Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 19

Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Vífilsstaðir Húsnæðið, sem tekið var í notkun 1910 fyrir berklasjúklinga, hefur þjónað mörgum og á sér merka og langa sögu. Þar er nú öldrunardeild Landspítala. Eggert Það kann að vera að borið sé í bakkafullan lækinn að fjalla um frjáls viðskipti þegar heimurinn telur að betri sé hinn heima- fengni baggi en sá inn- flutti. Þó er það svo að margar þjóðir sitja við samningaborð og leita leiða til að draga úr við- skiptahindrunum. Fyrsta viðskiptahindrun sem þarf að yfirstíga er samræmdur skiln- ingur um magn, rúmmál og vega- lengdir. Þannig hefur metrakerfið, sem innleitt var í frönsku byltingunni og í upplýsingastefnunni þar á eftir, hlotið almenna viðurkenningu. Metrakerfi og aðrar mælieiningar Upplýsingarstefnan vildi kerfis- setja alla hluti. Þannig er flokk- unarkerfi plantna ekki ósvipað flokk- unarkerfi þjóðsagna þó að efni séu að öðru leyti óskyld. Ekki hefur alls staðar gengið vel að innleiða metra- kerfið. Þannig er hægt að kaupa 16 únsu Porterhouse-steik í Bandaríkj- unum. Hvað er það mikið fyrir Ís- lending og íbúa á meginlandi Evr- ópu? Það er 1 pund eða 453,52 grömm, en eitt gramm er þúsundasti hluti af kílói. Á íslenskum veitinga- húsum er hægt að fá 200 g eða 300 g steik. Hver sá sem hleypur hálft maraþonhlaup eða meira á skilið slíka steik. Bretland og Bandaríkin hafa ekki tekið upp metrakerfi nema að litlum hluta. Þannig eru flestir hlutir í tommum og fetum, ell- egar únsum eða pund- um. Hér er sennilega komin ástæða fyrir því að þessi ríki eiga erfitt með að gera viðskipta- samninga og starfa í frí- verslunarbandalögum. Sigrar og ósigrar Breta Eitt sinn sagði skáld að „ ... eitt andvarp hrelldrar sálar sem þráir Guð sinn eru miklu stór- fenglegri tíðindi á himnum en bylt- ingin í Rússlandi eða pólitík Breta í Asíu“. Þegar þetta var skrifað höfðu Bretar ekki beðið ósigur sinn í Ind- landi, sem leiddi til þrískiptingar þess ríkis. Sigrar við Trafalgar 1805 og í Waterloo 1815 eru enn í fullu gildi. Þeir sigrar leiddu til þess að London varð miðstöð heimsviðskipta í meira en 150 ár og borgin varð fjármála- miðstöð með sterlingspund sem heimsmynt. Sá er þetta ritar minnist enn með hryllingi þess er hann lærði stærðfræði sterlingspunds með 12 shillinga og 20 pence í shillingi, áður en sterlingspundið var tekið inn í metrakerfið. Sagt er að drykkfelldur enskur stjórnmálamaður hafi talið að shill- ingar og pence væru svo þung i vöf- um fyrir Breta að þeir gætu vart haldið uppi um sig buxunum. Liggur það í augum uppi að Lond- on haldi stöðu sinni sem fjármála- miðstöð í Evrópu eftir Brexit? Hvað gera borgir á meginlandinu, Amster- dam, Frankfurt og París? Hver og ein getur sótt til sín hluta þess sem gerist í London í dag. Það sem sóst er eftir í fjármála- miðstöð er ráðgjöf við útgáfu verð- bréfa, útgáfa og sala verðbréfa, mynt og réttarfar. Er ekki líklegt að útgef- endur verðbréfa hafi fremur áhuga á réttarfari og löggjöf sem er nær lög- gjöf útgefandans og kaupandans en bresku réttarfari og löggjöf? TPP og TTIP-við- skiptasamningar Trans-Pacific Partnership (TPP) er fríverslunarsamningur milli tólf ríkja sem eiga lönd að Kyrrahafinu. Sá samningur hefur aðeins verið staðfestur af tveimur ríkjum, þ.e. Japan og Nýja-Sjálandi. Bandaríkin áttu aðild að þessum samningi en hafa dregið sig út úr honum. Kína á ekki aðild að samningnum. Það er álit margra að þessi samningur hafi þann tilgang að styrkja samningsaðila gagnvart stærðaryfirburðum Kína á þessu svæði. Öll þau lönd sem aðild eiga að þessum samningi utan Bandaríkjanna hafa tekið upp metra- kerfi. Sendiherra eins ríkis gagnvart Ís- landi, sem aðild á að þessum samn- ingi, taldi það alls ekki óhugsandi að lönd utan Kyrrahafssvæðis, eins og Ísland, gætu átt aðild að þessum við- skiptasamningi. Transatlantic Trade and Invest- ment Partnership (TTIP) er fyrir- hugaður viðskiptasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkj- anna. Það kann að vera djarft að segja það fyrirhugað, því hvorki gengur né rekur og nú um stundir er lítill áhugi á slíkum samningi af hálfu Bandaríkjanna. Þar virðist ráða það sjónarmið að hollur sé heimafenginn baggi. Flest þau lönd sem kunna að eiga aðild að TTIP-samningnum stunda þróaða framleiðslu. Jafn einfalt atriði og gagnkvæm viðurkenning á kröfum um stöðlun hefur alls ekki náð fram að ganga. Þetta eru þó lönd sem eiga sögu um aldalöng viðskipti og svipað framleiðslu- og viðskiptaumhverfi. Hvað rekur í augu í viðskiptasamningum? Það sem rekur verulega í augu við gerð viðskiptasamninga er sú verndarstefna sem umlykur landbún- aðarframleiðslu í heiminum. Hví skyldu menn hafa frjáls viðskipti með kartöflur? Að nokkru leyti á það einnig við um sjávarafurðir. Það sem þessar grein- ar eiga sameiginlegt er að vægi þess- arar framleiðslu í viðkomandi löndum er mjög lítið. Sum þessara landa eru mjög efnuð, eins og Sviss, hafa efni á að vernda sinn landbúnað með nið- urgreiðslum og tollvernd. Sjávar- útvegur á Íslandi hefur svipað vægi í landsframleiðslu og bílaiðnaður í Þýskalandi. Sjávarútvegur í Þýska- landi skiptir vart máli, nema fyrir Samherja hf. á Íslandi. Fríverslunarsamningar eru með öðrum orðum samningar um fríversl- un með iðnaðarvörur. Áhugi fram- sóknarmanna á fríverslunarsamningi Íslands við Kína kom til vegna orð- róms um að Kínverjar væru sólgnir í lambatittlinga. Það veitti samn- ingnum brautargengi á Alþingi. Í Rússlandi er það svo að landbún- aðarráðherrann er búinn að ná undir sig persónulega mikilvægum þáttum í matvælaframleiðslu í landinu. Hví skyldi hann hafa áhuga á innflutningi á matvælum, enda hollur heimafeng- inn baggi. Vandinn liggur í sjálfstæði Eftir miðja síðustu öld hafði ís- lenskur stjórnmálaskörungur eftir erlendum stjórnmálaskörungi „að svo virtist nú komið, að helzta ráðið til þess að efla sjálfstæði þjóðar væri að fórna sjálfstæði hennar“. Svo bætti sá íslenski við: „En hér er orðið sjálfstæði auðvitað notað í tvenns konar merkingu.“ Kann að vera að sjálfstæðið sé eins og gull, það er ekki til ekta gull, gull er í eðli sínu óekta. Minnumst þess sem skáld eitt sagði: En laurant og lancome leggja þó með lífstríðinu líkn Jú fegurð er fíkn. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Kann að vera að sjálfstæðið sé eins og gull, það er ekki til ekta gull, gull er í eðli sínu óekta. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Fríverslunarsamningar og metrakerfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.