup • Hjólreiðar • Fjallgöngu • Skíðamennsku • Og aðra íþróttaiðkun Minnkar líkur á vöðvakrömpum og þreytu, eykur endurheimt eftir mikil átök Illa er talað um „popúlisma“núna. Áður fitjuðu stertimenni úr fámennri embættis- og lær- dómsstétt upp á nef og fordæmdu „lýðskrumið“. Snobbið niður til pupulsins sem stóð undir launum þeirra. Frú Clinton sagði í ræðu á lok- uðum fundi auð- manna að ein- göngu „the deplor- able “ (óalandi og óferjandi) kysu Trump. Hún átti við „menning- arsnauðar bullur og pakk“. En stjórnmálin hafa fyrir löngu breyst í allsherjar popúlisma. Flokkar sem áður höfðu fastmót- aða meginstefnu sem kosningalof- orð voru byggð á láta nú auglýs- ingastofur kanna hvað sé „in“ hjá kjósendum og það litar stefnur og loforð. Þar sem allir flokkar gera eins verður grauturinn kunnuglegur. Trudeau í Kanada virðist illa haldinn af vinsælda- komplex tengdum áhugamálum „góða fólksins“.    Kapphlaupið verður stundumvandræðalegt eins og þegar hann og öll fjölskyldan tók að klæða sig og teygja eins og hann taldi Indverja gera í opinberri heimsókn þangað.    Nú síðast tók hann í tísti„merkel“ á flóttamanna- vandamálið: „Kanada tekur ykk- ur öllum sem flýja ofsóknir, ógnir eða stríð opnum örmum óháð trúarskoðunum. Fjölbreytni er okkar styrkur.“ Þetta hljómar vel. Vandinn er sá að svona aug- lýsing laðar fólk að sem „skil- yrðin“ eiga ekki við. Merkel veit að allt springur svo þegar skellt er í lás aftur.    Ólöglegir innflytjendur umBandaríkin til Kanada eru taldir um 400 á dag eða nærri 150.000 á ári. Það gæti margfald- ast eftir tístið. Justin Trudeau Trudeau tístir líka STAKSTEINAR Veður víða um heim 16.8., kl. 18.00 Reykjavík 15 heiðskírt Bolungarvík 9 alskýjað Akureyri 11 alskýjað Nuuk 6 súld Þórshöfn 11 skýjað Ósló 20 skýjað Kaupmannahöfn 24 heiðskírt Stokkhólmur 22 heiðskírt Helsinki 20 skýjað Lúxemborg 21 léttskýjað Brussel 26 heiðskírt Dublin 16 skúrir Glasgow 17 rigning London 18 rigning París 30 heiðskírt Amsterdam 18 léttskýjað Hamborg 28 heiðskírt Berlín 29 heiðskírt Vín 28 heiðskírt Moskva 19 skýjað Algarve 23 léttskýjað Madríd 29 þrumuveður Barcelona 28 þrumuveður Mallorca 28 léttskýjað Róm 27 þrumuveður Aþena 29 skýjað Winnipeg 17 heiðskírt Montreal 20 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 25 skýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:26 21:39 ÍSAFJÖRÐUR 5:18 21:57 SIGLUFJÖRÐUR 5:00 21:40 DJÚPIVOGUR 4:52 21:11 Háskóli Íslands flytur tækni- fræðinám í Menntasetrið við Lækinn í Hafn- arfirði í haust. Tæknifræði- kennslan var áður í samvinnu við Keili á Ásbrú. Bæjarráð Hafn- arfjarðar sam- þykkti í gær- morgun samning bæjarins og Háskólans um afnot af húsinu sem áður hýsti Lækjarskóla. Kennt verður á þriðju hæð Menntasetursins og hefst kennsla strax í haust. Um 50 nemendur hefja nám. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að nám tengt flugi hjá Keili hafi vaxið á undanförnum árum og einnig kennsla í tæknifræði. Háskóli Íslands hafi séð tækifæri í því að flytja tækni- fræðikennsluna, helst nær höf- uðborginni. Í tilkynningu bæjarins segir að tæknifræðinámið muni vafa- laust hafa jákvæð áhrif á mannlíf í Hafnarfirði og auðvelda hafnfirskum nemendum að hefja tæknifræðinám. Tækni- fræðinám í Hafnarfjörð  HÍ fær pláss í gamla Lækjarskóla Lækjarskóli Tæknifræði HÍ færist að Læknum. Rúm 42% þátttakenda í könnun MMR um ferðavenjur Íslendinga í sumarfríinu kváðust ætla að ferðast bæði innan- og utanlands. Er þetta 3% aukning frá síðustu könnun sem gerð var fyrir ári. Þeim fækkaði um 3% milli ára sem kváðust eingöngu ætla að ferðast innanlands en hlut- fall þeirra sem ætluðu eingöngu að ferðast utanlands stóð í stað. Könnunin var gerð dagana 26. júní til 3. júlí sl. og var heildarfjöldi svarenda 946 einstaklingar. Niður- stöðurnar eru birtar á vef MMR. Stuðningsfólk Framsóknarflokks- ins var líklegra en aðrir hópar til að ætla eingöngu að ferðast innanlands í fríinu, eða 48%. Þá reyndist stuðn- ingsfólk Flokks fólksins líklegra en aðrir hópar til að ætla eingöngu að ferðast utanlands, eða 20%. Stuðn- ingsfólk Miðflokksins er líklegra en aðrir til að ferðast bæði innanlands og utan, eða 60%. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að ferðast til útlanda en íbúar á landsbyggðinni eru líklegri til að ferðast innanlands. Af þeim þátttakendum sem bjuggu á höfuð- borgarsvæðinu kváðust 17% ætla að ferðast utanlands í sumarfríinu en 10% þeirra sem búsettir voru á landsbyggðinni. Þá var landsbyggð- arfólkið líklegra en íbúar höfuðborg- arsvæðisins til að ætla að ferðast innanlands. Fleiri hyggja á ferðalög en í fyrra  Stuðningsfólk Miðflokksins ferðast mest innanlands og utan Morgunblaðið/Ómar Seljalandsfoss Íslendingar á ferð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.