Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 SKECHERS FLEX APPEAL DÖMUSKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41. DÖMUSKÓR KRINGLU OG SMÁRALIND 12.995 Ef vel viðrar er tilvalið að fara á fjöll á afmælisdaginn. Ofan viðÍsafjörð eru Breiðadals- og Botnsheiðar sem eru stórkostlegútivistarsvæði og minn heimavöllur, þar hef ég farið mikið um, til dæmis á gönguskíðum og nú í seinni tíð á fjallahjóli. Það væri gaman að fá góða vini með sér í leiðangur um þessar slóðir,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hótel Ísafjarð- ar ehf., sem er 45 ára í dag. Daníel á fjölbreyttan feril að baki. Hann ólst upp á Ísafirði og sem ungur maður var hann einn af fremstu skíðagöngumönnum landsins og vann sem slíkur til fjölda verðlauna. Hann nam viðskiptafræði við Háskóla Íslands og starfaði að námi loknu sem útibússtjóri hjá Lands- banka Íslands í Reykjavík. Árið 2010 var hann ráðinn bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar og þá fluttu þau Hólmfríður Vala Svavarsdóttir eigin- kona hans og börnin þrjú vestur. Þegar bæjarstjóratíðinni sleppti tóku þau hjónin svo við rekstri Hótels Ísafjarðar, en á þess vegum eru reknir fimm gististaðir í bænum. Daníel er oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Ísafjarð- arbæjar, sem þar er í meirihluta bæjarstjórnar með Framsókn- arflokki. „Núna erum við að leggja línurnar fyrir komandi kjör- tímabil, þar sem orka, fiskeldi og samgöngur verða áherslumál og af öðru mætti nefna að til stendur að reisa knattspyrnuhús á Ísafirði og hefjast framkvæmdir strax í haust,“ segir Daníel. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísfirðingur Leggjum línurnar fyrir komandi kjörtímabil, segir Daníel. Stefnir á fjallgöngu á afmælisdeginum Daníel Jakobsson á Ísafirði er 45 ára í dag V aldís Fjölnisdóttir fædd- ist í Reykjavík 17.8. 1978 og ólst þar upp í Vest- urbænum. Hún gekk í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1998, stundaði frönskunám við Université de Montpellier í Frakk- landi, lauk B.Sc.-prófi í viðskiptafræði og alþjóðasamskiptum frá HÍ og Uni- versité de Bourgogne í Frakklandi 2003 og M.Sc.-prófi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá HÍ 2005 en tók hluta af náminu í Copenhagen Business School. Valdís vann við gestamóttöku hjá Radisson SAS með námi á árunum 1999-2002, var markaðsfulltrúi hjá franska sendiráðinu 2002-2005, var einn af stofnendum og eigendum Heilsuakademíunnar, líkamsrækt- arstöðvar í Egilshöll, og fram- Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Blámar – 40 ára Í ferðaskapi á ferðalagi Valdís og Hanna með strákana, Mikael Búa á miðri myndinni, og tvíburana Elí og Huga. Vesturbæingur á kafi í markaðsmálum í Asíu Í Rússlandi Valdís og Hanna á heimsmeistaramótinu, ásamt fleiri löndum. Kópavogur Laufey Hjalta- dóttir fæddist hinn 4. apríl 2018, kl. 23.53. Hún vó 3.755 g og var 50 cm löng. Foreldrar Laufeyjar eru Lára Kristín Stefánsdóttir og Hjalti Óskarsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.