Fréttablaðið - 29.10.2018, Qupperneq 2
Veður
Sunnan 3-8 og skúrir eða él. Þurrt og
bjart veður á Norður- og Austur-
landi. Hiti 0 til 5 stig. sjá síðu 20
Stórsigur Einherja
Stórsigur Þessar klappstýrur léku listir sínar fyrir áhorfendur þegar Einherjar
unnu 50-0 sigur á þýska liðinu Cologne Falcons í amerískum fótbolta um helgina.
Næsti leikur Einherja fer fram á Akranesi í nóvember. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
FLÓÐKASTARAR
IK07 3000K 4000KIP65
Rafvirkjar
Jóhann Ólafsson & Co 533 1900 | olafsson.is
sAMFÉLAG „Við erum að leggja loka-
hönd á þetta og flokka titlana eftir
kúnstarinnar reglum svo allir finni
sína flokka og bækur með sem
skilvirkustum hætti,“ segir Bryn-
dís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra
bókaútgefenda en Bókatíðindi
koma út um miðjan næsta mánuð.
Bryndís segir að þótt Bókatíð-
indi séu ekki hávísindaleg gefi þau
nokkuð áþekka sýn á stöðu bókaút-
gáfu á Íslandi ár frá ári. Ritið er gefið
út í um 120 þúsund eintökum og er
dreift á öll heimili sem ekki frábiðja
sér fjölpóst.
„Útgáfan í ár er í heildina áþekk
miðað við síðustu ár ef litið er á
fjölda prentaðra titla. Við erum hins
vegar að sjá aukningu í útgáfu raf-
og hljóðbóka. Annars er þetta frekar
stórt íslenskt skáldsagnaár og fræði-
bækur eru með fjölbreyttasta móti.“
Prentaðir titlar í Bókatíðindum
ársins eru 610 en Bryndís telur að
heildarútgáfa á landinu sé á áttunda
hundrað titla. Til samanburðar hafi
fjöldi titla farið yfir þúsund rétt fyrir
hrun.
„Það sem einkennir stétt bókaút-
gefenda er óhófleg bjartsýni og
ástríða. Þessi bransi er kannski
knúinn meira af ástríðu en aðrir
bransar.“
Þegar Bryndís horfir yfir útgáfu
ársins segir hún margt spenn-
andi í boði. „Þarna eru okkar stóru
kanónur en ég hvet fólk líka til að
gefa nýliðum tækifæri.“
Þegar kemur að barna- og ung-
mennabókum eru titlarnir í ár fleiri
í heildina en undanfarin ár. „Það
er búin að vera gríðarleg umræða
um mikilvægi lesturs, bæði í fjöl-
miðlum, skólum, stjórnmálum og í
samfélaginu. Þarna hefur verið viss
hnignun sem við þurfum að snúa
við. Það er hægt að greina samtaka-
mátt hvað það varðar í fleiri barna-
bókatitlum.“
Hún segir að fólk vilji gera vel á
þessu sviði. „Barnabækur eru flókn-
ar markaðslega séð. Þarna eru tveir
markhópar. Fullorðnir sem kaupa
bækurnar og börnin sem lesa þær.
Smekkur þeirra fer ekki endilega
saman.“
Næsta verkefni Bryndísar eftir
að Bókatíðindin hafa komið út er
Bókamessa í Hörpu sem haldin
verður 24. – 25. nóvember. „Þátt-
takan í ár er meiri en áður, við
höfum aldrei selt fleiri pláss. Það er
greinilega hugur í mönnum.“
sighvatur@frettabladid.is
Útgefendur séu fullir
óhóflegrar bjartsýni
Bókatíðindi koma út um miðjan næsta mánuð en prentaðir titlar eru rúmlega
600. Aukning í útgáfu raf- og hljóðbóka. Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra
bókaútgefenda segir að óhófleg bjartsýni og ástríða einkenni bókaútgefendur.
bryndís loftsdóttir segir að margt spennandi sé að finna í bókaútgáfu ársins
sem telur um 600 prentaða titla. bókatíðindi koma brátt. Fréttablaðið/EyÞÓr
Lestur er leikur
Í könnun sem Zenter
gerði fyrir Félag
íslenskra bókaútgef-
enda eftir síðustu jól
kom í ljós að …
n tæp 59 prósent
Íslendinga 18 ára
og eldri fengu að
minnsta kosti eina
bók í jólagjöf.
n hver einstaklingur
18 ára og eldri fékk
að meðaltali 1,1
bók í jólagjöf en
keypti 2,1 bók til
gjafa en af þeim
voru 1,4 barna- eða
unglingabækur.
n hver Íslendingur las
að meðaltali rúm-
lega ellefu bækur á
síðasta ári.
LöGreGLuMáL Rann sókn á and láti
karl manns sem fannst látinn í tjörn
við Tón listar skólann í Hafnar firði í
gær mun taka sinn tíma. Það sagði
Margeir Sveins son, að stoðar yfir lög-
reglu þjónn mið lægrar rann sóknar-
deildar lög reglu, í sam tali við Frétta-
blaðið. Maðurinn sem fannst látinn
var á sex tugs aldri.
Lík mannsins fannst um há degis-
bil en Margeir segir að gangandi
veg far endur hafi komið að því og
hringt í Neyðar línuna. Ekki sé út lit
sé fyrir að dauða hans hafi borið
að með sak næmum hætti að svo
stöddu en allir þættir verði rann-
sakaðir.
Í kjöl far þess að líkið fannst var
stórt svæði í kringum tón listar-
skólann og kirkjuna sem þar er girt
af og fólki meinaður að gangur að
því. Að gerðir lög reglu á svæðinu í
gær stóðu yfir í um það bil klukku-
stund. – dfb
Vegfarendur
komu að líkinu
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M á N u D A G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Lö G r eG Lu M áL H é ra ð s d ó m u r
úrskurðaði fyrir helgi karlmann
á sextugsaldri í vikulangt gæslu-
varðhald. Lögregla rannsakar
meint peningaþvætti mannsins og
krafðist gæsluvarð-
halds á grundvelli
rannsóknarhags-
muna. Maðurinn
er sagður hafa
áður komið við
sögu hjá lögreglu.
Hann var handtekinn
á fimmtudag.
Þá hefur hald verið lagt á verulega
fjármuni. Fasteign mannsins var
kyrrsett, hald lagt á bankareikninga
og ökutæki sem og töluvert magn
af lyfseðilsskyldum lyfjum sem lög-
reglu grunar að hafi verið ætluð til
endursölu. Verðmæti eigna og fjár-
muna sem kyrrsett hafa verið og
haldlagðar vegna málsins hleypur á
tugum milljóna. – þea
Gæsluvarðhald
og haldlagning
Fleiri myndir frá leik Einherja er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-
appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PlúS
tækNi Snap, fyrirtækið sem rekur
Snapchat, stendur illa vegna sífellt
harðnandi sam-
keppni við Insta-
gram og Whats-
App. Techcrunch
greindi frá því í
gær að Snap ætti
nú eignir að verð-
mæti 1,4 millj-
arðar bandaríkjadala og vísaði til
þess mats greiningarfyrirtækisins
Moffet Nathanson að fyrirtækið
myndi tapa 1,5 milljörðum á næsta
ári. Áður höfðu greinendur spáð því
að fyrirtækið hætti að tapa pening-
um árið 2020, jafnvel 2021, og eru
horfur því afar slæmar.
Vegna þessarar samkeppni hefur
Snapchat til að mynda tapað þrem-
ur milljónum daglegra notenda á
síðasta ársfjórðungi. Auk þess nota
færri Snap Map en vonir stóðu til og
efnisveita Snapchat hefur ekki vakið
mikla lukku. – þea
Dökkar horfur
hjá Snapchat
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-8
7
F
C
2
1
3
5
-8
6
C
0
2
1
3
5
-8
5
8
4
2
1
3
5
-8
4
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K