Fréttablaðið - 18.10.2018, Side 28
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Tímabilið á milli heims-styrjaldanna tveggja hefur oft verið talið gullaldartími
franskrar tísku. Á þessum tíma
komu fram miklar breytingar
og umbætur í fatatísku kvenna.
Frönsku tískuhúsin fundu nýja
viðskiptavini í röðum Hollywood-
stjarna og erfingja bandarískra
auðkýfinga. Konur gengu lengra
í klæðnaði sínum en áður hafði
þekkst. Kjólarnir styttust upp að
hnjám og konur fóru að sjást í
buxum.
Coco Chanel var sannkallaður
brautryðjandi í kventísku. Nútíma-
leg viðhorf hennar gerðu hana
að einni mikilvægustu persónu í
fatahönnun á 20. öldinni. Hún setti
ný viðmið í fegurð og glæsileika
sem enn í dag hafa áhrif. Á þessum
árum voru frægustu fatahönnuðir
dagsins í dag að fæðast. Þar má
nefna Karl Lagerfeld sem er 85 ára,
Valentino, 86 ára, Giorgio Armani,
84 ára, Ralph Lauren, 79 ára, Calvin
Klein, 76 ára, Issey Miyake, 80 ára,
og Pierre Cardin, 96 ára. Það er
í rauninni stórmerkilegt hversu
langa sögu þessir herramenn eiga í
tískuheiminum.
Næsta kynslóð karlkyns tísku-
Gamlingjar
stýra tískunni
Karl Lagerfeld, sem er orðinn 85 ára, á langan feril að baki. Ralph Lauren sem verður áttræður á næsta ári.
Valentino er 86 ára og alltaf vinsæll.
Pierre Cardin hefur starfað lengi við
hönnun og er orðinn 96 ára gamall.
Giorgio Armani er 84 ára.
Calvin Klein er 76 ára.
Japanski hönnuðurinn Issey Miyake
er áttræður og gefur ekkert eftir.
Þeir sem stjórna
tískuheiminum
eru að stórum
hluta gamlir
karlar. Frægustu
tískuhönnuðirnir
eru flestir orðnir
háaldraðir þótt
þeir beri sig enn
vel og fylgist vel
með því nýjasta.
hönnuða er líka farin að eldast, það
eru til dæmis Jean Paul Gaultier, 66
ára, Tommy Hilfiger, 67 ára, Tom
Ford, 57 ára, Michel Kors, 59 ára, og
Marc Jacobs, 55 ára.
Margar konur koma líka að
tískunni með afgerandi hætti en
fáar hafa verið jafnlengi að og
herrarnir. Vivienne Westwood, 77
ára, hefur skapað sér fágaðan stíl,
sömuleiðis Jil Sander, 75 ára, Diane
von Furstenberg, 72 ára, og Vera
Wang, 69 ára, svo einhverjar séu
nefndar. Sonia Rykiel hafði sömu-
leiðis mikil áhrif á tískuheiminn
ásamt Yves Saint Laurent og Oscar
de la Renta sem öll eru látin.
Vissulega eru yngri konur á borð
við Donnu Karan, Victoriu Beck-
ham og Stellu McCartney sannar-
lega vinsælar í tískuheiminum.
París hefur alltaf verið alþjóðleg
miðstöð tískunnar og þar var
fyrsta tískuvikan haldin. Eftir
1950 breyttist tískan mikið og
sérstakur unglingastíll leit dagsins
ljós. Hippa-tískan birtist á sjöunda
áratugnum og gallabuxur urðu
allsráðandi hjá báðum kynjum.
Um leið og tískan varð almennari
hjá venjulegum borgurum fjölgaði
tískuhúsum en ekki síður tísku-
búðum með ódýrari tískuvarning.
Frægustu merkin halda þó uppi
heiðri nýjustu tískunnar hverju
sinni og eiga sér fjölda aðdáenda
og fastra viðskiptavina, ekki síst í
heimi ríka og fræga fólksins.
SMÁRALIND
Ver
ð: 1
7.49
0 k
r.
Ver
ð: 8
.99
0 k
r.
Ver
ð: 5
.99
0 k
r.
Ver
ð: 1
1.99
0 k
r.
CASUAL & COSY
Ver
ð: 1
5.49
0 k
r.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . o K tÓ B e R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
8
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
B
-5
4
6
4
2
1
1
B
-5
3
2
8
2
1
1
B
-5
1
E
C
2
1
1
B
-5
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K