Fréttablaðið - 18.10.2018, Page 4

Fréttablaðið - 18.10.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN JEEP COMPASS LIMITED® jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® EINI JEPPINN Í ÞESSUM STÆRÐARFLOKKI SEM BÝÐUR UPP Á LÁGT DRIF. Jeep ® Compass er útbúinn með alvöru fjórhjóladrifi: Jeep ® Active Drive, sem gerir ökumanni kleift að velja um fjórar drifstillingar sem taka mið af akstursundirlagi hverju sinni, Auto, Snow, Sand og Mud ásamt því að læsa milli fram- og afturdrifs í Limited og til viðbótar í Trailhawk er fimmta stillingin Rock ásamt lágu drifi. 2.0 lítra dísel 140 hö. eða 170 hö. og 170 hö. bensínvél. 9 gíra sjálfskipting. Litli bróðir Jeep® Grand Cherokee. JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF. ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU ALÞINGI „Ég er sannfærð um að með eðlilegum leikreglum munum við sjá markaðinn blómstra og verða sterkari með aukinni nýsköpun og fjölbreytni,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Hún hefur ásamt þingflokki sínum og tveimur þingmönnum Pírata lagt fram frumvarp á Alþingi um viða­ miklar breytingar á búvörulögum. Er í frumvarpinu lagt til að undan­ þágur mjólkuriðnaðar frá sam­ keppnislögum verði afnumdar og að verðlagsnefnd búvara verði lögð niður. Markmið flutningsmanna er að auka frelsi og sjálfræði framleið­ enda til markaðssetningar á afurðum sínum á innlendum og erlendum mörkuðum. „Þetta eru mjög eðlilegar breyt­ ingar að gera á 21. öldinni, það er með ólíkindum að það ríki ekki full samkeppni í mjólkuriðnaði. Ég bind nú ekki miklar vonir við að Fram­ sóknarflokkarnir þrír í ríkisstjórn breyti miklu. Þeir hafa allir mikil tengsl við mjólkuriðnaðinn og ég hef fundið það á skömmum tíma í stjórnarandstöðu að það er lítill vilji til að breyta þessu,“ segir Þorgerður. Hún vonast þó til að frjálslynd öfl á Alþingi þori að taka sig saman. „Þeir flokkar sem kenna sig við frelsi og frjálsa samkeppni þurfa sérstak­ lega að útskýra það af hverju þeir vilji ekki breyta kerfinu.“ Þá segir Þorgerður að ítrekuð álit Samkeppniseftirlitsins um mjólkur­ iðnaðinn þurfi að taka alvarlega. „Álit Samkeppniseftirlitsins eru ekki einhver konfektkassi fyrir stjórnvöld að velja úr.“ Arnar Árnason, formaður Lands­ sambands kúabænda, segir ekki óeðlilegt að þessir flokkar leggi fram svona frumvarp í nafni frelsis og frjálshyggju. „Það þarf samt að hafa í huga að landbúnaður býr hvergi við algert viðskiptafrelsi. Allar þjóðir styðja við landbúnað á einhvern hátt, hvort sem það er með tollum eða einhvers konar takmörkunum á innflutningi.“ Þannig gangi það ekki upp að gera viðskipti með landbúnaðarvörur alveg frjáls hér meðan það sé ekki gert annars staðar. „Við bændur sláum ekki hendinni á móti samkeppni og endurskoðun á starfsumhverfi okkar. Það eina sem við förum fram á er að sanngirni sé gætt og að ekki verði teknar ákvarð­ anir í fljótfærni. Ég held að bændur séu almennt sáttir við kerfið en land­ búnaðarkerfi eiga að vera í sífelldri endurskoðun.“ Þá bendir hann á að sjálfræði bænda til markaðssetningar séu engin takmörk sett. „Það er algeng­ ur misskilningur í umræðunni að mönnum séu settar skorður við framleiðslu og markaðssetningu. Það eru engar skorður á því.“ sighvatur@frettabladid.is Vonar að hin frjálslyndari öfl á Alþingi þori að taka sig saman Þingflokkur Viðreisnar auk tveggja þingmanna Pírata hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagðar eru til viðamiklar breytingar á búvörulögum. Er frumvarpinu ætlað að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda. Formaður Landssambands kúabænda bendir á að landbúnaður búi hvergi við algjört viðskiptafrelsi. Mjólkuriðnaðurinn er undanskilinn ákvæðum samkeppnislaga hvað varðar samráð. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Það þarf samt að hafa í huga að landbúnaður býr hvergi við algert viðskiptafrelsi. Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda VIðskIptI Íbúðaverð hækkar um 8,2 prósent á þessu ári gangi spá grein­ ingardeildar Íslandsbanka eftir. Spáð er 5,5 prósenta hækkun á næsta ári og 4,4 prósenta hækkun árið 2020. Greining Íslandsbanka segir að aldr­ ei hafi verið erfiðara að kaupa fyrstu eign miðað við laun. Greining Íslandsbanka hefur tekið saman viðamikla skýrslu um íbúða­ markaðinn hér á landi. Þar kemur fram að hlutfall íbúðaverðs og launa hafi verið um tíu prósent yfir lang­ tímameðaltali á síðastliðnu ári. Til samanburðar fór hlutfallið hæst í 29 prósent yfir meðaltal í síðustu upp­ sveiflu og var því talsvert erfiðara að kaupa húsnæði þá en í dag miðað við laun. „Hlutfall launa aðila á algengum fyrstu kaupa aldri og verðs á smærri eignum var um 31 prósent yfir lang­ tímameðaltali á síðastliðnu ári og hefur það aldrei verið hærra,“ segir jafnframt í greiningunni. – smj Fyrstu kaup aldrei erfiðari Íbúðir í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI ReykjAVík Borgarbúar ganga nú til kosninga á vefnum hverfidmitt.is um ýmsar framkvæmdir í hverfum Reykjavíkur en þetta er í sjöunda sinn sem slík íbúakosning fer fram á vegum borgarinnar. Borgin leggur 450 milljónir til verkefnisins í ár og hefur þeirri fjár­ hæð verið skipt á milli hverfana eftir fjölda íbúa. Íbúar sem eru eða verða 15 ára á árinu hafa kosningarétt en hingað til hefur aldurstakmarkið verið 16 ár. Forval verkefna hefur þegar farið fram og kosið er á milli verkefna sem komust í gegnum fyrri síu. Meðal verkefna sem kjósa má um í flestum hverfum eru gönguþveranir gatna, vatnspóstar, endurbætur á göngustígum, leik­ og sparkvöllum, fjölnota hreysti­ og klifursvæði, þurrgufuböð við sundlaugar, nýjar ruslafötur og fleira. Auk framangreindra verkefna gefst íbúum í Grafarvogi kostur á að kjósa um rafræna vöktun við innganga í hverfið sem kosta myndi 33 millj­ ónir, íbúar í Vesturbænum geta kosið um hundagerði við Vesturbæjarlaug fyrir 4 milljónir og Árbæingar gætu varið sömu fjárhæð í deilihjólastæði. Snjallvæðing Breiðhyltinga vekur athygli en þeir gætu kosið sér hleðsluskápa fyrir snjalltæki og snjallbekki til að setjast á meðan hlaðið er. Íbúar Grafarholts geta kosið sér meira skjól með auknu fé til gróður­ setninga og íbúar Hlíða kosið bætt aðgengi að stríðsminjum í Öskjuhlíð og tjörn á Klambratúni. Kjalnesingar kosið að virkja vindinn með vind­ myllu fyrir 4 milljónir. Þeir eiga þess einnig kost að auka rafræna vöktun í sínu hverfi líkt og Grafarvogsbúar. Kosningin hófst í gær og fer fram á vefnum hverfidmitt.is. Íbúar hafa allan októbermánuð til að kjósa. – aá Borgarbúar kjósa um rafrænt eftirlit og ýmsar umbætur í hverfum Kjósa má um öflugra eftirlit í helstu úthverfum. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon BRInK 1 8 . o k t ó b e R 2 0 1 8 F I M M t U D A G U R4 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð 1 8 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 B -3 B B 4 2 1 1 B -3 A 7 8 2 1 1 B -3 9 3 C 2 1 1 B -3 8 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.