Fréttablaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 14
Handbolti „Þetta var frábær
frammistaða hjá liðinu og ég get
ekki annað en verið sáttur,“ sagði
landsliðsþjálfarinn Guðmundur
Guðmundsson í samtali við Frétta-
blaðið eftir stórsigur Íslands á
Tyrklandi, 22-33, í Ankara í undan-
keppni EM 2020 í gær.
Íslenska liðið byrjaði mun betur
en gegn Grikkjum á miðvikudaginn
og tók strax frumkvæðið í leiknum.
Íslendingar leiddu allan tímann og
eftir tólf mínútna leik var staðan
orðin 4-9, Íslandi í vil.
Tyrkir gáfust þó ekki upp og
hleyptu Íslendingum aldrei lengra
en fimm mörkum fram úr sér. Onur
Ersin var þeirra besti maður en
hann skoraði fjögur af fyrstu sjö
mörkum Tyrkja. Þegar liðin gengu
til búningsherbergja var munurinn
þrjú mörk, 13-16.
„Sóknin var góð allan leikinn en
við gerðum nokkur mistök í vörn-
inni í fyrri hálfleik. En hún varð
alltaf betri og betri og í seinni hálf-
leik sóttum við þá lengra út,“ sagði
Guðmundur.
Líkt og gegn Grikkjum byrjuðu
Íslendingar seinni hálfleikinn gegn
Tyrkjum af miklum krafti. Ísland
skoraði níu af fyrstu ellefu mörk-
unum í seinni hálfleik og náði tíu
marka forskoti, 15-25, þegar 17
mínútur voru eftir. Heimamenn
áttu í mestu vandræðum með að
leysa varnarleik Íslands og skoruðu
aðeins þrjú mörk á fyrstu 17 mínút-
um seinni hálfleiks.
Björgvin Páll Gústavsson var
rólegur í fyrri hálfleik en lék einkar
vel í þeim seinni. Hann varði alls 14
skot og skoraði að auki eitt mark
með skoti yfir endilangan völlinn.
Þegar upp var staðið munaði ell-
efu mörkum á liðunum. Lokatölur
22-33, Íslandi í vil og fjögur stig
komin í hús í undankeppni EM.
„Við vorum ógnandi alls staðar á
vellinum og fengum mörk úr öllum
stöðum,“ sagði Guðmundur sem var
að vonum ánægður með liðsheild
íslenska liðsins í leiknum í gær.
Ellefu Íslendingar skoruðu í leikn-
um í Ankara. Elvar Örn Jónsson var
þeirra markahæstur en hann skor-
aði níu mörk úr níu skotum. Frábær
frammistaða hjá Selfyssingnum sem
hefur heldur betur þakkað traustið
sem hann hefur fengið hjá Guð-
mundi sem var skiljanlega ánægður
með frammistöðu Elvars.
„Þetta var frábær leikur hjá
honum, virkilega góður,“ sagði
landsliðsþjálfarinn sem hrósaði
eldri og reyndari leikmönnum
Íslands fyrir þeirra framlag.
Björgvin Páll varði vel eins
og áður sagði, Aron Pálmarsson
skoraði sex mörk og dældi út stoð-
sendingum, Arnór Þór Gunnarsson
var traustur í hægra horninu, Rúnar
Kárason byrjaði af krafti og Ólafur
Gústafsson átti afar góðan leik í
miðri vörn Íslands.
„Ólafur er ákveðið akkeri í vörn-
inni. Þótt hann hafi ekki marga
landsleiki á bakinu hefur hann verið
lengi að og spilað með góðum liðum
erlendis,“ sagði Guðmundur um
Hafnfirðinginn sem hefur stimplað
sig aftur inn í landsliðið eftir erfið
meiðsli.
Næstu leikir Íslands í undan-
keppni EM eru ekki fyrr en í apríl
á næsta ári. Öll einbeiting fer nú á
heimsmeistaramótið sem hefst í
janúar. ingvithor@frettabladid.is
Undankeppni EM
tyrkland 22-33 Ísland
(13-16)
Mörk Íslands: Elvar Örn Jónsson
9, Aron Pálmarsson 6, Bjarki Már
Elísson 5, Arnór Þór Gunnarsson 4,
Rúnar Kárason 3, Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 1, Arnar Freyr Arnarsson 1,
Haukur Þrastarson 1, Stefán Rafn
Sigurmannsson 1/1, Sigvaldi Björn
Guðjónsson 1, Björgvin Páll Gúst-
avsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavs-
son 14.
Fimmta heimsmeistaratitlinum fagnað
Nálgast Schumacher Lewis Hamilton (Mercedes) varð í gærkvöldi heimsmeistari ökuþóra í fimmta sinn og í fjórða sinn á síðustu fimm árum.
Hamilton varð fjórði í Mexíkókappakstrinum en honum nægði að vera meðal sjö efstu til að tryggja sér heimsmeistaratitilinn. Hann hefur nú orðið
heimsmeistari jafn oft og Juan Manuel Fangio en Michael Schumacher er sá sigursælasti frá upphafi með sjö heimsmeistaratitla. nordicphotos/afp
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á n U d a G U r14 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
Frakkar náðu
fram hefndum
Handbolti Íslenska karlalandsliðið
í handbolta skipað leikmönnum 21
árs og yngri laut í lægra haldi fyrir
Frakklandi, 21-26, í seinni vináttu-
landsleik liðanna á Ásvöllum á
laugardaginn. Ísland vann fyrri leik
liðanna á föstudaginn, 28-24, eftir að
hafa verið tíu mörkum yfir í hálfleik,
17-7.
Líkt og í fyrri leiknum var Teit-
ur Örn Einarsson markahæstur í
íslenska liðinu í þeim seinni. Hann
skoraði sjö mörk. Birgir Már Birgis-
son og Sveinn Andri
Sveinsson skoruðu
þrjú mörk hvor
fyrir íslenska liðið.
– iþs
Engin vandamál í Ankara
Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði góða ferð til Tyrklands og vann ellefu marka sigur á heimamönn-
um, 22-33, í gær. Ísland hefur unnið báða leiki sína í undankeppni EM 2020 með samtals 25 marka mun.
Elvar Örn Jónsson var markahæstur í íslenska liðinu. fréttablaðið/Eyþór
9
mörk skoraði Elvar Örn
Jónsson í leiknum gegn tyrk-
landi í Ankara í gær.
Misstu af titli og
Evrópusæti
Fótbolti Glódís Perla Viggósdóttir
og stöllur hennar í Rosengård sáu
á eftir sænska meistaratitlinum í
hendur Piteå. Rosengård tapaði 4-2
fyrir Kopparbergs/Göteborg í loka-
umferðinni á laugardaginn á meðan
Piteå vann stórsigur á Våxjö, 6-1, og
tryggði sér þar með titilinn.
Rosengård var á toppnum fyrir
lokaumferðina og með sigri hefði
liðið orðið meistari. Hlutirnir fóru
hins vegar á versta mögulega veg.
Rosengård tapaði, datt niður í 3.
sæti deildarinnar og missti þar með
af Evrópusæti.
Rakel Hönnudóttir og Anna Björk
Kristjánsdóttir léku allan leikinn
fyrir Limhamn Bunkeflo sem
bjargaði sér frá falli með 1-0 sigri
á Djurgårdens. Limhamn Bunkeflo
vann fjóra af síðustu fimm leikjum
sínum á tímabilinu og endaði í 10.
sæti. Guðbjörg Gunnarsdóttir og
Ingibjörg Sigurðardóttir leika með
Djurgårdens sem endaði í 8. sætinu.
Sif Atladóttir var á sínum stað
í vörn Kristianstads sem gerði
markalaust jafntefli við Linköpings
á útivelli. Kristianstads, sem Elísa-
bet Gunnarsdóttir þjálfar, endaði
í 4. sæti deildarinnar sem er besti
árangur í sögu félagsins. Sif er
ein þriggja sem koma til greina
sem besti leikmaður tímabilsins í
sænsku deildinni. – iþs
Glódís og stöllur hennar fóru niður í
3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í
lokaumferðinni. fréttablaðið/Ernir
teitur Örn
Einarsson.
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-9
1
D
C
2
1
3
5
-9
0
A
0
2
1
3
5
-8
F
6
4
2
1
3
5
-8
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K