Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI DODGE Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
7 MANNA (SJÖ FULLORÐNIR) LÚXUS JEPPI HLAÐINN BÚNAÐI. ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU
Hentar vel fyrir ferðaþjónustuaðila (hægt að fá niðurfellingu vörugjalda). 32” dekk passa beint undir bílinn. 33” breyting kostar kr. 380.000.
DODGE DURANGO GT PREMIUM
dodge.is
STAÐALBÚNAÐUR GT PREMIUM M.A.: 7 manna og fer vel um fullorðna í þriðju sætaröðinni, fjarstart, leðursæti, lykillaust aðgengi, upphitað stýrishjól, 20” álfelgur, hiti í fram- og aftursætum,
8,4” snerti- upplýsingaskjár/aksturstölva , minni í bílstjórasæti, útvarpi og speglum, rafdrifin framsæti, blindhornsvörn, þakbogar með innbyggðum þverbogum, rafmagns afturhleri, Beats
hljómkerfi með 9 hátalara og bassaboxi, rafdrifin sóllúga o.m.fl. AUKABÚNAÐUR: Bluray DVD kerfi og málmlitur.
NeyteNdur Breki Karlsson, for-
stöðumaður Stofnunar um fjármála-
læsi, var í gær kjörinn formaður
Neytendasamtakanna. Breki fékk
53 prósent atkvæða. Samtökin
höfðu verið án formanns frá því
Ólafur Arnarson sagði af sér for-
mennsku fyrir rúmu ári.
Að sögn Breka mun hann leggja
áherslu á þrennt. „Það er í fyrsta lagi
innra starf. Þar þurfum við að efla
faglegheit og byggja okkar vinnu á
gögnum og rannsóknum. Í því skyni
þurfum við að stórefla neytenda-
rannsóknir á Íslandi,“ segir hann. Í
öðru lagi þurfi að styrkja samband
við önnur hagsmunasamtök, bæði
heima og í útlöndum, og í þriðja lagi
segir Breki að efla þurfi miðlun. „Við
þurfum að auka neytendafræðslu og
miðla því góða starfi sem Neytenda-
samtökin eru að vinna.“ – þea
Breki kjörinn
formaður
SlyS Erlendur ferðamaður lést í
árekstri jepplings og fólksbíls á
Reykjanesbraut við Vallahverfið í
Hafnarfirði í gærmorgun. Ferðamað-
urinn var farþegi í öðrum bílnum.
Hann var fluttur á Landspítalann
eftir slysið en úrskurðaður látinn
þegar þangað var kominn. Ökumenn
voru einnig fluttir á slysadeild. Ekki
er talið að þeir hafi slasast alvarlega.
Hópur sem kallar sig Stopp,
hingað og ekki lengra íhugar að loka
Reykjanesbrautinni til þess að mót-
mæla því hversu hægt hefur gengið
að tvöfalda brautina. Hópurinn
hefur ítrekað þrýst á stjórnvöld að
klára málið. – þea / bsp
Íhuga að loka
Reykjanesbraut
Breki Karlsson. FréttaBlaðið/Vilhelm
SamgöNgur Birta ætti upplýsingar
um flugveðurskilyrði á ensku sem
og notkunarleiðbeiningar fyrir
flugmenn á vefsíðu Veðurstofunn-
ar. Einnig ætti að gera flugvöllinn á
Höfn að millilandaflugvelli. Þessar
tillögur birti Rannsóknarnefnd
samgönguslysa (RNSA) í skýrslu um
atvik sem átti sér stað þann 4. júlí
2014 á Austurlandi.
Flugmaður á vél sem hann byggði
sjálfur og var að fljúga í kringum
hnöttinn hafði þá flogið frá Vágum
á Færeyjum til Egilsstaða. Áður en
hann lagði af stað frá Færeyjum
hafði hann fengið upplýsingar um
að léttskýjað yrði um miðnætti á
Egilsstöðum og samkvæmt því sem
flugmaðurinn tjáði RNSA mat hann
aðstæður nógu góðar til flugs. Vélin
lenti hins vegar í afar slæmu skyggni
yfir Austfjörðum og þar sem hún var
ekki útbúin til blindflugs sendi flug-
maðurinn út neyðarkall.
Að því er fram kemur í skýrsl-
unni taldi veðurfræðingur að flug-
völlurinn á Höfn hefði hentað mun
betur til lendingar þennan dag. Sá
flugvöllur er hins vegar ekki milli-
landaflugvöllur.
Einnig kemur fram að upplýs-
ingar um flugveðurskilyrði birtist
eingöngu á íslensku en í upplýsing-
unum sem birtust þennan dag kom
fram að skilyrði yrðu slæm á svæð-
inu. – þea
Vilja að völlurinn á Höfn verði millilandaflugvöllur
Flugmaðurinn átti í basli með
að lenda á egilsstöðum enda var
skyggni slæmt. FréttaBlaðið/Vilhelm
reyKJaVÍK Innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar (IER) skilaði
rekstrarúttekt um skrifstofu eigna
og atvinnuþróunar (SEA) árið 2015.
Sem stendur er unnið að annarri
úttekt á starfsemi SEA af sama aðila
en að þessu sinni vegna framúr-
keyrslu við byggingu braggans við
Nauthólsveg. Í eldri skýrslunni
kemur fram að starfsmenn SEA eigi
í „þó nokkrum“ samskiptum við
borgarstjóra.
Í skýrslunni eru taldar upp þrjá-
tíu ábendingar um það sem betur
mætti fara og eru þær jafn misjafnar
og þær eru margar. Í kjölfar þess að
skýrslunni var skilað var skipaður
starfshópur til að fara yfir ábending-
arnar og gera tillögur um úrbætur.
„Ég er ekki með nákvæma tölu um
það hver stór hluti ábendinganna
hefur verið afgreiddur. Ég kom inn
í hópinn þegar ég tók við á síðasta
ári og það eru útistandandi ýmis af
þessum verkefnum. Áfangaskýrslu
var skilað í sumar og unnið er að því
að stilla allt af,“ segir Stefán Eiríks-
son borgarritari. Hann tók sæti í
hópnum þegar hann tók við sem
borgarritari í fyrra.
Stefán segir þá vinnu sem eftir
er unna í miklu samráði SEA, fjár-
málaskrifstofu og umhverfis- og
skipulagssviðs (USK). Aðspurður
segir hann að búið sé að afgreiða um
fjórðung til þriðjung þeirra ábend-
inga sem fram komu í úttekt SEA.
Í úttekt IER er meðal annars vikið
að stjórnskipulegri stöðu SEA. Skrif-
stofan heyri undir borgarritara
og borgarstjóra. Vikið er að því að
engar formlegar verklagsreglur gildi
um fyrirkomulag samskipta SEA við
áðurnefndu embættin tvö.
„Í viðtölum við starfsmenn SEA
kom fram að [þáverandi] borgar-
ritari hafi frekar lítil afskipti af SEA,
þó einna helst við skrifstofustjóra.
Aftur á móti eru starfsmenn SEA í þó
nokkrum samskiptum við borgar-
stjóra í tengslum við verkefni sem
þeir vinna að,“ segir í skýrslunni. Þá
segir fyrr í skýrslunni að starfsmenn
SEA eigi í miklum samskiptum við
borgarstjóra, USK, fjármálaskrif-
stofu, borgarlögmann og fagsvið.
Aðspurður um hvort breyting hafi
orðið á samskiptum SEA við borgar-
ritara og borgarstjóra segir Stefán
að hann þekki ekki nákvæmlega
samanburðinn á því þar sem hann
tók við í fyrra. „Það er ágætis sam-
vinna milli aðila sem hittast reglu-
lega á fundum. Ég held það sé engin
grundvallarbreyting á fyrirkomu-
laginu og ekkert óeðlilegt við það.“
„Það er ljóst að IER hefur gert
margar athugasemdir við SEA og
það er líka ljóst að þeim ábend-
ingum hefur ekki verið sinnt nema
að hluta. Þessi strúktúr í borginni
er greinilega í ólagi, um það er ekki
lengur deilt. Að það taki þrjú og
hálft ár að fá formleg viðbrögð er
alltof langur tími,“ segir Eyþór Arn-
alds, oddviti Sjálfstæðisflokksins.
„Ef ekkert hefur breyst varðandi
það að borgarstjóri var með afskipti
af einstökum verkefnum SEA þá
kallar það á spurningar varðandi
aðkomu borgarstjóra að þeim
verkefnum sem hafa farið fram úr
kostnaðaráætlun,“ segir Eyþór.
joli@frettabladid.is
Tekið rúm þrjú ár að afgreiða
tillögur innri endurskoðunar
Innri endurskoðun borgarinnar skilaði úttekt um skrifstofu eigna og atvinnuþróunar fyrir rúmum þremur
árum. Þrjátíu ábendingar um úrbætur var þar að finna. Áfangaskýrslu starfshóps sem vinnur úr ábending-
unum var skilað í sumar. Í skýrslunni segir að borgarstjóri eigi í þó nokkrum samskiptum við skrifstofuna.
innri endurskoðun reykjavíkurborgar vinnur nú að úttekt vegna braggans við Nauthólsveg 100. FréttaBlaðið/aNtON
Ég er ekki með
nákvæma tölu um
það hver stór hluti ábending-
anna hefur verið afgreiddur.
Stefán Eiríksson,
borgarritari
2 9 . o K t ó b e r 2 0 1 8 m Á N u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-9
B
B
C
2
1
3
5
-9
A
8
0
2
1
3
5
-9
9
4
4
2
1
3
5
-9
8
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K