Fréttablaðið - 29.10.2018, Page 8
Bretland Vichai Srivaddhanap-
rabha, hinn taílenski eigandi fyrir-
tækisins King Power sem á enska
knattspyrnufélagið Leicester City,
var um borð í þyrlu sem hrapaði
fyrir utan King Power-leikvanginn í
Leicester eftir leik félagsins við West
Ham United í ensku úrvalsdeildinni
á laugardaginn. Ásamt honum voru
dóttir hans, tveir flugmenn og einn
annar sem ekki er orðið opinbert
hver er um borð. Reuters greindi frá
í gær og hafði eftir heimildarmönn-
um. Enn hefur ekkert verið gert opin-
bert um afdrif fimmmenninganna.
Sá orðrómur hafði verið á kreiki
að Claude Puel, knattspyrnustjóri
Leicester City, og Gareth Southgate,
sem stýrir enska landsliðinu, hefðu
verið í þyrlunni. Það reyndist rangt.
Eigandinn ferðast venjulega með
þyrlu á leiki liðsins og tekur þyrlan
síðan á loft af grasinu eftir leikinn.
Samkvæmt því sem sjónarvottar
hafa sagt um slysið var þyrlan rétt
komin upp fyrir stúkuna þegar
hún fór að riða til í loftinu. Síðan
brotlenti hún á bílastæði fyrir utan
leikvanginn. „Á fáeinum sekúndum
hrapaði þyrlan til jarðar eins og
grjót. Sem betur fer snerist hún í loft-
inu í dálítinn tíma þannig að fólk á
jörðu niðri gat forðað sér,“ sagði einn
sjónarvotta við Reuters.
Stuðningsmenn Leicester og
raunar knattspyrnuheimurinn allur
er í sárum vegna slyssins. Fjölmargir
hafa safnast saman fyrir utan King
Eigandi Leicester í þyrlu sem hrapaði
Fimm voru í þyrlunni sem hrapaði fyrir utan leikvang Leicester City á laugardaginn. Knattspyrnuheimurinn harmi sleginn eftir slysið.
Ekkert orðið opinbert um ástand fimmmenninganna. Frá því Vichai keypti félagið fyrir átta árum hefur það unnið ótrúleg afrek.
Ban darí ki n Robert Gregory
Bowers, sem var handtekinn á
laugardag og er ákærður fyrir að
hafa myrt ellefu sóknarbörn í sam-
kunduhúsi gyðinga í bandarísku
borginni Pittsburgh, tjáði megnt
hatur sitt á gyðingum bæði á meðan
hann á að hafa verið að skjóta á gyð-
inga í sýnagógunni og við lögreglu-
menn eftir að hann var handtekinn.
Þetta segir í ákærunni sem birt var
í gær og er þar meðal annars haft
eftir Bowers: „Ég vildi bara drepa
gyðinga.“
Auk þess að vera ákærður í ellefu
liðum fyrir „tálmun á trúfrelsi með
banvænum afleiðingum“ er Bowers
meðal annars ákærður í ellefu
liðum fyrir að hafa notað skotvopn
í ofbeldisskyni og fyrir að hafa sært
sex með byssu sinni.
Scott Brady saksóknari sagði á
blaðamannafundi í gær að Bowers
færi fyrir dóm í dag. „Það að árásin
átti sér stað á meðan guðsþjónusta
fór fram gerir glæpinn enn svívirði-
legri,“ sagði Brady.
Tvö hinna særðu voru enn í lífs-
hættu í gær. Þrjú, þar af einn lög-
regluþjónn, voru enn á sjúkrahúsi
en ekki í lífshættu og einn lög-
regluþjónn til viðbótar hafði verið
útskrifaður af sjúkrahúsi.
Bowers hafði áður margsinnis tjáð
andúð sína á gyðingum á veraldar-
vefnum. Samkvæmt Reuters hafði
hann meðal annars gagnrýnt Donald
Trump forseta fyrir að koma ekki í
veg fyrir að gyðingar „sýktu“ Banda-
ríkin. Á laugardagsmorgun, áður en
Bowers á að hafa gert árásina, setti
hann inn færslu þar sem hann sak-
aði Hebrew Immigrant Aid Society,
samtök til hjálpar flóttamönnum
sem eru gyðingar, um að flytja inn
morðingja til Bandaríkjanna. „Ég get
ekki bara setið hjá og horft upp á þá
slátra fólkinu mínu. Til andskotans
með hvernig þetta lítur út, ég ætla að
grípa til aðgerða.“ – þea
Ákærði tjáði oftsinnis
hatur sitt á gyðingum
Bowers er ákærður fyrir að hafa myrt ellefu sóknarbörn. NordicPhotos/Getty
stuðningsmaður Leicester city krýpur við lítið Búddalíkneski fyrir utan leikvang knattspyrnuliðsins. NordicPhotos/AFP
Öskubuskuævintýrið
Eftir að hafa rétt svo sloppið við
fall úr úrvalsdeildinni var knatt-
spyrnustjórinn Nigel Pearson
rekinn árið 2015 og Claudio Rani-
eri ráðinn í hans stað. Ráðningin
var umdeild enda hafði Ranieri
nýlega verið rekinn úr starfi
knattspyrnustjóra gríska lands-
liðsins. Hafði liðið annars tapað
fyrir Færeyjum.
Væntingarnar voru því ekki
miklar. Mikið hefur verið fjallað
um að veðbankar hafi gefið
stuðulinn 5000/1 á að Leicester
City ynni deildina. Líkurnar voru
því taldar minni en á að Elvis
Presley fyndist á lífi eða að geim-
verur lentu á jörðinni.
En Leicester City byrjaði tíma-
bilið af krafti og vann og vann.
Vinsældir Ranieri jukust og var til
að mynda fjallað um það þegar
hann verðlaunaði varnarvinnu
liðsins með pitsuveislu.
Það voru svo fráfarandi
meistararnir í Chelsea sem
tryggðu Leicester City titilinn.
Þeir náðu að vinna upp tveggja
marka mun og gerðu 2-2 jafntefli
við Tottenham Hotspur, sem var
í öðru sæti í deildinni, og voru því
ekki nógu mörg stig eftir í pott-
inum fyrir Spurs til að hirða efsta
sætið af Leicester City.
Power-leikvanginn, lagt þar blóm-
sveiga og beðið fyrir heilsu fimm-
menninganna. Þá hafa margar af
skærustu stjörnum knattspyrnunn-
ar tjáð sig um málið á samfélags-
miðlum.
Leikmenn Leicester City hafa flest-
ir birt tíst með tjáknum (e. emojis)
sem sýna spenntar greipar. Það hafa
til dæmis varnartröllið Harry Magu-
ire og sóknarmaðurinn Jamie Vardy,
sem var lykilmaður í öskubusku-
ævintýrinu þegar liðið vann úrvals-
deildina afar óvænt árið 2016, gert.
„Ég svaf varla neitt í nótt. Þessi
maður hefur fært okkur upp úr ann-
arri deild og gefið okkur von. Án hans
værum við ekki í úrvalsdeildinni.
Hver veit hvar við værum? Hann
hefur haft mikil áhrif á líf allra hérna
í borginni,“ sagði Daniel Connell,
átján ára stuðningsmaður Leicester
City, við blaðamann The Guardian
fyrir utan leikvanginn.
Ian Stringer, íþróttablaðamaður
BBC, sagði andrúmsloftið á vellinum
drungalegt í kjölfar slyssins. „Ég hef
séð starfsfólk og liðsmenn hér tárvot
í kvöld. Það ríkir þögn. Fólk horfir í
kringum sig, grætur og veit ekki hvað
það á að gera,“ skrifaði Stringer á
laugardagskvöld.
thorgnyr@frettabladid.is
2 9 . o k t ó B e r 2 0 1 8 M Á n U d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-A
A
8
C
2
1
3
5
-A
9
5
0
2
1
3
5
-A
8
1
4
2
1
3
5
-A
6
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K