Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 33 Smáauglýsingar Bækur Hjólabækurnar eru vestfirskt framtak! Höfundur Ómar Smári í Garðaríki á Ísafirði: Vestfirðir Vesturland Suðvesturland Árnessýsla Rangárvallasýsla Vestfirska forlagið jons@snerpa.is vestfirska.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Olíuskiljur - fituskiljur - einagrunarplast CE vottaðar vörur. Efni til fráveitulagna. Vatnsgeymar 100-50.000 lítra. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Opið hús 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Hægt að pútta inni og úti. Heitt á könnunni. Allir velkomnir í starfið, hádegismatinn og kaffi. Sími 535 2700. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Landið skoðað með nútímatækni kl. 13.35. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl. 14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti-botsíavöllur verður á torginu í sumar og við minnum á qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega vel- komin. Vitatorg, sími 411-9450. Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ 565-6627, skrif- stofa opin miðvikud. kl. 13.30-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, gönguferð um hverfið kl. 13.30 og eftirmið- dagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-15.30. Zumba dans leikfimi kl. 13, allir velkomnir óháð aldri, nánari upp- lýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi í salnum Skóla- braut kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23, Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Kæra systir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir Magnea Ólöf Finnbogadóttir ✝ Magnea Ólöf Finn-bogadóttir fæddist 24. mars 1929. Hún lést 9. ágúst 2018. Útför Magneu Ólafar fór fram 14. ágúst 2018. og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Jóna og Guðrún. Elsku langamma okkar. Þegar ég hugsa um langömmu hugsa ég um hvað hún var alltaf góð við okkur öll. Þegar við komum til hennar í Hæðargarðinn var hún alltaf svo góð við okkur og stjan- aði svo við okkur. Ég mun sakna langömmu mjög mikið og er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Hún spilaði alltaf bingó og lék alltaf við okkur. Bros þú færðir í marga hlýju í hjarta allra góðhjarta við allt og alla. Nú á góðan stað þú fórst og alltaf á báðum fótum stóðst minning þín mun alltaf vera í okkar hjarta elsku langamma, góða ferð til þíns heima guð og englar munu þig geyma. (Davíð) Kær kveðja, þín barnabarna- börn, Katrín Eyja og Hugi Þór. Elsku Magga amma, langamma okkar. Takk fyrir allar minningarnar, þú varst alltaf svo góð við okkur. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þínar, Katla Sigríður og Katrín Eyja. ✝ Ágústa Úlfars-dóttir Edwald fæddist á Seyð- isfirði 25. maí 1928. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 6. ágúst 2018. Foreldrar Ágústu voru Úlfar Karlsson, f. 1896, d. 1996, og Helga Jónína Steindórs- dóttir, f. 1905, d. 1974. Systkini Ágústu voru Karl Guðgeir, f. 1924, d. 1925, Guðrún Eva, f. 1925, d. 2012, Karl, f. 1927, d. 2007, Steindór, f. 1929, d. 2009, Ásgeir Páll, f. 1932, d. 2000, f. 1986. Dóttir Birgis og Hrefnu Garðarsdóttur er Harpa, f. 1974. 3) Helga, f. 1961, börn hennar og Kristins Eiríkssonar eru Viktoría, f. 1994, og Atli Þór, f. 1999. 4) Eggert, f. 1963, maki Jacqueline McGreal, f. 1957. Börn Eggerts og Sigríðar Gunnsteinsdóttur eru Erna Björk, f. 1993, og Jón Orri, f. 1995. 5) Kristín, f. 1971. Börn Kristínar og Einars Karls Hall- varðssonar eru Snædís, f. 2001, og Helgi, f. 2004. Langömmu- börn Ágústu eru þrettán talsins. Ágústa ólst upp á Seyðisfirði og flutti ung til Reykjavíkur. Þar hélt hún heimili ásamt eig- inmanni sínum, lengst af á Háa- leitisbraut 117. Á yngri árum dvaldi Ágústa um nokkurra ára skeið bæði í Washington og Kaupmannahöfn. Útför Ágústu fer fram frá Grensáskirkju í dag, 17. ágúst 2018, klukkan 13. Margrét f. 1940, d. 2014, og Emelía Dóra, f. 1942, d. 2017. Ágústa giftist 12. október 1951 Jóni Ormari Edwald, f. 19. júní 1925, d. 16. apríl 2013. Börn þeirra eru: 1) Jón Haukur, f. 1954, maki Álfheiður Magnúsdóttir, f. 1957, börn þeirra eru Lilja, f. 1982, og Magnús Helgi, f. 1988, 2) Birgir, f. 1958, maki Ragn- heiður Óskarsdóttir, f. 1955, dætur þeirra eru Þórunn, f. 1979, Ágústa, f. 1981, og Hildur, Hún amma mín Ágústa lifði að níræðu og var alltaf skýr og klár þangað til hún lést. Ég var hepp- inn bæði að vera ömmusonur hennar og líka af því að ég fékk nokkuð sem ég verð alla tíð þakklátur fyrir. Það var tími. Ég var mikið hjá ömmu og afa þegar ég var lítill og eftir að afi minn lést heimsótti ég ömmu ekki sjaldnar en viku- lega. Ég fékk að kynnast Ágústu ekki aðeins sem ömmu minni heldur líka sem kærri vinkonu. Takk fyrir allar samstundirn- ar amma. Helgi. Í dag kveðjum við ömmu Ágústu. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til ömmu. Þar var ró og kyrrð og notalegt að vera. Amma lagði mikið upp úr því að vera vel til höfð og hafa fallegt í kringum sig. Hún fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni, bæði stjórnmálum og dægurmálum, og það var gaman að spjalla við hana. Amma ferðaðist ein til Ameríku á 4. áratugnum og vann sem þjón- ustustúlka í sendiráðsbústaðnum í Washington og seinna bjó hún með afa í Danmörku þar sem hann var við nám. Þetta hafa vafa- laust verið viðburðarík ár í lífi ungrar stúlku frá Seyðisfirði en hún gerði þau sjaldan að umtals- efni. Seinna hélt hún heimili í ný- byggðu hverfi í Reykjavík og ól upp fimm börn, hlutskipti sem er um svo margt ólíkt okkar en hún ræddi sjaldan. Umræðunni sneri hún jafnan að okkur. Þegar við systur hófum skóla- göngu var alltaf mikið tilhlökkun- arefni á haustin að kíkja í vinnuna til ömmu í Pennann þar sem hún hjálpaði okkur að kaupa það sem þurfti til skólans. Þegar við fluttum til Reykja- víkur til þess að fara í framhalds- skóla voru bæði hún og afi alltaf til taks ef þurfti, tilbúin að hjálpa með hvað eina. Amma var stolt af fjölskyldunni, hún hvatti okkur áfram, trúði á okkur og var óspör á hrósið. Hún fylgdist vel með því sem var að gerast í lífi okkar og samgladdist þegar áföngum var náð. Í seinni tíð urðu samverustund- irnar enn fleiri eftir því sem hlut- verkin snerust við og amma þurfti meiri aðstoð. Þó breytti það ekki því að þegar við komum á Háaleit- isbraut var hún tilbúin með kaffið og samlokur í mínútugrilli sem tóku öllum öðrum samlokum fram. Amma var vanaföst og íhaldssöm og þegar við fórum að versla inn fyrir hana voru leið- beiningarnar sérlega nákvæmar, bæði hvað varðaði vörumerki og verslanir. Þetta gerði innkaupin að skemmtilegum ferðum sem við gátum svo hlegið að saman yfir samlokunum. Langömmubörnun- um fannst jafngaman að koma til ömmu þar sem þau gátu treyst á að fá ís og súkkulaðirúsínur og fá að gramsa í dótaskápnum. Við eigum eftir að sakna þess að koma í kaffi á Háaleitisbraut- ina og að heyra í ömmu í síma en við búum að samverustundunum og fallegum minningum um góða ömmu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Þórunn, Ágústa og Hildur. Ágústa Úlfars- dóttir Edwald Elskulegur faðir okkar, Helgi Hró- bjartsson, fæddur 26. águst 1937, varð bráðkvadd- ur í Eþíópíu 6. júlí 2018. Hann lætur eftir sig þrjú börn og fimm barnabörn. Hann var prestur og kristni- boði á vegum norskra og ís- lenskra kristniboðsfélaga allt frá sjöunda áratug síðustu aldar, bæði í Senegal og Suður-Eþíópíu. Þá vann hann í mörg ár að hjálparstarfi í ein- angruðum og hrjóstrugum hér- Helgi Hróbjartsson ✝ Helgi Hró-bjartsson fædd- ist 26. ágúst 1937. Hann andaðist 6. júlí 2018. Útför hans fór fram frá Laugar- neskirkju 7. ágúst 2018. uðum við landa- mæri Eþíópíu og Sómalíu. Þar var hann m.a. mikil- vægur tengiliður fyrir Hjálparstarf kirkjunnar í Nor- egi. Pabbi upplifði sterka köllun til að hjálpa öðrum, þessi köllun virðist hafa mótað allt hans líf og persónu. Þrátt fyrir að hann hafi farið á eftir- laun um sjötugt vildi hann ekki leggja árar í bát og hélt starfi sínu í Eþíópíu áfram, meðal ann- ars með dyggum stuðningi hjálparsamtakanna Flymisjonen í Noregi. Pabbi unni Eþíópíu og starfi sínu þar alveg sérstaklega, þess vegna erum við systkinin þakk- lát fyrir að hann fékk að kveðja þennan heim einmitt meðan hann dvaldi þar. Hann var öðru- vísi faðir. Hann var alltaf forvit- inn um lífið og fólkið sem hann mætti og hafði alltaf frá mörgu að segja. Pabbi var oft áræðnari en margir aðrir sem við þekkjum og varðveitti ávallt strákinn í sjálfum sér – einkum þegar kom að athöfnum, spennu og hraða. Óttalaus sá hann engar hindr- anir: Hann stýrði bílum, vörubíl- um, rútum, mótorhjólum og flugvélum – og fór um á segl- brettum bæði við strendur Hrís- eyjar og Dakar. Margar blaða- greinar höfum við lesið þar sem honum er lýst sem „Rambó“ eða „Action Man“. Jafnframt vitum við að hann komst oft í hann krappan í gegnum störf sín. Stundum slapp hann naumlega undan dauðanum. Það var því oft erfitt að tilheyra fjölskyldunni hans sem sat heima í Noregi eða á Íslandi og hafði áhyggjur. Nokkuð sem fáir aðrir en við börnin hans sáu var hversu flók- in persóna pabbi gat verið. Hann var aldrei ánægður með að gera eitthvað eitt. Það voru engin tak- mörk fyrir því sem hann gæti lært, gert eða dreymt um. Hann gat tjáð sig á mörgum tungu- málum og átti fjölbreytt nám að baki. Fyrir utan störf sín í Afr- íku starfaði pabbi líka sem kenn- ari, hann var fenginn til að koma af stað þjónustu kirkjunnar við sjómenn og starfaði sem prestur Íslendinga í Noregi. Sem börn lærðum við því fljótt að það er fátt sem ætti að hindra mann í að læra eitthvað nýtt eða að breyta um stefnu í lífinu. Þannig reyndist pabbi okkur góð fyrirmynd í að lifa líf- inu lifandi. Uppvaxtarárin með pabba reyndust okkur þó oft flókin og sársaukafull, það er ekki hægt að leyna því. Það var bæði jákvætt og nei- kvætt, gott og vont að eiga föður sem var oft og iðulega hinum megin á hnettinum. En eftir að við urðum fullorðinn fengum við að upplifa nánari tengsl við pabba, einkum þegar barna- börnin komu og hann varð afi. Við viljum þakka allar hlýjar kveðjur sem við höfum fengið frá fólki sem þekkti pabba. Hjalti og Elin, Hanna María og Ingibjörg Margrét.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.