Fréttablaðið - 18.10.2018, Page 42

Fréttablaðið - 18.10.2018, Page 42
Afturelding - ÍBV 28-28 Afturelding: Tumi Steinn Rúnarsson 7/2, Elvar Ásgeirsson 6, Birkir Benediktsson 4, Einar Ingi Hrafnsson 2, Sturla Magnússon 2, Gunnar Kristinn Þórsson 2, Böðvar Páll Ásgeirsson 1, Emils Kurzemniesk 1, Júlíus Þórir Stefánsson 1, Árni Bragi Eyjólfsson 1, Finnur Ingi Stefánsson 1/1. ÍBV: Kristján Örn Kristjánsson 7, Kári Kristján Kristjánsson 6/4, Hákon Daði Styrmisson 5, Fannar Þór Friðgeirsson 5, Theodór Sigurbjörnsson 2, Sigurbergur Sveinsson 1, Elliði Snær Viðarsson 1, Grétar Þór Eyþórsson 1. Selfoss - Valur 28-24 Selfoss: Elvar Örn Jónsson 6, Haukur Þrastarson 6, Hergeir Grímsson 5, Atli Ævar Ingólfsson 4, Árni Steinn Steinþórsson 2, Guðjón Baldur Ómarsson 2, Richard Sæþór Sigurðsson 1, Einar Sverrisson 1/1, Guðni Ingvarsson 1. Valur: Vignir Stefánsson 5, Anton Rúnars- son 5/2, Magnús Óli Magnússon 4, Úlfar Páll Þórðarson 3, Agnar Smári Jónsson 2, Orri Freyr Gíslason 1, Sveinn Aron Sveinsson 1, Alexander Örn Júlíusson 1, Róbert Aron Hostert 1. Efri Selfoss 9 FH 7 Haukar 7 Valur 7 Afturelding 6 Fram 5 Neðri ÍBV 4 KA 4 Grótta 3 ÍR 2 Akureyri 2 Stjarnan 2 Nýjast Olís-deild karla Breiðablik - Haukar 60-70 Breiðablik: Ragnheiður Björk Einarsdóttir 20, Kelly Faris 15/9 fráköst/7 stoðsending- ar/6 stolnir, Björk Gunnarsdótir 14, Sóllilja Bjarnadóttir 5, Isabella Ósk Sigurðardóttir 2, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 2, Anita Rún Árnadóttir 2. Haukar: LeLe Hardy 27/11 fráköst/9 stoð- sendingar/5 stolnir, Þóra Kristín Jónsdóttir 15/10 fráköst, Sigrún Björg Ólafsdóttir 8, Bríet Lilja Sigurðardóttir 6, Karen Lilja Owo- labi 4, Magdalena Gísladóttir 3, Rósa Björk Pétursdóttir 3, Eva Margrét Kristjánsdóttir 2, Anna Lóa Óskarsdóttir 2. Keflavík - Skallagr. 75-65 Keflavík: Brittanny Dinkins 25/11 fráköst/9 stoðsendingar/7 stolnir, Bryndís Guð- mundsdóttir 15, Birna Valgerður Benón- ýsdóttir 13/7 fráköst, Erna Hákonardóttir 8, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 7, Katla Rún Garðarsdóttir 5, Irena Sól Jónsdóttir 2. Skallagrímur: Bryesha Blair 21, Shequila Joseph 20/11 fráköst, Maja Michalska 15/8 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 7/8 frá- köst, Ines Kerin 2. Stjarnan - Snæfell 53-62 Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 20/13 fráköst/7 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8/7 fráköst, Bríet Sif Hinriks- dóttir 7/6 fráköst, Alexandra Eva Sverris- dóttir 6/7 fráköst, Maria Florencia Palacios 5, Ragnheiður Benónísdóttir 4/11 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 3. Snæfell: Angelika Kowalska 15/8 fráköst, Kristen Denise McCarthy 14/11 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 13, Katarina Matijevic 9, Gunnhildur Gunnarsdóttir 8/11 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 3. Valur - KR 52-64 Valur: Brooke Johnson 15/9 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 8/11 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 6, Guðbjörg Sverrisdóttir 6/10 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 5, Berg- þóra Holton Tómasdóttir 5, Simona Podes- vova 4/8 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 3. KR: Orla O’Reilly 26/9 fráköst, Kiana Johnson 20/16 fráköst/6 stoðsendingar, Unnur Tara Jónsdóttir 11, Perla Jóhanns- dóttir 3, Vilma Kesanen 3, Eygló Kristín Óskarsdóttir 1. Efri Snæfell 6 KR 4 Haukar 4 Stjarnan 4 Neðri Valur 2 Keflavík 2 Skallagrímur 2 Breiðablik 0 Domino’s-deild kvenna Frjálsar íþróttir Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, spretthlaupari úr ÍR, kórónaði frábært ár sitt með því að tryggja sér gullverðlaun í 200 metra hlaupi á Ólympíu leikum ungmenna í Buen os Aires í Argentínu í gær- kvöldi. Guðbjörg Jóna bætti Íslandsmet sitt í greininni tvívegis á leikunum, en hún hefur alls gert það þrisvar sinnum á þessu ári. Áður hafði Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur í 200 metra hlaupi staðið óhreyft í 21 ár. „Ég er búin að vera að hugsa um þetta hlaup í mjög langan tíma og það er ofboðslega góð tilfinning að þetta hafi gengið svona vel og gullið sé í höfn. Tilfinningin var geggjuð og ég fann það strax þegar ég kom í mark að ég hefði náð góðum tíma. Mér fannst líklegt að ég hefði náð að tryggja mér gullverðlaun,“ segir Guðbjörg Jóna um þær tilfinningar sem bærðust í brjósti hennar eftir hlaupið. Þessi 16 ára hlaupakona segir undirbúninginn fyrir Ólympíuleika ungmenna hafa gengið vel. „Það hefur fátt annað komist að undanfarna mánuði en að undir- búa mig eins vel og ég get fyrir þetta hlaup. Æfingarnar hafa verið svip- aðar og áður, en ég hugsaði mjög vel um mig síðustu mánuði. Bæði hvað varðar næringu, góða hvíld og góðan svefn. Það er skemmtilegt að hafa uppskorið eftir allan þann undirbúning. Það munar líka um það að geta hlaupið alveg meiðsla- laus, en meiðslin sem ég glímdi við fyrr á árinu eru ekki lengur að plaga mig,“ sagði Guðbjörg um lykilinn að góðum árangri sínum. „Það var frekar skrýtið að vakna í morgun og vera ekki að hugsa um leiðir til þess að ná þessu markmiði mínu. Það var að vinna gull hérna. Nú er næsta markmið að standa mig vel á Evrópumóti U-20 ára sem fram fer á júlí í næsta ári. Þar stefni ég á að komast í úrslit og ég tel það vel raunhæft. Ég er búin að bæta mig reglulega og nokkuð mikið síðasta hálfa árið. Það er ekki ekki hægt að vænta þess að þetta haldi áfram á sama hátt, en ég get klárlega bætt mig meira og það er markmiðið. Langtímamarkmiðið er svo að hlaupa á Ólympíuleikum. Ég er ekki viss um að það sé raunhæft að stefna á leikana sem fram fara í Tókýó árið 2020, en það kemur bara í ljós þegar nær dregur,“ segir hún um fram- haldið hjá sér. hjorvaro@frettabladid.is Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir gerði gott mót á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires. NORDicpHOtOS/GEtty Markmiðið var að vinna gull Hin 16 ára gamla Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hefur náð eftirtektarverðum árangri í spretthlaupi á þessu ári. Gullverðlaunin sem hún vann á Ólympíuleikum ungmenna voru góður endapunktur á góðu keppnisári. Raunhæft að stefna á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 „Þetta er náttúrulega algerlega frábær árangur og það er magnað að ná að bæta sig svona mikið jafn seint á hlaupatímabilinu og raun ber vitni. Það er eftirtektar- vert hvað hún vinnur öruggan sigur í fyrra hlaupinu og hún sýnir svo stöðugleika með því að bæta sig enn meira í seinna hlaupinu. Það er vel af sér vikið hjá henni og þjálfara hennar að takast það að toppa á réttum tíma,“ segir Sigurbjörn Árni Arngrímsson, sér- fræðingur um frjálsar íþróttir, í viðtali við Fréttablaðið um árangur um Guðbjargar. „Hún er bæði stór og sterk og hefur alla burði til þess að ná langt í þessari grein í fullorðinsflokki seinna meir. Hún hefur sýnt það á þessu ári að hún er á heimsmæli- kvarða hvað jafnaldra sína varðar og ég er bjartsýnn á að hún geti haldið áfram að bæta sig. Það er raunhæft að mínu viti að stefna á Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020. Miðað við þann tíma sem dugði til þess að komast á síðustu leika þarf hún að bæta sig um 20 sekúndu- brot til þess að komast þangað og það er klárlega möguleiki að hún nái því í tæka tíð,“ segir Sigurbjörn Árni um framtíðarhorfur hennar. „Hún er í góðum höndum hér heima hjá þeim þjálfara sem hún hefur og varðandi aðstöðu heilt yfir. Við erum með góða innan- hússaðstöðu lungann úr árinu hér heima og útiaðstaðan er á pari við það sem gengur og gerist erlendis. Það er kannski helst að það væri gott fyrir hana að æfa spretthlaup sín í meiri hita en hún hefur kost á hérlendis. Það er gott fyrir spretthlaupara að æfa í meiri hita en mögulegt er á Íslandi,“ segir sérfræðingurinn um komandi tíma hjá þessari ungu og efnilega hlaupakonu. „Það er mjög bjart fram undan hjá íslensku frjálsíþróttafólki, en við erum með fimm til sex íþróttamenn sem gætu hæglega náð langt á næstu árum ef þeir halda rétt á spöðunum í fram- haldinu. Við höfum verið að ná góðum árangri á alþjóðavettvangi í ungmennaflokkum undanfarið og það gefur góð fyrirheit. Ég geri mér vonir um að við verðum með fleiri íslenska þátttakendur á næstu Ólympíuleikum en við höfum verið með á undanförnum leikum. Það er sérstaklega gaman að sjá þróunina, hversu marga frambæri- lega spretthlaupara við eigum á þessum tímapunkti,“ segir hann. KörFubolti Þriðja umferð Dom- ino’s-deildar karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum. Njarðvík, sem hefur unnið fyrstu tvo leiki sína, fær stigalaust lið Vals í heimsókn í Ljónagryfjuna. Vinni Njarðvíkingar í kvöld verður það í fyrsta sinn frá tímabilinu 2009-10 sem liðið vinnur fyrstu þrjá deildar- leiki sína. Þá vann Njarðvík fyrstu sjö leiki sína og endaði í 5. sæti efstu deildar. Liðið komst í undanúrslit þar sem það tapaði fyrir Keflavík í fjórum leikjum. Líkt og Njarðvík hefur Tinda- stóll unnið fyrstu tvo leiki sína í Domino’s-deildinni. Stólarnir taka á móti Haukum í kvöld. Deildar- meistarar síðasta tímabils unnu Val í 1. umferðinni en töpuðu sannfærandi fyrir ÍR í síð- ustu umferð. Þriggja stiga nýting Hauka í þeim leik var aðeins 13%. T i n d a s t ó l l v a n n örugga sigra á Þór Þ. og Val í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum. Stólarnir hafa haldið mótherjum sínum í aðeins 70,5 stigum og þriggja stiga nýting Þórsara og Vals- manna gegn þeim var afleit. Í DHL-höllinni mætast Íslands- meistarar síðustu fimm ára, KR, og Þór Þ. KR vann Skallagrím í 1. umferðinni en tapaði fyrir Keflavík í hörkuleik í síðustu umferð. Bandaríkja- maðurinn Julian Boyd fór mikinn í báðum leikj- unum. Hann skoraði 37 stig gegn Borg- nesingum og 31 stig gegn Kefl- víkingum. Þ ó r h e f u r aftur á móti tapað báðum leikjum sínum á tíma- bilinu, fyrir Tindastóli og Njarðvík. Í stórleik 3. umferðarinnar etur Grindavík kappi við Keflavík. Bæði lið eru með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Grindvíkingar hafa sagt upp samningum þeirra Terrells Vinson og Michalis Liapis. Lewis Clinch hefur verið orðaður við endurkomu í gula búninginn en ekki liggur fyrir hvort hann, eða annar Bandaríkja- maður, leiki með Grindavík í kvöld. Keflavík tapaði fyrir Njarðvík í 1. umferðinni en vann KR í síðustu viku þar sem Reggie Dupree fór mik- inn á lokakaflanum. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15. – iþs Geta byrjað á þremur sigrum í fyrsta sinn síðan 2009 Logi Gunnarsson, leik- maður Njarðvíkur. FRéttABLAðið/ERNiR 1 8 . o K t ó b e r 2 0 1 8 F i M M t u D a G u r26 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð sport 1 8 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 1 B -6 8 2 4 2 1 1 B -6 6 E 8 2 1 1 B -6 5 A C 2 1 1 B -6 4 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.