Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
– fyrir dýrin þín
Ást og umhyggja fyrir dýrin þín
Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn
Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna.
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
15 kg
8.990 kr.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Menn eru oft að fullyrða eitthvað
út frá einni myndavél og tölvu-
forriti. Það verður að teljast afar
langsótt fullyrðing,“ segir Kristinn
Jakobsson, fyrrverandi knatt-
spyrnudómari, um marklínutækni
sem notuð hefur verið í þáttum
Pepsímarkanna á Stöð 2 Sport í
sumar. Þar hefur tæknin verið
nýtt til að skera úr um vafasöm
atvik eða hvort um lögleg mörk
hafi verið að ræða í leikjum liða í
Pepsi-deild karla.
Tæknin var tekin fyrir á síðasta
stjórnarfundi KSÍ þar sem fram
kom að tæknin hefði takmarkað
gildi að mati dómaranefndar.
Spurður hvers vegna ákveðið hafi
verið að taka málið fyrir á stjórn-
arfundi KSÍ segir Kristinn það
hafa verið nauðsynlegt, sér-
staklega í ljósi þess að tæknin hafi
undanfarin misseri verið notuð til
að gagnrýna ákvarðanatöku dóm-
ara hér á landi. „Ákvarðanir dóm-
ara hafa fengið talsverða gagnrýni
í fjölmiðlum og á samfélags-
miðlum. Við ákváðum því að fjalla
um hvort þetta væri réttmæt
gagnrýni eða ekki. Það er enginn
yfir gagnrýni hafinn en okkur
þykir stundum að okkur vegið
með röngum hætti,“ segir Kristinn
og bætir við að erfitt sé að full-
yrða út frá umræddri tækni hvort
rétt hafi verið dæmt. „Þeir hafa
verið að notast við tölvuforrit sem
er hlaðið niður einhvers staðar til
að ákvarða hvort um rangstöðu
eða mark hafi verið að ræða í
leikjum hérna heima. Þessar full-
yrðingar eiga ekki við rök að
styðjast í samanburði við þá
marklínutækni sem er notuð úti í
heimi,“ segir Kristinn.
Kostar tugi
milljóna króna
Á síðasta tímabili í ensku úr-
valsdeildinni var notast við mark-
línutækni. Með tækninni er með
óyggjandi hætti hægt að greina
hvort bolti hafi farið yfir marklín-
una. Aðspurður segir Kristinn það
ekki koma til greina að setja upp
sambærilega tækni hér á landi
enda sé kostnaðurinn gríðarlegur.
„Í stóru deildunum hefur mark-
línutækni verið sett upp inni á
völlum. Að setja upp svona kerfi á
einum velli kallar á tugi mynda-
véla og starfsmenn, sem er bara
allt of dýrt fyrir íslensku deildina.
Marklínutækni á einn fótboltaleik
kostar einhverja tugi milljóna
króna,“ segir Kristinn.
Marklínutækni sem hefur takmarkað gildi
Nauðsynleg
tækni kostar tugi
milljóna króna
fyrir einn leik
Morgunblaðið/Kristinn
Pepsi deild Marklínutækni Pepsí markanna hefur vakið mikla athygli í um-
fjöllun um Pepsi-deild karla. Ekki eru þó allir á eitt sáttir um ágæti hennar
Hafnarfjarðarbær og Háskóli Ís-
lands hafa komist að samkomulagi
um að skólinn komi upp aðstöðu
fyrir tæknifræðinám í Mennta-
setrinu við Lækinn, gamla Lækjar-
skóla.
Bæjarráð Hafnarfjarðar sam-
þykkti samninginn í gær, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
bænum. Tæknifræðikennslan mun
hefjast í haust, en námið hafði áður
verið í samstarfi við Keili í Ásbrú á
Reykjanesi.
Hjá Keili hefur nám tengt flugi
og ferðaþjónustu vaxið á undan-
förnum árum og á sama tíma einnig
kennsla í tæknifræði. Nemendur í
tæknifræði koma bæði af höf-
uðborgarsvæðinu og Suðurnesjum
og því þótti Hafnarfjörður ákjósan-
legur framtíðarstaður fyrir námið.
Um það bil 50 nemendur hefja nám
í haust en með aðstöðunni í Mennta-
setrinu við Lækinn verður hægt að
efla námið og fjölga nemendum.
„Þetta er mjög spennandi þróun í
námsframboði í Hafnarfirði. Við er-
um nú þegar með Tækniskólann
hér í bænum og fögnum því mjög
að fá tæknifræðideild Háskóla Ís-
lands líka. Aukið framboð til náms
og ný menntastofnun af þessu tagi
mun án efa hafa jákvæð áhrif á
mannlíf í Hafnarfirði, auðvelda
hafnfirskum nemendum að hefja
tæknifræðinám og svo er ánægju-
legt að gamli Lækjarskóli haldi
áfram að gegna hlutverki sínu sem
menntasetur,“ segir Rósa Guð-
bjartsdóttir, bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar.
hdm@mbl.is
Nýtt hlutverk Menntasetrið við Lækinn tekur á móti nemum úr HÍ í haust.
Tæknifræðinám HÍ
til Hafnarfjarðar
Kennt verður í gamla Lækjarskóla