Fréttablaðið - 29.10.2018, Page 36
BATE Borisov í Evrópudeildinni á
fimmtudaginn og hefur því skorað
fjögur mörk í síðustu tveimur leikj-
um Chelsea.
„Barkley hefur spilað mjög vel að
undanförnu,“ sagði Sarri eftir leik-
inn í gær. „Hann hefur bætt varnar-
leik sinn mikið sem og líkamlegt
ástand. Síðasta tímabil var erfitt
fyrir hann vegna alvarlegra meiðsla.
Hvað tæknilega hlutann varðar
er hann mjög góður leikmaður en
núna er frammistaða Barkley heil-
steyptari.“
Barkley er farinn að sýna sömu
takta og gerðu hann að einum mest
spennandi unga leikmanninum
í bransanum. Kraftur og hreysti í
bland við góða boltameðferð urðu
til þess að honum var jafnan líkt við
Paul Gascoigne.
Barkley sló í gegn tímabilið 2013-
14 þegar Everton var nálægt því að
tryggja sér sæti í Meistaradeild Evr-
ópu. Hann lék sinn fyrsta landsleik
haustið 2013 og var í enska hópnum
sem fór á HM 2014.
Einhvers staðar á leiðinni staðn-
aði Barkley. Hann missti sæti sitt í
enska landsliðinu og óskaði eftir
sölu frá Everton. Meiðsli settu líka
stórt strik í reikninginn og hann
missti nánast heilt tímabil úr.
En Barkley er ekki lengur gleymd-
ur og grafinn. Hann er í stóru hlut-
verki hjá Chelsea sem hefur byrjað
tímabilið betur en flestir þorðu að
vona. Þegar tíu umferðir eru búnar
er Chelsea í 2. sæti ensku úrvals-
deildarinnar með 24 stig, tveimur
stigum á eftir toppliði Liverpool.
Þá er Barkley kominn aftur í
enska landsliðið og byrjaði leikina
gegn Króatíu og Spáni í Þjóðadeild-
inni og spilaði vel.
ingvithor@frettabladid.is
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 10. umferðar 2018-19
Brighton - Wolves 1-0
1-0 Glenn Murray (48.).
Fulham - Bournemouth 0-3
0-1 Callum Wilson, víti (14.), 0-2 David Brooks
(72.), 0-3 Wilson (85.).
Rautt spjald: Kevin McDonald, Fulham (73.).
Liverpool - Cardiff 4-1
1-0 Mohamed Salah (10.), 2-0 Sadio Mané
(66.), 2-1 Callum Paterson (77.), 3-1 Xherdan
Shaqiri (84.), 4-1 Mané (87.).
S’oton - Newcastle 0-0
Watford - Huddersfield 3-0
1-0 Roberto Pereyra (10.), 2-0 Gerard
Deulofeu (19.), 3-0 Isaac Success (80.).
Leicester - West Ham 1-1
0-1 Fabián Balbuena (30.), 1-1 Wilfried Ndidi
(89.).
Rautt spjald: Mark Noble, West Ham (38.).
Burnley - Chelsea 0-4
0-1 Álvaro Morata (22.), 0-2 Ross Barkley (57.),
0-3 Willian (62.), 0-4 Ruben Loftus-Cheek
(90+2.).
C. Palace - Arsenal 2-2
1-0 Luka Milivojevic, víti (45+1.), 1-1 Granit
Xhaka (51.), 1-2 Pierre-Emerick Aubameyang
(56.), 2-2 Milivojevic, víti (83.).
Man. Utd. - Everton 2-1
1-0 Paul Pogba (27.), 2-0 Anthony Martial
(49.), 2-1 Gylfi Þór Sigurðsson, víti (77.).
Tottenham og Manchester City mætast í loka-
leik 10. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar
klukkan 20:00 í kvöld.
FÉLAG L U J T MÖRK S
Liverpool 10 8 2 0 20-4 26
Chelsea 10 7 3 0 24-7 24
Man. City 9 7 2 0 26-3 23
Arsenal 10 7 1 2 24-13 22
Tottenham 9 7 0 2 16-7 21
B’mouth 10 6 2 2 19-12 20
Watford 10 6 1 3 16-12 19
Man. Utd. 10 5 2 3 17-17 17
Everton 10 4 3 3 16-14 15
Wolves 10 4 3 3 9-9 15
Brighton 10 4 2 4 11-13 14
Leicester 10 4 1 5 16-16 13
West Ham 10 2 2 6 9-15 8
C. Palace 10 2 2 6 7-13 8
Burnley 10 2 2 6 10-21 8
S’oton 10 1 4 5 6-14 7
Cardiff 10 1 2 7 9-23 5
Fulham 10 1 2 7 11-28 5
Newcastle 10 0 3 7 6-14 3
Huddersf. 10 0 3 7 4-21 3
Ekki lengur gleymdi maðurinn
Eftir erfiða tíma hefur Ross Barkley gengið í endurnýjun lífdaga eftir að ítalski stjórinn Maurizio Sarri tók
við Chelsea. Barkley lét mikið að sér kveða þegar Chelsea vann öruggan sigur á Burnley á Turf Moor í gær.
fótbolti Mikið hefur breyst hjá
Ross Barkley á síðustu mánuðum.
Eftir að félagaskipti hans frá Everton
til Chelsea duttu upp fyrir haustið
2017 gekk hann loksins til liðs við
Lundúnaliðið í byrjun þessa árs.
Barkley lék ekkert með Everton
fyrri hluta síðasta tímabils og aðeins
tvo leiki með Chelsea í ensku úrvals-
deildinni seinni hluta tímabilsins.
Barkley glímdi við erfið meiðsli í
hásin og kom lítið við sögu hjá Ant-
onio Conte, þáverandi knattspyrnu-
stjóra Chelsea.
Ítalinn var rekinn í sumar og inn
kom landi hans, Maurizio Sarri.
Bankamaðurinn fyrrverandi virð-
ist hafa öllu meiri trú á Barkley en
Conte. Þótt hann sé ekki alltaf í
byrjunarliðinu hefur Barkley komið
við sögu í flestum leikjum Chelsea
á tímabilinu. Og hann spilar alltaf
betur og betur.
Barkley hefur skorað í síðustu
þremur leikjum Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni. Í 0-3 útisigrinum
á Southampton í 8. umferðinni
skoraði hann eitt mark og lagði
upp annað. Það var jafnframt hans
fyrsta mark fyrir Chelsea. Barkley
kom inn á sem varamaður í leiknum
gegn Manchester United á Stamford
Bridge um síðustu helgi og skoraði
jöfnunarmark Chelsea þegar sex
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma.
Barkley fór svo mikinn þegar
Chelsea vann Jóhann Berg Guð-
mundsson og félaga hans í Burnley
á Turf Moor í gær, 0-4. Eden Hazard
var fjarri góðu gamni vegna meiðsla
en það breytti litlu. Barkley lagði
fyrsta mark leiksins upp fyrir Álvaro
Morata sem hefur legið undir mikilli
gagnrýni fyrir frammistöðu sína á
tímabilinu.
Staðan var 0-1 í hálfleik. Á 57.
mínútu bætti Barkley öðru marki
Chelsea við og fimm mínútum síðar
Leikmaður helgarinnar
Callum Wilson skoraði tvívegis þegar Bournemouth vann 0-3 útisigur
á Fulham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Suðurstrandarstrákarnir hafa byrjað tímabilið af
miklum krafti og sitja í 6. sæti deildarinnar með
20 stig eftir tíu umferðir.
Wilson hefur verið mjög öflugur í upphafi
tímabils. Hann hefur leikið alla tíu deildarleiki
Bournemouth, skorað fimm mörk og gefið
fjórar stoðsendingar. Hann hefur komið
með beinum hætti að níu af 19 mörkum
Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni.
Wilson, sem er 26 ára, hefur verið
gríðarlega óheppinn með meiðsli en
hann hefur tvívegis slitið krossband í
hné síðan Bournemouth byrjaði að spila
í ensku úrvalsdeildinni 2015. Núna er
hann hins vegar heill heilsu, spilar vel og
því er spáð að hann fái tækifæri í enska
landsliðinu áður en langt um líður. – iþs
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Crystal Palace
stöðvaði sigurgöngu
Arsenal þegar liðin
gerðu 2-2 jafntefli á
Selhurst Park. Fyrir
leikinn hafði Arsenal
unnið ellefu leiki í röð. Luka Mili-
vojevic skoraði bæði mörk Palace
úr vítaspyrnum. Hann jafnaði í 2-2
sjö mínútum fyrir leikslok.
Hvað kom á óvart?
Hinn ólseigi Glenn
Murray skoraði eina
mark leiksins þegar
Brighton tók á móti
Wolves. Þetta var
þriðji 1-0 sigur Brigh-
ton í röð en liðið er komið upp í
11. sæti deildarinnar. Úlfarnir hafa
hins vegar tapað tveimur leikjum
í röð.
Mestu vonbrigðin
Fulham er í tómu
tjóni og um helgina
tapaði liðið 0-3
fyrir Bournemouth.
Fulham hefur fengið
á sig flest mörk allra í
ensku úrvalsdeildinni, eða 27 í tíu
leikjum. Slavisa Jokanovic þykir
vera orðinn valtur í sessi í starfi
stjóra nýliðanna.
Álvaro Morata fagnar með Ross Barkley. Þeir skoruðu báðir í stórsigri Chelsea á Burnley, 0-4, á Turf Moor í gær. NoRdiCPHoToS/GETTy
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum á Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Skoraði mark Everton í
2-1 tapi fyrir Manchester
United. Þetta var hans fimmta
deildarmark á tímabilinu.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Var í byrjunarliði Cardiff
og lék fyrstu 73 mínút-
urnar í tapi fyrir Liverpool.
Reading
Jón daði Böðvarsson
Kom inn á sem vara-
maður á 64. mínútu þegar
Reading tapaði 2-0 fyrir Swansea.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Fór meiddur af velli
skömmu fyrir hálfleik í 1-0
tapi Aston Villa fyrir QPR.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Lék allan tímann þegar
Burnley steinlá fyrir Chel-
sea, 0-4. Burnley hefur
tapað tveimur leikjum í röð.
lagði hann þriðja mark liðsins upp
fyrir Willian. Ruben Loftus-Cheek
rak svo síðasta naglann í kistu
Burnley þegar hann skoraði fjórða
mark Chelsea í uppbótartíma og
tryggði liðinu sinn stærsta sigur á
Turf Moor frá upphafi. Loftus-Cheek
skoraði þrennu í 3-1 sigri Chelsea á
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r16 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
5
-8
C
E
C
2
1
3
5
-8
B
B
0
2
1
3
5
-8
A
7
4
2
1
3
5
-8
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K