Fréttablaðið - 29.10.2018, Side 6
Tölur úr bókhaldi fyrirtækisins
n 152.916 eldis-
laxar voru í
sjókví Fjarða-
lax í Tálknafirði
áður en slysa-
sleppingin
varð í byrjun
júlí. (Óyfirfarin
gögn frá Arnar-
laxi)
n 143.284
löxum var
slátrað upp úr
kvínni, slátrun
lauk í byrjun
október.
(Óyfirfarnar
upplýsingar frá
Arnarlaxi)
n 4.651 lax
drapst í
þessari einu
kví á slátur-
tímabilinu.
(Óyfirfarnar
upplýsingar frá
Arnarlaxi)
= Ekki vitað um afdrif 4.981 lax á þessu tímabili
FISKELDI Svo virðist sem hvorki Mat-
vælastofnun né fyrirtækið Fjarðalax,
dótturfyrirtæki Arnarlax, viti hversu
mikið af laxi slapp úr kví fyrir-
tækisins í byrjun júlí þegar göt upp-
götvuðust á einni kvínni. Fyrirtækið
heldur fram að aðeins 300 fiskar hafi
sloppið. Aftur á móti veit enginn um
afdrif hátt í 5.000 laxa.
„Fyrirtækið áætlar að það séu um
300 fiskar sem hafa sloppið. Okkur
þykja óvissuþættirnir vera það stórir
að við getum ekki áætlað um fjölda
fiska sem farið hafa úr kvínni. Hvort
þau séu hundruð eða þúsund,“ segir
Erna Karen Óskarsdóttir, fagsviðs-
stjóri fiskeldis hjá Matvælastofnun.
Slátrun upp úr kvínni lauk í byrjun
þessa mánaðar, um 90 dögum eftir
að göt fundust á kvínni. Samkvæmt
gögnum fyrirtækisins voru tæplega
153.000 laxar í kvínni þegar óhappið
varð. Um 143.000 fiskum var slátrað
upp úr kvínni. Fyrirtækið segir tæp-
lega 5.000 fiska hafa drepist og 300
hafi sloppið. Eftir stendur 4.981 lax
sem hvorki drapst, slapp né var slátr-
að upp úr kvínni og enginn veit um.
Samkvæmt tölum fyrirtækisins
drapst 4.651 fiskur. Það gerir um
1.500 fiska á mánuði á tímabilinu.
Ef hver fiskur var 4 kíló að meðaltali
hafa tæp 18,6 tonn af fiski drepist í
kvíunum á þremur mánuðum.
Erna telur Matvælastofnun ekki
í stakk búna til að sinna skyldum
sínum um eftirlit með fiskeldi. Efla
þurfi stofnunina. Um 60 aðilar hafi
rekstrarleyfi til fiskeldis en einungis
einn starfsmaður vinni við eftirlit.
„Fyrst og fremst verðum við að fá
inn fjármagn til að ráða starfsfólk til
að auka eftirlit með fiskeldi. Til við-
bótar, ef frumvarp um fiskeldi sem
stendur til að leggja fyrir þingið á
næstunni verður að lögum, munum
við fá aukin verkefni, til dæmis
mánaðarlegar upplýsingar frá fisk-
eldisfyrirtækjum og við þurfum
auðvitað mannskap til að yfirfara
þessar tölur. Eins og staðan er í dag
er ég ein í þessu starfi sem er bagalegt
fyrir stofnun með alla þessa ábyrgð,“
segir Erna. sveinn@frettabladid.is
Ekki mannskapur til
að hafa eftirlit með eldi
Á bilinu 300 til 5.000 laxar sluppu úr sjókví í Tálknafirði í júlí. MAST hefur ekki
burði til að sannreyna tölur um fjölda laxa í kvínni þegar göt uppgötvuðust, eða
fjölda laxa sem drápust eða sluppu. Einn starfsmaður hefur eftirlit með laxeldi.
Fagsviðsstjóri segir MAST ekki hafa burði til að sinna lögbundnum skyldum um eftirlit með fiskeldi. MYND/JóN ÖrN
Sumarið 2014
n Eldislax sleppur
frá Fjarðalaxi
í Patreksfirði.
Samkvæmt
rannsókn Veiði-
málastofnunar
fyrir Fiskistofu
á þeim löxum
sem veiddust í
Patreksfirði það
sumar eru líkur
á að laxarnir hafi
komið úr fleiri en
einni slysaslepp-
ingu.
Sumarið 2016
n Nokkurt magn
regnbogasilungs
veiðist í ám á
Vestfjörðum auk
þess sem hann
veiðist í Vatns-
dalsá, Haffjarðará
og í Hítará á
Mýrum í Borgar-
firði. Málið kært
til lögreglu.
Febrúar 2017
n Göt finnast á
kví Arctic Sea
Farm í Dýrafirði.
Ekki ljóst hversu
mikið af fiski
slapp út í lífríkið.
Matvælastofnun
rannsakar málið.
Febrúar 2018
n Slys hjá Arnarlaxi
þar sem eldiskví
með um 500
tonnum af eldis-
laxi marar í hálfu
kafi í Tálknafirði.
Göt reynast svo á
kvínni þegar hífa
þarf hana upp til
viðgerðar. Færa
þarf lax á milli
kvía og drepast
um 50.000 laxar
í þeirri aðgerð.
Forsvarsmenn
fyrirtækisins
viðurkenna
þau mistök að
tilkynna Um-
hverfisstofnun
ekki um óhöpp.
Júlí 2018
n Göt finnast á
kví Arnarlax í
Tálknafirði. Óvíst
er hversu mikill
fiskur slapp á haf
út.
September 2018
n Regnboga-
silungur sleppur
úr eldisstöð á
Húsavík og í frá-
veitukerfi. Ekki
vitað hvort fiskur
hafi náð á haf út
en líkur benda til
þess.
26. október 2018
n Ljóst þykir að
mikið magn eld-
islax hafi sloppið
úr kví Fjarðalax í
Tálknafirði í júlí.
Fyrirtækið telur
að um 300 fiskar
hafi sloppið.
Matvælastofnun
getur ekki sann-
reynt þá tölu og
telur jafnframt
að fjöldi fiska
sem slapp sé
umtalsvert hærri.
Tæplega 5.000
fiskar drápust í
sumar og haust
samkvæmt fyrir-
tækinu.
✿ Atburðarásin
Svör Arnarlax
Samkvæmt Arnarlaxi
hafa fáir fiskar sloppið.
Mun fleiri fiskar hafi
drepist og leyst upp í
sjónum. Þetta kemur
fram í skýrslu Arnarlax
til Matvælastofnunar,
þann 9. október síðast-
liðinn.
„Fiskur er fljótur að
rotna, þar sem það
tók langan tíma að
fjarlægja öll afföll í
kringum atburða-
rásina í febrúar og má
þá gera ráð fyrir því að
eitthvað af afföllunum
hafi einfaldlega leyst
upp,“ segir í skýrsl-
unni.
2 9 . o K t ó b E r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
Miðvikudaginn 31/10 kl 15–17
Í aðalmyndveri RÚV, Útvarpshúsinu við Efstaleiti
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna á málþingið. Fjallað
verður um lífsstíl og miðlanotkun yngri kynslóða, stefnu og
þjónustu RÚV og framúrskarandi erlendir gestir miðla af
reynslu sinni.
Hvaða möguleikar liggja í samstarfi á sviði fræðslu- og
menntamála, menningar- og samfélagsmála? Hvaða
tækifæri felast í nýrri tækni og hvernig styður RÚV við
íslenskt mál?
Fundurinn verður í beinni á RÚV.is og RÚV 2.
Nánari upplýsingar og skráning á ruv.is
15:00 Stutt ávarp
Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta – og
menningarmálaráðherra
15:10 Stefna RÚV og miðlanotkun yngri kynslóða
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri,
Hildur Harðardóttir frkvstj. samskipta,
notenda og þróunar og Valgeir Vilhjálmsson,
markaðsrannsóknastjóri
15:20 Fyrst og fremst í þjónustu við börn og ungt fólk.
Alice Webb, BBC Children
Hildri Gulliksen, NRK Super
16:00 KrakkaRÚV, RÚVnúll og mikilvægi samstarfs
Sindri Bergman og Sigyn Blöndal, KrakkaRÚV
Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri
barnamenningar, Reykjavíkurborg
Atli Már Steinarsson og Helga Margrét
Höskuldsdóttir, RÚVnúll
16:40 Pallborðsumræður
17:00 Fundarlok
Fundarstjóri Baldvin Þór Bergsson
Dagskrá
NÆST Á DAGSKRÁ
MÁLÞING UM BÖRN, UNGT
FÓLK OG FJÖLMIÐLUN TIL
FRAMTÍÐAR
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-A
F
7
C
2
1
3
5
-A
E
4
0
2
1
3
5
-A
D
0
4
2
1
3
5
-A
B
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K