Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 44

Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 44
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 229. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Roundup í vinsælu morgunkorni 2. „Sótti hann hálf dauðan heim …“ 3. Farbann yfir Sigurði staðfest 4. Leita svara vegna morgunkorns »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Bræðurnir Bjarni og Einar Þór Guð- mundssynir syngja íslensk einsöngs- lög og dúetta við undirleik Guðjóns Halldórs Óskarssonar í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð á morgun, laugardag, kl. 15. Bjarni og Einar, sem fæddir eru á Hellu, stunduðu söng- nám í Reykjavík áður en þeir héldu til framhaldsnáms í Hollandi. Guðjón starfar sem orgelleikari, píanókenn- ari og kórstjóri í Rangárþingi eystra. Bræðralög að Kvoslæk á morgun  Karólína Lárus- dóttir opnar sýn- ingu í Galleríi Fold á morgun, laugar- dag, kl. 13. Þar getur meðal ann- ars að líta vatns- litamyndir og grafíkverk sem sum hver hafa aldrei verið sýnd áður. Sýningin stendur til og með 25. ágúst. Karólína Lárusdóttir sýnir í Galleríi Fold  Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur leiðir sögugöngu um Sjó- mannaskólareitinn á Menning- arnótt. Gangan hefst við Háteigskirkju kl. 15. Guðjón fræðir gesti um þær merku byggingar, listaverk og söguminjar sem leyn- ast á reitnum. Þeirra á með- al er stakk- stæði frá 1920 sem er í Salt- fiskmóanum á Rauðarárholti. Aðgangur er ókeypis. Söguganga á Sjó- mannaskólareitnum Á laugardag Norðvestan 5-10 m/s og léttskýjað en 10-15 norð- austantil á landinu og rigning. Hiti frá 6 stigum á Norðaust- urlandi upp í 17 stig syðst. Lægir víða um kvöldið og kólnar. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 8-13 m/s en hæg- ari vindur norðaustanlands. Fer að rigna á sunnanverðu landinu og áfram skýjað og dálítil væta fyrir norðan. Hiti 8 til 14 stig. VEÐUR „Fram til þessa hefur geng- ið afar vel og þar af leiðandi hefur verið mjög gaman hjá okkur,“ sagði Heimir Rík- arðsson, þjálfari 18 ára landsliðs Íslands í hand- knattleik karla en liðið er komið í undanúrslit á Evr- ópumótinu sem stendur yfir í Króatíu. Í kvöld leika ís- lensku piltarnir við lið heimamanna í undan- úrslitum. Heimir segist fara óhræddur í leikinn. »1 Undanúrslita- leikur á EM í kvöld Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu karla eru úr leik í Evrópudeildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 2:1 sigur á Sheriff frá Moldóvu á Hlíðarenda í gærkvöldi. Liðin gerðu samanlagt 2:2 en Sheriff fer áfram á reglunni um að fleiri mörk skoruð á útivelli skeri úr um hvort liðið fer áfram þegar jafnt er. Vals- menn geta borið höfuðið hátt og hafa lagt býsna góð lið að velli í Evrópuleikjum í sumar. »2-3 Valur vann en er þó úr leik í Evrópudeildinni Breiðablik og Stjarnan eigast við í úr- slitaleik Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld. Stjarnan hefur komist í úrslit fimm sinnum á síðustu sjö árum en liðið tapaði í fyrra fyrir ÍBV í úrslitum. Breiðablik varð bikarmeistari árið 2016 og hafði þá einmitt betur gegn ÍBV í úrslitaleik. Blikar hafa unnið báða leiki liðanna í sumar. »4 Breiðablik og Stjarnan takast á í Laugardal ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Kristín Anna Guðmundsdóttir sópr- ansöngkona varð þess heiðurs aðnjót- andi að vera valin af tónleikagestum sá söngvari sem þótti skara mest fram úr á sjö tónleikum sem nýverið voru haldnir í Torgau í NV-Saxlandi í Þýskalandi. Tónleikarnir voru hluti af tíu daga „masterclass“ sem Kristín Anna sótti og var skipulagður af Fel- ix Mendelssohn Bartholdy- tónlistarháskólanum í Leipzig. „Í masterklassanum var ég aðal- lega í söngtímum hjá KS Prof. Ro- land Schubert, sem náði að kenna mér ótrúlega margt nýtt á aðeins ör- fáum dögum. Einnig vann ég með KS Dagmar Schellenberger, sem er sópransöngkona sem hefur átt glæst- an feril í óperettuheiminum. Hún bauð mér að vinna enn frekar með sér og mun ég gera það hér í Berlín,“ segir Kristín Anna en hún hefur verið meira og minna búsett í Berlín sl. fjögur ár. Leiklist og líkamstjáning Í Berlín er Kristín Anna í klassísku söngnámi við Hanns Eisler- tónlistarháskólann en í október hefst síðasta önnin hennar sem lýkur með bachelorgráðu og lokatónleikum í febrúar. „Þetta nám er og hefur verið alveg virkilega skemmtilegt, fjölbreytt og einstaklega lærdómsríkt,“ segir Kristín Anna sem hefur í náminu fengið að læra ýmislegt annað en söng. „Fyrstu tvö árin vorum við meira í hóptímum, t.d. í samkvæm- isdansi, skylmingum, leiklist, barokk- líkamstjáningu o.fl. Þó vorum við í söngtímum og meðleik í hverri viku líka. Hefur sungið frá fyrsta degi Seinni tvö árin hafa farið í það að fara dýpra í tónlistina og tjáninguna og þá er maður oftast í einkatímum. Þessa önnina hef ég t.a.m. verið í ítölskum belcanto-söng sem ég hef mikinn áhuga á og ég hef lært rosa- lega mikið nýtt.“ Kristín Anna hefur að eigin sögn verið tónelsk alla tíð og hefur frá unga aldri sungið í kórum. „Þegar ég var fjögurra ára sendu foreldrar mínir mig í kirkjukórinn í hverfinu, sem var enginn annar en Krúttakórinn í Langholtskirkju. Í framhaldi af því fór ég í Kórskóla Langholtskirkju, Gradualekórinn, Graduale Futuri, Graduale Nobili og Kór Langholtskirkju. 14 ára byrjaði ég í Söngskólanum í Reykjavík og lærði hjá Hörpu Harð- ardóttur og Hólmfríði Sigurðar- dóttur. Í Langholtskirkju fékk ég samt mitt tónlistaruppeldi og má ég til með að þakka Jóni Stefánssyni fyrir að hafa kveikt áhuga minn á tónlist.“ Kristín Anna segist vera hrifin af Berlín og Þjóðverjum og stefnir á framhaldsnám í Þýskalandi að út- skrift lokinni, þótt hún hafi ekki enn ákveðið nákvæmlega hvar. „Mér líður vel hér í Berlín. Þjóð- verjar eru skynsamir, reglusamir og ákveðnir en fyrst og fremst indælir.“ Skaraði fram úr í tónleikaröð  Lærir skylm- ingar og dans í söngnáminu Ljósmynd/Aðsend Metnaðarfull Kristín stefnir á framhaldsnám eftir útskrift. Hún segir Þjóðverja reglusama, skynsama og indæla. Verðlaunuð Dr. Dietburg Ebert veitir Kristínu verðlaun í Torgau.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.