Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 ✝ Eiríkur Hilm-arsson fæddist í Keflavík 11. jan- úar 1958. Hann lést á heimili sínu, Góðakri 3, Garða- bæ, 8. ágúst 2018. Hann var sonur hjónanna Guð- rúnar Kristins- dóttur verslunar- konu, f. 17.5. 1932 í Ölfusi, og Hilm- ars Péturssonar rafvirkja, f. 12.9. 1931 í Keflavík. Bræður Eiríks eru Kristinn, f. 24.10. 1955, og Hörður, f. 3.10. 1964. Eiríkur kvæntist 20. ágúst 1983 Aðalheiði Héðinsdóttur, f. 23.4. 1958. Börn þeirra eru: 1) Andrea; f. 15.3. 1980, maki Hafþór Ægir Sigurjónsson, f. 30.7. 1986. Dóttir þeirra er Ei- árið 1985 og síðar doktors- prófi 1989 í stjórnun mennta- mála. Samhliða doktorsnámi frá 1986 til 1989 starfaði hann sem aðstoðarkennari við sama skóla. Hann var forstöðumað- ur kjararannsóknarnefndar 1991-1995 og aðstoðarhag- stofustjóri 1995-2006. Eiríkur tók við starfi framkvæmda- stjóra Vísindagarða Háskóla Íslands í ársbyrjun 2007 og sinnti því til hinsta dags. Auk þess var hann forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar og forstöðumaður MBA-náms og BS-náms í viðskiptafræðum með vinnu. Eiríkur sat í ýms- um nefndum og ráðum á starfsferlinum auk rannsókn- arstarfa. Árið 1990 stofnaði hann fjölskyldufyrirtækið Kaffitár ásamt eiginkonu sinni. Síðan þá hafa fyrirtækin Kruðerí Kaffitárs og Út í blá- inn bæst í hópinn. Útför Eiríks verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 17. ágúst 2018, og hefst athöfnin kl. 13. ríka Ýr, f. 18.2. 2002. Hálfsystir Eiríku Ýrar og barnabarn Eiríks er Ólöf Björg Sigurðardóttir, f. 18.8. 1999. 2) Héð- inn; f. 31.10. 1986, maki Kristrún Aradóttir, f. 30.5. 1989. Dóttir þeirra er Gígja, f. 17.3. 2018. 3) Bergþóra; f. 12.6. 1988. Sonur hennar er Pétur Orri, f. 13.9. 2012. Eiríkur lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suð- urnesja 1979 og BA-prófi í uppeldisfræði frá Háskóla Ís- lands 1983. Hann stundaði framhaldsnám við University of Wisconsin í Bandaríkjunum og lauk þaðan meistaraprófi „Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað“, með þessum orð- um hefst ljóðið Söknuður eftir Jó- hann Jónsson . Á vordögum greindist tengda- sonur minn Eiríkur Hilmarsson með banvænt heilakrabbamein og á einum eftirmiðdegi breyttist líf okkar sem stóðu honum nærri, litir vorsins urðu gráir og litlaus- ir, ekkert skipti máli nema vel- ferð Eyja og líðan. Þetta sumar sem nú er að líða og líkt hefur verið við haust er góð lýsing á líðan minni síðustu vikur, með sorg í sálinni var oft erfitt að takast á við daginn. Eiríkur kom inn í líf okkar fjöl- skyldu hér í Langholtinu fyrir rúmum 40 árum, mussuklæddur töffari, síðhærður, skeggjaður og nánast óþolandi kurteis. Þessi ljúfi piltur varð fljótlega einn af fjölskyldunni þar sem ljóst varð að dóttir okkar Aðal- heiður og hann ætluðu að feta lífsgönguna saman og alla tíð reyndist Eyji okkur hjónum sem besti sonur. Við tóku námsárin hjá þeim báðum og 1984 héldu þau með Andreu sína til Madison í Wis- consin þar sem Eiríkur lauk doktorsnámi í fræðslustjórnun fimm árum síðar. Dr. Jacob Stempen var leið- beinandi Eyja í náminu við há- skólann í Wisconsin. Hann segist í minningarorðum ætíð hafa verið stoltur af að hafa fengið að kynn- ast og vinna svo náið með Eiríki. Hann minnist hans sem framúr- skarandi og úrræðagóðs ungs manns þegar hann hafi komið til náms við háskólann. Og að hann hafi verið einn af bestu doktors- nemum sem háskólinn hafi út- skrifað. Árin í Madison voru viðburða- rík, annasöm og einnig skemmti- leg fyrir fjölskylduna. Þar fædd- ist þeim Héðinn og Bergþóra og Addý mín nam kaffifræðin af kappi. Það var mikil upplifun fyrir okkur hjónin að fá að fylgjast með ævintýrinu að stofnun Kaffi- társ eftir heimkomu þeirra frá Madison. Hugmyndin var að kynna Íslendingum besta kaffi sem völ er á. Eiríkur var með alla tölulega útreikninga á hreinu og Addý með verksvitið og áræðnina en saman mynduðu þau frábært teymi sem ég hef alla tíð dáðst af. Addý og Eyji voru afar sam- rýnd en um leið gáfu þau hvort öðru það svigrúm sem þau þurftu til að sinna sínum eigin áhuga- málum en mörg voru þó einnig sameiginleg eins og að dansa tangó og elda góðan mat. Eyji var heimsmaður, skarp- greindur með fágaða og ljúfa framkomu gagnvart samferða- mönnum sínum, mikill mannvin- ur með ríka réttlætiskennd. Margir komu til hans með margvísleg úrlausnarefni; hann var fljótur að lesa í aðstæður og aðstoðaði þá sem til hans leituðu. Eyji gekk að öllum verkum af ástríðu og vandvirkni og gilti einu hvort verkefnið var að gróður- setja tré í garðinum eða eða sinna vinnu sinni á Hagstofunni, eða Vísindagörðum HÍ. Sagt er að gleðin og sorgin séu systur og mitt í allri sorginni tókst þessari mögnuðu fjölskyldu hans Eyja að búa til eins margar góðar minningar og tilefni gáfust til. Nafnaveisla litlu Gígju Héð- insdóttur, brúðkaup Andreu og Hafþórs í garðinum heima skilja eftir fyrir okkur öll ógleymanleg- ar minningar þar sem Eyji gat verið þátttakandi. Elsku Eyji, hafðu þökk fyrir allt og allt minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Bergþóra G. Bergsteinsdóttir. Mágur okkar og svili, Eiríkur Hilmarsson hefur kvatt þessa jarðvist. Hann lést í faðmi fjöl- skyldunnar eftir hetjulega bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Eyji varð hluti af fjölskyldunni þegar hann og systir mín fóru að vera saman. Ung byrjuðu þau að búa, stunduðu nám, ólu upp börn og stofnuðu fyrirtæki sem varð fljótt til fyrirmyndar á sínu sviði. Eyji greindist með ólæknandi heilakrabbamein fyrir aðeins þremur og hálfum mánuði. Fjöl- skyldan tók þessum grimmu tíð- indunum af æðruleysi og hefur baráttuþrek Eyja og kærleikur fjölskyldunnar í veikindunum verið aðdáunarverð. Og það var ekki við öðru að búast. Þegar Eyji sagði okkur að hann yrði ekki langlífur sátum við högg- dofa. Gátum ekkert sagt. Hann tók örlögum sínum af karl- mennsku og þeirri yfirvegun sem einkenndi allt hans fas. Strax tók fjölskyldan ákvörðun um að nýta þann tíma sem þau hefðu saman til að skapa minningar og það gerðu þau svo fallega að eftir var tekið. Eyji var íhugull og lausnamið- aður og átti auðvelt með að greina hismið frá kjarnanum. Hann var bóngóður og hjálpsam- ur og reyndist mörgum haukur í horni. Hann var mannasættir og grandvar og aldrei heyrðum við hann leggja illt til nokkurs manns. Á mannamótum var hann hrókur alls fagnaðar og kunni þá list að segja sögur í góðra vina hópi. Margs er að minnast eftir hartnær 43 ára samfylgd. Minn- umst við sérstaklega Madison-ár- anna og allra gleðistundanna sem við áttum þar með Addý og Eyja og ört stækkandi fjölskyldu. Hann í krefjandi doktorsnámi og Addý með börnin og eitthvað var hún byrjuð að kynna sér kaffi- fræðin. Margar góðar minningar tengjast ferðalögum stórfjöl- skyldunnar hér á landi sem utan. Og eftirminnilegur er fótbolta- leikurinn sem þeir félagarnir fóru á sl. haust og sáu Chelsea, liðið hans Eyja, spila. Arsen- almennirnir, sá sem hér heldur á penna, sonur og mágur, gátu ekki annað en glaðst með Eyja þegar Chelsea hrósaði sigri. Eyji kynntist ungur golfíþrótt- inni og stundaði hana af kappi. Hann var okkur hjónum innan handar þegar við stigum okkar fyrstu skref í sportinu og var óþreytandi við að leiðbeina okkur þegar við spiluðum okkar fyrstu hringi saman. Hann hafði djúpan skilning á golfinu og á stundum þegar hann komst á flug fannst manni nóg um, svo ástríðufullur var hann. Hetjan hún systir mín hefur staðið þétt við hlið ástvinarins í veikindunum og hvergi slegið af við að auka lífsgæði Eyja eins og kostur var. Að annast hann var hennar verkefni og því tók hún með gleði. Missir hennar er mest- ur en börnin Andrea, Héðinn og Bergþóra, makar og barnabörn sjá einnig á eftir fjölskylduföður sem var þeirra klettur í lífinu. Hann var sá sem allir treystu á og leituðu til. Samheldni fjöl- skyldunnar og kærleikur mun verða þeim leiðarljós í framtíð- inni og sefa sorgina. Að leiðarlokum óskum við Eyja góðrar heimkomu til sum- arlandsins. Við sjáum hann fyrir okkur með kylfurnar svífandi um grænar grundir með bros á vör og vissuna um að þar lækkar for- gjöfin fyrirhafnarlítið. Vertu kært kvaddur, kæri vin- ur. Minningin um góðan dreng mun lifa. Kristjana B. Héðinsdóttir og Þorsteinn Bjarnason. Fallinn er frá, langt fyrir aldur fram, góður félagi og vinur, Ei- ríkur Hilmarsson. Þegar þessi kveðjuorð til vinar okkar eru rit- uð erum við að ljúka þátttöku á ráðstefnu í viðskiptafræðum í Chicago, en við eigum einmitt góðar minningar úr slíkum ferð- um með Eyja. Leiðir okkar Eyja lágu saman fyrir um 10 árum þegar hann hóf störf við viðskiptafræðideild Há- skóla Íslands. Strax tókst á með okkur góður vinskapur en betri vinnufélaga var vart hægt að hugsa sér. Alla tíð áttum við í nánu samstarfi en við skrifuðum greinar saman, kenndum saman og fluttum erindi á ráðstefnum innanlands sem utan. Þar var fengist við ýmis álitaefni sem tengjast íslensku atvinnu- og þjóðlífi, svo sem mikilvægi end- urreisnar starfa eftir efnahags- hrunið og nýsköpunar fyrir op- inbera geirann. Eyji var einstakur vinnufélagi, hann kom til starfa í viðskipta- fræðideild með mikla reynslu úr atvinnulífinu sem gagnaðist vel í hinu akademíska umhverfi og þá ekki síst nemendum. Eyji var far- sæll kennari, hann náði vel til nemenda og miðlaði reynslu sinni til þeirra af kostgæfni. Hann hafði yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og at- vinnulífi. Eyji var gagnrýninn, réttsýnn og rökfastur. Vinnusemi hans og nákvæmni fór heldur ekki framhjá nokkrum þeim sem áttu í samskiptum við hann. Eyji var einnig úrræðagóður og sá gjarnan lausnir sem ekki endi- lega voru ljósar. Fyrir okkur fé- lagana var gott að eiga Eyja að, en hann reyndist okkur vel í erf- iðum málum. Eyji hafði góða nærveru og við náðum vel saman. Eftir sitja minningar um góð- an dreng sem kvaddi allt of fljótt. Við kveðjum góðan félaga og vin, þökkum honum samfylgdina og sendum ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur. Gylfi Dalmann Að- alsteinsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson. Í dag kveðjum við náinn vin og samferðarmann, eftir stutt og erfið veikindi. Fyrir fáeinum vik- um greindist Eiríkur með alvar- legan sjúkdóm og komu þá mann- kostir þeirra hjóna skýrt í ljós. Þau tóku upp á ýmsu, meðal þess var kampavíns- og marengsboð á líknardeildinni þar sem nokkrum tugum vina og ættingja var boðið og nafnaveisla og brúðkaup á heimili þeirra. Kynni okkar Aðalheiðar hófust fyrir tæpum tveimur áratugum þegar við tókum sæti í fyrstu stjórn FKA, Félags kvenna í at- vinnulífinu. Þar tókst strax góður vinskapur með okkur og eigin- manna okkar líka í kjölfarið. Við fundum strax að Eiríkur og Að- alheiður voru sannir lífskúnst- nerar, sem kom fram í lífi þeirra og öllum athöfnum. Það var aðdá- unarvert að fylgjast með því hvað þau voru fallega lítillát og hóg- vær en spönnuðu samt feiknar- lega vítt svið og náðu óhemjuár- angri bæði í leik og starfi. Eiríkur átti afar farsælan starfsferil og sinnti fjölskyldu sinni jafnframt af alúð. Þar komu eiginleikar hans sér vel því hann var einstak- lega hjálpsamur og alltaf til í að hlusta og taka þátt í umræðum á öllum hugsanlegum sviðum. Rekstur Kaffitárs var hluti af lífi hans þó að hann sinnti alla tíð öðrum störfum. Þar endurspegl- aðist sameiginleg lífssýn þeirra Aðalheiðar að fylgjast vel með öllum nýjungum og vera í farar- broddi á hverjum tíma. Hraður vöxtur var þeim þó ekki að skapi einn og sér heldur að gera hlutina vel og hlúa að starfsfólki sínu og innviðum fyrirtækisins. Aðal- áhugamál Eiríks þar fyrir utan var golfið, sem hann lagði djúpa hugsun í og var ótrúlega fimur golfari enda var alltaf gaman að spila golf með honum. Eiríkur var góður vinur. Hann var velviljaður, mikið prúðmenni og við þessi tímamót er mikil- vægt að rifja upp samskiptin og ræða minningar sem ætíð lifa. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Eiríki og þökkum honum fyrir notalega samleið á lífsleið- inni, sem hefur verið gefandi og skemmtileg. Sérlega minnumst við ferða okkar erlendis í golfi og á matreiðslunámskeið, auk allra góðra stunda saman í leik og starfi. Það er erfitt að kveðja góðan vin í blóma lífsins. Við sendum Aðalheiði, börnum þeirra og fjöl- skyldunni okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Hildur og Halldór. „Sæll, félagi.“ Á þennan vina- lega hátt var hann vanur að heilsa mér, hvort sem var í síma eða augliti til auglitis og kveðj- urnar með þessum hætti voru margar gegnum árin. Við Eyji hittumst fyrst vorið 1980 þegar þá verðandi eiginkonur okkar, Addý og Regína, voru að ljúka námi í Fósturskóla Íslands. Með þeim hafði tekist góður vinskap- ur í gegnum samveru í náminu, svo góður að þær tóku sig til og héldu saman til starfsnáms norð- ur til Akureyrar. Sú dvöl var upp- haf örlagavefs sem spannst þann- ig að leiðir okkar Eyja lágu oft og stundum mikið saman í gegnum þau tæpu fjörtíu ár sem eru liðin frá Akureyrardvölinni góðu. Ég kynntist Eyja í starfi. Fyrst var það í því skemmtilega verkefni að hanna og byggja kaffibrennslu Kaffitárs í Njarð- vík. Í kjölfarið komu svo ýmis önnur verkefni fyrir þau Addý og Eyja í örri uppbyggingu Kaffi- társ. Þegar Eyji skipti um starfs- vettvang frá Hagstofunni yfir til Háskóla Íslands, þar sem hann fór meðal annars fyrir þróun og uppbyggingu Vísindagarða Há- skóla Íslands, lágu leiðir aftur saman í starfi þar sem okkar stofa hafði þá þegar unnið um skeið að skipulagsvinnu í verk- efninu. Eyji var góður verkkaupi arki- tekts. Glöggur, réttsýnn, sann- gjarn, heiðarlegur og hugmynda- ríkur en líka stefnufastur og veitti aðhald. Hann nálgaðist verkefnin með sínum akademíska bakgrunni og hæfileikum. Var greinandinn og kunni að setja það sem kom út úr greiningunum fram í niðurstöðu til úrvinnslu. Ég kynntist Eyja líka í leik. Fljótlega eftir að við hófum sam- vinnuna komust við að því að við áttum golfið sem sameiginlegt áhugamál. Góður fundur okkar tveggja um eitthvert verkefnið hófst gjarnan með góðu spjalli um golfið áður en eiginlegt fund- arefni var tekið fyrir. Eyji nálg- aðist golfið með sama hætti og önnur verkefni. Hann greindi, safnaði upplýsingum og fór svo á æfingasvæðið til úrvinnslu. Sann- ur vísindamaður í golfinu líka. Nú skilja leiðir. Barátta Eyja við banvænan sjúkdóm var stutt en snörp þó að inni á milli kæmu léttari stundir síðustu vikurnar. Þær nýtti hann og fjölskylda hans vel, svo aðdáun okkar vin- anna vakti. Að leiðarlokum er mér þakk- læti til Eyja efst í huga. Þakklæti fyrir það traust sem hann sýndi mér í öllum verkefnum sem við fengumst við í störfum okkar og fyrir vináttuna, félagsskapinn og gleðina í leik okkar. Vertu sæll, félagi. Elsku Addý og fjölskyldan öll, við Regína vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Helgi Már Halldórsson. Þetta ferðalag var allt of stutt, vinur. Það er rétt eins og það hafi verið í fyrradag að við stóðum tveir undir götuljósi í Keflavík og gleymdum okkur í samræðum um tilgang lífsins, vináttu og fá- fengileika hversdagsins. Og allar þær samræður þar sem reynt var að kryfja tilgang lífsins. Hvað væri mikilvægt og hvað ekki. Hvernig hægt væri að byggja upp réttlátt þjóðfélag þar sem manneskjan væri í öndvegi. Mað- ur minn góður; endalausar vangaveltur. Og það er ekki langt síðan vinahópurinn flutti saman inn í húsið ykkar Addýar í Kefla- vík, til að búa saman og til að lifa í samfélagi vináttu og hjálpsemi. Og samstarfið á Unglingaheimili ríkisins þar sem við trúðum því að við gætum leiðbeint ungmenn- um til betra lífs. Og ferðalögin sem vinahópurinn í Keflavík skipulagði og fór í fullur tilhlökk- unar. Ísland sem við vorum að uppgötva með allri sinni dýrð og ógnarfegurð. Síðar komu háskólaárin með sinn svita og tár, þið Addý í Bandaríkjunum og við Kristín hér heima. Og eftir heimkomuna fleiri ferðalög og fleiri löng kvöld. Við dáðumst að því hvernig þið Addý hélduð utan um fjölskyldu ykkar á sama tíma og þið byggð- uð upp eitt athyglisverðasta fyr- irtæki landsins. Alúð og áræðni með hæfilegum skammti af skyn- semi og jarðtengingu. Þér líkt. Ekki erum við í nokkrum vafa um að þú varst búinn að sjá fyrir þér næstu áfanga á þessu ferða- lagi. Væntanlega með fjölskyldu og ástvini í faðmi þér. Það er í hæsta máta ósanngjarnt að þú fá- ir ekki að njóta lokakaflans í þínu viðburðaríka lífi. Það er hins veg- ar engin ástæða til að efast um að þín elskulega Addý muni halda merki ykkar á lofti. Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. Í dimmunni greinirðu daufan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni ... (Hannes Pétursson) Góða ferð, kæri vinur, þangað sem förinni er núna heitið. Þórarinn Eyfjörð og Kristín Jónsdóttir. Leiðir okkar og Eiríks lágu einkum saman á gleðistundum eftir að Héðinn, sonur þeirra Að- alheiðar, og Kristrún, dóttir okk- ar, kynntust og hófu sambúð. Við fögnuðum saman áföngum þeirra, útskriftum úr háskóla og svo framvegis. Eiríkur sýndi námi þeirra og störfum mikinn og einlægan áhuga og hvatti þau ávallt til að takast á við ný verk- efni. Síðast en ekki síst máttum við gleðjast saman eftir fæðingu dóttur þeirra, sameiginlegs barnabarns okkar. Eftirminnileg er frábær ræða Eiríks í nafngift- arveislu Gígju litlu í apríl sl. en þá hafði Eiríkur verið greindur með hinn óvænta og illvíga sjúkdóm sem lagði hann að velli. Við fundum hversu mikill fjöl- skyldumaður hann var og góður og traustur vinur barnanna sinna. Barnabörnin hans áttu frá- bæran afa, því fengum við að kynnast þegar við hittum Eirík á heimavelli með börnunum. Kynni okkar stóðu allt of stutt en að leiðarlokum er í huga okkar þakklæti fyrir að hafa kynnst þessum góða manni. Nánustu ástvinum færum við innilegar samúðarkveðjur. Sigrún og Ari Páll. Skrifstofuaðstaða okkar er á fyrstu hæð Aðalbyggingar Há- skóla Íslands þar sem oft er mik- ill umgangur. Þar er hátt til lofts og hljómburður þannig að iðu- lega þekkjum við á fótataki hver er á ferðinni eftir ganginum. Við vissum þegar Eiríkur Hilmars- son var á ferðinni vegna þess að við heyrðum ekkert fótatak held- ur lágværan klið. Þar fór Eiríkur talandi í símann að sinna ein- hverju erindi á göngu. Þetta fannst okkur á vissan hátt ein- kennandi fyrir Eirík. Hann var ákaflega duglegur og nýtti tím- ann sinn vel enda kom hann miklu í verk, hávaðalaust. Ef kalt var í veðri hafði hann á höfði skrautlega Billabong húfu. Kynni okkar af Eiríki ná aftur til ársins 2006 þegar hann var fenginn til að skoða nánar mögu- lega sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Minnisstætt er hversu einbeittur hann var í þeirri úttekt. Skömmu síðar tók Eiríkur við starfi fram- kvæmdastjóra Vísindagarða Há- skóla Íslands. Í kjölfarið urðu mikil samskipti okkar á milli enda mörg málefnin að velta vöngum yfir í uppbyggingu há- skólasvæðisins. Við fundum fljótt að okkur gekk mjög vel að vinna saman. Í kjölfar efnahagshruns- ins 2008 breyttust aðstæður þannig að starf framkvæmda- stjóra Vísindagarðanna varð hlutastarf en um leið tók Eiríkur m.a. að sér hlutastarf hjá fram- kvæmda- og tæknisviði HÍ sem ráðgjafi í ýmsum málum. Á þeim tíma sem Eiríkur var framkvæmdastjóri Vísindagarða hafa þeir vaxið mikið. Má þar nefna að þeir hafa eignast hús- næðið að Sturlugötu 8, Alvotech Eiríkur Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.