Fréttablaðið - 29.10.2018, Qupperneq 37
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
TUDOR
alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur.
Er bíllinn tilbúinn
fyrir kuldann í vetur?
Hr
aðþ
jónusta
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um.
Fimleikar Sonja Margrét Ólafs-
dóttir stimplaði sig heldur betur
inn á sínu fyrsta heimsmeistaramóti
í áhaldafimleikum.
Í undanúrslitunum á HM í Doha
í Katar á laugardaginn framkvæmdi
hún æfingu sem hefur ekki áður
verið framkvæmd á stórmóti í fim-
leikum.
Eins og venjan er þegar slíkt gerist
fékk Sonja æfinguna nefnda eftir
sér. Í dómarabókinni heitir þessi
æfing núna Ólafsdóttir. Einn annar
keppandi afrekaði þetta í fyrradag;
Simone Biles, sennilega skærasta
stjarna fimleikaheimsins.
„Þetta var æðisleg tilfinning, bara
einstök,“ sagði Sonja eftir undanúr-
slitin á laugardaginn.
„Það var frábært að fara niður af
pallinum eftir að hafa lent stökk-
inu og sjá stelpurnar svo glaðar og
fá knús.“
Sonja segist hafa undirbúið æfing-
una í dágóðan tíma.
„Já, samt ekkert rosalega lengi.
Eða jú,“ sagði Sonja og hló. „Ég var
stressuð í heilan dag en ég á ekki að
vera það því í 99% tilvika negli ég
þetta stökk. Ég var byrjuð að efast
um mig sem ég þurfti ekki að gera
því ég lenti þessu fullkomlega á
mótinu,“ bætti hún við.
Sonja var einn þriggja nýliða í
íslenska kvennaliðinu ásamt Mar-
gréti Leu Kristinsdóttur og Thelmu
Aðalsteinsdóttur. Auk þeirra voru
Agnes Suto og Dominiqua Alma
Belányi í kvennaliðinu. Ísland átti
síðast lið á HM í áhaldafimleikum í
Árósum í Danmörku fyrir tólf árum.
Ísland hafnaði í 19. sæti í liða-
keppninni með samtals 137.629 stig
og komst ekki áfram í úrslit.
Agnes náði bestum árangri
íslensku keppendanna í fjölþraut.
Hún fékk 46.765 stig og endaði í
52. sæti. Thelma varð í 61. sæti með
45.332 stig og Sonja í 78. sæti með
42.864 stig. Áðurnefnd Biles varð
efst með 60.965 stig. Hún þurfti
að leggjast inn á sjúkrahús vegna
nýrnasteina fyrir undanúrslitin en
lét það ekki á sig fá.
ingvithor@frettabladid.is
Sonja fékk stökk nefnt eftir sér
Fimleikakonan unga og efnilega Sonja Margrét Ólafsdóttir á núna æfingu nefnda eftir sér. Hún framkvæmdi
hana í fyrsta sinn, og fyrst allra, á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í Doha í Katar á laugardaginn.
Íslenska kvennaliðið eftir undanúrslitin á heimsmeistaramótinu á laugardaginn. Mynd/FiMleikasaMband Íslands
luis suárez fagnar einu þriggja
marka sinna gegn Real Madrid.
noRdicphotos/Getty
Þrenna Suárez
í El Clásico
Fótbolti Nýbakaði faðirinn Luis
Suárez skoraði þrennu þegar Barce-
lona rúllaði yfir Real Madrid, 5-1,
í El Clásico í gær. Lionel Messi lék
ekki með Barcelona vegna meiðsla
en Suárez sá til þess að hans var ekki
saknað. Barcelona hefur nú leikið 42
deildarleiki á Nývangi í röð án þess
að tapa.
Philippe Coutinho kom Barce-
lona yfir á 11. mínútu og eftir hálf-
tíma leik bætti Suárez öðru marki
við úr vítaspyrnu. Marcelo minnk-
aði muninn í upphafi seinni hálf-
leiks en Börsungar skoruðu þrjú
síðustu mörk leiksins; Suárez tvö
og Arturo Vidal eitt.
Real Madrid hefur ekki unnið í
fimm deildarleikjum og nær öruggt
er að Julen Lopetegui verði rekinn
út starfi knattspyrnustjóra Evr-
ópumeistaranna. Antonio Conte
þykir líklegastur til að taka við Real
Madrid. – iþs
Ég var byrjuð að
efast um mig sem ég
þurfti ekki að gera því ég
lenti þessu fullkomlega.
Sonja Margrét Ólafsdóttir
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ða b l a 17m Á N U D a G U r 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
3
5
-8
3
0
C
2
1
3
5
-8
1
D
0
2
1
3
5
-8
0
9
4
2
1
3
5
-7
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K