Fréttablaðið - 29.10.2018, Page 16
Fasteignasalarnir Magnús Már Lúðvíksson og Þorsteinn Yngvason ólust báðir upp á
Kársnesinu og taka fagnandi þeirri
uppbyggingu sem þar er hafin.
„Kópavogsbær hefur lagt mikinn
metnað í skipulag svæðisins og
verður hverfið með fjölbreyttum
íbúðum. Mikil áhersla er lögð á
vel skipulagðar íbúðir með góðri
nýtingu fermetra og fleiri her-
bergjum. Þá er mikill kostur að
nýja hverfið er að byggjast upp
við rótgróna hluta Kársnessins og
því stutt í alla þjónustu sem er nú
þegar á svæðinu,“ segir Þorsteinn.
Allt það helsta er til staðar á
Kársnesinu sem er einn fegursti og
gróðursælasti útsýnisstaður höfuð-
borgarsvæðisins.
„Í hverfinu eru spennandi hjóla-,
hlaupa- og göngustígar við sjávar-
síðuna, góðar samgönguleiðir og
fyrirhuguð er ný brú frá Kársnesi
yfir í miðbæ Reykjavíkur,“ upplýsir
Þorsteinn um heillandi hverfi þar
sem grunnskóli og leikskólar eru
í stuttu göngufæri. „Allt um kring
eru falleg útivistarsvæði, opin leik-
svæði og stutt er í helstu verslanir
og þjónustu sem og fjölbreytta
afþreyingu. Svæðið í heild mun
einkennast af nýjum íbúðum í
bland við atvinnubyggð, endur-
nýjuðu bryggjusvæði og hvarvetna
er nú gagnger uppbygging.“
Vandað til verka
Hafnarbraut 9 er nýtt og fallegt
fjölbýlishús með 24 íbúðum. Húsið
er á fjórum hæðum og með tvo
stigaganga. Tvær lyftur eru í húsinu
og stæði í lokaðri bílageymslu
fylgir öllum íbúðum ásamt raf-
magnstengli með hverju stæði.
„Íbúðirnar eru vandaðar og
hannaðar með fjölbreytt fjöl-
skyldumynstur í huga. Útsýni frá
íbúðunum er afar fallegt til sjávar
og yfir smábátahöfnina,“ útskýrir
Þorsteinn um glæsilegar íbúðir
sem eru tveggja til fjögurra her-
bergja, frá 59,3 fm til 172,4 fm að
stærð og er verð frá 38,9 milljónum
króna.
„Meðalstærð íbúða er 111 fer-
metrar með sérgeymslu sem fylgir
Úr nýju íbúðunum við Hafnarbraut er stórkostlegt útsýni yfir smábátahöfnina, til sjávar og Snæfellsjökuls. Þaðan verður indælt að horfa á sólarlagið frá einstaklega fögrum stað á höfuðborgarsvæðinu.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Framhald af forsíðu ➛
hverri íbúð. Við byggingu hússins
var lögð áhersla á að lágmarka við-
hald þess. Húsið er einangrað að
utan og að mestu klætt Cembrit-
klæðningu. Þak er klætt aluzinki
og flestir milliveggir íbúða eru
hlaðnir,“ upplýsir Þorsteinn.
Góðir fataskápar eru í forstofu
og svefnherbergjum.
„Í íbúðunum eru vandaðar inn-
réttingar frá HTH og blöndunar-
tæki frá Grohe. Innbyggð upp-
þvottavél og innbyggður ísskápur
með frysti eru í eldhúsi íbúða, og
eru sumar íbúðanna með eyju í
eldhúsi. Almennt er opið inn í
rúmgóða og bjarta stofu þar sem er
útgengt á svalir og flestar íbúðirnar
eru með sjávarsýn,“ segir Þor-
steinn.
Íbúðirnar afhendast án gólfefna,
nema að á baðherbergi er flísalagt
gólf og er hluti af veggjum bað-
herbergis flísalagður. Baðherbergi
eru með gólfhita, handklæðaofni,
upphengdu og innbyggðu salerni
ásamt flísalögðum sturtubotni og
sturtuhlið úr gleri.
„Áætlað er að íbúðir að Hafnar-
braut 9 verði afhentar á vormán-
uðum 2019. Sameign að utan og
lóð verða afhent á sama tíma og
bílageymsla verður afhent sam-
hliða íbúðum,“ segir Þorsteinn.
Lind fasteignasala sýnir íbúðirn-
ar að Hafnarbraut 9 eftir bókunum,
alla daga milli klukkan 12 og 13 og
eftir klukkan 16.30. Áhugasömum
er bent á að bóka skoðun hjá
Magnúsi, Þorsteini og Hannesi:
Magnús Már Lúðvíksson, lög-
giltur fasteignasali, í síma 699-2010
eða magnus@fastlind.is
Þorsteinn Yngvason, löggiltur
fasteignasali, í síma 696-0226 eða
thorsteinn@fastlind.is
Hannes Steindórsson, löggiltur
fasteignasali, í síma 699-5008 eða
hannes@fastlind.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . O K tÓ B E R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-A
5
9
C
2
1
3
5
-A
4
6
0
2
1
3
5
-A
3
2
4
2
1
3
5
-A
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K