Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 18

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslenskar hag-tölur eru já-kvæðar um þessar mundir og hafa verið um nokkurt skeið. Þetta er ánægju- legt og hefur endurspeglast í stórlega batnandi kjörum al- mennings sem hefur á heildina litið upplifað góðæri á liðnum misserum og árum. Þegar staðan er metin skipt- ir þó meginmáli hvert stefnir. Ekki er vandalaust að meta það því að spár um framtíðina eru jafnvel enn erfiðari en spár um nýliðna fortíð, sem iðulega reynast haldlitlar. Engu að síð- ur verður að reyna að rýna inn í þokukennda framtíðina og því miður bendir flest til að halla muni undan fæti á næstunni og að stíga verði skynsamleg skref til að halda í lífskjörin og tryggja áframhaldandi stöðug- leika. Könnun sem gerð var fyrr í sumar á meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins gefur til kynna viðhorfsbreyt- ingu þessa hóps. Færri en áður telja aðstæður í atvinnulífinu góðar og væntingar um fram- haldið eru minni en nokkru sinni fyrr. Þær voru hærri þeg- ar bankarnir féllu fyrir áratug síðan. Jafnvel þeir sem gefa lít- ið fyrir álit stjórnenda fyr- irtækja hljóta að staldra við slíka niðurstöðu. Annað sem ástæða er til að staldra við eru nýjar tölur um atvinnuástandið og horfur um fjölgun starfa. At- vinnuleysi er mjög lágt en er þó held- ur farið að þokast upp á við. Spá Vinnumálastofn- unar um fjölgun starfa í ár og næstu ár hefur verið lækkuð verulega niður á við sem er ein birtingarmynd versnandi útlits í atvinnulífinu. Nú er áætlað að um fimmtungi færri störf verði til í ár en áður var talið og breytingin í útliti til næstu tveggja ára er svipuð. Um áramótin næstu losna um áttatíu samningar á vinnu- markaðnum, flestir á almenna hluta hans. Afar brýnt er að vel takist til um gerð þeirra og að tekið verði tillit til þess að stað- an í atvinnulífinu hefur heldur farið versnandi og að horfur eru um þróun í sömu átt. Augljóst er þegar horft er á þróun og horfur í efnahagslíf- inu og miklar samnings- bundnar launahækkanir síð- ustu ára, auk gríðarlegra hækkana á samningsbundnum greiðslum fyrirtækja í lífeyr- issjóði, að ekkert svigrúm er í atvinnulífinu til launahækkana. Verkefnið í komandi kjara- samningum er að verja kjör al- mennings með því að koma í veg fyrir skell í atvinnulífinu samhliða hækkandi verðbólgu, sem getur hæglega gert vart við sig á ný þó að ytri aðstæður hafi tryggt óvenjulega hag- felldar verðbólgutölur á liðnum árum, þrátt fyrir miklar launa- hækkanir. Stjórnendur fyrir- tækja meta horfur nú verri en nokkru sinni fyrr} Verja þarf kjörin Verulegur sam-dráttur hefur orðið á veltu bóka- útgefenda á und- anförnum áratug. Egill Örn Jóhanns- son, fram- kvæmdastjóri For- lagsins og fyrrverandi formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, sagði í viðtali við Morgunblaðið á mánudag að þessi þróun virtist halda áfram og bóksala væri enn að dragast saman. „Fyrir ári síðan sagði ég ís- lensku bókaútgáfuna komna að þolmörkum og það er auðvitað augljóst að sú staða hefur í engu skánað,“ sagði hann í samtalinu. Í frétt Morgunblaðsins kom fram að í fyrra hefði orðið tæp- lega 5% samdráttur í bóksölu á Íslandi og sambærilegur sam- dráttur virtist ætla að verða nú miðað við bóksölu fyrstu fjóra mánuði ársins. Á áratug næmi samdrátturinn 36 prósentu- stigum. Í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar var skatt- lagning á bækur til umræðu. Í fram- haldi kom fram lof- orð um að virð- isaukaskattur á bækur yrði afnum- inn. Af því varð þó ekki, þótt stjórn- völd hafi sagt að við fyrirheitið verði staðið. Þá hefur virðistaukaskattur á fjölmiðla einnig verið til um- ræðu. Fjölmiðlar á Íslandi eru margir í erfiðri stöðu og hafa sérstaklega átt við ramman reip að draga vegna þess hvað Ríkisútvarpið var aðsópsmikið á auglýsingamarkaði í kringum heimsmeistaramótið í knatt- spyrnu. Það fær verulega for- gjöf og er að auki undanþegið virðisaukaskatti. Þróttmikil útgáfa og fjöl- miðlun á íslensku er ein af for- sendum þess að tungan haldi styrk sínum. Afnám virð- isaukaskatts gæti hjálpað bókaútgáfu á erfiðum tímum ef ekki ráðið úrslitum um afkomu og ætti með réttu að ná til alls ritmáls og íslenskrar fjölmiðl- unar. Afnám virðisauka- skatts gæti hjálpað útgáfu á erfiðum tímum} Skattur á ritmál Þ að er svo sem ekkert athugavert við það að setja á fót stofnun eins og Bankasýslu ríkisins í kjölfar hruns- ins. Enda fordæmalausar hremm- ingar sem þjóðin gekk í gegnum vegna þess. Það eru fáir sem munu halda upp á 10 ára amæli hrunsins nú í október. Nema að sjálfsögðu þeir sem mökuðu krókinn fyrir síg og sína. Ósvífni fjármálaelítunnar og bankanna þarf víst ekki að tíunda frekar. Almenningur sat eftir í sárum, fjölskyldur bornar út af heimilum sín- um. Það ömurlega er að mörg þessara sára hafa aldrei gróið heldur fossblæðir úr þeim enn. Lög um Bankasýslu ríkisins nr. 88/2009 tóku gildi 20. ágúst 2009. Það er algjörlega hafið yfir allan vafa að mínu mati, að 9.gr. laganna er eins skýr og skorinort og lagaákvæði getur orðið. Þar segir orð- rétt um lok stofnunarinnar. „Stofnunin skal hafa lokið störfum eigi síðar en fimm ár- um frá því að hún er sett á fót og verður hún þá lögð niður.“ “ Ákvæðið felur það einfaldlega í sér að stofnunina skuli leggja niður eigi síðar 20. ágúst 2014. Hún hafði einfaldlega engan lagagrundvöll að byggja á við sölu Borgunar og hluta Arion banka til hrægamma og tengdra aðila á sínum tíma. Mér finnst furðulegt hvernig Bankasýslan hefur fylgt fjármála- og efnahagsráðherra á milli ráðuneyta. Þ.e úr fjármála- og efnahagsráðuneyti yfir í forsætisráðuneytið og aftur til baka í fjármála- og efnahagsráðuneytið. Það er vegna þess og fullvissu minnar um ólögmæti Bankasýsl- unnar sem ég sendi skriflega fyrirspurn til fjár- mála- og efnahagsráðherra. Svarið barst mér nú í vikunni og hefur verið birt á Alþing- isvefnum. Rúsínan í pylsuendanum Á grundvelli breytinga sem Alþingi gerði í mars 2016 á ákvæðum til bráðabirgða III í lög- um nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands setti fjármála- og efnahagsráðherra á stofn félagið Lindarhvol ehf þann 15. apríl 2016. Félagið hafði það hlutverk að annast umsýslu, fullnustu og sölu á eignum ríkissjóðs eftir þvi sem við átti. Bankasýslan fékk þó það hlutverk að fara með eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka og skulda- fréf ríkisins í Kaupþingi. Þannig annaðist Lind- arhvoll ehf. umsýslu, fullnustu og sölu annarra eigna og hafði eftirlit með fjársópseignum. Það kann vel að vera að umfang eignanna hafi verið það mikið að ekki hafi veitt af því að setja á laggirnar fleiri en eitt félag til að stýra allri þessari umsýslu með ríkiseignir. En það á ekki að réttlæta augljóst brot á gildandi rétti sbr. 9.gr. laga um Bankasýslu ríkisins nr. 88/2009 Vefslóð á svar fjármála- og viðskiptaráðherra við fyr- irspurn minni. https://www.althingi.is/altext/148/s/1384.html?utm_so- urce=skriflegsvor&utm_medium=tolvupostur&ut- m_campaign=sjalfvirksending Inga Sæland Pistill Bankasýsla á ferð og flugi Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hlýri verður kvótasetturmeð nýju fiskveiðiári,samkvæmt auglýsingusjávarútvegsráðuneytis- ins í Stjórnartíðindum. Miðað er við að afli næsta fiskveiðiárs verði að hámarki 1.001 tonn og er það í sam- ræmi við ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar. Aflahlutdeild í hlýra verður úthlutað á grundvelli veiði- reynslu á fiskveiðitímabilinu 16. ágúst 2015 til 15. ágúst 2018. Hlýri veiðist einkum sem með- afli á línu og í botnvörpu og hafa veiðar verið frjálsar. Erfitt hefur verið talið að stjórna veiðum með aflamarki en nú verður látið reyna á það. 250 skip hafa landað hlýra Í aflaupplýsingum Fiskistofu kemur fram að á fiskveiðiárinu hafa yfir 250 skip og bátar landað hlýra, allt frá nokkrum kílóum upp í rúm- lega 80 tonn. Er aflinn til þessa orð- inn tæplega 1.480 tonn. Línuskip hafa veitt mest af hlýra og hefur yfir 80 tonnum verið landað úr Jóhönnu Gísladóttur, en síðan koma Páll Jónsson GK með 66 tonn, Sturla GK með 63 tonn, Sturla SH með 57 tonn og Rifsnes SH með 46 tonn. Mest af hlýra fæst á Vestfjarðamiðum, fyrir Norður- landi og austan við land, en hlýri er botnfiskur sem finnst allt niður á 700 metra dýpi. Hlýri er steinbíts- tegund og hann er ekki ósvipaður steinbít. Roð hlýra er gulbrúnt og flekkótt, það er sterkara en stein- bítsroð og hefur þótt henta til skinn- gerðar. Í yfirliti Hafró um ástand nytjastofna í sumar kemur fram að vísitölur lífmassa og nýliðunar hlýra eru í sögulegu lágmarki. Í samræmi við varúðarsjónarmið var lagt til að afli á næsta fiskveiðiár yrði ekki meiri en 1.001 tonn. Þar kemur fram að vísitala veiðihlutfalls hafi verið há undanfarin ár. Búast megi við minnkun hlýraafla á næstu árum, nema veiðihlutfall verði lækkað og það dugi til að snúa þróuninni við. Árin 1977-1994 var árlegur afli hlýra um 900 tonn en eftir það jókst aflinn og var mestur um 3.600 tonn árið 2006. Á þessu tímabili jókst hlutdeild aflans sem var veiddur á línu. Frá árinu 2007 hefur árlegur afli hlýra minnkað og var 1.469 tonn árið 2017. Afli hefur samt verið langt umfram ráðgjöf, segir í ástandsskýrslunni. Stjórnun á flestum tegundum Á síðustu fiskveiðiárum hafa nokkrar tegundir verið kvótasettar, meðal annars blálanga, gulllax og litli karfi. Með kvótasetningu á hlýra eru nánast allar fisktegundir sem Hafrannsóknastofnun veitir ráðgjöf um komnar í veiðistjórnun. Við stjórnun fiskveiða eru lang- flestar tegundir í aflamarki, undan- tekningar eru hrognkelsi sem eru undir sóknarstýringu, lúðuveiðar eru bannaðar og ekki er sérstök stjórnun á lýsuveiðum. Einnig má nefna að sæbjúgu eru undir sóknar- marki á þremur afmörkuðum svæð- um og ígulker eru undir sóknar- marki. Hafrannsóknastofnun lagði ekki til aflamark fyrir lýsu á þessu fiskveiðiári, en lýsa var lengi vel lít- ið nýtt, þó að hún fengist sem með- afli við aðrar veiðar. Lýsuafli jókst mikið á árunum eftir 2005 og fór mest í tæp 3.000 tonn árið 2011 en síðan hefur afli minnkað og var um 600 tonn árið 2017, að því er fram kemur í ástandsskýrslu Hafró. Á yf- irliti Fiskistofu kemur fram að á fiskveiðiárinu er búið að veiða rúm 800 tonn af lýsu. Hlýri kvótasettur, er í sögulegu lágmarki Á fiskveiðiárinu hafa verið seld tæplega 1.050 tonn af hlýra á fiskmörkuðum fyrir rúmar 260 milljónir króna alls. Fyrir kíló af slægðum hlýra hafa fengist 255 krónur að meðaltali, en á sama tímabili hafa fengist 147 krónur fyrir kíló af steinbít, samkvæmt upplýsingum frá Reiknistofu fiskmarkaða. Hlýri fyrir 260 milljónir FISKMARKAÐIR Morgunblaðið/Ómar Hlýri Stór hluti hlýraaflans er seldur á fiskmörkuðum, en hann fæst einkum sem meðafli. Annað Botnvarpa Lína Veiðar á hlýra 3 2 1 0 Þúsund tonn 1982-2017 H ei m ild : H af ra nn só kn as to fn un ’84 ’88 ’92 ’96 ’00 ’04 ’08 ’12 ’16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.