Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 38
Norðurbryggja Á fyrstu hæð eru borgarlandslagsmyndir. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is „ . . . og það sem hann er duttlunga- fullur, hann Thrándur Thórarins- son,“ skrifar gagnrýnandi Kunst- avisen, eins helsta menningar- fjölmiðils Danmerkur, um myndlistarmanninn Þránd Þór- arinsson. Á þeim bænum þykir ljós- lega jákvætt að vera duttlunga- fullur. Að minnsta kosti er listamaðurinn og verkin á Kaprice, sýningunni hans í Norðurbryggju, menningarhúsi Íslendinga, Græn- lendinga og Færeyinga, lofuð í há- stert. Gagnrýnandinn segir engu líkara en sjálfur Eckersberg hafi risið upp úr gröfinni og stýrt pensl- inum í borgarlandslagsmálverkum Þrándar af Reykjavík sem og Kaup- mannahöfn. Og svo því sé haldið til haga þá er rýnirinn að vísa til Chri- stoffers Wilhelms Eckersbergs (1783 - 1853), sem frá því hann var og hét hefur verið kallaður guðfaðir gullaldar danskrar málaralistar. „En Þrándur þarf enga hjálp, hann hefur fullkomið vald á tækninni,“ segir rýnirinn ennfremur og að gáski og grín, skrýtnar hug- dettur og skemmtilegheit ýmis kon- ar speglist í verkunum. Ekki eru þó öll málverkin þessu marki brennd hvað myndefnið áhrærir, enda sumt vægast sagt óhugnanlegt. Grýla. Börn. Blóð. Ljótara getur það varla orðið. Innan um og saman við eru svo eiturbeitt ádeiluverk. „Sýningin er mikil upplifun,“ segir gagnrýn- andi Kunstavisen svo undir lok lof- söngsins. Prins Póló umboðsmaður Þrándur er að vonum himinlifandi yfir góðum viðtökum og dómum. Enda hefur hann ekki áður fengið dóma í fjölmiðlum, hvorki góða né slæma, frá því hann hélt sína fyrstu einkasýningu fyrir áratug. „Umfjöll- un að vísu, en aldrei gagnrýni frekar en trúlega aðrir íslenskir listamenn, sem ekki hafa sýnt í stóru, opinberu listasöfnunum,“ giskar hann á. Og spurður hvers vegna hann hafi ekki sýnt þar segir hann fátt hafa verið um svör þegar hann spurðist fyrir og sér hafi aldrei verið boðið. Ekki einu sinni á Nýmálað, listsýningu á Kjarvalsstöðum fyrir fáum árum, sem flestum málurum landsins var boðið að taka þátt í. En það er önnur saga og síður en svo barlómur í Þrándi. Enda fór hann fljótlega eftir sína fyrstu einkasýninguna í ársbyrjun 2008 að geta lifað af listinni. Þótt hér hafi orðið hrun. „Vinur minn Svavar Pét- ur Eysteinsson, líka þekktur sem Prins Póló, var umboðsmaður minn og kom mér af stað, en ég hafði allt- af verið smá óframfærinn. Sýningin var í mjög skemmtilegu rými í O. Johnson & Kaaber húsinu og heppnaðist svo rosalega vel að ég ákvað að helga mig listinni eft- irleiðis. Það var stór stund í lífi mínu,“ segir Þrándur og grínast með að síðan hafi hann ekki unnið „ærlega vinnu“. Áður vann hann í sambýli fyrir einhverfa. Listinni sinnir hann flestum stundum í vinnustofu sinni vestur í bæ auk þess að „pabbast“, eins og hann seg- ir, þegar dóttir hans dvelur hjá hon- um, en móðir hennar býr í Kaup- mannahöfn og þau Þrándur eru með sameiginlegt forræði. Stærsta einkasýningin til þessa „Frá því ég hélt mína fyrstu sýn- ingu hef ég sýnt á hverju ári í gall- eríum hér og þar. Kaprice er stærsta einkasýning mín hingað til og sú tíunda í röðinni. Ég sótti ein- faldlega um í tölvupósti til Norður- bryggju fyrir þremur árum og spurði hvort ég mætti halda þar sýningu. Sýningin samanstendur af 25 málverkum, flestum splunku- nýjum, og er á tveimur hæðum hússins. Borgarlandslagsmyndir af Reykjavík í bland við Kaupmanna- hafnarmyndir eru á neðri hæðinni, sem er stærri, og alls konar málverk frá ýmsum tímum á annarri hæð- inni. Flest málverkin eru nokkuð stór, eða um 2m x 1,5 m,“ segir Þrándur. Hann lýsir stíl sínum sem sígild- Tímaskekkjur í tveimur borgum  Kaprice, málverkasýning Þrándar Þórarinssonar, var opnuð um miðjan maí í Norðurbryggju, menning- arhúsi Íslendinga, Grænlendinga og Færeyinga, í Kaupmannahöfn  Sýningin stendur til 19. ágúst Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Í vinnustofunni Þrándur er allsendis ófeiminn við að nota sjálfan sig sem fyrirmynd. Á málverkinu á bak við lista- manninn er hann í þremur hlutverkum; sem barnshafandi kona, ljósmóðirin og nýfædda barnið. Einhyrningar Málverk byggt á teikningu Hugleiks. 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Ólík rými / Different Spaces nefn- ist sýning Salmans Ezzammoury sem opnuð verður formlega í Deigl- unni á morgun kl. 14, en sýningin stendur aðeins um helgina milli kl. 11 og 20. Sýningin er hluti af Lista- sumri á Akureyri. „Salman Ezzammoury er fæddur í Tetouan í Norður-Marókkó 1959 en flutti ungur til Hollands. Nám hans í ljósmyndun við College of Applied Photography í Apeldoorn og grafískri tækni í Sivako í Utrecht gaf honum góðan tækni- legan grunn fyrir verk hans nú til dags. Hann blandar saman málun og ljósmyndun. Fyrir Salman er mikilvægt að tjá tilfinningar sínar, ofar öllu vill hann sýna upplifun sína á augnabliki, ástandi eða að- stæðum. Ljósmyndir hans hafa ljóð- ræna eiginleika og eins og með ljóðið getur það aldrei verið full- komlega skilið, heldur hefur óljósa, dulúðlega áru,“ segir í tilkynningu. Ólík rými í Deiglunni um helgina Ljóðræna Eitt verka Ezzammoury. Í lítilli íbúð við Klapparstíg 12 munu 10 listamenn koma saman á Menningarnótt undir yfirskriftinni KS12: Umskipti. Viðburðurinn er liður í formlegri dagskrá Menn- ingarnætur og einblínir á einka- samtalið sem rannsóknartæki. „KS12: Umskipti er samtals- salóna sem rannsakar menningar- leg og listræn áhrif þess að flytja sig úr stað út frá landfræðilegum og huglægum aðstæðum. Almenn- ingi er boðið inn fyrir veggi einka- heimilis og leggur við hlustir á meðan fimm listamenn úr ýmsum áttum munu eiga í einkasamræðum við einstakling sem þau hver fyrir sig hafa boðið í heimsókn. Á meðan má njóta framandi tóna úti á svölum þar sem kvöldinu lýkur með pall- borðsumræðum. Daniel Reuter og Claudia Haus- feld ræða saman; Becky Forsythe og Þóranna Björnsdóttir; Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daniel Leeb; Sean Patrick O’Brien og Lord Pusswhip og loks Júlía Margrét og Björk Þorgrímsdóttir.“ Einkasamtalið sem rannsóknartæki Ásdís Sif Gunnarsdóttir Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.